Menn eru misjafnir eins og þeir eru margir. Ummál og liðleiki eru til dæmis eiginleikar sem eru mjög mismunandi frá manni til manns. Sumir yfirmolar eru svo miklir um sig að þeir eiga erfitt með að sinna persónulegum þrifum á fjósinu eftir klósettferðir. Ég veit sjálfur um þunga bandaríska kraftlyftingamenn, tröll að vexti og mikla um sig sem hafa átt við þetta vandamál að stríða.
Það er mismunandi hvernig þeir leysa þetta vandamál og sjá til þess að hreinlætiskröfum almennings sé fullnægt. Þeir sem eiga góða að fá hreinlega persónulega aðstoð við að passa uppá að allt sé skínandi fínt þar sem þeir ná ekki til að þrífa sjálfir. Hinir sem ekki eiga jafn góða að nota yfirleitt græju sem kallast “bottom buddy” eins og sést á myndinni hér að neðan.

Svo er auðvitað til þriðji flokkurinn, en það eru þeir sem hreinlega láta sig litlu varða hreinlæti og bjóða upp á lykt og tilheyrandi sem fylgir lélegum þrifum.
En vonandi taka þeir sig á og fjárfesta í svona “bottom buddy”.
Hér má finna græjuna






Entries (RSS)