Archive for November, 2006

“Maður verður auðvitað að vera létt geggjaður til að halda þessari rútínu”

Hinn nýbakaði heimsmeistari í páver Auðunn Jónsson verndari er í 2 síðna opnu viðtali í DV föstudaginn 24 nóv. s.l.
Þar er fjallað lauslega um feril kappans sem spannar 22 ár og komið lauslega inn á fjölskyldumál þótt engin sérstök nía á kellingarsviðinu sé nefnd til sögunnar nema ein fyrrverandi…
Spurningunni um hvað þarf að hafa til að verða heimsmeistari svaraði Ádí svona: “Menn geta verið að dútla eitthvað í þessu en þá ná menn engum árangri. Til að ná langt verður maður að vera í þessu alla leið og þá er þetta í hausnum á manni alla daga, alltaf. - Maður verður auðvitað að vera létt geggjaður til að halda þessari rútínu.”

Það er hinn rauntengdi blaðamaður Baldur Beck sem tók þetta fróðlega viðtal við heimsmeistarann.27-11-2006

Share on Facebook

Comments No Comments »

“Að tengja mig við Bush forseta er eins og að tengja mig við Óskarsverðlaun!”
Þannig svaraði Arnold Schwarzenegger í þættinum Jay Leno þegar þáttastjórinn spurði ríkisstjórann hvort það væri satt að hann væri handgenginn Bush…Salurinn hló vel…
En á næsta leyti eru ríkisstjóra kosningar í Kaliforníu og þá er bara að vita hvort goðið nái endurkjöri..
06-11-2006
Share on Facebook

Comments No Comments »