Ingvar Ingvarsson “ringo” var hrikalegur
Minningarmótið um Ólaf Sigurgeirsson fór fram í dag og voru nokkur Íslandsmet á kjötinu sett í bekkpressu. Ingvar ringo sigraði í 110kg flokki og setti nýtt Íslandsmet á kjötinu (án útbúnaðar) með því að taka 215kg. Þetta nægði honum til að vinna stigabikar mótsins en helsti keppinautur Ingvars um stigabikarinn Jón B Reynisson varð naumlega annar en hann sigraði í súpernum með 225kg en Benni rétt missti 230kg í sinni síðustu tilraun en áhorfendur höfðu sérlega gaman af því að sjá þessa hrikalegu breiðsíðu birtast á sviðinu. Heiðar Geirmundsson varð annar í súper með 200kg og Skyri Fossdal þriðji með 190kg og Big G fjórði með 170kg. 125kg flokkinn vann tvíburaturninn Guðjón Hafliðason með 160kg en þetta var hans fyrsta mót. Ingvar Andri Egilson setti Íslandsmet í 75kg flokknum þegar hann sigraði með 115kg lyftu sem var glettileg. 4 konur mættu til keppni og var María títla þeirra best eins og viðbúið var og setti hún Íslandsmet í 75 með því að taka 91kg en hún fór með allar lyftur í gegn og vann kvennabikarinn. Margir frægir og aldnir kappar tóku heiðurslyftu en þar mátti t.d. sjá Skúla Óskarsson,Bjarka geysi,Jón bónda, ofl. Nokkuð margir áhorfendur mættu í fremur þröngt húsnæði hjá Bifreiðum og Landbúnaðarvélum og urðu margir að hverfa frá þar sem þeir sáu ekkert hvað fram fór. Það var eiginlega það eina leiðinlega við annars vel heppnað mót með athyglisverðum kynni….
Við birtum kannski síðar myndir frá mótinu ef okkur berast þær en annars var hin undurfagra Sunna Hlín á svæðinu og hefur örugglega tekið fínar myndir sem munu birtast á vefsíðu hennar en úrslitin fara að detta inn á kraft.is heildarúrslit komin HÉRNA









Entries (RSS)