
Benedikt Magnússon alltaf hrikalegur….
IFSA kraftakeppninni um titilinn Sterkasti Maður Íslands 2007 fór fram í dag í Smáralind og eftir að ýmislegt hafði gengið á stóð Benni tarfur uppi sem sigurvegari annað árið í röð. Reyndar byrjaði Stefán Sölvi stórskjóða keppnina með hrikalegum brag þegar hann vann glæsilega sigra í tveimur fyrstu greinunum sem voru Conan Mylluganga og að jafnhenda álkubba yfir haus,en þegar hann var á góðri siglingu í þriðju greininni sem var dekkjavelta með 380kg meiddist hann á handlegg þar sem trosnaði upp úr bysep og hann varð þar með að hætta keppni.

-
Benni gaf hinsvegar hvergi eftir og varð framarlega í öllum greinum og vann m.a. Herkúlesarhaldið með yfirburðum. Þessi 160kg skjóða var greinilega í flottu formi og hafði gott úthald eins og kom í ljós í síðustu grein mótsins þegar hann lyfti létt öllum fjórum steinunum allt upp í 180kg upp á háar tunnur.
Georg Ögmundsson stóð sig frábærlega
Eftir að Stebbi stórskjóða datt út var Goggi krani steinakóngur úr Orkuverinu kominn í bardaga við Benna um titilinn. Fyrir síðustu grein hafði Benni 4 stiga forskot á Gogga. Í steinatökunum fór svo Goggi á kostum og sýndi hver væri steinakóngurinn og sigraði þar og tryggði sér annað sætið í heildarkeppninni.

-
Pétur Bruno Thorsteinsson, sem deddar hér 300kg, átti góða keppni
Bruno sem var að taka þátt í sinni fyrstu kraftakeppni sýndi hörkutakta og þrátt fyrir meiðsli í hnjám kláraði hann með stæl og náði bronsinu.
Heildarúrslit koma síðar en efstu menn urðu þessir:
1.Benedikt Magnússon 41 stig
2.Georg Ögmundsson 38 =
3.Pétur Bruno Thorsteinss 31
4.Jörgen Ljungberg Svíþjóð gestur
5.Sigfús Fossdal
en í 6 og 7 urðu þeir Kristinn Ari og Hjörtur Hjartarson
-
Yfirdómari var Magnús Ver Magnússon og honum til aðstoðar hin íturvaxna Bryndís Ólafsdóttir. Líflegur kynnir var Ólafur Eyjólfsson kallaður Óli slæða í góðra mola hópi.