“Það bætir sig enginn á því að æfa við of góðar aðstæður!”
Posted by KE in Speki vikunar
Það er hægt að “púðra” sér til hita í SteveGym….
Hitablásarakerfið í SteveGym er nú varanlega bilað og eigendur húsnæðisins segja of kostnaðarsamt að setja upp nýtt hitakerfi…Steve tekur þessu létt þótt stutt sé í veturinn og það þýðir ekki fyrir neinn að kvarta í þessu efni…Ölli vinur hafði orð á þessu við Foringjann að það hefði einungis verið nokkurra stiga hiti í salnum þegar hann mætti á æfinguna….”Ég hlusta ekki á neitt svona!” svaraði Steve….” ÞAÐ BÆTIR SIG ENGINN Á ÞVÍ AÐ ÆFA VIÐ OF GÓÐAR AÐSTÆÐUR!”…
Svo bætti hann við: “Þegar María fór að dala hafði hún líka allt á hornum sér og fór að setja út á allt í gyminu!”…”Líttu á Palla Patró…hann kvartar aldrei neitt og er gegnsveittur að bæta sig á fullu!…Ölli hikstaði og sagði: “En hvað um okkur gömlu hvað eigum við að þola mikið?”..Steve setti upp sérstakan svip:…”Þið gömlu kallarnir farið ykkur bara hægar!”…Og þannig lauk icecold umræðunni …

Dömurnar í Steve gym mæta núna í svona bolum á æfingar…
Share on Facebook



Entries (RSS)