Archive for the “RAUNVERULEIKADEDD 2009” Category


Rúnar Óttarsson- æfir vel þessa dagana…(ljósm. GFR master)

Það var hörkuæfing í raunveruleikanum í gær. Bjarki hriki sem deddaði 310 létt í vikunni beygði 260×3 og átti vel inni…Fóstbróðir hans Grjóni miðnæturdeddari deddaði vel hratt seríunni: 230 -250-260 en þeir kappar ætla báðir að keppa á Íslandsmóti WPC í páver sem fram fer eftir tvær vikur eða svo. Bjarki geysir er einnig að spá í það mót sem upphitun fyrir EM í Amsterdam og hann deddaði 300 örugglega en svoldið þreytulega enda stutt frá 290×2. Palli Patrópáver deddaði 200×3 án stáls og tók síðan bætingarþrist með 205×3 á eftir því og einnig 165×3 af palli…endalusar bætingar þar á bæ en stefnan er að hann taki 600kg total múrinn á EM….

Rúnar Óttars er hættur við EM en æfir samt vel og beygði án stáls 180×2 og er að ná þar upp aðeins meiri hraða en áður…Baldi bekkur mætir alltaf í föstudagsbekk og hefur nú um skeið tekið 160×4 á bekknum og á góðum degi 160×5 en hann ætlar ekki út að keppa fyrr en á næsta ári í Englandi…(HM í Somerset)…Alltaf nóg af  alþjóðlegum verkefnum hjá Metal…

Share on Facebook

Comments Comments Off

Bjarki Sigurðsson- SteveGym moli af lífi og sál

Það var fjölmenni í raunveruleikanum á föstudaginn enda páskahelgi og opnunartími annarra stöðva takmarkaður en menn í anda geta alltaf treyst á SteveGym…

Þarna voru t.d. læknanemarnir Fjölli teygjutvister og Tobbi .Einnig tók Ingvar ringo fegrunaræfingar smá tognaður í baki og Úlfsskjóðan deddaði eitthvað öruggt ásamt Kobba Egils og vini þeirra.  Ölli vinur deddaði 200 af öryggi hins reynda Kraftmola og Palli Patrópáver tók létt dedd með 190×2. Arnar Styr tók tvennubætingu með 240×2! og er enn að spá í Evrópumótið eins og Silli sem var í helgarfríi og tók bara létt. Magister er að detta í betra form en margir eiga von á og deddaði af upphækkun 220×2 öruggt og tók síðan nokkur sett af extra gleiðum sumo frá gólfi. Maður dagsins var án efa Bjarki Geysir en hann tók fyrst beygjur upp í 230×5 en fór síðan í deddið: 240×3-270×2 og að lokum 290×2!…Spurning hvort Geysirinn geti skafið sig í tíuna eða látið sverfa til bætingastáls í 125kg flokknum. á EM?…

Share on Facebook

Comments No Comments »

Úlfur Orri Pétursson

Það var mikið um að vera á deddæfingunn í SteveGym í dag þótt Foringinn sjálfur væri í kaffi og mætti ekki fyrr en öll átök voru búin…Úlfskjóðan  var í miklum hug og var staðráðinn í einhversskonar repsabætingu…Eftir að hafa hitað upp á þyngdum eins og 200×2 240×1 og 280×1 var komið að þyngd dagsins. Úlfskrumlurnar læstust um stöngina eins og sérstyrktur risakolkrabbi og upp fór 320×2!…Fyrra repsið virkilega gott en lærin fóru heldur mikið undir í seinna repsinu en bæting samt!…Frekari þyngd fer svo upp laugardaginn 4 apríl kl.13.00 á Íslandsmóti Metal hjá Mótormax að Kletthálsi 13.

Bjarki Þór Sigurðsson

Geysirinn mætti aftur til leiks eftir flensufárið og var mun frískari en menn áttu von á. Hann hitaði upp með beygjum fyrst upp í 185kg og fór síðan í deddið…260×3 var nokkuð létt svo meira var sett á stöngina…Hraðinn var kannski ekki mikill en styrkurinn var fyrir hendi og Geysir fór upp með 280×2!…Haldi öll plön eftir þetta mun þessi gæðadeddari standa sig vel á EM í júnílok.

Um aðra á æfingunni má segja það að Sverrir Sig tók 270×2 og ætti að fara repsa 280 eftir tvær vikur eða svo…Kobbi Snær tók milliþungaæfingu og stillti upp fínum þyngdum með 230×1 og 260×1 og verður tilbúinn í þá sigurþyngd sem þarf  í tíunni 4 apríl….Magister tók af upphækkun 210×2 öruggt en hann vegur aðeins rúm 77 kg þessa dagana og er allur að  tæknimassast upp þar sem öxlin er mikið betri en fyrir HM í fyrra og stefnir í að kisi geti hugsanlega keppt í öllum greinum á EM….Rúnar málari deddaði 180×4 af upphækkuninni en þessi vinnuhestur er ekki búinn að gefa upp  hvenær hann keppir næst….

Share on Facebook

Comments 6 Comments »

Kobbi Snær með hroðalegan svip í bætingunni 270kg! - (ljósm.Auðunn Helgason)

Einn af nýmolum Metal er Jakob Snær Egilsson sem vakti nokkra athygli í fyrra þegar hann deddaði m.a. 250kg  á Bikarmótinu í Perlunni. Hann er núna skráður til keppni í tíunni á Mótormaxmótinu 4 apríl og kemur til með að bæta sig þar verulega.  Kobbi sem venjulega æfir í Þrekhúsinu ásamt Úlfi Orra Péturssyni mætti nú í andann í SteveGym með Úlfinum og einum öðrum félaga þeirra. Eftir að Kobbi hafði tekið 230 létt ákvað hann að stökkva í 29kg bætingu með 270 og tók það af gífurlegri hörku en líklegast hefði eitthvað rautt ljós sést á svona lyftu í keppni en upp fór hún!

Það sveif skemmtilega að Kobbanum eftir hina erfiðu 270kg lyftu - Hvað annað? - Bætingar kosta!

Sverrir Sigurðsson nær jafnan að gíra sig vel upp í deddinu

Einn af þeim deddmolum sem Steve hefur skapað undanfarin ár er Sverrir Sig sem deddaði 310kg á síðasta Metalmóti sínu. Hann er nú sem óðast að detta í form en ætlar ekki að keppa aftur fyrr en á Íslandsmótinu í deddi 4 júlí og mæta þar með bætingu. Sverrir tók í gær 270×2 sem var ágætt, en að vísu var það tekið á aðeins styttri vegalengd þar sem motturnar voru ekki undir fótunum á kappanum.

Arnar Styr deddar sem aldrei fyrr….

Steve er alltaf með einn eða tvo mola undir sérstakri bætinga handleiðslu sinni og þessa dagana njóta þess heiðurs þeir Bjarki hriki og Arnar Styr. Fyrir rúmlega einum mánuði eða svo tognaði Addi illa í bakinu í endalausu beygjusetti hvað reps varðar með 200kg og hefur verið að skríða saman síðan. Í gær jafnaði hann nokkuð auðveldlega sitt besta í deddinu með 250kg en vegna baksins var lokastaðan tæp en það kemur alveg fljótlega….

Úlfur Orri Pétursson- er upp á bætingu!

Einn af hinum hratt rísandi deddstjörnum á klakanum er hinn ungi yfirmoli Úlfur Orri en eins og kunnugt er þá er hann litli bróðir Stefáns Sölva stórskjóðu.  Því miður náðist ekki nógu góð mynd af kappanum á æfingunni í gær en hann var þar í miklum anda. Eftir upphitun með þyngdir yfir 200kg þá lét Úlfurinn almennilega þyngd á stöngina og þreif hratt og hroðalega í 300kg og tók það tvö reps!….Ef hann tekur meira dedd fyrir Mótormaxmótið 4 apríl þá gerir hann það örugglega í raunveruleikanum!

Share on Facebook

Comments 3 Comments »

Palli Patrópáver deddar bætinguna 220kg!

Þar sem allar myndir eru ekki tilbúnar frá föstudagsdeddinu þá birtum við 3 myndir núna og hinar mjög fljótlega.  Palli sem er 98kg skjóða mætti helgrimmur í dag eins og alltaf í deddið og fór með fína æfingu: 120×5 150×3 180×3 200×1 og 220 1×2!..Og síðan af upphækkun: 120×6 150×3 170×3 sem einnig var bæting. .Auðunn Helgason ljósmyndari var að taka sínar fyrstu pávermyndir og fékk þarna nauðsynlega reynslu! Þegar Palli var búinn að bæta sig með 220 var hann hreint ekki viss um að myndatakan hefði heppnast svo hann tók þyngdina aftur og þá enn öruggar!…225-230 liggur á Metalmótinu 4 apríl hjá Mótormax að KLETTHÁLSI 13

Bekkurinn, Magister og Patrópáver - Kófsveittur Bekkurinn núbúinn að bekkjast á með 150×6!

Magister Cat undirbýr Pallann fyrir deddbætingu

Það voru ýmsir skemmtilegir molar sem tóku á deddinu í RAUNVERULEIKANUM í dag og fjöllum við um það í seinni hlutanum með fleiri myndum….STEVEGYM ÞAR ER ANDINN!

Share on Facebook

Comments No Comments »

Grjóni miðnæturdeddari og Bjarki hriki eru jafnan mestu mátar í gyminu

Það má segja að deddið í Steve Gym skiptist í tvo til þrjá æfingahluta. Meirihlutinn mætir á föstudögum og  Hrikinn á mánudögum og svo Grjóni einhverntíman þegar hann kemst í anda…Sá síðastnefndi hefur nú aðeins dútlað undanfarna mánuði en í síðustu viku  deddaði kappinn 230×3….Bjarki hriki sem er að detta í 120kg skjóðuþyngd var heldur betur í formi í gær og í fjarveru Foringjans stjórnaði Sir Cat þyngdarvalinu…En það var þannig: 120 5×2 160×1 200×1 240×1 280×1 320×1! - Lyftan með 320kg var fremur létt og hröð og líklegt að Hrikinn muni veita  Ofurandlitinu Orra Geirssyni harða keppni í deddinu á Mótormaxmótinu hjá Metal 4 apríl….

Patreksfjörður hefur alið af sér margan mætan manninn

Palli Patrópáver er alveg að ná deddlágmarkinu fyrir Evrópumótið í Hollandi en Palli hefur æft mjög vel undanfarið og bætingarnar fljúga upp þessa dagana. Við lofum myndum af þessum vestfirðingi eftir viku eða svo þegar gerfihnattadiskurinn verður kominn í yfirflottu myndavélina hans frá USA…Palli var mjög hress á æfingunni og byrjaði á því repsa deddtoppinn sinn með þvi að taka 200×4!  Síðan fór hann í bætingu og flengdi upp 215kg! og átti inni!….Meira næst! - Rúnar málari mætti þreyttur en grimmur og togaði af hörku 200×5! og tók síðan nokkur sett með 160 af opphækkun. Einnig tók Sverrir Sig vel á því þegar hann fór upp með 260×4 sem var eins repsa bæting frá því síðast….

Double trouble!

Bjarki geysir mætti óvænt ekki á æfingu en ætlun hans var að repsa hrikalega þennan dag. Óstaðfestar fréttir hermdu að tvíburarnir hefðu verið óþægir heima og að deddfrestun hafi verið óhjákvæmileg…Mætir tvíefldur næst kappinn!

Share on Facebook

Comments 6 Comments »

Sverrir Sigurðsson úr SteveGym deddar hrikalega á fyrsta Íslandsmóti Metal 2008 í Mótormax

Föstudagsdeddið í SteveGym gekk sinn gang í góðum anda. Sverrir Sig er á jafnri uppleið og tók fína seríu með: 220×3 -240×3 og 260×3 á eftir því tók hann af upphækkun 220×3 af miklu öryggi.  Bjarki geysir tók því rólega og lét sér nægja frísk sett með 230 3×2 en tekur þungt  næst….

Kraft-molinn Ölli vinur er alltaf jákvæður á alla í hvaða sambandi sem þeir eru og hvetur menn óspart til að dedda einu repsi meira en þeir geta….Þegar Magister klikkaði á 210 á harðsperru-tímabili sumo stílsins ráðlagði Ölli honum að taka það með gamla stílnum og gekk það eftir, og síðan 180×3 af upphækkun sem var lítið mál.

Páll Sigurðarson (Palli Patrópáver) sölustjóri í Kolaportinu tók fyrst 170×3 og síðan hörkulegt sett með bætinguna 195×3! og á eftir því af upphækkun 160 3×2! - Rúnar róspainter Óttarsson er mikið að mála þessa dagana en mætir alltaf í föstudagsdeddið og núna tók hann 195×3 og síðan 180×3 af upphækkuninni…..Stefnt verður að því að mynda deddið á föstudögum  og birta úrval af þeim með pistlunum hérna alveg fram að EM í Amsterdam í júní.

Share on Facebook

Comments No Comments »

Steve og Hrikinn á góðum degi í deddinu

Andinn í raunveruleikanum í Steve Gym er í góðum farvegi þessa dagana og molarnir á fullu að undirbúa sig fyrir tvö næstu mót sem eru Íslandsmót Metal í apríl og Evrópumót WPF sem Metal er aðili að en það mót fer fram í Amsterdam í lok júní. En þeir sem eru áhugasamir um þá ferð eru hvattir til að hafa samband við Sir Magister Cat .ritara Metal.

Á æfingu föstudagsins í Steve Gym var Bjarki hriki í góðu stuði og að fjarstöddum Foringjanum sem mætti of seint til að hvetja kappann,  tók Hrikinn fínar þyngdir með seríunni: 280-300-310kg.

Bjarki Sigurðsson geysir deddar á Metalmóti í Perlunni

Geysirinn er aftur að koma sér í form eftir að hafa gerst tvíburafaðir fyrir nokkrum mánuðum en slíkt tekur á í deddinu sem í lífinu sjálfu…Á æfingunni reif Bjarki upp í deddinu: 220×3 - 240×3 - 260×3  Hann tekur þungt dedd á hálfsmánaðarfresti og stefnir því að meiri þyngdum hjátrúardaginn  föstudaginn 13 mars….

Hvað aðra varðar á deddæfingunni á föstudag þá tók Sverrir Sig nokkuð hratt sett með 250×3 og deddaði síðan vel af upphækkun á eftir. Nýr ungmoli frá Patreksfirði Palli að nafni er að stíga sín fyrstu alvöruskref í deddinu eftir 2-3 mánaða þjálfun en fyrir viku  tók hann tvistinn í fyrsta sinn og í gær tók hann repsabætingu með 192,5×3 og hefur sett markmiðið á 220 sem er lágmarkið fyrir hann til að keppa á EM í Hollandi í sumar. Við segjum meira frá Pallanum seinna en við munum verða með vikulega pistla  um deddæfingarnar í raunveruleikanum…..

Share on Facebook

Comments 1 Comment »