
-
Jón B Reynisson…Hrikalegur! ……(ljósmynd: Sunna Hlín glettileg)
-
Big Ben kom og fylgdist gaumgæfilega með átökum molanna á WPC pávermótinu um helgina. Það er aldrei að vita nema kappinn komi út úr bílskúrnum með úlfhundinn sinn og keppi í páver á árinu. Breiðsíðan eins og hann var einnig kallaður hér áður fyrr hefur gæðamassast talsvert eins og sjá má á myndinni hér fyrir ofan…
Á sama tíma og Benni breiðsíða fangaði athyglina í Smáralindinni fangaði annar Big Ben kappi athygli manna í Miami í Bandaríkjunum..Sá var heldur engin smásmíði enda var þar um að ræða yfirmáta stóran krókódíl sem ógnaði öllu lífríki í fylkinu…

Þessi Big Ben sem sagt var frá á sjónvarpsstöðinni Animal Planet er 10-11 feta langur og vigtaðist um 400kg en venjulegir krókóar eru um 200-250kg. Eftir mikinn barning var Big Ben fangaður og fluttur í einhvern þjóðgarð þar sem hann getur dundað sér við að éta aðra krókódíla sem eru að rífa kjaft og þykjast vera eitthvað…








Entries (RSS)