
Benedikt Magnússon lyftir 128kg steini og setur nýtt Vestfjarðavíkingsmet!
Benni tarfur er með forystuna í þessari fornfrægu kraftakeppni að loknum tveimur keppnisdögum en fast á hæla honum koma þeir Goggi krani og Pétur Bruno en staðan fyrir lokaátökin í dag er þessi:
1. Benedikt Magnússon - 36stig
2. Georg Ögmundsson - 34,5stig
3. Pétur Bruno - 33,5stig
4. Sigfús Fossdal - 22,5stig
5. Hjörtur Hjartarson - 15,5stig
6. Páll Logason - 9stig
Það hefur borið til tíðinda að tveir fræknir kappar hafa þegar meiðst og orðið að hætta keppni en það eru þeir Magnús Ver og Jón Valgeir en báðir meiddust þeir við dekkjaveltu. Dekkjum klakans virðist nú vera ansi illa við kraftamenn um þessar mundir því stöðugt berast fréttir um molameiðsli í þessu sambandi. Mönnum er bent á ágæta heimasíðu IFSA OG FÍK um þessa keppni en öll úrslit í einstökum greinum má finna þar ofl.
Share on Facebook
No Comments »
Þegar Magister þurfti í byrjun vikunnar að ná í Jóa í síma til að bjarga við einhverju tæknimáli á vefnum kom hann lafmóður í símann og sagðist vera á fullu að slá blettinn heima við..Eins og kunnugt er býr hann núna stórbúi í Omegaþorpinu austur við Írafossvirkjun og hefur þar m.a. heilt einbýlishús fyrir sig sem yfir-tæknistjóri sjónvarpsstöðvarinnar. Omega söfnuðurinn er nú glettilegur því fyrir stuttu fréttist af Bubba Morthens í útsendingu undir stjórn Jóa þar sem þessi fyrrverandi lyftari og pönkari Bubbi sjálfur las landsmönnum pistilinn um guðhrætt,reyklaust og dóplaust líf og hvernig á að safna peningum…
Magister hringdi svo aftur í Jóa í gær eða fyrradag til að undirbúa heimsókn austur með Balda bekk og Vesturgötuvillu-frúnni síðar í dag…Þá kom Rakel kona hans í símann og sagðist ómögulega geta náð í kappann því hann væri úti við að slá blettinn…!….Það er bara vonandi að sumarið endist vefstjóranum til að slá alla þessa hektara….
Share on Facebook
No Comments »
Óskar Sigurpálsson jafnhendir fyrstur klakverja 200kg árið 1975
Skörin vann þetta afrek í 110kg flokki á móti í Laugardalshöllinni. Takið eftir gripi hans á stönginni en það er svonefnt glæpagrip sem löggan notar þarna en þumallinn er þá fyrir aftan stöngina. Glæpagripið notuðu sumir einnig í bekk en það hefur nú verið bannað í pávernum,þótti of hættulegt vegna slysa sem urðu þegar stöngin rúllaði úr höndunum.
Skörin er einn af okkar almestu afreksmönnum í báðum greinum þ.a.s. lyftingum og kraftlyftingum. Í lyftingum keppti hann m.a. á tvennum Olympíuleikum og setti Olympíumet í pressu 177,5kg í 110kg flokki á leikunum í Munchen 1972. Í pávernum tók Skörin góðar tölur: 340 í beygjum,192,5 á bekk (slopplaust) og setti svo Norðurlandamet í réttstöðulyftu 345 í tíunni á móti á Akureyri 1979. Einhverntíman síðar mun ritstjórinn gera Skörinni betri skil í heildstæðum þætti.
Share on Facebook
No Comments »

Fimmtíu árin gengin góð
gæddur styrk og þoli.
Traustur maður tildurs þjóð
talinn vænsti moli.
Lóðum kynntist sveinninn sá
svernuðu vöðvahnyklar.
Engin takmörk þekkti þá
þyngdirnar urðu miklar!
Til bætinga þrumu þyrstur
þykkan bysep fékk.
Tvöhundruð og fímmtíu fyrstur
fleygði upp á bekk.
Vífs á völdum leiðum
virtur um alla jörð,
Undir búknum breiðum
berjast eistun hörð…
Til sálar gæðagripur
góður til lóðapuðs,
Á bekkinn leggst hann lipur
og lyftir í átt til guðs…
Í bréfskákinni brytjar menn
býr til fléttu klára.
Gæti alveg orðið enn
eins og hundrað ára….
(KE)
Share on Facebook
No Comments »

Maggi Ver á Hondu VTX 1300.. Strongest hefur sjálfur haft meiri hestöfl en flest mótorhjól…
-
Mótorhhjólamenn hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu á klakanum en nokkrir öflugir kraftamenn geysast varlega en þó af afli um vegi landsins og þykja tilkomumiklir eins og sjá má af þessum myndum…

Kraftaklerkurinn Gunnar Sigurjónsson er hér vígalegur á “Harley Davidson” 2000…
Share on Facebook
No Comments »