
Kraftaheimar þakkar hinum fjölmörgu og dyggu lesendum vefsins nær og fjær fyrir gamla árið og óskar þeim gæfuríks nýs árs og góðs gengis í lífi og leik… og í hinni raunverulegu alvöru : KRAFTASTÚSSINU….
Archive for December, 2007
Kraftaheimar þakkar hinum fjölmörgu og dyggu lesendum vefsins nær og fjær fyrir gamla árið og óskar þeim gæfuríks nýs árs og góðs gengis í lífi og leik… og í hinni raunverulegu alvöru : KRAFTASTÚSSINU…. Stefán Eiríksson lögreglustjóri tv. og Óskar Sigurpálsson formaður Lögreglufélags Reykjavíkur ræða saman kjaramál án þess að handtaka hvorn annan….. Gamla lyftinga og páverkempan Óskar Sigurpálsson eða óld Sker eins og hann er stundum kallaður meðfram Skarar nafngiftinni hefur verið í eldlínu heimsfréttanna á klakanum síðustu daga. Skörin fer þar skörulega fyrir kröfum hinnar almennu löggu um bætt starfsumhverfi í baráttunni gegn krimmunum og hinum almenna borgara og skríl sem er stöðugt að lemja varnarlausar löggur hér og þar á landinu. Betri launakjör eru einnig á listanum og sterkari handjárn og almennilegar rafbyssur sem geta dúndrað lýðnum upp á Esju ef þörf krefur..Einnig er skortur á reyndum löggum sem geta höndlað fagmannlega miðbæjarskrílinn um helgar sem mígur út um allt af víni sem ríkið hefur selt almenningi á okurprís til að hægt sé að halda uppi lögum og reglu á vígaslóðum borgarinnar… Einnig er skortur á svörtum lambúshettum svo krimmarnir geti falið andlit sín betur við yfirheyrslur á stöðinni og í réttarsal….Það er ekki amalegt fyrir löggurnar í borginni að hafa svona öflugan harðjaxl sem Skörina í sínum hópi til að berjast fyrir þessum sjálfsögðu réttindamálum…. Benedikt Magnússon Þær fréttir voru að berast í hús að Benni tarfur muni á morgun sunnudag ganga í það heilaga með sinni heittelskuðu kraftamey Gemmu Taylor frá Bretlandseyjum…Parið er nú statt á klakanum þar sem athöfnin mun fara fram. Vér Kraftaheimamenn höfum ekki fengið boð um að vera viðstaddir þennan viðburð en óskum væntanlegum brúðhjónum góðs gengis í kirkjunni og munum síðar birta brúðkaupsmynd ef okkur berst hún.
Gemma Taylor - daman sem krækt hefur í sjálfan Benna tarf Á dögunum fór ég til Flórída og gat notað tækifærið til að æfa með Brian Schwab, margföldum heimsmeistara í páver í 67,5kg flokki sem er að vinna í því að þyngja sig upp í 75kg flokk. Bestu tölur hjá honum í 67,5kg flokki eru 330kg hnébeygja, 240kg á bekk og 275kg dedd auk þyngsta tótals allra tíma í 67,5kg flokki, 840kg. Í 75kg flokki hefur hann beygt 357,5kg, tekið 272,5kg á bekk og deddað 285kg og tekið 875kg total. Á næstunni ætlar hann að taka 270kg á bekk í 67,5kg flokki og bæta sig í total í báðum flokkum.
Brian Schwab Á fyrstu æfingunni hjá honum mætti ég þarna um hálfþrjúleytið á laugardegi, en páverhópurinn í gymminu hjá honum tekur þungan bekk saman á laugardögum til svona 6-7 og fer svo á barinn. Ágætis fyrirkomulag hjá þeim. Við biðum þar til allur hópurinn var mættur og fórum svo að hita upp. Menn stukku inn á milli þegar þeir komust á bekkinn og fylgdust með þyngdunum til að vera á réttu róli með að byrja að pressa af búkka eða í slopp. Síðasta upphitunarsettið hjá mér var 125kg á bekknum áður en ég fór í slopp. Þeir leggja mjög mikið upp úr því að maður komi sér fyrir með góðri spennu með því að færa sig langt upp á bekknum, planta fótunum, svo rassinum og svo pressa þeir axlirnar eins nálægt rassinum og hægt er þegar þeir slaka þeim niður og koma sér þar fyrir til að ná alveg hrikalegri fettu. Fylgist með þessu í 300kg videoinu hjá Schwab. Svo klæddu Jo Jordan og Brian mig í sloppinn og lögðu mikla áherslu á að ná að toga hálsmálið eins langt niður á brjóstið og mögulegt er. Svo þegar maður fór að pressa réttu þeir á mann og lögðu áherslu á að maður spennti brjóstið og magann út og herðablöðin saman áður en maður hóf lyftuna. Fyrsta hreyfing í lyftunni var síðan ekki að beygja olnbogana, heldur að ýta stönginni í átt að naflanum, en hafa samt stjórn á henni. Þannig fór maður alla leið niður á búkkann, og átti svo að hefja lyftuna aftur með því að ýta í átt að andlitinu, ekki með því að pressa beint upp. Þannig hélt maður lyftunni í réttu ferli.
Brian leggur áherslu á þrennt á þunga bekkpressudeginum. Númer eitt er hreyfing sem er mjög lík keppnispressu. Það er alltaf einhvers konar pressa í slopp niður á búkka eða brjóst. Númer tvö er æfing til að æfa síðasta hluta lyftunnar, pressa af öryggispinnunum í páverbúri þar sem lyftan er aðeins 10-15cm með yfirþyngdir 3-6reps. Síðan tekur hann pressu liggjandi á gólfinu til að styrkja startið 3-6reps. Eftir það eru kannski gerð 3-4sett af smá baki eða bicep, enda menn oftast alveg búnir eftir fyrstu þrjár æfingarnar. Létti dagurinn byggir á búkkapressu á kjötinu upp í 3rep max og svo tvö auka vinnusett með 3reps. Eftir það er tekinn tricep með handlóðum og sérstök tricep pressa í smith vél, auk sitjandi hliðarlyfta fyrir axlir og framlyftu með stöng fyrir axlir. Eftir það eru tekin nokkur sett af togi fyrir bak. Inn á milli upphitunarsetta í fyrstu æfingu á bæði þunga og létta deginum tekur hann líka alltaf endurhæfingaræfingar fyrir axlirnar til að vinna gegn meiðslum, enda hefur hann verið meiðslafrír í þó nokkurn tíma (7, 9, 13). Hann þakkar það því að sleppa þeim æfingum sem valda sársauka og finnur í staðinn aðrar leiðir til að þjálfa vöðvana. Siðan tekur hann bakið vel á fótaæfingum, þannig að hann tekur einhver sett fyrir bak á hverjum æfingadegi. Sem sagt, aðalleiðin að því að taka hrikalegar þyngdir á bekk er að þekkja sloppinn út og inn og að forðast meiðsli með útpældum æfingum. Fyrir þá sem vilja fá æfingarnar sett fyrir sett, þá má finna nánari lýsingu á æfingunum hjá mér úti hér. Ég og Brian, 160cm léttmoli! Þegar ég kom á fyrstu æfinguna til þeirra, þá færði ég þeim Íslenskt brennivín, og eftir það áttu þeir í mér hvert bein. Þetta eru bætingahungraðir strákar sem halda hvorum öðrum vel við efnið, og samvinnan hefur skilað þeim góðum bætingum, annar 75kg gutti er búinn að taka 230kg á bekk, einn í 110kg flokki er að narta í 300kg og nokkrir í viðbót eru á bilinu 240-260kg. Hér eru nokkur video af æfingunum: Fjölnir, 185kg af þreföldum búkka Brian Schwab, 300kg af fjörföldum búkka Jo Jordan, 300kg af tvöföldum búkka Því miður náðist hins vegar ekki video af bætingunni sem ég tók í sloppnum þarna úti, 165kg! En það er allt í lagi. Þeir sem mæta 19.jan fá að sjá mig taka það þar, og meira til! Á heildina litið var þetta mjög fín ferð. Við kíktum í skemmtigarða og verslunarmiðstöðvar og nutum lífsins, og æfingarnar voru auðvitað alger toppur. Því miður gafst þó ekki tími til að kíkja í grill hjá Hæjasinum en ég geri ráð fyrir að kíkja til hans næst þegar ég kíki út.
Kraftaheimar óska lesendum vefsins Gleðilegra Jóla og gæfuríks nýs árs. Megi ykkur farnast vel í æfingasalnum aumingjarnir ykkar og takið nú almennilega á því á nýja árinu og bætið ykkur sem mest á flestum sviðum…Jólasveinninn biður að heilsa….
Jólasveinninn gleður alla… MINNINGARORÐ - Gústaf Agnarsson (1952-2007)
Þegar við Gústi byrjuðum að æfa lyftingar snemma árs 1970 þá hvarflaði aldrei að manni að árutugum síðar myndi ég pára nokkur minningarorð um hann. Svona er þetta, enginn veit sinn náttstað. Eins og skáldið Sigurður
Breiðfjörð orðaði það:
Sínum eigin örlögum
enginn ráðið getur. Ég er líka í efa um að það fari betur. Það er ljóst að með fráfalli Gústafs Agnarssonar er horfinn á braut mikil íþróttaahetja sem verður fyrst og fremst minnst fyrir afrek í lyftingum en einnig í kraftlyftingum og frjálsíþróttum.
Ég minnist þess að þegar við Gústi vorum að spreyta okkur í gamla Ármannskofanum við Sigtún undir leiðsögn Gvendar Sig. og Óskar Sigurpálss. þá vorum við báðir næsta grannir. Gústi var hávaxinn en aðeins um 72kg að þyngd en ég var lítill og léttur um 49kg að þyngd.Báðir áttum við eftir að þyngjast vel um 35-40kg. Munurinn var sá að Gústi gerði það á 2-3 árum en ég á 37 árum!. Gústi tók lyftingarnar snemma föstum tökum bæði vitsmunalega og æfingalega. Hann æfði gífurlega vel og skipulega,eitthvað sem ég spáði ekki í fyrr en 8-9 árum síðar. Gústi varð gífurlega góður sem unglingur í lyftingum og 19 ára fór hann að bæta Íslandsmet Óskars Sigurpálssonar sem vakti mikla athygli hér á landi. Í framhaldinu varð hann síðan Norðurlandameistari unglinga í þungavigt 1972 en þá snaraði hann 140kg og jafnhenti 167,5kg. Hann snaraði einu sinni yfir heimsmeti unglinga 160,5kg en fékk það ekki staðfest vegna reglubreytinga.Gústi varð einnig tvisvar Norðurlandameistari fullorðinna og á öðru þessara móta gerði hann sér lítið fyrir og páverklíndi (í einum rykk upp á brjóst) heil 200kg! en aldrei hafði slíkt sést á Norðurlöndum og víðar. Gústi var einnig valinn í Evrópu úrval lyftingamanna,einn Norðurlandabúa sem þótti mikil upphefð og var hann oft á lista yfir 10 bestu íþróttamenn Íslands. Bestu þyngdir Gústa í keppni voru 170 í snörun og 210kg í jafnhendingu. Hvorutveggja Íslandsmet og enn það mesta sem nokkur íslendingur hefur lyft í þessum greinum og reyndar enginn nálgast það. Gústi varð margoft Íslandsmeistari í lyftingum og kraftlyftingum. Hann og Óskar Sigurpálsson eru þeir einu sem hafa verið sterkastir manna hér á landi í einstakri grein beggja íþróttanna. Árið 1975 lyfti Gústi sérlega glæsilega 315kg Íslandsmeti í réttstöðulyftu á Meistaramóti KR og varð það mönnum eftirminnilegt.
Íþróttaferill Gústa náði einnig til frjálsíþrótta þar sem hann varð um árabil ósigrandi í langstökki án atrennu og endaði Íslandsmeta feril sinn þar með stökki upp á 3,44 m. Það met stóð í mörg ár þar til annar lyftinga og kraftlyftingakappi Flosi Jónsson bætti það í 3,45 m. og stendur það enn óhaggað. Þegar íþróttaferli Gústa lauk 1980 fór hann að reka þekkta Likamsræktarstöð í Kjörgarði með góðvini sínum Gvendi Sig. Þeir vinirnir voru miklir hugsuðir á ýmsum andlegum sviðum og studdi Gvendur Gústa mikið á lífsleiðinni,jafnt á meðan keppnisferlinum stóð og eftir hann eins og hann hefur gert við undirritaðan og verður það seint fullþakkað.
Þeir sem ætla að fá keppnisútbúnað frá Finnunum þegar þeir koma, þurfa að drífa sig í mælingu niðrí Silfursporti til að hægt sé að panta útbúnaðinn. Hér er hægt að sjá hvaða útbúnað er hægt að panta, sloppa og brækur. Þetta er ótrúlegt tækifæri til að láta panta á sig útbúnað og sérsníða hann svo þegar hönnuðurinn kemur til landsins, þannig að ekki láta þetta fram hjá ykkur fara! Drífið ykkur niður í Silfursport, látið mæla ykkur og pantið!
Læknisfræðileg bekkpressa Fjölli aðstoðarritstjóri náði markmiði sínu á síðustu páveræfingunni í USA í gær…Hann kveinaði fyrst heilmikið yfir því hvað hann væri illa upplagður (svona til öryggis ef allt færi til fjandans!) en kanarnir tróðu honum þá bara í slopp og skipuðu honum að taka á því í bekknum…Að lokum var engin udankomuleið í guðsgreininni…Bæting var komin á stöngina 165kg…(persónulegt 160 á æfingu í Silfrinu)…Tæknifræðin og aflið brást hinsvegar tvisvar sinnum!!..Þá sögðu kanarnir: “Hvort ertu ísmús eða ísmaður?” -Eigum við að segja afkomendum okkar að með okkur hafi æft hálfbráðnaður snjókall frá Íslandi?”….Þetta þoldi Tvisterinn ekki og lagði til atlögu við bætinguna í þriðja sinn..og flestum á óvart hafði hann þyngdina í brjálaðri lyftu! Og endurreiknað úr pundum í kíló var þyngdin meira að segja 165,5kg!…Flott þetta!…Það verða kröfur á 170 á Íslandsmóti ÍKF METAL 19 janúar!!…Gleymið ekki þeim degi!! |