Rúnar Friðriksson fjósi tók í gær sögulega allratíma kjötbætingu á bekknum þegar kappinn fór upp með 185kg og ekki nóg með það…Í hátíðar fílingnum tók hann raunar:185 2×2! En það er góð tvistabæting í leiðinni og ljóst að Fjósinn kemur öflugur til leiks á Íslandsmótið í bekkpressu á nýju ári. Myndin sem hér fylgir með er nokkuð komin til ára sinna og er svokölluð “before” mynd en “after” mynd af Fjósaklettinum birtum við síðar. Áramótamót Kraftlyftingafélags Akureyrar fer fram á morgun í “UNDIRHEIMUM” æfingasal Sigga Gests í Íþróttahöllinni eftir hádegið á morgun gamlársdag og eru keppendur nokkuð fjölmennir af báðum kynjum.
Share on Facebook
No Comments »
Úrsusinn er kominn í ham á kvikmyndasviðinu og er í startholunum að byrja á heimildarmynd um tröllið Bill Kazmaier..
Fréttablaðið segir frá þessu á bls.54 í dag. Þar segir ennfremur að Hjalti sé að fylgja eftir góðu gengi myndarinnar um Jón Pál sem vann einhver auka Edduverðlaun í vetur..(Myndin var tilnefnd sem besta myndin en var skúbbuð framhjá þeim verðlaunum í hinum fræga klíkuskap í kvikmynda geiranum hérlendis)
Það verður fróðlegt að sjá hvernig Dúdda tekst upp með Kazmæerinn… Flokkur Almennar fréttir | Fréttaritari KE | Heimild Fréttablaðið 29 des 2006
Share on Facebook
No Comments »
Úr þjóðsögum Sigfúsar Sigfússonar X bindi og Leiftur frá liðnum árum 2 -1982 bls. 57-58
Þeir bræður Jón og Hjörleifur frá Höfn í Borgarfirði austur hrundu fram bát sínum og réru suður í fjörðu í kynnisleit. Segir eigi af för þeirra, fyrr en þeir koma í Sandvík við Gerpi. Þar bjó þá Bjarni Guðmundsson og kona hans Gunnhildur Jónsdóttir. Bjarni var mikill maður vexti, rammur að afli, forneskjulegur í háttum, vitur, en kynlegur. Hann var kunningi þeirra Hafnarbræðra…þeim var tekið forkunnar vel.
Bjarni var hinn kátasti og vingjarnlegasti við þá bræður og lék á als oddi. Var sem Bjarna grunaði að Jón myndi til nokkurs sérstaks kominn. Bað hann þá bræður vera velkomna þar svo lengi sem þeir nýta vildu. Höfðu þeir þar hressingu.
Um kvöldið biður Bjarni Jón að finna sig afsíðis fram í bæinn. Gekk Jón ofan með honum og komu þeir í eldhús. Þar stendur feiknar mikill pottur á hlóðum, barmfullur af nýbræddu lýsi. Bjarni segir þá glottandi: “Sérðu þennan! Ég hef heyrt margt og mikið sagt af aflinu þínu Jón. Kemur mér nú í hug að hafa not af því. Mig fýsir að koma þessum potti út úr bænum eins og hann er. En hér er ekkert það hraustmenni til sem ég treysti til að bera hann út með mér. En þér myndi ég trúa til þess þótt skömm sé að níðast á gesti sínum. En ekki mun þér verða um megn að halda undir grýtuna með mér.”
“Það skal reynt” segir Jón.
“Ég sæki þá krókana” segir Bjarni og hraðar sér heldur. Þegar hann snarar sér inn með þá, hvað sér hann? Jón kemur þá þar með grýtuna og hafði smeygt löngutöngum í eyrun og labbaði út með hana. Setur svo hana niður sem hún átti að vera. Þá stansar Bjarni og starir með undrun og segir:
“Já, satt er það Jón, ekki eru ofsögur sagðar af afli þínu. Ég held ég megi gefa þér hana Möngu!”
Engar fleiri sögur fara af bónorðinu og er sagt að Jón hafi ekki verið búinn að ympra á því. En með þeim bræðrum bjóst Manga daginn eftir umyrðalaust.
Share on Facebook
No Comments »
Alþjóða kraftlyftingasambandið hefur gefið út lista með bestu áröngrum ársins í hverjum þyngdarflokki..
Við klakverjar eigum 4 menn á skrá og ber hæst efsta sæti Auðunns Jónssonar verndara í 125kg flokki með sín 1040kg á HM í Stavanger þar sem hann varð heimsmeistari með yfirburðum.
Jón Gunnarsson bóndi er í 12-13 sæti í 90kg flokknum með 805kg en það total tók hann í Killeen í USA þar sem hann varð heimsmeistari öldunga í gífurlega harðri baráttu.
Sigfús Fossdal skyrhöfðingi er í 24 sæti í súpernum (125+) með 840kg en það tók hann á HM unglinga í Búlgaríu þar sem kappinn vann til bronsverðlauna.
Í kvennaflokki eigum vér Maríu Guðsteinsdóttur títlu á lista en hún er í 12 sæti í 75kg flokknum með 465kg sem hún tók á HM í Stavanger.
SANNARLEGA GLÆSILEGUR ÁRANGUR! Flokkur Almennar fréttir | Fréttaritari KE | Heimild IPF |
Share on Facebook
No Comments »
Í gær annan í jólum náðist sá áfangi að 450.000 heimsóknir töldust á vefinn frá upphafi..
Nokkuð gott síðan veturinn 2003 en við stefnum að því að halda áfram með sama teljarann þótt síðan breytist fljótlega. Á nýju ári náum við nefnilega 500 þúsund heimsókna markmiðinu.
Nýja útlitið er nokkurn veginn komið og í sjálfu sér tilbúið í loftið. Þó vantar upp á að klára að setja inn allt gamalt efni. Samkvæmt Omegakraftinum tekur það hálfan mánuð. Sennilega skellum við nýja vefnum í loftið núna fyrir áramót ef Jói lofar að setja inn gamla efnið í janúar, þótt hann sé að flytja búferlum austur í sveitir þar sem grasið er grænna… Flokkur Almennar fréttir | Fréttaritari KE | Heimild Kraftaheimar |
Share on Facebook
No Comments »
Hinn forni pávermaður Stefán Sturla Svavarsson hefur æft vel um hátíðarnar og flengdi í dag bætingu á bekknum..
Spjótinn sem er orðinn 107kg að staðaldri telst ekki lengur hæfur í að hlaupa uppi smyglara í tollgæslunni og situr þar af leiðandi meira á sínum stækkandi afturenda sem kemur sér aftur á móti vel í guðsgreininni sjálfri…
< Og í dag tók Spjóti 195kg all þokkalega og nálgast óðum hinn eftirsóknarverða 200kg múr.
Hvort hann taki múrinn á Íslandsmótinu í bekk snemma á nýju ári kemur í ljós en bumbu bomb stíll kappans er mun heppilegri til æfingabætinga heldur en í mótum þar sem ískaldur raunveruleikinn án skots með rassinn niðri ræður ríkjum… Flokkur Almennar fréttir | Fréttaritari KE | Heimild Páverheimurinn |
Share on Facebook
No Comments »