Archive for November, 2007

Undirbúningur Versins fyrir páverveturinn gengur eftir áætlun og í gær tók hann Skyra Fúsdal á beygjulista Silfursports þegar hann beygði 300×2…og átti inni…Kappinn hefur nú farið í 2-3 hnjáaðgerðir í gegnum tíðina svo hann fer sér að engu óðslega því hans tími kemur…aftur! Verið er nú á fullu í undirbúningi fyrir stofnun hins nýja kraftlyftingafélags/sambands ásamt þeim Jóhönnu silfurskottu og Magister ofl. en formlegur stofndagur verður auglýstur fljótlega, Það félag verður jákvæð tímamót fyrir páverinn í landinu einmitt núna þegar þarf að gera eitthvað, þegar KRAFT er byrjað að deyja drottni sínum undir klíkustjórn, launráðum og Júdasar-heilkennum….

Share on Facebook

Comments No Comments »

Hermann Hermannsson

Hemmi málari varð stigahæstur á Íslandsmóti KRAFT í réttstöðulyftu um síðustu helgi. Hann varð jafnframt meistari í 90kg flokknum með persónulegu bætinguna 307,5kg. Hemmi sigraði einnig tvöfalt á þessu móti í fyrra en þá tók hann 302,5kg. (Myndina hér fyrir ofan tók Sleifur á mótinu 2005 þegar Hemmi varð að sættast á silfrið í baráttu við Jón bónda) Kappinn varð fyrst réttstöðumeistari árið 2002 en þá tók hann 275kg í 90kg flokki.Síðan vann hann gull á mótunum 2003 og 2004 og tók 300kg á báðum mótunum í 100kg flokki… Bætingarnar hafa komið hægt síðan þá en koma samt!

Share on Facebook

Comments No Comments »

Hermann Haraldsson

Þeir fóstbræður úr eyjum Hemmi Haralds og Jóhann Gíslason mættu í Silfrið í vikunni með bysepinn spenntan á bekkæfingu dagsins þar sem þeir repsuðu tilveruréttinn á kjötinu. Þeir félagar hafa verið virkir keppnismenn meira og minna frá því á áttunda áratug síðustu aldar en þeir byrjuðu kornungir að lyfta og keppti t.d. Jói í bæjakeppni á milli Akureyrar og Vestmannaeyja árið 1978 eða 1979….Allt kraftastúss hefur nú lognast útaf í eyjum og þeir fóstbræður löngu flúnir í menninguna á fastalandinu. Hemmi hefur fyrir utan lyftingar og páver keppt nokkrum sinnum í kreppunni. Báðir eiga þeir yfir 200 á bekk. Hemmi 205 í 100kg flokki og Jói 202,5kg í 125kg flokki. Þessum þyngdum náðu þeir fyrst þegar þeir urðu öldungar sem sýnir að þolinmæði og þrautseigja er það sem gildir…

Vestmannaeyjar

Share on Facebook

Comments No Comments »

Svavar Már Einarsson

Bikarmót IFBB í vaxtarrækt fór fram um síðustu helgi. Heildarsigurvegari í karlaflokki varð Ísfirðingurinn Svavar M Einarsson fyrrverandi páver og aflraunamaður. Hann vann til margra verðlauna í þeim íþróttum á sínum tíma og varð t.d. Íslandsmeistari í 110kg flokki í pávernum árið 1999 með tölurnar: 330-195-315-840kg. Í kreppumótinu núna urðu allir sammála að Svavar hefði haft nokkra yfirburði yfir þann sem varð í öðru sæti en það var gamla kempan Siggi Gests hnútur sem enn er í fremstu röð hér á landi þrátt fyrir háan aldur. Kraftaheimar óska Tanknum til hamingju með þennan glæsilega sigur!…Við minnum á skemmtilega sögu af kappanum hér á vefnum sem heitir HÆTTULEGUR ÆFINGAANDI - HÉRNA

Share on Facebook

Comments No Comments »

Bráðlega dettur inn á síðuna viðtal við Stefán Sölva Pétursson, sem einnig er þekktur sem Stebbi Stórskjóða!  Stefán var lengi vel talinn einn efnilegasti aflraunamaður landsins, en eftir IFSA heimsmeistarakeppnina hér á klakanum 2006 voru flestir búnir að átta sig á því að hann er miklu meira en efnilegur!  Drengurinn er hreinlega orðinn aflraunamaður á heimsmælikvarða sem hefði velgt Virastyuk, Koklyaev og Savickas undir uggum á heimsmeistarakeppninni 2007 ef ekki væri fyrir slæm meiðsl á bicep í vor.  Stórskjóðan er þó óðum að ná sér og kemur betur í ljós í viðtalinu hvernig formið á honum er og hvert hann stefnir í framtíðinni!

Share on Facebook

Comments No Comments »

Til að komast á listann þarf ritstjórn kraftaheima (Magister, Tvister), Ingvar Frískleikakonungur eða Valdi Borgarnesbolla að vera vitni að lyftunni og miðast listinn við lyftara sem æfa reglulega í Silfursporti. Framkvæmd lyftu miðar við kraftlyftingareglur sem má finna á heimasíðu KRAFT
Leyfilegt er að nota stálbrækur og vafninga í beygju og deddi en bekkinn höfum við með og án stáls.

Þar til 20 manns eru komnir á lista í hverri grein eru lágmörk eftirfarandi:

Hnébeygja: 170kg

Bekkpressa: 120kg/150kg í slopp

Réttstöðulyfta: 200kg


HNÉBEYGJA


Nr. Nafn Vigt Reps Dagsetning
1. Big Ben 310.0 3 20.11.2007
2. Skyrfús Fossdal 300.0 1 15.10.2007
3. Valdi Borgarnesbolla 290.0 1 31.10.2007
4. Magnús Ver 270.0 3 16.11.2007
5. Grétar Sigþórsson 230.0 3 21.9.2007
6. Frikki Fríski 200.0 1 23.10.2007
7. Svavar Hlöllahlúnkur 190.0 2 4.9.2007
8. Kári Elíson 190.0 1 28.9.2007
9. Helgi Briem 170.0 1 17.10.2007

BEKKPRESSA


Nr. Nafn Vigt Reps Dagsetning
1. Magnús Ver 230.0 1 13.11.2007
2. Big Ben 225.0 1 17.9.2007
3. Skyrfús Fossdal 220.0 1 12.11.2007
4. Ingvar Frískleikakonungur 210.0 1 17.9.2007
5. Valdi Borgarnesbolla 202.5 1 13.11.2007
6. Gaui Fjel 180.0 1 8.10.2007
7. Svavar Hlöllahlúnkur 180.0 1 8.10.2007
8. Palli Fermeter 180.0 1 9.11.2007
9. Ísleifur Sleifmaster 170.0 3 17.9.2007
10. Árni Gestsson 160.0 1 3.9.2007
11. Alfreð Björnsson 155.0 1 13.8.2007
12. Grétar Sigþórsson 150.0 1 15.10.2007
13. Heimir (Lilli) 150.0 1 26.10.2007
14. Frikki Fríski 130.0 1 17.9.2007
15. Fjölnir Teygjutvister 130.0 1 9.11.2007
16. Kári Elíson 130.0 1 16.11.2007
17. Biggi Júdó 125.0 1 29.10.2007
20. Helgi Hauks Kamelljón 122.5 1 12.11.2007
19. Þór Þormar 120.0 5 26.9.2007
20. Haukur Már Sveinsson 120.0 1 3.9.2007
20. Helgi Briem 120.0 1 7.11.2007

RÉTTSTÖÐULYFTA


Nr. Nafn Vigt Reps Dagsetning
1. Magnús Ver 340.0 1 22.11.2007
2. Skyrfús Fossdal 320.0 1 9.11.2007
3. Valdi Borgarnesbolla 300.0 1 8.11.2007
4. Big Ben 290.0 1 20.11.2007
5. Eggert Samúelsson 265.0 1 7.11.2007
6. Kári Elíson 260.0 1 12.10.2007
7. Ingvar Frískleikakonungur 250.0 1 24.10.2007
8. Helgi Briem 225.0 1 9.11.2007
9. Frikki Fríski 210.0 1 17.11.2007

BEKKPRESSA Í SLOPP



Nr. Nafn Vigt Reps Dagsetning
1. Svavar Hlöllahlúnkur 205.0 1 19.10.2007
2. Frikki Fríski 165.0 1 22.10.2007
3. Fjölnir Teygjutvister 160.0 1 16.9.2007

Munið að láta vita áður en þið farið í lyftur sem þið viljið sjá á listanum þannig að við getum fylgst með og staðfest lyfturnar! Þegar við getum reynum við líka að taka video af lyftunum (þá er hægt að blikka á þyngdina og sjá lyftuna). Nýjar lyftur á lista eru feitletraðar.
kv. Listastjóri!

Share on Facebook

Comments No Comments »

Fréttastofunni barst mynd af alveg yfirgengilegum bicep á dögunum.

Nú er spurningin hversu glöggir lesendur kraftaheima eru… Hvaða Íslendingur á þennan hrikalega handlegg?

Share on Facebook

Comments No Comments »

Ari Trausti Guðmundsson

Í Fréttablaðinu í gær er grein um þennan kunna fjallagarp og jarðeðlisfræðing sem varð fyrst frægur með þjóðinni sem veðurfræðingur í sjónvarpi. Í Fréttablaðs greininni kemur fram að Ari Trausti hefur lyft lóðum sér til heilsubótar í 25 ár. Starfsþrek hans sem og allt líkamlegt atgjörfi hefur aukist verulega með lóðaþjálfuninni. Hann æfir að meðaltali tvisvar-þrisvar sinnum í viku í Silfursporti. Félagsskapurinn finnst honum góður og telur Ari að það sé jafnt nytsamlegt að lyfta og að borða…Kappinn stefnir að góðu fjallaklifri á næsta ári og ætlar þá að fást við eitthvað hrikalegt fjall sem verðuga áskorun…

Share on Facebook

Comments No Comments »