Viðkomandi musteri er vitanlega Kraftaheima-vefurinn í heild sinni…Góðir hlutir gerast hægt, og svoleiðis er það bara. Jói vefstjóri mallar áfram með tækniatriðin og að setja inn eldra efni. Hann er vissulega undir létt þrýstingi frá Magister ritstjóra og svo er auðvitað vinna hans sem yfir-tækniráðunautur Omega sjónvarpsstöðvarinnar og öllu því guðsvolaða rugli. Omegakrafturinn rasar því ekki um ráð fram og er jafnframt að vinna að ýmsum breytingum osfrv. Greinahöfundurin og skrifarinn Fjölnir teygjutvister er að vinna baki brotnu að einhverri svo fullkominni fræðslugrein um vöðva og hormóna jafnvægi líkamans að hún virðist ætla að enda í vísindariti Háskólans eða eitthvað áður en hann drattast með hana í ritskoðun hjá ritstjóra vorum og Magister sjálfur drollar í akademískum ljóða og bréfskákstúderingum og kemur engu í verk fyrr en seint um síðir. Svona gengur þetta…en í musteri hugsunarinnar er andinn að þróast…
Share on Facebook
Archive for January, 2007
Jan
31
2007
“Það er ekkert búið fyrr en það er búið!”Posted by johannes in Fréttir, Setning dagsins, Speki vikunar
Jón Gunnarsson Hinn kunni kappi Jón bóndi hefur löngum þótt harður á pallinum og oft lent í kröppum dansi og oftast haft sigur. Hann hefur nokkrum sinnum á páverferlinum þurft að taka tvísýna réttstöðuþyngd í lokalyftu sinni til að hljóta gullið eins og á síðustu tveimur Heimsmeistaramótum öldunga. Þegar þannig stendur á heyrist kappinn stundum segja með hörkublik í augum: “ÞAÐ ER EKKERT BÚIÐ FYRR EN ÞAÐ ER BÚIÐ!”….Síðan er togað upp á líf og dauða og gullið tekið. Gerist ekki meira töff.
Sylvester Stallone Það vill svo til að Stallone sjálfur hefur lært af Bóndanum…Í nýjustu Rocky myndinni frumsýnd 2 febr 2007 kemur einhver svertingi til Rockys og segir að hann eigi engan séns í stórbardaga myndarinnar. Rocky lítur þá á hann sérstöku augnaráði og svarar á sínu fræga bjagaða máli: “Það er ekkert búið fyrr en það er búið!” Svertinginn lætur sér fátt um finnast og hlær framan í kallinn: ” Þetta er nú einhver gamall níunda áratugs frasi!” Bóndinn og Rocky flottir þjóðsögumeistarar! Share on Facebook
Þingið fer fram á föstudag kl.19 í Íþróttamiðstöðinni Laugardal. Sjá nánari dagskrá á kraft.is Verða lágmörk sett á Íslandsmótið í bekkpressu?…MÆTIÐ ÖLL OG HAFIÐ ÁHRIF…EKKI VERA NÚLL OG NIX OG RÍFA SVO KJAFT SÍÐAR!
Ingvar Ingvarsson “ringo” Maðurinn sem bæði læknar og almættið skrifuðu upp á að væri fæddur til að vera hrikalegur sem allra lengst í þessu lífi, Ingvar ringo, hefur nú skráð sig á Íslandsmótið í bekkpressu sem fram fer laugardaginn 3 febrúar í Laugardalshöllinni. Ingvar sem fór í meiriháttar hjarta uppskurð fyrir um það bil 2 árum hefur sýnt geðveikar framfarir heilsufarslega. Kappinn bætti Íslandsmetið í 100kg flokknum á bekkpressumóti þegar hann tók 222,5kg í júlí í fyrra á Ólafsvík. Núna er hann einnig skráður í 100kg flokkinn á Íslandsmótinu og mætir þar þó nokkuð mörgum öflugum jöxlum sem hafa hug á bæði að sigra og bæta metið…Þar má t.d. nefna fyrrverandi methafa Svavar Smárason Hlöllahlúnk sem aftur er að síga í form…Einnig verður þar Brynjar Karl Guðmundsson en Binnsterinn sigraði á síðasta kjötmóti með því að taka 195kg í guðsgreininni og verður því fróðlegt að sjá hann í átökum framhaldslífsins við norðanmennina Rúnar Friðriksson fjósa og Elvar Óskarsson digurdembil en þeir eru menn getunnar og reynslunnar og eru í feikna bætingaformi langt yfir 200kg….Spennandi flokkur á Íslandsmótinu sem enginn velunnari páversins ætti að missa af… AFL OG ÞEKKING ER ALDREI BLEKKING! Share on FacebookLitla Hraun Það hefur ekki farið sérlega hátt að fangaverðir eru nú í harðvítugum kjaradeilum við ríkisvaldið. Hefur þar verið stál í stál og rimil í rimil til þessa. Fangaverðir hóta ekki bara verkfalli heldur líka að segja upp og skilja fangana eftir með lyklavöldin. Þeir krefjast þeirra sjálfsögðu réttinda að fá svipuð laun og löggurnar sem koma með fangana til þeirra. Starf varðanna er reyndar mun erfiðara þar sem þeir sitja oft og tíðum uppi með hina erfiðustu krimma í mörg herrans ár og þurfa alltaf að passa að gleyma ekki að læsa hurðunum eins og gerðist hér um árið á Skólavörðustígnum þegar allavega einn fangi labbaði sig út léttur í lundu á góðri stundu. Auk þessa þurfa verðirnir stöðugt að sannfæra fangana um það að þeim sé reyndar best borgið í steininum þegar á allt er litið eins og tekist hefur vel með t.d. Lalla Johns. Fangaverðir í verkfall eða bara hættir hljómar einkennilega,en þeir hafa sín réttindi eins og aðrir. Og það eru ekki neinar venjulegar barnfóstrur sem koma í þeirra stað. Barátta varðanna er hörð og ekki séð fyrir endann á þessu máli. Fangaverðir í bíómyndum eru oft bölvaðir fantar en svo er ekki í veruleikanum og því styðja fangarnir þá heilshugar í baráttunni og ráðleggja þeim að gefa aldrei neitt eftir og hreinlega fara einu sinni í almennilegt verkfall eða það sem betra er, að hætta þessu vanþakkláta djobbi..Og ef til uppsagna kemur og verkfalls munu þeir fangar sem neyðast til að verða eftir af einhverjum ástæðum örugglega styðja áframhaldandi aðgerðir… Share on Facebook
Fjölnir Guðmannsson Þá hefur nýr greinarhöfundur hafið störf hér á öflugasta kraftavef landsins. Það er Fjölli læknanemi sem jafnan er kallaður Teygjutvister. Fyrstu grein hans geta menn séð hér fyrir neðan um bandaríska pávermanninn Travis Mash sem er svona í sögulegum upplýsingagír. Eins og fram hefur komið áður hér í fréttum mun Fjölli einnig rita greinar á læknisfræðilegu sviði sem munu síðar meir verða undirstaðan að doktors ritgerð hans eftir því sem Tvisternum vex ásmegin í afli og visku undir stjórn Magisters osfrv. Share on FacebookÍ þessari viku lést Jim Williams 65 ára að aldri. Hans verður minnst í páversögunni sem eins hrikalegasta bekkpressara sem uppi hefur verið. Í meira en áratug átti hann mestu þyngd sögunnar 306 kg (675pund) án slopps. Hann tók það á Heimsmeistaramótinu 1972 í USA. Hann fékk það gilt sem Bandarískt met en ekki sem heimsmet vegna olnbogavafninga sem hann fékk að nota. BIG-jim eins og hann var kallaður tók þó enn meiri þyngd á æfingu eða sýningu (alþjóðlegir dómarar vitni) þegar hann tók eitt sinn 320kg (700pund) Jim lenti í ýmsum djúpum dölum persónulegra harmleikja og náði aldrei þeim hæðum sem búist var við í íþróttinni hvað varðar enn meiri þyngdir og titla en var engu að síður stórkostlega öflugur og minnir talsvert á martröðina OD Wilson í útliti, en svona risastórir svertingjar detta alltaf öðru hvoru inn í sportið og eru magnaðir. 306kg lyfta Williams stendur enn sem 4 mesta þyngd sögunnar sem tekin hefur verið slopplaust í keppni. Meira um Jim: the terrible Share on FacebookÍ allri WPO/WPC umræðunni hér á Íslandi hefur lítið verið talað um keppendur þar og meistara. Það sem er aðallega nefnt er marglaga útbúnaður, strigaútbúnaður, öðruvísi hnébeygjustandar og “ofurtölur” sem menn láta í ljósi vanþóknun á, líkt og að útbúnaðurinn einn lyfti þyngdunum.
Ég ætla að reyna að auka aðeins áhersluna á keppendurna í umræðunni og hvað þeir eru að gera með því að fjalla um Travis Mash í dag. Hann hefur sér helst til frægðar getið að lyfta þyngra en Ed Coan í 100kg flokki á Arnold Classic mótinu 2005. Ed lyfti þar 1092,5kg en Travis lyfti 1095kg (440kg - 320kg -335kg). Þetta eru tölur sem hver sem er má vera fullsæmdur af.
Árið 2006 meiddist hann á öxl og þurfti að fara í uppskurð. Því gat hann ekki varið titilinn á Arnold Classic. Þegar hann byrjaði aftur að æfa lagði Travis meiri áherslu á spretti og ólympískar lyftingar, enda óvíst hvort hann gæti tekið bekk nokkurn tímann aftur af einhverri alvöru. Með góðri endurhæfingu og dugnaði við æfingar allt síðasta ár náði hann skjóðunni í sæmilegt form og nú ætlar hann að snúa aftur til keppni í power, og gott betur. Á nýja árinu hefur hann tekið 365kg í beygju, 300kg á bekk, 320kg í deddi, 250kg í beygju að framan og létt power clean og pressur með 170kg auk þess að æfa spretti. Hann stefnir á að keppa í ólympískum lyftingum á sumarólympíuleikunum 2008 og á vetrarólympíuleikum á bobsleða 2010. Þetta þýðir að hann þarf að samhæfa ólympískar æfingar, kraftlyftingaþjálfun og sprettþjálfun fyrir bobsleðann allt á sama tíma. Allt þarf að vera í toppi hjá honum til að þessi markmið náist, en hann stefnir ótrauður á að ná lágmörkum fyrir ólympíuleikana (367kg í -94kg og 390kg í -105kg) næsta mót hjá honum á þeim vígstöðvum verður þó ekki fyrr en í maí. Fyrir bobsleðakeppnina æfir hann hins vegar með landsliði Bandaríkjanna í þeirri grein.
Þessa stundina á powerinn hins vegar hug hans allan, enda stutt í aðalmótið sem verður fyrstu helgina í mars. Þar stefnir hann á að ná titlinum í 100kg flokki aftur af Matthew Kroczaleski , en Matt vann á Arnold Classic mótinu í fyrra með 1032,5kg. Hér er æfingadagbókin hans. Share on Facebook |











Entries (RSS)