Archive for the “AF VEGASFÖRUM 2009” Category


Heimsmeistaraklúbburinn stofnaður 14 nóvember 2009 í Las Vegas USA , Riviera hótelinu herbergi 670.

Fyrir heimsmeistara í páver.

4 Heimsmeistarar öldunga voru á stofnfundinum: Ingvar ringo, Kári magister, Gunnar master og Flosi spider

HEIMSMEISTARAKLÚBBURINN - lög -og létt ákvæði - Samþykkt af stofnendum 14 nóv 2009

Kjörorð Heimsmeistaraklúbbsins : EINU SINNI HEIMSMEISTARI ALLTAF HEIMSMEISTARI!

Því miður sáu ekki allir nýkrýndir heimsmeistarar Metal í Vegas sér fært að mæta á stofnfundinn sökum anna með konum eða öðrum aðdáendum sínum..Hér á eftir kemur ágrip af helstu lögum og reglugerðum klúbbsins sem vér munum eftir frá þessum merka fundi. Samþykkt var einróma að bjóða Stefáni Hallgrímssyni (Steve) að verða heiðursmeðlimur en hann er margfaldur heimsmeistari í frjálsum íþróttum og hefur búið til marga páver heimsmeistara í stöð sinni SteveGym. Nokkrir velvaldir og auðmjúkir waterboys fengu að vera viðstaddir stofnfundinn  til að ná í drykkjarföng handa heimsmeisturunum og taka myndir..

Flosi spider ásamt Sir Cat nýkjörnum formanni Heimsmeistaraklúbbsins…..

1. GREIN. - hlýðni - viska - lærdómur

Yngri heimsmeistarar skulu ætið hlýða þeim eldri og reyna eftir megni að nema visku þeirra sér til aukins þroska á öllum sviðum til  frekari afls og lærdóms.

2.GREIN. - Aðild - Einu sinni heimsmeistari alltaf heimsmeistari!

Allir heimsmeistarar ÍKF Metal í páver eða í einstökum pávergreinum verða sjálfkrafa félagar í klúbbnum. Þeir sem einu sinni hafa orðið heimsmeistarar verða alltaf ævifélagar í kklúbbnum.  Heimsmeistarar í liðakeppni fá einnig aðild. Heimsmeistarar úr öðrum samböndum geta  orðið félagar sé þeim boðið það af stjórninni eða þeir sækja um aðild.Klúbburinn starfar sjálfstætt og er ekki undir stjórn eins eða neins.

3.GREIN. - Markmið

Markmiðið er að Ísland eigi heimsmeistara á ári hverju og stefni að fjölgun þeirra í öllum aldursflokkum í páver. Heimsmeistarar  hvetji aðra til titlasöfnunar til að  bæta framfarir í íþróttinni og auka  þannig umfjöllun og athygli á afrekum pávermanna. Heimsmeistaramolar skulu ætíð vera jákvæðir á hina máttlausari til að hvetja þá til  framfara og afreka í lífi og páver. Heimsmeistarar skulu ávallt stuðla að góðum hvatningaranda til að auka á gleði og bætingar hjá pávermönnum.

Þrír Metal heimsmeistarar úr SteveGym: Baldvin bekkur, Gunnar master og Kári köttur…

4.GREIN - Aðalfundur og slíkt.

Aðalfundur skal vera ár hvert eða annað hvert ár sé það nauðsynlegt og þá eingöngu á góðu hóteli  í borg þar sem  HM fer fram . Stjórnarfundir skulu haldnir í tengslum við stórmót eins og Íslandsmót eða önnur alþjóðamót smbr. EM ofsfrv. Til að Aðalfundur teljist löglegur skulu a.m.k. 4 virðulegir heimsmeistarar verða viðstaddir. Leyfilegt er að einn eða fleiri waterboys verði í slíkum fundum til að nauðsynleg  þjónusta  sé veitt við andlega og likamlega næringu  meistaranna sem eru að hugsa framtíðina….

5.GREIN - Byrjunarþyngdir á mótum

Enginn er öruggur gegn örlögunum en heimsmeistarar hafi það hugfast á mótum að tryggja sér eins örugga byrjunarþyngd og hægt er. Þeir skulu og ráðleggja minni spámönnum og öðrum að gjöra slíkt hið sama svo menn séu ekki að falla úr keppni að óþörfu.

Sir Cat - fyrsti formaður Heimsmeistaraklúbbsins!

6.GREIN. Kosning formanns

Formaður skal kjörinn á Aðalfundi til 1 árs í senn eða þar til annað verður ákveðið. Fjöldi stjórnarmanna verður kosinn á aðalfundi eftir áhuga og þörfum hvert sinn.

7. GREIN. Heimsmeistaratal.

Stjórnin skal rita Heimsmeistaratal og fylgjast með að því sé viðhaldið. Meðlimir klúbbssins eru nú eftirtaldir:

1. Kári Elíson (formaður)

2. Flosi Jónsson (varaformaður)

3. Gunnar Freyr Rúnarsson (stjórnarmaður)

4. Ingvar Jóel Ingvarsson

5. Sigfús Fossdal

6. Páll Logason

7. Jón Gunnarsson

8. Þorvaldur Kristbergsson

9. Ísleifur Árnason

10.Baldvin Skúlason

11. Jóhannes Hjálmarsson

12. Torfi Ólafsson

13. Guðni Sigurjónsson

14.. Stefán Hallgrímsson (heiðursmeðlimur)

.

MYNDIR AF NOKKRUM HEIMSMEISTURUM:

Ingvar ringo heimsmeistari öldunga á bekk meö 300kg í 125kg flokki og einn af stofnendum Heimsmeistaraklúbbsins

Sigfús Fossdal heimsmeistari í Vegas á bekk í opnum flokki súper með 342,5kg smellir sigurkossi á fegurðargyðju mótsins…

Palli fermeter heimsmeistaru unglinga í Vegas í 140kg flokki með 400-280-355- 1035kg!

Sigfús skyri og Masterinn - sigurvegar í Las Vegas!

Flosi Jónsson  glettilegur heimsmeistari öldunga á bekk í 90kg flokki með 162,5kg.

Dr.Teygjutvister verðandi síðar meir meðlimur Heimsmeistaraklúbbsins gefur Spidernum góð ráð fyrir bekkinn…

Tveir heimsmeistarar í góðum félagsskap…

Ingvar heimsmeistaraklúbbs-meðlimur ásamt nokkrum góðum klakverjum  á keppnisstað Riviera hótelsins í Vegas. Villi ketill hvatningameistari er lengst til vinstri….

Jón bóndi brattur með gullið í 100kg flokki öldunga með  heimsmet 820kg í totali!

Tveir heimsmeistarar sitja til borðs með tveimur óbreyttum….Heimsmeistara-klúbbsfélögum ber líka að vera sem alþýðulegastir…

Verðlaunin í Las Vegas  sem meðlimir hins íslenska Heimsmeistaraklúbbs hirtu megnið af....

Share on Facebook

Comments 4 Comments »

Share on Facebook

Comments No Comments »

Hluti af Metalmolum Íslands á HM í Las Vegas..Neðri röð: Gunnar master, Flosi spider. Jón bóndi, Palli Patró, Ingvar ringo. Efri röð:  Palli fermeter, Valdi kerfismoli, Sigfús skyrhöfðingi.

Á myndina vantar Þröst Óla sem var að kanna KFUM klúbba í borginni og Fjölni teygjutvister sem var að sofa úr sér barnaþreytuna og Kári magister taldi sig óþarfan í svona yfirstæl-myndatöku…

Share on Facebook

Comments 2 Comments »

Á  USPF California vefsíðu mótshaldarans Steve Denison má sjá heildarúrslit mótsins: HÉRNA

Einnig má sjá úrslitin í gegnum powerlifting watch: HÉRNA

Share on Facebook

Comments No Comments »

Fjórir hrikalegir úr liðinu við komuna til Vegas…Kári magister, Palli patró, Fjölli tvister og Flosi spyder. (ljósm. Villi ketill)

Keppnislið Íslands og aðstoðarmannalið lagði af stað í nokkrum hollum á mismunandi tímum og með mismunandi ferðatilhögun. Sumir fóru laugardaginn 7  nóv en máttarstólparnir,  Vilhjálmur, Kári, Fjölli, Flosi, Palli, Þröstur og fótboltafélagar hans tveir lögðu af stað frá Keflavík með Icelandair til Boston mánudaginn 9 nóv kl.17.00 Flugið tók 5 tíma og var 15 stiga hiti í Boston þegar við lentum þar. Strax við komuna virtist Fjölli lenda í vanda við tollverði þegar einn þeirra tók hann heldur betur á eintal og virtist ætla að grandskoða kappann…Þegar Tvisterinn losnaði úr klípunni sagði hann þetta um atvikið: ” Við vorum bara að tala um páver!”  “Hann  var með hrikalega framara eins og Hrikinn og kreisti á mér lúkuna. Hann sagðist eiga  240kg á bekk á kjötinu en þegar ég spurði hann út í beygjuna varð hann vandræðalegur og sagðist eiga 190kg og kvaddi mig svo fljótlega eftir það með virktum” Tvisterinn var svona aðalstjarnan til að byrja með því þegar við vorum að sækja töskurnar. Fjölli tók nokkrar myndir en fyrr en varði þusti að honum ábúðarmikill starfsmaður flugvallarins og skrækti: “No photos here, no photos! - Do you like jail?”…Fyrsta áminningin komin!

Ritstjórinn á flugvellinum í Boston með hunda-aðvörunartöskuna sem hann gaf síðar þernu í Las Vegas…

Þegar Þröstur og félagar hans Ásgeir og Brynjar sem eru mjóir fótboltamenn úr KR sem fengu fljótt viðurnefnin “Spóarnir” eða “Spörfuglarnir” voru búnir að fá sinn farangur var haldið á Sheraton hótelið sem var allgott 4 stjörnu hótel á góðu verði. Klukkan 7 næsta morgun var lagt af stað til Denver með United Arlaines. Kötturinn var flottur og fékk sæti á milli tveggja kvenna sem voru ágætar einkunnargjafir. Önnur þeirra var að fara á vit giftingarörlaga á Hawai en hin var bísnessdama á femínska vísu sem eigandi best sellers bókaútgáfu fyrirtækis í USA…

Magister á milli tveggja einkunnargjafa…

Villi kanslarabróðir og ketill byrjaði kvennafans sinn í vélinni frá Boston…

Kl.9 eða svo lentum við í Denver og tókum áframflug til Vegas kl.11.30. Rétt þegar við vorum að ganga um borð var kallað hástöfum á hátalarakerfi flugvallarins: “Mr. Kári Elíson plese come right and contact the flighting board!”..Manni dauðbrá og undrunarsvipur kom á hina klakverjana. Þegar ég kom að borðinu brosti starfskona þar út að eyrum og fékk mér nýjan flugmiða og sagði: “Here is better seat for you!”..Hvernig þetta kom til er ekki vitað en mörgum varð þarna ljóst að kisi er víða virtur út um allan heim..Og þetta gat bara táknað heimsmeistaratitil..hvað annað?…Menn voru svoldið stífir og þreyttir þegar þeir settust upp í vélina til Vegas og var stífleikakötturinn þar fremstur í flokki…Þegar ég var sestur við hliðina á einhverjum öldruðum hjónum og var að paufast úr jakkanum,vissi ég ekki til fyrr en gamli kallinn fór að hjálpa mér úr annarri erminni!..Hlutverkunum snúið við frá Grundinni! Nokkrum tímum seinna lentum við heilu og höldnu í Vegas og ævintýrið hafið fyrir alvöru…

Á flugvellinum í Vegas hangir uppi risastórt skilti sem stendur á hin kunna setning:  What happens in Vegas - stays in Vegas!…Þetta á kannski að vera fyrirfram syndaaflausn fyrir ferðamennina sem sækja heim þessa Sódómu nútímans þar sem allt stendur til boða….

Þröstur Ólason í miðjunni ásamt spörfuglunum sínum sem taka samanlagt 100 á bekk og eru stálhressir gaurar…

Kári köttur landaði fyrsta heimsmeistaratitli ferðarinnar enda var aðstoðarmannaherinn góður….

Kári tók gull í 75kg flokki öldunga 55-59 ára með tölurnar: 150-120-200-470kg..(bekkurinn með 120 er heimsmet)

Teygjutvisterinn var harður í gæðafæðinu í Vegas til að halda massanum við inn á milli ljúf-langra svefnstundanna sem voru vel notaðar til að melta herlegheitin…

Fjölli tvister bætti sig í öllu á mótinu. Hann stefndi að því að ná herbergisnúmerinu í totali (670) en varð að láta sér nægja hinn ágæta múr 650kg sem skiptist þannig: 237,5-187,5-225.

Beygjan með 237,5 var fín en 250kg lyftan var greinilega of grunn þótt kappinn væri sjálfur að fíla hana og horfði á hana á myndbandi ótal sinnum langt fram á nótt.. Menn voru á því að Tvister hefði átt hægustu bekkpressu keppninnar þegar hann seiglaði löturhægt upp 187,5kg í sinni síðustu tilraun. Deddinu hans segir maður bara frá undir fjögur augu en samt náði hann  að vinna Magister þar í fyrsta skipti!

Grúppían Vilhjálmur Stefánsson ketill græjar stálbrókina á Jón Gunnarsson bónda

Jón bóndi hlaut gull í 100kg flokki öldunga 50-54 ára með tölurnar; 320-200-300-820kg. Þetta voru allt heimsmet og geri menn betur!..Hann átti inni í deddinu en tók 300 með stæl!

Villi ketill var ekki aðeins aðal aðstoðarmaðurinn heldur var hann einnig aðal sjarmörinn eins og sést vel hérna myndinni með írsku drottningunni Angie…

Á góðri stundu: Helga eiginkona Valda kerfismola  er við hliðina á honum og svo brúðarhjónin Ringo og Addý

Valdimar Valdimarsson deddar  302,5kg í 100kg  opnum flokki. Valdi tók: 315-205-302,5-822,5kg og varð í 4 sæti í mjög sterkum flokki. Bekkurinn, deddið og totalið eru allt ný Íslandsmet!

Teygjutvisterinn og Patrópáver voru alltaf manna hressastir

Stofnun Heimsmeistaraklúbbsins var viðburður sem við segjum betur frá síðar!..

Patró hress með bombunni Elísabeth Freel sem tók 150kg á bekk í 82,5kg flokki kvenna…Kvennakeppnin á HM var rosaleg þar sem margar kellingar tóku 200+ í deddi og þar af ein 220kg…

Palli patró keppt í 100kg  opnum flokki og bætti sig í öllu: 200-140-235-575kg Palli var grjótharður þegar hann var næstum fallinn úr keppni og kláraði tvistinn í beygjum í 3 tilraun og klappaði salurinn vel fyrir kappanum sem var  vinsælastur íslendinga á mótsstað sem annarsstaðar…

Gunnar Freyr master fékk gull í pávernum í 110kg flokki öldunga 40-44ára. Hann tók: 242,5-190-287,5kg-720kg sem voru allt meira og minna persónuleg met. Strákurinnn hans Siggi skrönglaðist upp á pallinn með pabba og verðlaunadaman þurfti að aðstoða Masterinn við að klæðast íslenska fánanum..skemmtilega klaufsk uppákoma sem allir höfðu gaman af….

Masterinn keppti í öllu og hlaut bronsið í bekkpressukeppninni í 110kg flokki öldunga 40-44 ára með bætingunni 200kg sem var langþráður múr! Sigurvegari var rússi sem setti heimsmet með 260kg! Masterinn tók einnig dómarapróf og á nú Metal þrjá alþjóðadómara í páver svo nú verður hægt að dæma heimsmet hér heima!…Til haminju Gunni!

Gunni master deddaði 270 í sérkeppninni í deddi og varð heimsmeistari!..Hann hlaut flest verðlaun íslendinga á mótinu ásamt Skyranum

Páll Logason vann besta afrek unglinga í Vegas!

Palli fermeter  sést hér  beygja flott 400kg

Hann varð heimsmeistari unglinga í 140kg flokki með: 400-280-355-1035kg. Allt ný heimsmet! Glæsilegt!..Palli hefði vafalaust deddað 370 sem hann rétt missti hefði hann farið fyrr í stálbrókina en 355 lyftan tók of mikið úr honum á kjetinu…

Ingvar Ingvarsson ringo var sérkapituli á mótinu..þessi 46 ára öldungur heillaði áhorfendur með ótrúlegri getu þegar hann bætti sig um 15kg á bekknum  og 40kg hjartabætingu frá uppskurði 2004 og hlaut hann gullið í 125kg flokki öldunga í bekkpressukeppninni með nýju heimsmeti 300kg!

Ingvar tók seríuna 270-285-300 nokkuð létt og öruggt en varð næstum hauslaus heimsmeistari með 310kg í aukatilraun..kallinn var svo móður eftir 300 að hann var engan veginn tilbúinn í 310 því pásan var lítil..Hann missti 310kg fljótlega yfir sig og gat lítið haldið á móti þyngdinni og gripu stangarmenn stöngina 2-3 cm frá hálsi kappans!

Ingvar ringo með gullið eftir að hafa stútað 300kg múrnum á bekk


Fúsi skyrhöfðingi og Palli fermeter þóttu glæsilegir á velli á meðal yfirmola svæðisins

Valdi kerfis og Skyrfrúin ræða bekkheimsmet við Fúsdalinn….

Sigfús Fossdal var í feiknaformi og byrjaði í páverkeppninni á því að setja beygjuheimsmet með 435kg sem stóð í 2 mínútur þar til Lance Karabel USA bætti það í 455kg!..hörð keppni það!…Skyri tók 435-345-310-1090kg og hlaut silfrið í súpernum. Heldur betur vonbrigði eftir að hafa einnig sett heimsmet á bekknum með 345kg most ever á klakanum!.. Kappinn gerði afdrifarík mistök í deddinu þegar hann hækkað úr þungri 310kg lyftu í 330 en 320 hefði bæði gefið honum 1100 í totali (Hvaða hugsandi maður getur hafnað því?) og forystu í keppninni…Kvein um meiðsl var bara kjaftæði því ef þau hefðu verið eitthvað hefði hann því frekar aldrei átt að fara í 330  Þetta var óvæntur aumingjaskapur í Skyranum þótt hann hafi kannski fundið smá til!

Fúsi undirbýr 342,5kg heimsmet á bekk í bekkpressukeppninni..Flosi spyder veldressaður alþjóðadómari með toppeinkunn fylgist grannt með..Svo fór að lyftan var dæmd gild 2-1 og Spyderinn gaf rautt…enginn yfirmola-afsláttur þar!


Teygjutvisterinn og Spyderinn í góðum gír…

Alþjóðadómarinn /v/s Heimsmeistarinn

Flosi Jónsson stóð sig glettilega í 90kg flokki öldunga 55-59 ára og hlaut gullið!

Flosi tók fyrst 157,5 og síðan þunga en örugga lyftu með 162,5kg…Sigurinn var í höfn og tilraun við heimsmet í 3 tilr. 165,5kg..það fór ekki en það munaði frekar litlu. Flosi tók dómarapróf og dæmdi í marga daga sem kom eflaust eitthvað niðri á árangri hans. Næst verður það mössun upp í 100 eftir prógrami frá Ringo og trappinn og trysepinn tekinn og tvistinum stútað á næsta ári!


Þröstur Ólason keppti í 90kg flokki unglinga í réttstöðunni en var dæmdur úr leik þótt hann lyfti öllum lyftum!

Þröstur byrjaði á 255 sem er 15 kg frá hans besta hér heima..Hann hafði sökum reynsluleysis ekki tekið nóg með í reikninginn erfitt ferðalag og langt hangs á keppnisstað. 255 fór upp þungt í öll skiptin en stöngin hjakkaði aðeins á lærunum sökum þess tæknifeils að hann rétti of snemma úr fótunum og þyngdin lagðist öll á bakið. Síðasta lyftan var mjög nærri og varð ógild 1-2..Með yfirmola-afslætti hefði hún leikandi farið í gegn,en svona er þetta!.. Þar fauk öruggt silfur út um gluggann en það verður örugglega tekinn góðmálmur næst!

Sigfús skyrhöfðingi með verðlaunin fyrir sigur í opnum flokki á bekk í súper og besta afrek mótsins á stigum í bekk!..Hrikalegt!

Valdi kerfismoli tekur  fyrir hönd Íslands við silfurverðlaunum í stigakeppni þjóðanna í páver á eftir USA sem urðu fyrstir en Írland varð þriðja.

Sveit Íslands  skipuðu þeir: Sigfús Fossdal, Páll Logason, Fjölnir Guðmannsson, Jón Gunnarsson, Valdimar Valdimarsson og Gunnar Freyr Rúnarsson.

Riviera hótelið  þar sem keppnin fór fram er svo stórt að það jafnast næstum á við allan miðbæ Reykjavíkur sem samanstendur af Lækjargötu, Austurstræti, Hafnarstræti. Aðalstræti og Pósthússtræti…Herbergin á hótelinu eru 2100 talsins fyrir 5500 gesti! - Gangarnir eru endaluaust langir og það tók köttinn  5 daga að rata um hótelið.  Á fyrstu hæðinni eru fyrir utan spilavítið fjölmargir smáir og stórir ráðstefnusalir auk risastórra sýningar og hljómleikasala..Á 12 hæð er æfingastöð þar sem Villi ketill mætti á hverjum morgni klukkan 9 og tók 150 á bekk án þess að svitna…

Hluti spilavítisins á Riviera

Það væsti ekki um keppendur á Riviera..Myndin er tekin eftir að búið var að taka til í herbergi Tvistersins og Magisters….

Mótshald allt var hið glæsilegasta í stórum sal Riviera hótelsins. Tveir risaskjáir voru uppi sem miðluðu upplýsingum um gang keppninnar til áhorfenda og tvö risasjónvörp voru einnig til sitt hvorrar handar á áhorfendasalnum svo enginn missti af neinu. Steve Denison og kona hans eiga heiður skilinn fyrir sérlega flott mót. Næsta HM 2010 fer fream í Bath í Englandi og mótið 2011 verður í Florida…

Komið var svo heim miðvikudaginn 18 nóvember eftir millilendingar í Chicaco og Boston..sú ferð tók um 20 tíma takk fyrir. Þreyttur köttur skreiddist í rúmið um 10 leytið að morgni og svo farið beint í vinnu um kvöldið…


Share on Facebook

Comments 10 Comments »

Rúmið gert klárt fyrir súpersett brúðkaupsnæturinnar….

Ingvar Jóel Ingvarsson og Arnbjörg Kjartansdóttir gengu í það heilaga þriðjudaginn 17 nóvember í Las Vegas í USA…Með nýtekin 300kg á bekk ætti Ringo að standast flengkröfur hinnar fögru brúðar… .Brúðhjónin búa sem stendur í Saint Johns á Nýfundnalandi og munu hugsanlega eignast börn og buru þar en þau skreppa áður til klakans um jól og áramót. Kraftaheimar óska hinum nýgiftu til hamingju með ráðahaginn.

Arnbjörg og Ingvar á keppnisstað HM til að ná upp brúðkaupsanda….

Brúðkaupskapellurnar í Las Vegas eru þokkalegar…(skilnaðarkepellan er á bak við!)

Við birtum fleiri myndir af brúðhjónunum Addý og Ringo síðar þegar okkur berast þær…

Share on Facebook

Comments 4 Comments »

Á öðrum degi kepptu fimm Íslendingar.  Jón Bóndi, Gunni Master, Palli Patró, Valdi Kerfis og Fjölnir Tvister

Bóndinn tók 320 í beygju í fyrstu lyftu, fór í 340kg í annarri, hafði hana ekki og sat undir henni á meðan stangarmenn voru allt of lengi að ná stönginni af honum, þannig að hann fann eitthvað smella í hnénu.  Bekkurinn gekk upp hjá honum þar sem hann fór með 180, 190 og 200 í gegn.  Hann byrjaði rólega í deddinu út af meiðslunum, tók 245, fór svo í 285 og endaði í 300 og hefði mögulega tekið meira ef beygjan hefði ekki farið svona illa.  820kg glæsilegt total, og gull, veruleiki í 100kg masters flokki 50 ára öldunga.

Gunni Master átti sinn besta dag nokkru sinni í beygju og tók 200-225-242.5kg.  Í bekknum fór hann með 180 og 190, en klikkaði á 200.  Svo tók hann 260 í deddinu til að tryggja sig, fór svo í bætingu, 287.5kg og klikkaði á 292.5kg.  Hans besta total nokkru sinni, 720kg, og gullmedalía í masters 40+ 110kg flokki.

Palli Patró féll á tíma í fyrstu beygju með 190kg, meldaði síðan 200kg og klikkaði á henni.  Í þriðju beygju tók hann á honum stóra sínum og keyrði 200kg upp.  Í bekknum fleygði hann upp 130 og 140kg, en missti 150kg út úr ferli í þriðju tilraun.  Í deddinu byrjaði hann á 200kg þar sem hann hafði verið tæpur í bakinu síðustu vikur.  Í næstu fór hann í 225kg, og tók síðan 235kg í bætingu.  Palli bætti sinn besta árangur um 20kg og tók 575kg samanlagt.

Valdi Kerfis opnaði á 295, tók svo 315 öruggt en klikkaði á 325kg.  Síðan var sloppurinn að stríða honum þar sem hann missti ítrekað spennuna og hafði byrjunarþyngdina, 205kg, í gegn í þriðju tilraun með harðfylgi.  Í deddinu opnaði hann öruggt á 270kg, fór svo í 295kg og svo í 302.5kg í vel útreiknuðum stökkum.  822.5kg totalbæting í höfn og 4.sæti á HM. (fyrir utan að taka 2.5kg meira total en lærimeistarinn)

Tvisterinn opnaði á öruggri 220kg beygju, fór svo í jafnörugga 237.5kg beygju.  Í þriðju lyfti hann svo 250kg öruggt en klippti á dýptina.  Í bekknum tók hann öruggt 170, 182.5 og svo 187.5 í hægri zetor bardagalyftu.  Í deddinu opnaði hann á 200kg verandi deddkrypplingur, fór svo í 225kg til að tryggja 650kg total en klikkaði svo á 230kg deddi.  Persónulegar bætingar í öllum greinum og totalbæting um 27.5kg.

Þriðja daginn kepptu Fermeterinn og Skyri

Fermeterinn fékk fyrstu beygju með 380kg ógilda, tók það síðan öruggt og lyfti svo 400kg öruggt, en var enn hálfveikur eftir flensu síðustu vikna.  Í bekknum tók hann 280 mjög öruggt í fyrstu lyftu en klikkaði svo tvisvar á 300kg.  Í deddinu opnaði hann á 330, tók svo 355kg en klikkaði svo á 370kg fyrir ofan hné.  1035kg total og kominn upp fyrir félaga sinn Bolluna.  Heimsmeistari unglinga í -140kg flokki.

Skyri fór hálfsmeykur í 400kg en tók það létt.  Lyfti síðan 420kg þrátt fyrir að ná ekki að stilla sér almennilega upp.  Fór svo í þriðju tilraun með mestu þyngd sem Íslendingur hefur tekið í hnébeygju, 435kg, og fékk hana í gegn.  Í þessari síðustu beygju small eitthvað í hamnum hjá honum þannig að hann varð smeykur um deddið.  Í bekknum tók hann 332.5kg öruggt í fyrstu tilraun, fór síðan upp með 345kg en klikkaði á 350kg.  Eftir að hafa rætt málið við Ed Coan ákvað skyri að vefja á sér hnén í deddinu.  Hann fór hægt upp með 310kg og mátti dedda 27.5kg minna en Lance Karabel og samt vinna.  Lance tók 345kg í annarri og Sigfús fór í 330kg til að tryggja sér sigur á stigum líka.  Það var því áfall þegar hann klikkaði tvisvar á henni og sat eftir með 1090kg á móti 1095kg hjá Lance.  Hins vegar glæsilegt total í höfn, og annað sætið í súpernum.

Svo eftir hvatningaróp við eina lyftuna stöðvaði Ed Coan Tvisterinn og sagði við hann að án efa væri íslenska flottasta mál í heimi til að hvetja pávermenn áfram, það hljómaði allt svo hrikalega þegar það væri öskrað á íslensku!

Ritað af Fjölni Tvister

Share on Facebook

Comments 17 Comments »

Þúsund bætingar á færibandinu þokast nær!

Eftir mikil ferðalög lentum við loks í Las Vegas um hádegisbil að staðartíma.  Kötturinn vigtaðist inn 73,2kg og gat þá slakað á um kvöldið þar sem hjartað angraði hann ekki eitt hætishót.

Bakið var eitthvað að angra hann í beygjunum, þannig að hann opnaði á 150kg sem hann fékk 3 hvít á.  Svo fór hann í 165kg en fékk það dæmt tvisvar af vegna dýptar.

Í bekknum byrjaði hann á 112,5kg heimsmeti öldunga, og hækkaði það strax í annarri tilraun í 120kg en fékk eitt rautt á það.  Síðan sleppti hann þriðju tilraun.

Í deddupphituninni var bakið alveg að drepa hann, þannig að hann lækkaði byrjunarvigt í 170kg.  Það fór hægt en örugglega upp, þannig að næsta vigt var melduð 190kg sem fór hraðar upp.  Svo gerði hann smá tæknileg mistök og meldaði bara 200kg í þriðju tilraun, sem fór enn hraðar upp en 190kg.  Síðan ætlaði hann að reyna við bætingu á heimsmeti 220,5kg en fékk ekki að melda það, þar sem það er bannað að hækka um meira en 20kg.  Kári hefði miklu frekar átt að fara í 210kg í þriðju, enda var vel inni fyrir því, þar sem hann lagaðist í bakinu eftir því sem hann deddaði meira.

Einn dómarinn hafði á orði við hann að hann hefði aldrei áður séð deddið verða hraðara og hraðara eftir því sem þyngdin jókst.

Flosi Spider tók svo alþjóðlegt dómarapróf og stóðst það með glans!

Share on Facebook

Comments 7 Comments »