Archive for the “Tilurð uppnefna” Category


Haukur Pálsson, léttmoli sem deddar 220kg

Sumir í kraftageiranum fá viðurnefni fljótt, aðrir seint um síðir og sumir jafnvel aldrei… Ástæðan fyrir viðurnefnum manna er oft einföld eða flókin og stundum ræðst það af sérstökum atburði….Haukur sem er rokkari í hljómsveitinni KLINK  er nú kallaður Þvottur, en hann er búinn að æfa í Steve Gym í rúmt ár og hefur ástundað réttstöðuna af miklum krafti og örgrannur deddaði hann 220kg á Akureyri í júní og varð óvænt Evrópumeistari í deddkeppninni í 82,5kg flokki….Það gerðist einmitt á Akureyri að Haukur fékk viðurnefnið “þvottur” af sérstöku tilefni. Hvort að það muni festast við hann mun tíminn leiða í ljós eða hvort hann verður nefndur eitthvað annað síðar….

Aðal-Fúsi í aksjón á EM

Annar kappi, Birgir Þorsteinsson kallaður Aðal-Fúsi nú á dögum gisti með Hauki og nokkrum öðrum molum í 3 hæða einbýlishúsi sem þeir tóku á leigu á meðan EM stæði. Eftir keppnina var Fúsinn nokkuð þrekaður enda hafði hann á nokkrum mánuðum þyngt sig um 20-30kg fyrir mótið. Hann trítlaði sér nú samt niður í kjallara og setti svitastorkin föt sín og tilheyrandi í þvottavél. Á meðan vélin vann sitt verk lagðist Fúsi upp í sófa í stofunni og hreyfðist lítt eftir það. Kappinn varð síðan heldur þreyttari en hann hafði búist við og treysti sér ekki til að molast ofan í kjallara aftur þegar þvottavélin var búin. Hann lét því þau boð út ganga til viðstaddra  að hver sá er myndi taka út þvottinn og hengja hann upp á snúru fengi þúsundkall á mínútuna….(Þarna er kominn Aðal-Fúsinn!)….Haukurinn tók þessu tilboði á stundinni og var 5 mínútur að verkinu…Hann hefði getað drollað lengur en dreif í þessu…Fimmarinn úr massaðri hendi Aðal-Fúsans skipti um eigendur og það liðu ekki nema nokkrar sekúndur frá því þar til heyrðist í djúpri kattar-rödd: “Hvað segir Haukur ÞVOTTUR. var þetta nokkuð erfitt?”


Þvotturinn hans Aðal-Fúsa eftir að Haukur hafði hengt hann upp í garðinum að Laxagötu 8


Share on Facebook

Comments 5 Comments »

-

Gústaf Agnarsson

Hér á árum áður voru þeir kunnir kraftajötnar Gústaf Agnarsson og Arthur Bogason. Gústaf sem nú er látinn var margfaldur Íslands og Norðurlandameistari í lyftingum og á tímabili sterkastur hér á landi bæði í jafnhöttun (210kg sem enn er mesta þyngd íslendings í þeirri grein) og í réttstöðulyftu 315kg. Gústi hafði viðurnefnið Próteintröllið en það kom af því að hann byggði sig upp af próteini og varð á fáum árum sem mjór drengur að breiðum mola…Arthúr sem er Akureyringur er aftur á móti þykkur moli að upplagi og eðlisfari og allur náttúrulega sterkur. Hann vakti strax mikla athygli á Íslandi fyrir mikla krafta og þá sérstaklega í réttstöðulyftu þar sem hann tók 342,5kg á Heimsmeistaramóti í Dayton í USA 1979. Á stuttum ferli vann Túri marga góða sigra og var sá eini sem náði að sigra Jón Pál hér á landi í páver. Bernharð Haraldsson skólameistari á Akureyri fann upp viðurnefnið Norðurhjaratröllið á Túra og varð hann landsfrægur undir því nafni. Hann er einnig þekktur fyrir störf sín sem formaður Landssambands smábátaeiganda á Íslandi.

Viðkynning þessara tveggja jötna var dálítið sérstök og hefur reyndar verið sagt frá henni í löngu gleymdri blaða eða tímaritsgrein fyrir mörgum árum.

(Ritstjórinn mundi allt í einu eftir þessu þegar hann heyrði sögu af gömlum Austfirðingum en annar þeirra Ragnar Björnsson var kallaður fellibylur vegna slagsmálahörku og svo hinn maðurinn sem nefndur var Jón gustur. Viðkynning þeirra var nokkuð flott þannig. Jón var ákaflega stór vexti og vel ánægður með viðurnefni sitt. Á samkomu einni í Sindrabæ á Hornafirði voru þessir veðurofsamenn kynntir…Jón réttir Ragga höndina og segir: „Sæll félagi,ég er Jón gustur!“ Um leið og Ragnar tekur í höndina svaraði hann: „Sæll frændi,ég er Raggi fellibylur!“…Gusturinn varð víst eitthvað skrýtinn á svip og svaraði: „Þú hefur þetta eins og þú vilt Raggi minn!“)

-

Arthur Bogason

Viðkynning þeirra Gústa og Túra var hinsvegar þannig að sameiginlegur vinur þeirra beggja Kristján Sigurðsson Akureyringur,kallaður Danni langi sem er hinn vænsti náungi kom þeim saman til kaffisamsætis og spjalls. Gústi og Túri vissu vel af hvor öðrum þótt þeir þekktust ekki persónlega. Það hafði t.d. nýlega komið fram í fjölmiðlum að Túri ætti flottasta,kraftmesta og dýrasta sportbíl á Íslandi, Það var svona 600-1000 hestafla bíll á svipuðum nótum og Porche og Aston Martin. Það var líka frægt þegar Túri kom frá USA hélt hann á í handfarangri 50kg þungum vélarhluta til að bæta í hestöflin á þessari kerru.  Þegar tollvörður ætlaði að skoða töskuna sem Túri handlék skítlétt þá gat hann ekki bifað honum upp á skoðunarborð nema að kalla til hjálp……Danni hefur þarna orðið og lítur á Gústa og segir: „Gústi má ég kynna þig fyrir Arthúri Bogasyni en hann á kraftmesta bíl á Íslandi!“….Gústi brá ekki svip nema kannski örlítið glott læddist á varirnar og hann svaraði: „Sæll,ég heiti Gústaf Agnarsson og á kraftmesta líkama á Íslandi!“

Eftir þetta fór vel á með þeim og urðu þeir Gústi og Túri hinir bestu vinir.

Share on Facebook

Comments 1 Comment »

Sigurjón Ólafsson deddar á dagtíma í Perlunni hjá ÍKF Metal

Sigurjón Ólafsson – Miðnæturdeddari / sjálfur

Þá er komið að því að ýta aftur úr vör viðurnefnaþáttunum vinsælu. Það eru svo mörg viðurnefni í bransanum að það tæki nokkur ár að segja sögu þeirra allra svo vel sé. Það er þó ætlunin að skrifa reglulega þætti mánaðarlega svo biðlistinn styttist.

Nú er komið að einum af sonum SteveGym Sigurjóni Ólafssyni. Hann byrjaði að lyfta fyrir um 12 árum síðan. Eftir tveggja ára þjálfun fór Steve að taka piltinn meira að sér og fóru þá framfarirnar að koma svo eftir var tekið…Aldamótaárið 2000 var mikill deddandi í SteveGym enda var Magister Cat þá að starta fyrstu Íslandsmótunum í greininni ásamt Geysirnum og Masternum. Á þessum tíma var foringinn með regluleg helgarpartý í stöðinni. Við hinir vissum að Grjóni var búinn að dedda nokkuð yfir 200kg en Steve fór þá að segja að Grjóni væri búinn að dedda 250kg en það hefði hann gert eftir miðnætti í einu partýinu…Að vísu hefði hann slegið aðeins undir stöngina með annarri hendi til að auka viljann hjá Sigurjóni…Takmarkaður trúnaður var nú tekinn á þessu öllu…Grjóni sást þó á venjulegum tíma dags dedda 230kg einn og óstuddur…

Sigurjón  sjálfur tekur 270kg á Metalmóti nýlega

Svo leið að einu stöðvarpartýi uppi á 2 hæðinni þar sem Magister var staddur og Bjarki geysir og Masterinn ásamt Grjóna og Foringjanum sjálfum og fleirum….Steve fer þá að halda því fram fullum fetum  að Grjóni hafi eina nóttina fyrir skömmu deddað 300 í stöðinni eftir að hafa stútað mörgum Vodkaglösum…Klukkan var að ganga eitt í parýinu og Magister segir þá við Sigurjón: „Jæja Miðnæturdeddari nú kemur þú niður í sal og deddar í topp fyrir okkur!“

Það varð úr. Sigurjón fór niður og öll partýhersingin með til að fylgjast með átökunum. Eftir að Grjóni hafði svelgt einn auka tvöfaldan tók hann 260kg skítlétt fyrir mannskapinn…menn göptu..en þó göptu menn  enn meira þegar hann henti einnig upp ótrúlegri bætingu með 270!…Þá fór hann í 300..Steve sló þá vel undir stönginna með annarri hendi en hlassið fór hálfa leið…Eftir þetta var Sigurjón alltaf kallaður Miðnæturdeddarinn…Nokkrum árum síðar eða 2004 á Íslandsmóti í deddi á dagtíma tók hann brons í 100kg flokki með 210kg..það liðu mörg ár frá miðnæturdeddinu fræga að hann tók meira en 270kg en núna á hann best í keppni 287,5kg en á næturtíma með Steve í stöðinni á hann 320kg….

Á æfingu um daginn deddaði kappinn 260×2 sjálfur en svo repsaði hann 230 5×5 og sló Steve stundum undir stöngina….en sum repsin tók Sigurjón sjálfur…þetta varð til þess að Magister framleiddi aukaviðurnefnið „sjálfur“ á Grjóna til aðgreina hvað hann á sjálfur í deddi og hvað hann á með Steve…300kg dedd í keppni er nú á dagskrá hjá Sigurjóni sjálfum á þessu ári….

Share on Facebook

Comments 1 Comment »

Hvern andskotann var Kötturinn að kalla mig hérna?

Ritstjórnin hefur verið nokkuð beðin um að birta hér heildarlista yfir viðurnefni kraftamanna og þá sem tengjast því.  Fyrir einhverjum árum síðan tók Magister Cat ásamt Óla fógeta saman lista yfir viðurnefni í kraftaheiminum og birtu það á kraft.is vefnum. Sá listi er nú úreltur og þar lítt aðgengilegur. Nú hefur verið settur saman nýr listi…Sumir á listanum eru látnir og aðrir hættir að lyfta en viðurnefni þeirra lifa áfram með kynslóðum um aldir alda. Lesendur sem vilja koma nýjum viðurnefnum að eða öðrum sem gleymst hafa eða leiðréttingum sendið ritstjórninni tölvupóst eða komment.

Það er nú þannig að sumir menn vilja ekki þýðast viðurnefni sín og sumir eru því aldrei ávarpaðir beint með þeim nöfnum en eru kallaðir það svona manna á milli. Sum viðurnefni geta kannski virkað særandi en það er ekki meiningin heldur munu þau fundin upp til að skreyta kraftatilveruna. Ættu menn því að anda rólega og taka viðurnefnunum með reisn hins sterka….
Það hafa nú verið gefnar út bækur með viðurnefnum manna eins og t.d. nýlega í Vestmannaeyjum. Það hefur samt aldrei áður gerst í Íslandssögunni svo vitað sé að höfundi viðurnefnis hafi verið hótað málsókn fyrr en Georg Ögmundsson hótaði ritstjóranum málsókn fyrir að kalla hann á Kraftaheimum Gogga grút…það þurfti lögfræðing til að sjatla málin…

Hér á eftir eru nöfn um 135 kraftamanna en sumir bera reyndar fleiri en eitt viðurnefni og því eru viðurnefnin sjálf nálægt 190 talsins. Ritstjórinn sjálfur viðurkennir að eiga sök á um 40 þeirra en sá sem hefur einnig fundið upp mörg nöfn eða á milli 15-20 er sjálfur Ölli vinur…Hitt skiptist á ýmsa en allavega á Óskar Sigurpálsson sök á kattarnafninu sem verður seint fyrirgefið…eða fullþakkað….

Kallaðu mig aldrei aftur Beikon….(HÉRNA)

VIÐURNEFNI 1.janúar 2010

Alfreð Björnsson Freddi fighter.
Arthúr Bogason Norðurhjaratröllið
Arnar Már Jónsson Loggurinn
Auðunn Jónsson Ádi/Kópavogströllið/Verndarinn
Ásbjörn Ólafsson Flæðilurkur/Ísbjörn
Árni Freyr Gestsson Ernie Els/Kommentakóngurinn

Baldvin Skúlason Bekkurinn
Baldur Borgþórsson Rotarinn

Baldur Þór Baldursson, Ofurbaldur/Scronster
Benedikt Magnússon (yngri) Tarfurinn
Benedikt Magnússon Hinn eldri/heldri
Birgir Viðarsson Dýrið
Birgir Þorsteinsson Litli Fúsi
Bjarki Þór Sigurðsson Geysir
Bjarki Ólafsson Hriki/Double Hriki
Björgúlfur Stefánsson Skúlfurinn eða Úlfurinn (WRESKÍ WOLF)
Björn Hrafnsson Ræsirinn.
Björn Lárusson Stóri Björn.

Emil Ólafsson Tölvutryllir/Tryllirinn
Eiríkur Einarsson Gufubaðsstjórinn
Elvar Óskarsson boli (KAZ)
Erlendur Óskarsson litli boli
Einar Birgisson spói
Eyjólfur Unnarsson Krókódíll/Krókó

Flosi Jónsson Flosi gull, selurinn/ Spiderman/Spider
Friðrik Jósepsson Fredrikó
Friðrik Örn Sigurðsson Frikki fríski.
Freyr Aðalsteinsson Olíufurstinn/furstinn
Freyja Kjartansdóttir Tattúgyðjan, Frekja
Fjölnir Guðmannsson Teygjutvister/Tvister

Geir Þórólfson Lopinn
Grétar Guðmundsson Big-G/Stóra-G
Grétar Hrafnsson Griss, Guttormur, Grelli
Georg Ögmundsson Goggi grútur
Gunnar Ólafsson Bartinn, Skemmujarlinn.
Gunnar F. Rúnarsson Masterinn
Gunnar Sigurjónsson Kraftaklerkurinn
Guðni Sigurjónsson Heimsmeistarinn
Guðmundur Erlingsson Gummi handleggur
Guðmundur Sigurðsson Silver
Guðmundur Guðmundsson Landkynningin
Guðjón Guðmundsson Pornó king/ pornó star

Guðmundur Otri Sigurðsson, Otradalsgreifinn

Guðjón Gíslason, Austfjarðatröllið/Flottmolinn
Guðjón Hafliðason Turninn
Gústaf Agnarsson Próteintröllið

Halldór Eyþórsson Prjónninn/ prelli
Halldór E. Sigurbjörnsson, Donni, HES/Donið
Halldór Bergmundsson Dóri djöfull/Dóri driver/Driverinn/Litla Verið
Haukur Ásgeirsson Kaffihaukurinn/Hagbarður hundrað kíló
Heiðar Geirmundsson Heisi
Helgi Hauksson Kamelljónið
Helgi Jónsson (saksóknari) Gríní
Helgi Jónsson Magri
Hermann Hermannsson Hemmi málari
Hermann Haraldsson Hemmi formaður
Hjalti Árnason Úrsus/Dúddi/ Legend.
Hjörtur Geirsson Stinkí
Hörður Magnússon Súlnasperrir/Ölli vinur
Hörður Arnarson Harðviður
Hörður Ingi Stefánsson Bassafantur

Ingibjörg Óladóttir Skyrfrúin
Ingvar Jóel Ingvarsson Ringó, útfarastjórinn/frískleikakonungurinn
Ísleifur Árnason Sleifur
Ísak Jóhannsson Sólmyrkvinn

Jens Andri Fylkisson Estrogen/Bjargið/Túttu-Jens
Jóhann Möller Möllerinn
Jóhannes Kjartansson Öndin
Jón Benóný Reynisson Breiðsíðan/Big Ben/Benni beikon
Jón Elís Guðmundsson Massinn, Jónninn
Jón Gunnarsson Bóndinn.
Jón Páll Sigmarsson Spöri
Jón Randver Guðmundsson Rómeó, Rand, Röndinn
Jón Valgeir Williams Lumbri
Jón Gunnar Hannesson Dr.Power
Jóhannes Hjálmarsson Fíragott/Fíra/Jói worlds
Jóhannes Eiríksson Omegakraftur
Jóhanna Þórarinsdóttir Bjútíbomba
Jóhanna Árnadóttir Jófó/Feykirófa
Jóhanna Eiríksdóttir Silfurskotta/Skottan
Karl Sædal Þrillerinn
Kári Elíson Köttur/tígrisköttur/Magister/Sir cat/kisi
Kristbergur Jónsson Turbóinn
Kristinn Ari Hinriksson Kiddzenegger
Kristinn Óskar Haraldsson Boris/Doris
Kristján Falsson Daddi diet

Lúðvík Björnsson Lúlli refur

Magnús Ver Magnússon Verið, Smælið/strongest
Magnús H. Magnússon Trukkur
Magnús Steindórsson Kakóinn/Kakó
Magnús Hauksson Suðurnesjanökkvinn
Magnús Korntop Korntoppurinn
María Guðsteinsdóttir Títlan/Júdasardrottningin
Margrét Sigurðardóttir Magga massi
Matthías Eggertsson Hæasinn
Már Óskarsson Marhnúturinn

Njáll Torfason Njallinn,Neil/Skelfirinn, Vestfjarðaskelfirinn

Orri Geirsson Adonis/Módelið/Aflraunaprinsinn
Ólafur Sigurgeirsson Bólan, Fógetinn.
Ólafur Karl Eyjólfsson Óli klútur/Óli slæða/ rokkó
Óskar Sigurpálsson Óld sker, Skörin

Páll Logason Fermeter
Páll Sigurðarson Patrópáver/Palli Patró/Flengmaster/Lyftusjarmörinn
Philip Óskar Sambó

Rúnar Friðriksson Fjósi.

Sigrún Finnsdóttir Skoltan/Fiskurinn
Sigfús Fossdal Skyri Fúsdal/Skyrhöfðinginn/Skyrhrúgan/Skyrmassinn
Sigurjón Ólafsson Miðnæturdeddarinn/Sjálfur
Sigurður Stefánsson Kanslarinn/ Handleggurinn
Sigurþór Arnarsson Silli trappi
Stefán Sigurðsson Kanslarasonurinn
Stefán Svavarsson Spjóti
Stefán Fannar Sigurjónsson Stebbi rauði, Fiskabúrið
Stefán Hallgrímsson Steve/Foringinn
Stefán Sölvi Pétursson Stórskjóðan
Sæmundur U. Sæmundsson Kálfurinn
Sólmundur Helgason Sóli
Skúli Óskarsson Smiðjusvínið/Stálmúsin/Fáskrúðsfirðingurinn frækni
Snæbjörn Aðils Snædýrið, Gælir
Sverrir Hjaltason Lakkrísinn/Lakkinn
Svavar Smárason Hlöllahlúnkurinn/Hlölli
Svavar Einarsson Tankurinn

Torfi Ólafsson Loðfíllinn/Torfan
Tómas Einarsson Drumbur

Valbjörn Jónsson Valli bakari
Valdimar R Valdimarsson Kerfismolinn/Valdi kerfis
Vilhjálmur Stefánsson Ketillinn
Viðar Sigurðsson Eftirlitið
Viðar Eysteinsson,Moli/ Viddi veiðihnífur
Víkingur Traustason Heimskautabangsinn
Völundur Þorbjörnsson Lundinn/Ofsinn/Kanadakanslarinn

Þorbjörn Þorbjörnsson Litli ofsi
Þorvaldur Krisbergsson Borgarnesbollan/bollan
Þorvaldur Vestmann Brói
Þórarinn Traustason Tóti Stallone
Þórir Borg Kóbran
Þór Sigurðsson Þrumuþór

Ögmundur Árnason Ömmi krazý/Ömmi sterki

Share on Facebook

Comments 12 Comments »

Þessi 20 þáttur er talsvert frábrugðinn þeim fyrri þar sem nú verður ekki fjallað um einstakling í kraftageiranum heldur nokkur almenn íslensk viðurnefni frá örófi alda til vorra tíma og reynt að gera örlítið grein fyrir þeim. Sagnfræðilega séð eru viðurnefni jafngömul íslendingum allt frá landnámsöld. Frá þeim tíma hafa öll viðurnefni verið misjafnlega virðuleg, góð eða slæm, eftir því hvernig á þau er litið og ekki síður á þeim tíðaranda er ríkir hverju sinni.

Fornkappar á landnámsöld höfðu margir hverjir glæsileg viðurnefni. Til að mynda landnámsmaður Hornstranda, Geirmundur HELJARSKINN. Aðra merkilega kappa frá þessum tíma má nefna eins og Þorgeir ljósvetningagoða sem var helsti jaxlinn í stofnun kristinnar trúar á klakanum og höfðingjana Þórð kakala og Björn brýluvanga og svo auðvitað Gretti sterka og Orm sterka Stórólfsson en Ormi til heiðurs var einu sinni haldið ORMSMÓT í kraftlyftingum Í Gym 80 árið 1991, mót sem var sögulegt að ýmsu leyti. Þorstein drómund, Þorbjörn öngul má einnig nefna og marga fleiri. Reyndar má segja að viðurnefni fornmanna sé efni í heila bók ef út í það er farið en við stiklum aðeins á stóru. Á miðöldum og upp úr því voru eflaust margir íslendingar með viðurnefni af ýmsum gerðum. Margir kannast við Jón indíafara og Tyrkja-Guddu sem dæmi. Jón var fyrstur íslendinga til að ferðast til þess sem heitir Indland á vorum tímum og ritaði Reisubók sína þar um sem telst til höfuðbókmennta okkar enn í dag. Tyrkja-Gudda var ein af þeim konum sem rænt var í Vestmannaeyjum árið 1627 og átti síðar afturkvæmt til landsins og giftist Hallgrími Péturssyni sálmaskáldi. Á 19 og 20 öld voru viðurnefni einnig algeng hér. Kunnugleg nöfn skjóta upp kollinum eins og t.d. Tíka-Mangi sem átti hundstík eina er fylgdi honum hvert skref og Sæfinnur á sextán skóm, en hann var kynjafugl sem klæddist jafnan mörgum skóm utan yfir hvern annan.

NOKKUR VIÐURNEFNI SAMTÍÐARMANNA
Nú skellum við okkur framar í tímann og nefnum til sögunnar ýmis fjölbreytileg viðurnefni sem Magister kynntist í æsku og heillaðist af. Pétur krókódílakjaftur var fínn strákur í hverfinu en hann var með munn eins og þverrifa og nafn hans stundum stytt í krókó. Lilli ljóni var heimilsvinur hjá Magister en það var þroskaheftur maður sem sá stundum ljón og tígrisdýr við Fram völlinn sem þá var við Sjómannaskólann. Jói kleina var einn af eldri strákunum en hann bjó í Kleinukoti en það var síðasta einbýlishúsið sem stóð lengi við Rauðarárstíginn. Hemmi króna var kunnasti götusópari Reykjavíkur og af ráðherraættum. Hann togaðist á við okkur strákana um smápeninga og leyfðum við kallinum jafnan að vinna og fékk hann þá að eiga viðkomandi mynt en þá sagði hann ljúflega: “Þakka þér fyrir, þú ert góður strákur!” Magister hefur ort kvæði um Hemma sem enn hefur ekki verið birt opinberlega. Ingi “í ruslinu” var fornlegur kall sem bjó í kofaræksni í vesturbæ borgarinnar út við Granda og hafði stóra girðingu þar í kring þar sem hann safnaði stórum haugum af ævintýralegu rusli en sagt var að hann dræpi forvitna stráka sem klifruðu yfir girðinguna svo Magister gerði það auðvitað einu sinni þótt skíthræddur væri..og slapp með það…

Siggi “með augað” var náungi sem hlaut nafngiftina í það auga sem hann átti eftir en hitt missti hann í hnífabardaga að sagt var. Og svo er það Grímur en hann var jafnan kallaður stein-Grímur eftir að honum var stungið í steininn á sínu fyrsta fylleríi.. Einnig má nefna Kidda sódó, en það var lymskulegur kall sem rak einu klámblaðasjoppuna á Frakkastígnum í Reykjavík á þessum árum en við strákarnir þorðum varla inn í dýrðina því kallinn var talinn vafasamur og þræl öfugur barnaþriller…

HVAÐ ERU GÓÐ OG SLÆM VIÐURNEFNI?
Það virðist raunin að þegar menn eru búnir að fá viðurnefni losna þeir ekki svo glatt við það aftur en þó geta nöfnin tekið breytingum eins og dæmin sanna. Sum viðurnefnin eru svo jafnvel öfugmæli á viðkomandi mann en þetta er allt sérfræði sem vert er að stúdera betur. Hvað má segja um viðurnefnin: Matta meiriháttar, Goggi grútur, Kári köttur, Kiddi kúkur og Jón kýrtussa? Þetta eru mismunandi virðuleg nöfn. Meiriháttar getur t.d. staðið fyrir meiriháttar erfið, en sannleikurinn er sá að Magister gaf Möttu þetta viðurnefni vegna stórra brjóstanna og hversu flengingarfús hún er.. Goggi hótaði höfundi grúts viðurnefnisins lögfræðisókn með það sama en þó má segja að grútur er sérlega sterk íslensk afurð og varla verra að vera með slíkt viðurnefni en t.d. köttur. Það eru ekki margir sem bera virðingu fyrir köttum almennt og ekki talið tiltökumál að svæfa þá af minnsta tilefni. Kári köttur fékk þó á tímabili uppreisn æru þegar hann þurfti að lyfta Íslandsmeti 257,5 í í réttstöðunni til að verða Norðurlandameistari í 67,5 kg flokki á NM 1983 í Reykjavík. Þá kallaði Ölli vinur eftirfarandi hvatningu fram í salinn: “Taktu þetta svo tígrisköttur!” Og það fór svo að þyngdin var tekin og tígriskattar nafnið tók yfir köttinn nokkuð lengi og kemur enn við sögu. Kristinn hét ungur maður sem gerði við stíflur í heimahúsum í Reykjavík í gamla daga. Hann þótti glúrinn við klósettstíflurnar og fékk viðurnefnið Kiddi kúkur. Honum fannst það bara ágætt því menn gleymdu honum ekki svo glatt og hann hafði nóg að gera… Jón Sigursteinsson heitir Akureyringur sem mörgum bæjarbúum þar er kunnur. Sá maður verður nú að burðast með viðurnefnið kýrtussa…Það kom þannig til að fyrir nokkuð mörgum árum ætlaði hann að rota belju út um glugga á bíl en þetta gerðist rétt fyrir utan bæinn þar sem kýr voru á beit við veginn. Í sama mund og Jón lét höggið ríða af snéri beljan sér þannig að höggið lenti í afturendanum á henni. Kappinn handarbrotnaði við aðfarirnar og hefur verið kallaður kýrtussa síðan… Margsskonar viðurnefni manna eru til í hverjum bæ og þorpi á landinu og í ýmsum greinum íþrótta ekki bara í kraftaheiminum. Magister spáir ekki meira í það núna og lætur staðar numið hér. Það má kannski skrifa síðar annan sagnfræðiþátt um viðurnefni sé áhugi fyrir því hjá mönnum..

Share on Facebook

Comments No Comments »


Steve Gym molinn BJARKI ÞÓR SIGURÐSSON hefur verið vel virkur í kraftlyftingum frá því árið 1995. Hann hefur unnið til fjölda verðlauna á ýmsum mótum. Bjarki vann brons á sínu fyrsta Íslandsmóti á Akureyri 1997 en þá tók hann tölurnar: 250-150-250-650 í 110kg flokki. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og afl í vöðva. Hann tók sitt besta samanlagt 2004 þegar hann vann aftur brons í 125 með : 300-205-295-800kg. Þessi 800kg múr hafði þá verið á dagskrá um skeið. Bjarki hefur einnig staðið sig vel á Íslandsmótum í bekk og í réttstöðulyftu. Einmitt réttstaðan er hans besta grein en þar á hann best 320kg þegar hann varð Bikarmeistari í 125 árið 2002.Bjarki hefur enda orðið þrisvar sinnum Íslandsmeistari í réttstöðulyftu árin 1999-2001-2003 en Bjarki tók þá 300 kg í öll skiptin í 110 en 300 hefur hann alltaf getað tekið í deddinu nema vera veikur, meiddur, eða hálfdauður, eða eitthvað.
Bjarki hefur verið nefndur: GEYSIR

UPPHAF ÆFINGA - GEYSIR KEMUR TIL SKJALANNA…
Bjarki byrjaði að æfa kraftlyftingar árið 1995 í gamla Steve Gym í Brautarholtinu. Hann féll strax inn í hópinn og varð frábær félagi ásamt Eika gufubaðsstjóra, Svavari fitness, Gunnari master, Gumma landkynningu, Skemmujarlinum og fleirum. Það varð snemma ljóst að Bjarki væri efnilegur í réttstöðunni því nánast strax tók hann 200kg og nokkrum vikum síðar var hann búinn að taka 215. Rétt eftir það rann upp sá dagur að enn ein bætingin þar átti að fara upp…225kg voru á stönginni. Hvatningin hljómaði í loftinu. Fílingurinn var hrikalegur. Krumlurnar hjá hinum verðandi mola læstust um stálið og stöngin hentist af stað… komin upp fyrir hné fór allt skyndilega að hægjast en áfram var togað og togað..en skyndilega gerðist hið óvænta…Bjarki opnaði kjaftinn í öskri að menn héldu en þá kom þessi hrikalega ælugusa sem slettist geigvænlega út um víðan völl..Menn héldu að bætingin væri farin en ælukappinn streðaði áfram með fargið þar til stöngin stöðvaðist í lokastöðu..og setti hana svo niður sallarólegur. Eiríkur gufubaðsstóri var hálf stjarfur eins og aðrir yfir þessu en sagði síðan í viðurkenningartóni: “Þetta var víst GEYSIR!” Eftir þetta hefur Bjarki verið kallaður þessu virðingarmikla nafni og engu öðru…

Um þetta var síðan þessi vísa kveðin:
Bjarki fór í tryllings tos
tæplegt var það spil,
eftir alveg geðveikt gos
varð Geysir okkar til…

BAKKUSAR-MOLASÖGUR
Eins og flestir Steve Gym menn er Bjarki rólegheitar maður við skál og dettur varla né drýpur af honum fremur en dags daglega. Eftir Íslandsmótið fyrir norðan 1997 gerðu menn sér glaðan dag. Veisla var haldin í Íþróttahöllinni og eftir hana var haldið í bæinn. Á leiðinni þangað stöldruðu nokkrir valinkunnir menn við nokkuð stóra vegasteina sem var búið að planta rétt við sundlaugina. Geysirinn var afburða hress og vildi nú bæta sér upp deddið á mótinu sem hann var ekki vel ánægður með…. Réðist hann nú til atlögu við hvern steininn á fætur öðrum og deddaði þá vel upp og fleygði þeim síðan í allar áttir undir hvatningu frá Gufubaðsstjóranum og Magister Cat. Meira segja þyngsti steinninn sem var örugglega 200kg var tekinn upp af Geysinum sem var í ótrúlegum ham. Síðar um nóttina heyrðust sögur af því að hann hafi einnig deddað nokkra bíla og farið létt með. Vikuna á eftir sást Bjarki ekkert á æfingum en hermt var að hann væri eitthvað svo furðulega slæmur í bakinu…

Einhverntíma á tímabilinu 1996-1999 kom Bjarki í mikið partý að Hringbraut 107 en þar bjuggu þá Gunnar Ólafsson bart, síðar Skemmujarl og Jói Omegakraftur og á tímabili Magister Cat. Í partý þessu lengst af var Bjarki fremur dauflegur og toguðust fá orð út úr honum. Þegar líða fer að nóttu stökk hann allt í einu á fætur með nánast fulla Vodkaflösku í hendi og rak upp hálgert stríðsöskur. Tók hann síðan flöskuna og drakk hana alveg óblandaða niður í hálfa, í einum teyg.. Þetta kunnu menn að meta og eigi varð annað séð en Bjarki fyndi mikið fyrir þessu nema að upp úr þessu varð hann hrókur alls fagnaðar… Sko, ekkert grín að ætla að drekka Geysi undir borðið…

MEIÐSLI - STAÐAN NÚNA
Bjarki sem hefur verið mikið á uppleið á bekknum síðustu tvö ár hefur á sama tíma verið nokkuð óheppinn með meiðsli á öxlum. Á þessu ári meiddist hann nokkuð illa í annarri öxlinni. Eftir aðgerð er hann nú í endurhæfingu þegar þetta er ritað sumarið 2005. Vonumst við eftir því að sjá hann sem fyrst hrikalegan á pallinum og dedda út í eitt.. því miklar þyngdir bíða sannarlega eftir því að GEYSIR togi í þær…

Share on Facebook

Comments No Comments »

JÓN GUNNARSSON

Þá er komið að frægum kappa er óhætt að segja. -Jón Gunnarsson heitir meistarinn sá. Allur ferill hans þyrfti eiginlega sér heimasíðu, enda stiklum við hér á stóru um hann og uppnefni hans. Jón byrjaði að æfa kraftlyftingar um 25 ára aldur. Hann birtist í Jakabóli veturinn 1984-85 og snemma varð ljóst að þarna færi mikið efni. Hann hefur landað fjölmörgum Íslandsmeistaratitlum og Íslandsmetum í kraftlyftingum. Jón á um 20 núgildandi Íslandsmet. Hann hefur í hjáverkum orðið meistari bæði í sjómanni og vaxtarrækt. Jón hefur t.d.unnið til silfurverðlauna á EM í kraftlyftingum 1990 í 90 kg flokki í Reykjavík og brons vann hann á HM 1996 í Salzburg Austurríki, einnig í 90. Jón á öll Íslandsmetin í samanlögðu í flokkunum 82,5 (780kg)-90(855kg)-100(960kg)-110(970kg.) sem er mikið afrek. En bestu tölur Jóns eru: Hnébeygja 390, Bekkpressa 225, Réttstöðulyfta 361. Jón hefur verið kallaður: SJÓMAÐURINN, LITLI TURBÓ og BÓNDINN

Jón Gunnarsson fæddist 22-1-1959 að Efri Læk við Ölfus í Árnessýslu. Sem sagt að íslensku konungskyni kominn í bændastétt, en það mun eigi vera svo auðvelt hlutskipti eins og segir í hinni gömlu vísu:

Bændur líða blíðurán
bognir stríða gleði án,
þeirra bíður þreföld smán:
Þræla, skríða og biðja um lán…

Jón vann frá unga aldri langan og strangan vinnudag við að handmjólka kýr og rýja gamla og baldna hrúta. Drengurinn þótti snemma greipsterkur og þrjóskur í ákveðni sinni við hversskonar átök. Hann vakti líka athygli sem unglingur í uppsveitum Árnessýslu þar sem hann var ósigrandi í hinni gömlu þjóðaríþrótt sjómanni. Vegna átaka í sjómanni þar sem Jón sigraði m.a. á opinberu Íslandsmóti var fyrsta viðurnefnið sem hann fékk á sig: SJÓMAÐURINN. Þegar Jón fór að rífa í sig íslandsmetin í páver kom Óli Sveinss fram með viðurnefnið: LITLI TÚRBÓ. Hvorugt þessara nafna átti þó eftir að festast við hann. Eftir einhverja helgina kom Jón þreyttur til æfinga en þá hafði hann skroppið heim í heiðadalinn og hjálpað föður sínum með því að rýja 80 hrúta einsamall. Skúli Óskarss,smiðjusvín tók eftir ægiþreytu Jóns og spurði hann hverju þetta sætti. Þegar Jón hafði svarað því sagði Skúli að bragði: “Ja hérna, JÓN BÓNDI! Eftir þetta límdist nafnið BÓNDINN við hann eins og mönnum er nú kunnugt. Jón ílentist í borginni og er einn af eigundum Gym 80 og starfar þar sem þjálfari. Hann er enn að keppa á þessu herrans ári 2004 og varð Íslandsmeistari í bekk fyrr á árinu. BÓNDINN hyggst fljótlega taka á því í öllum greinum páversins og mun því enn um sinn gleðja sanna unnendur stáls og lóða með ógnarafli sínu…

Share on Facebook

Comments No Comments »

Eiríkur Einarsson

Eiríkur er einn af þeim mönnum sem alltaf er nátengdur Steve gym. Stundum verið kallaður fóstursonur Steve. Hann hefur aðallega keppt í bekkpressu og verið frábær aðstoðarmaður á mótum. Eiríkur er jafnan nefndur: gufubaðsstjórinn og stundum fóstursonurinn.

Að því er heimildir frá greina er Eiríkur staðfastur sveinn sem aðeins hefur fæti stigið í eitt gym: STEVE GYM..Hann byrjaði ungur að æfa í gamla Steve gym í Brautarholtinu.Var þar fljótlega í hávegum hafður og sórst í fóstbræðralag við Gumma landkynningu og Bjarka geysi. Eiríkur og Gummi hafa alltaf verið áhugasamir um krafta á hvaða tíma sólarhringsins sem er. Frægar eru einvígis kraftakeppnir þeirra í gamla gyminu á laugardagsnóttum á fullu tungli.. Þar hafa þeir háð harða hildi í dauðagöngum með þyngstu handlóð stöðvarinnar þar til gólfið var í rúst og aðeins einn stóð uppi.. Gufubaðsstjóra nafngiftin kom þannig til að á þessum sokkabandsárum gamla Steve gym var gufubað í stöðinni. Í helgar partíum var oft kveikt á gufubaðinu og þeim dömum sem voru svo lánssamar að vera á svæðinu var þá jafnan boðið í gufubað undir forystu Eiríks. Urðu þessi gufuböð með allskonar huggulegum púpum undirstaða að mörgum góðum flengingum.. Nú í dag er gufubaðsstjórinn orðinn settlegur heimilisfaðir sem æfir með það markmið fyrir augum að taka 200 kg á bekk, fyrr en seinna..

Share on Facebook

Comments No Comments »