Archive for August, 2007

Síðasti móhíkaninn, Bjarki Ólafsson tekur 270 létt í réttstöðu 2004…

Hrikinn er núna eini raunverulegi molinn sem eftir er í Steve Gym…Væntanlega fáum við að sjá hann reyna við 300 í haust…

Share on Facebook

Comments No Comments »

Hinn góðkunni yfirmoli Grétar Big-G er aftur kominn á fullt í alvöru átök eftir meiðsli sem hann varð fyrir hér um árið og hafa kostað hann allskyns endurhæfingu og ævintýramennsku í kreppuna ofl. Grétar keppti um daginn á Austfjarðatröllinu og þoldi skjóðan vel öll þau hrikalegheit sem þar var boðið upp á svo núna er bara bein lína upp á við hjá kappanum…Í vikunni mætti Grétar í glæsistöðina Silfursport í Hátúni og leist vel á aðstöðuna upp á framtíðar bætingar sínar aflslega séð. Hann tók þar venjulega bekkpressu og svo öfuga hallandi bekkpressu ótal mörg sett í 8 repsum. Þetta er nokkuð góð öðruvísi æfing en á myndinni hér fyrir neðan má sjá svona bekk mönnum til þróunar og lærdóms.

Share on Facebook

Comments No Comments »

Könnun vefsins gefur vel til kynna að menn vilja hafa útbúnað í pávernum en vissulega mismunandi mikinn…Einn öflugur lesandi vefsins sendi okkur link á framtíðar útbúnað í pávernum en myndband um þennan háþróaða bætingar útbúnað má sjá: HÉRNA

Share on Facebook

Comments No Comments »

Georg Ögmundsson vann sinn fræknasta sigur

Keppninni um Austfjarðatröllið lauk í dag á Breiðdalsvík með sigri Orkuvers-risans Georgs Ögmundssonar eftir harða keppni við marga magnaða mola. Í öðru sæti varð Pétur Bruno Thorsteinsson sem er að verða fastur liður í efstu sætum kraftamóta hér á landi. Þriðji varð síðan Sigfús Fossdal skyrhöfðingi sem var hrikalegastur fyrri dag mótsins en náði ekki að halda út með toppsætið. Grétar Big-G hlaut fjórða sætið en sá kappi er rétt aftur að skríða í aflraunaformið…

HEILDARÚRSLIT AUSTFJARÐATRÖLLSINS URÐU ÞESSI:

1.Georg Ögmundsson             64,5 stig

2.Pétur Bruno Thorsteinsson    61,0

3.Sigfús Fossdal                      48,0

4.Grétar Guðmundsson (Big-G) 42,0

5.Grétar Sigþórsson                 40,5

6.Páll Logason                         29,5

7.Hjörtur Hjartarson                 22,5

Umfjöllun um keppnina er einnig að finna á vöðvafíkn.net og kraftamenn.is

Share on Facebook

Comments No Comments »

Hinn frægi og virti páverlyftari og kraftaþjálfari John Gamble USA var ein hrikalegasta skjóðan sem sást á HM í páver 1983 í Gautaborg. Því miður hefur fréttastofan ekki enn undir höndum mynd af kappanum en hún bjargast vonandi síðar. Sá sem skrifaði hér á vefinn undir fölsku nafni hefur því alrangt fyrir sér. Gamble keppti í 125kg flokki (124,0) og tók:382,5-245-340-967,5kg en annar varð Lars Norén Svíþjóð með: 370-200-320-890 en Norén var þarna kornungur nýlega hættur í lyftingum. Það sem svo síðar gerðist var að Gamble féll á lyfjaprófi og var þurrkaður út af úrslitaskrám og þess vegna ef menn fletta upp mótinu núna sést nafn hans ekki.

Lesa má um kappann á alfræðisíðunni wikipedia: HÉRNA

Share on Facebook

Comments No Comments »

-”Ég veit að þú átt eftir að verða hrikalegri köttur en menn búast við…En núna hef ég mestar áhyggjur af þessu kílói sem ég er of þungur…!”

(ljósm.Stebbi spjóti)

Share on Facebook

Comments No Comments »

-”Hann er ekki fæddur enn sem tekur af mér deddmetið Kári!”…

(ljósm.Gunni master Íslandsmót í réttstöðu 2004)

Share on Facebook

Comments No Comments »

Austfjarðatröllið 2007, keppni sterkustu manna landsins fer fram dagana 16 til 18 Ágúst og fer hún fram víðsvegar um Austurland.

Flest allir helstu aflraunamenn landsins  etja þar kappi við 11 hrikalegar aflraunir og við hverja aðra.

Hugsanlegt er að erlendir keppendur mæti einnig eins og í fyrra, það hefur spurst erlendis meðal keppnismanna að þetta sé eitt skemmtilegasta mót ársins.

Í sjónvarpsþættinum sem gerður verður um keppnina,  er fléttað saman við aflraunirnar, hrikalegri náttúru , sögu og lífi staðanna sem farið er á.

Er ætlunin að vinna þetta mót í svipuðum stíl og gert var í fyrra og tókst með eindæmum vel.

Í fyrra varð mótið svo stórt og viðamikið að við urðum að skipta því upp í tvö mót Austurlandströllið og Austfjarðatröllið.

En í á vill RÚV fá eitt stórt mót undir nafni Austfjarðatröllsins.

Fimmtudagur 16 Ágúst

Kl 12  Vopnafjörður                        Öxull upp fyrir höfuð

Vopnafjörður                         Réttstöðulyfta

Kl 17   Borgarfjörður eystri            Alfasteins hellan

Föstudagur 17 Ágúst

Kl 14  Egilstaðir                              Trukkadráttur

Egilstaðir                             Uxaganga

Kl 17  Seyðisfjörður                       Kastað yfir vegg

Seyðisfjörður                       Bóndaganga

Laugardagur 18 Ágúst

Kl 11  Eskifjörður         20kg Álkubb kastað vegalengd

Kl 13 Fárskrúðsfjörður      Steinar upp fyrir höfuð

Kl 16 Breiðdalsvík                            Herkulesarhald

Breiðdalsvík                                      Steinatök

Skráðir keppendur nú þegar eru

Georg Ögmundsson

Pétur Bruno

Grétar Guðmunds

Sigfús Fossdal

Hjörtur Hjartar

Páll Logason

Arnar Már

Grétar Sigtryggsson

Kristinn Ari

Virðingafyllst.

IFSA Ísland.

Félag Íslenskra Kraftamanna.

Magnús Ver Magnússon .

Share on Facebook

Comments No Comments »