LEIÐIN AÐ 300 Á BEKK…
Það hafa þúsundir Frónbúa tekið á því í páver síðustu áratugi…margir orðið
mjög sterkir og frægir..en frægðin ein dugar ekki til..Hvað tekurðu á
bekk?..Það hafa frá upphafi vega aðeins þrír íslendingar tekið 300kg á bekk
og
einn af þessum útvöldu er Ingvar Ingvarson..ringoinn…
46 ára gamall og aðeins 116,2kg að skjóðuþyngd tók Ingvar 300kg á bekk í
125kg
flokki og setti heimsmet öldunga og varð jafnframt heimsmeistari í bekk á
heimsmeistaramótinu í Las Vegas í nóv 2009. Einstakt afrek. Ritstjórinn náði
tali af Ingvari um leiðina að 300 á bekknum en eins og kunnugt er þá býr
kappinn nú í Saint Johns í Kanada.

Ingvar enn með járn í kassanum eftir hjartauppskurð…
LEIÐIN AÐ 300…
VIÐ SPYRJUM FYRST MEISTARANN: HVENÆR FÓRSTU FYRST AÐ HUGSA UM AÐ ÞÚ GÆTIR
RAUNVERULEGA TEKIÐ 300 Á BEKK?
“Í ágúst 2001 ákvað ég að verða fyrstur íslendinga til að taka 300 á bekk. Ég
var á WPC móti í Orlando í Florida ásamt Bóndanum og vorum við gestir á þessu
móti.Ég hafði fram að þessu haft litla reynslu af sloppum en átti samt fyrir
mótið 210kg en bætti mig á mótinu í 225 og komst í yfiranda við það..
FLOTTUR! - EN HVAÐ GERÐIST SÍÐAN?
“það hófst mikið bætingatímabil næstu árin en á Íslandsmótinu á bekk 2003 tók
ég frægt met af Baldvini bekk 240,5kg í tíunni og síðar sama ár tók ég á
Bikarmótinu 255. Árið 2004 massaði ég upp 265 í 125kg flokki og svo árið 2005
kom hið ógnvænlega bekkpressumót..fram að því má segja að ég og Auðunn hafi
verið komnir í kapplaup í áttina að 300kg markinu og bættist við það svo hin
hrikalegasta hraðlest sem ég hef áður kynnst, Maggi trukkur…

Ingvar fer upp með 290 á bekk árið 2005 en dæmt af vegna fótahreyfingar…
JÁ,JÁ, HVERNIG FÓR ÞETTA ALLT EIGINLEGA?
“Ég ætlaði mér að taka 300 á bekknum á Íslandsmótinu í bekk 28 janúar 2005 en
það tókst ekki vegna þess að ég var settur í hjartaþræðingu í upphafi
uppkeyrslu
fyrir það mót í okt.2004. Var mér síðan tilkynnt nokkrum dögum fyrir mótið að
ég væri kominn með kransæðastíflu og yrði strax að hætta að æfa og vinna..Ég
tók svo 280kg bætingu á mótinu og fór upp með 290 sem var dæmt af. Þetta
truflaði mig smá að vera fyrstur í 300 og á meðan ég var settur í allsherjar
hjartauppskurð á þessu ári 2005 þar sem m.a. skipt un helling af æðum í mér,
þá
náði Auðunn því að verða fyrstur að taka 300 á bekknum og var það sérlega
glæsilegt hjá honum!

ALLT Í LAGI HRIKALEGUR - EN ÞÚ GAFST EKKI UPP VIÐ 300KG DRAUMINN ORÐINN SVONA
HUNDGAMALL?
“Uppjöf? -Hvað er það? Ég vissi frá upphafi að ég myndi fanga 300kg bekk en
mér
þótti heldur súrt að varða þriðji í þeirri baráttu því Sigfús Fossdal hafði svo
einnig tekið 300. Það má segja að á EM í Hollandi 2009 þar sem ég tók 260
létt
og 270 fór upp þá fann ég að ég var tilbúinn að klára þetta 300kg mál.Mér
þykir
samt gott að hafa klárað þetta í öllum þeim breytingum sem voru í lífi
mínu.Ég
var nýflttur tl framandi lands þar sem járnarusl var besti vinur minn þar til
Addý sú elska kom. Ég fékk samt óskipta athygli og stuðning frá félögum mínum
hér í gyminu og voru allir þar mjög spenntir fyrir heimsmeistaramótinu í
Vegas.Það munaði samt litlu að ég flautaði mótið af vegna meiðsla í baki en
það
var þegar ég þurfti nokkrar nætur að sofa uppréttur vegna kvala. (ath.þetta
er
bara væll því ritstjórinn þurfti að sofa uppréttur í tvo mánuði fyrir HM í
Vínarborg 2008 og kvartaði aldrei) Ég tek það fram að ég misti samt ekki úr
einn einasta vinnudag vegna þessa”..
JAMM.HARÐUR! - OG ÞÚ HARKAÐIR ÞETTA SVO MEIRA AF ÞÉR HLÝTUR AÐ VERA?
“Já,köttur ég sagði við sjálfan mig: “Úr því að þú harkar af þér vinnuna
harkar
þú af þér mótið líka!”
ÆFINGAR SÍÐUSTU 3 MÁNUÐI FYRIR MÓTIÐ VORU Í STÓRUM DRÁTTUM SVONA”:
Mikill kjötbekkur á 7-8 daga fresti. Hitað vel upp með léttum þyngdum
60-100kg
í 8 settum. Svo keyrði ég upp með 20kg stökkum 2-3 reps 1 sett þar til 180×1
og
svo stundum í 200×1 0g 210×1 tvisvar sinnum fór ég í 220×1 allt æft með
stoppi
bæði léttar lyftur og þungar enda var sprengjukraftur minn kominn í nýjar
víddir…

Ringo pumpar skrautæfingu fyrir Vegas…
Eftir hvern topp á kjötæfingunum tók ég 180-190 2×10 og fullt af
pumpi
og skrautæfingum mismunandi þungar svona 7-10 æfingar í 15 repsum í 2-3
settum
hverja æfingu.

Ingvarinn pósar í æfingastöðinni í Saint Johns
OKAY FLOTT RINGO EN HVAÐ UM SLOPPAÆFINGAR?
“Ég náði þremur sloppaæfingum fyrir Vegas. í æfingu nr.2 rifnaði Metal 58
sloppur Mastersins í 280kg lyftu. Ég fékk nýjan nr.62 13 dögum fyrir mót og
tók
illa í honum 280 en skrifa það á þreytu samt frekar en slopparæfilinn.Ég fór
ekki meira í gymið og hvíldi 12 daga algjörlega. Reyndi bara að éta á mig
þyngd.”
SEGÐU OKKUR MEIRA AF ÞESSUM SLOPPAMÁLUM..
“Já,þegar ég kom til Vegas sá ég að verið var að selja sloppa þar og
sérstaklega eftir að Fjölli hafði bætt sig hrikalega í glænýjum Katana sloppi
ákvað ég að yfirgefa Metal sloppa sem ég var farinn að vantreysta. Ég keypti
mér því 52 Katana slopp sem ég arfleiddi svo Masterinn að til að bæta fyrir
> sloppinn sem ég reif frá honum.
MASTERINN HEFUR SLOPPASÖGU ÞESSA AÐ SEGJA OG KEMUR HÚN HÉR INN Í:
Gunz lánaði Ingvari slopp síðasta sumar, sem hann varð Evrópumeistari í frá
Amsterdam. Þetta var Viking Bencher númer 58 og stuttu síðar biður Ingvarinn
um
sloppinn aftur, sem Master sendi góðfúslega til Canada. Eftir nokkrar æfingar
rifnar sloppurinn í tætlur, eftir að Ingvarinn hafði verið á mikilli uppleið.
Ingvar og Master VORU SVO BÁÐIR Í HRIKALEGUM ANDA.. Ingvar kaupir svo
Katanasloppp í Vegas, sem Ingvar mátar aðeins einu sinni og tekur í honum 300
kg. Ingvar fer svo til Canada í afslöppun á árinu. Snemma árs 2010 sendir
Masterinn fyrirspurn til Ringos að fá 300 kg sloppinn lánaðan úr því
Ingvarinn
væri hættur að sloppast (í bili). Ingvar bregst vel við fyrirspurn Master og
sendir honum sloppinn nokkrum dögum seinna og honum fylgdi miði, sem
skrifaður
var með stórum stöfum á pappakassaafrifu:
Sæll Gunnar!
Þú færð Katana-sloppinn í skaðabætur fyrir Metal sloppinn! En
mundu…Katanasloppurinn er ekki ætlaður til búkkalyftinga því þá missir hann
300 kg kraftinn! kv Ringó
300kg sloppurinn…
Gunnar Master hefur tekið eina æfingu í sloppnum og líkaði vel, nema að
skjóðan
var bara ekki nógu stór til að fylla upp í sloppinn. Það stendur allt til
bóta,
því karlinn hefur náð mest 113 kg síðust daga og vildi glaður ná 116 kg plús
til að sloppurinn megi gefa honum 220-30 kg sem Master stefnir á í sumar.
Ingvar hefur samt Masterinn grunaðann um að stelast í búkka, samkvæMt facebbok
færslu, en það mun ekki rétt vera, enda trúir Master því að Ingvar hafi lagt
álög á sloppinn.)

Ritstjórinn og Ringo ráðgera viðtal ársins í Vegas…
BEKKPRESSUKEPPNIN Í LAS VEGAS
HVERNIG GEKK SVO KEPPNIN FYRIR SIG RINGO?
“Ég fílaði mig hrikalega í upphituninni en þar voru helstu aðstoðarmenn mínir
þeir Fjölli tvister,Villi ketill og Flosi spider…Það var ævintýri að troðast
í nýja sloppinn með þeirra hjálp en þetta gekk fínt og ég tók 260 í síðustu
upphitun eins og ekkert..Fór svo með alllar lyftur gildar í keppninni á þremur
hvítum og endaði á 300..Fór reyndar í aukatilraun í 310 sem ég missti nærri á
hálsinn en þá var ég alveg búinn”…
-
RINGO 300KG MYNDBAND
ÚRSLIT Í BEKKPRESSU 125KG FLOKKI 45-49 ÁRA HM - LAS VEGAS
1. Ingvar Ingvarsson Ísland 116,2 - 270 - 285 - 300 Heimsmet -(auka:x310)
2. Tim Moon USA 115,5 - 255 - x275 - x275
3. Ron Garcia USA 113,6 - 182,5 - X190 - X197,5

Ingvar ringo sem heimsmeistari í Vegas
EFTIRMÁLI: HVERNIG ERTU Í BAKINU OG HVER ERU NÆSTU BEKKPRESSUPLÖN HJÁ
HEIMSMEISTARANUM?
“Ég er rétt að ná einhverjum bata núna og er framtíðin sú hjá mér að vinna
upp
kjötstyrkinn upp í nýjar víddir á þessu ári og stefni á 250kg fyrir næstu jól
og Florida á næsta ári.
“Ég segi svo að ég ætla að lyfta mestu bekkpressuþyngd íslendings frá
upphafi!.
Ég get ekki nefnt töluna því það fer eftir því hvað skyrtröllið hann Sigfús
verður búinn að taka…
Baldvin var fyrstur í 250, Auðunn fyrstur í 300, en ég verð fyrstur til að
taka
bekkpressukrúnuna yfirallt, því ég verð elstur, léttastur og “fallegastur” af
öllum fyrri kóngum”…





















Entries (RSS)