Archive for the “PÁVERHETJUR + ÆFINGAR OFL.” Category


Axlir eru flókin vöðvatæki líkamans

Þeir eru nokkrir sem halda að axlaræfingar séu mest gerðar til að styrkja sig í bekknum…Þær eru auðvitað nauðsynlegar í það en það má alls ekki gleyma því að stór hluti þess að geta togað út deddið í góðri klárun er axlarstyrkur. Það eru margar axlaræfingar til og það þarf alls ekki að vera með  neitt rosalegar þyngdir í slíkum æfingum til að ná upp auknum styrk. Best er að hafa axlaræfingarnar sem fjölbreyttastar og æfa þær helst tvisvar í viku..einu sinni í viku allavega. Gott æfingamyndband með leiðbeiningum er: HÉRNA

Leonardo Da Vinci stúderaði axlir í öndverðu - Ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Vefsíðan Critical bench er einnig með margar góðar greinar um páverinn og þar er t.d. að finna eftirfarandi grein um axlir: HÉRNA

Share on Facebook

Comments 1 Comment »

Búkkar eru nútíðin og örugglega framtíðin segir Fjölli búkkabiskup og æðsti presturinn Dave Tate…

Vefsíðan www.elitefts.com hefur nú birt grein um búkkaþjálfun sem hefur vakið mikla athygli og er þegar talin hin eina og sanna Búkkabiblía…Hún hefst á þessum orðum lauslega þýtt:  “Síðustu árin hafa búkkar verið ein vinsælasta æfingaaðferðin fyrir bekkpressu…Hvort sem menn nota búkkana til að auka sprengjukraftinn eða hröðun lyftunnar eða sem grunnaðferð til að bæta trysep styrkinn eða almennan styrk þá hafa búkkarnir sannað sig sem algjör klassi!”

Þú sleppur ei með skrekkinn

ef skrattinn býr þér hjá,

en æfirðu búkkabekkinn

bjarta framtíð muntu sjá!

Búkkabiblían skiptist í nokkra kafla og nokkur vers þar sem m.a. er fjallað  um margar tegundir búkka og búkkagerðir og æfingar fyrir kjötbekk og fyrir sloppabekk…Greinin um Búkkabiblíu fyrir bekkpressara er: HÉRNA

Njótið vel og lærið til framfara!



Share on Facebook

Comments No Comments »

Bill Gillespie USA tekur 363kg á bekk…! (800 pund)

Það eru margir góðir bekkarar í Bandaríkjunum. Aldur þeirra sem pressa meira og meira færist ofar og geta margra pávermanna bæði þar í landi og annarsstaðar er hreinlega með ólíkindum..Bill Gillespie er búinn að vera þekktur öldungabekkari nú um skeið en kappinn keppir hjá einu drug-free sambandi (WABDL). Hann vakti t.d. mikla athygli 45 ára árið 2004 þegar hann tók 340kg á bekknum.

Lyftan hjá Gillespie með 363kg í 125kg flokknum var tekin í einföldum Titan Fury slopp á móti sem heitir því skemmtilega nafni: Shut up and bench!..(Haltu kjafti og bekkaðu!) Nafn í anda Borgarnesbollunnar sem ætti að stefna á næsta Shut up mót!.. Þetta er mesta þyngd sem nokkur öldungur 50 ára eða eldri hefur tekið í heiminum  yfir öll sambönd á bekk fyrr og síðar.

Gillespie tekur 340kg á bekk 45 ára

Powerlifting watch birti frétt árið 2008 um Gillespie þegar hann tók 322,5kg á bekknum á HM móti hjá WABDL  og má sjá myndband af þeirri lyftu: HÉRNA..

Myndband af 800 punda lyftunni núna á líklega eftir að birtast á Powerlifting watch..sjáum til..Æfingaprógram Gillespie á bekknum má sjá: HÉRNA

Share on Facebook

Comments 18 Comments »

Menn eru alltaf stöðugt að velta því fyrir sér í pávernum hvernig sé best að vefja á sér hnén, og eru mjög misgóðir í því.
Hér er ágætis kennslumyndband sem menn ættu að stúdera vel þannig að þeir klúðri ekki vafningunum á næsta móti!

Share on Facebook

Comments No Comments »

Ungur Stebbi spjóti tekur krabbann …

Hinn eini og sanni Spjóti hlífur aldrei stálinu eða sjálfum sér…Hann býr nú suður með sveit og á þar börn og buru en gleymir aldrei guðsgreininni…(þarf stundum að minna hann á deddið)  Kappinn er nú  að detta í anda því hann er búinn að sjá að Masterinn sá hrikalegi öldungur er að stinga hann af í bekknum og ætlar að fara gera eitthvað raunhæft í málinu..eins og t.d. að stúta 200kg múrnum á bekk í keppni..Spjóti tók núna af þessu tilefni fína þristabætingu sloppaður á bekknum með 180×3!..Gefur góð fyrirheit…Á eftir þessu henti hann upp 235kg deddi og lofar meiru á nýju ári…

Okkar Spjóti-aldrei fúll á móti…

Spjótinn undirbýr  massann fyrir sitt fyrsta kreppumót á níunda áratug síðustu aldar…

Share on Facebook

Comments 11 Comments »

Donnie Thompson USA beygjir 560kg árið 2008

Fyrirspurn hefur borist um hver eigi mesta totalið í heiminum í páver óháð sambandi. Það mun vera kaninn Donnie Thompson sem tók í York Pennsylvaníu í nóv 2008 44 ára að aldri: 560- 412,5-345 -1317,5kg eða 2905 pund

Menn taka eftir því að kappinn er aðeins á Skyrastandard í deddinu en samt með þetta gífurlega total….Hnébeygjan er vitanlega geggjuð en Donnie æfir hana samkvæmt hefðbundnum gildum tvisvar í viku. Einu sinni þunga á mánudögum og einu sinni létt á föstudögum.

Donnie Thompson bekkar 412,5kg inn í met-total sitt

Þess skal getið að Donnie æfir bekkinnn eitthvað með búkkabiblíum inn á milli þess sem hann æfir raunverulegan bekk.

Donnie lætur massaða kellingu halda á búkkanum í upphituninni áður en hann meikaði 412,5kg bekkinn

Hér fyrir aftan má sjá umfjöllun um Donnie Thompson..viðtal við hann og slatta af myndböndum: HÉRNA

Og myndband frá mótinu í York má sjá metlyftuna í beygjum..ágætis kvartbeygja 560 kg  með hefðbundnum yfirmola-afslætti: HÉRNA

Share on Facebook

Comments 19 Comments »

Finninn sterki Ano Turtiainen æfir keðjubekkinn á fullu

Nýrri öld fylgja nýjar æfingar og nýjar bætingar….Bekkpressa með keðjum sem hengdar eru á stöngina er ein af þessum nýju æfingum sem molar samtímans eru farnir að nota til að sprengja vigtaskalann á gömlu þyngdunum…Það eru ekki bara einhverjir súpersloppar sem gefa tölur í bekknum eins og margir virðast halda…Reyndar eru keðjurnar líka notaðar í beygjur og dedd með góðum árangri….

Í gamla daga æfðu menn keðjulausir á einföldum bekkjum…

Hluti keðjanna er alltaf á gólfinu og fer síðan upp á við eftir því sem stöngin fer upp frá kassanum..þannig þyngist á stönginni eftir því sem ofar dregur og lyftarinn  fær meiri þjálfun í að klára pressuna..Þetta er allt öðruvísi en að búkkabíblíast því þegar menn nota búkka þarf að starta vigtinni frá búkkanum sem er því takmarkaðri og einhæfari hreyfing…..Um daginn var fyrsta myndbandið tekið í SteveGym af keðjubekk en þá fór Gunni master upp í 120kg…SJÁ: HÉRNA

Það eru engar sérstakar reglur eða prógröm til um það hvernig skal æfa keðjubekk.  Það eru nokkrir í SteveGym sem eru að æfa fyrir HM í Vegas og þeir taka t.d. keðjubekk í 5 x5 á eftir þunga bekknum og láta svo keðjubekk alveg duga á létta deginum….allt hratt og frískt með keðjunum báða dagana.  Menn verða svona bara að prófa sig áfram með þetta og alveg gleyma búkkabiblíum á meðan…Keðjur eru raun-alvara!

Benni breiðsíða hefur náð bekkbætingum með keðjuþjálfunKappinn ætlar að keppa í Las Vegas og láta keðjurnar tala!

Share on Facebook

Comments 3 Comments »

Hér sést þokkalegur moli lyfta á einföldum búkka

Svokallaður búkkabekkur (benchpress on boards á ensku!) hefur verið að ryðja sér til rúms sem ný og öflug þjálfunaraðferð á síðustu árum. Fremstur í flokki ofurmola á þessu sviði er auðvitað bekkpressujöfurinn Ryan Kennelly sem á nærri 500 kg í keppni á bekk og æfir mikið með búkka..Búkkarnir sem notaðir eru í þessa æfingu eru svona hefðbundið frá einum upp í fjórfaldan.  Þjálfun á þennan hátt styrkir farveg lyftunnar á mismunandi stöðum eftir hve margir búkkar eru notaðir en í heild sinni hjálpa þeir mest við að klára lyftuna.  Sloppar nútímans sjá að mestu um startið en lyftarinn sjálfur þarf síðan að klára undir eigin  vélarafli og þar hjálpar búkkaþjálfunin gífurlega….

Léttmoli lyftir á þreföldum búkka. Þá styttist vegalengd lyftunnar talsvert og trysepinn kemur meira inn í átakið

Það eru nokkrir væntanlegir HM farar Metal sem æfa í SteveGym með svona búkkaþjálfun. Slíkt hefur þegar skilað góðum árangri eins og t.d. Baldvini bekk sem í fyrra  setti heimsmet öldunga 220,5kg í 50-55 ára aldursflokknum eftir 3 mánaða búkkaþjálfun þar sem hefðbundinn bekkur var lítið æfður.  Flosi spider komst þá einnig á skömmum tíma  upp úr “engu” á bekk upp í 170 kg með búkka sem undirstöðuþjálfun. Núna æfa SteveGym molar undir leiðsögn búkkameistarans Fjölla teygjutvisters ,en hann sýndi mönnum um daginn hvernig á að fara að þegar hann tók bætingu með 200×3 af þreföldum búkka.  Á föstudag æfðu menn með þyngdir frá 120-150kg  3-5 reps heil 8 sett..Mest af þreföldum búkka.

Best er að hafa góða aðstoðarmenn við búkkaæfingarnar..

Þegar nær dregur keppni fara menn í slopp og lyfta á búkka þannig 1-3 reps. Við munum síðar reyna að fá Dr. Teygjutvister  til að skrifa eitthvað meira um búkkabekk og gefa  einhver góð ráð í þeim efnum.

LINKUR UM BÚKKABEKK: HÉRNA

VILTU BÆTA ÞIG Á BEKK? : HÉRNA

Share on Facebook

Comments 42 Comments »