
Það hefur mikið sést til Sir Cat í miðbænum undanfarið þar sem hann arkar áfram á vegferð sinni sem gjaldkeri fyrir ÍKF Metal í margskonar bankastofnanir á byggðu bóli…með Bónuspoka í hönd…Í hádeginu var Möttu meiriháttar boðið í stórsteik á einu veitingahúsi Tryggvagötunnar og síðan náð í Happdrættisvinning og svo haldið áfram í Íslandsbanka…Þegar komið var í bankann og óvirðulegur Bónus plastpokinn sveiflaðist um í kattarklónum sagði Mattan: “Það er ekki hægt köttur að þú sért með Bónuspoka í stað skjalatösku!” Svo bætti hún við. “Þú átt að fá þér fínan skjalara sem stendur á ÍKF Metal!”

Svona lítur Catzilla út með skjalarann eins og MM sér hann fyrir sér…
Einn bankajöfur í gjaldeyrisdeild Íslandsbnka verður líka alltaf jafn kyndugur á svip þegar Sir Cat leggur Bónuspokann á skrifborðið og tekur upp úr honum hin forlátustu skjöl…Það er aldrei að vita nema breyting verði þarna á en reyndar lumar ritstjórinn á mjög gömlum skjalara frá fyrri öldum…

Svona gæti dæmið litið út á næstunni þegar gjaldkeri Metal stormar í bankann…
Share on Facebook
5 Comments »

Steve að þjálfa Bjarka hrika í deddi…
FER STEVE MEÐ HRIKANUM Á HM??
Foringinn hafði samband við ritstjórann sem er í forsvari landsliðsnefndar Íslands og ÍKF Metal sem sendir páverlið á HM í Bath í nóvember..Erindið var að viðra hugmynd hans að Bjarki Ólafsson hriki myndi keppa úti…Skráningarfrestur er enn ekki runninn út svo þetta er raun-möguleiki…”Nú,sagði Magister heldurðu að þetta gangi upp,hvernig stendur á þessu eiginlega -þú verður að fara með og bera ábyrgð á honum!” Það stóð ekki á svari hjá Steve: “Ég gerið það, þetta er ekkert mál ég þarf að klára þetta geðprógram með heimsmeti!”
ÍKF Metal styður alla til keppni erlendis sem hafa árangur en Bjarki er vissulega góður í réttstöðunni þar sem hann er nú handhafi Íslandsmetsins 332,5kg í 125kg flokki sem hann setti á Íslandsmótinu fyrir viku. Þess má geta að það eru ekki nema rúm 25 ár síðan að svipuð þyngd var frægt Evrópumet hjá Arthuri Bogasyni (þá undir merkjum LSÍ aðili að IPF) en Hrikinn á vel inni..(Heimsmetið hjá WPF er 350kg)
Hrikinn fær því að keppa ef hann vill og getur… en fyrst þarf að borga keppnisgjaldið!
Share on Facebook
3 Comments »

Eiríkur Kristbjörnsson tekur hroðalega á því í andanum…
Það eru margir efnilegir pávermenn að kveða sér hljóðs á klakanum …Þrátt fyrir bankahrun og allt hvaðeina er ekkert hrun í pávernum…Það er góður molahópur sem æfir í SuperGym og einn af þeim er nýdeddarinn Eiríkur Kristbjörnsson (260kg)..
Hann sagði eftirfarandi um daginn: “Metnaðurinn liggur í andanum, ekki hugsa of mikið það er leiðin til vöðvarýrnunar!”
Share on Facebook
7 Comments »

Arnold og Wally á góðum degi á Arnold Classic fyrir nokkrum árum
Hinn yfirlýsti sófajötunn og Kanadakanslari Völundur Wally Þorbjörnss mætti glaðbeittur í raunveruleikann í dag…Hann sagðist ekki hafa séð gosið í dag þar sem ekki væri flugveður en hann myndi fara með þyrlu þangað á morgun….Ritstjóranum brá nú heldur betur í brún þegar hann sá hversu mikill um sig Wally var um miðjuna…Flæðimassinn leyndi þó glettilegu afli því Völlli fór nokkuð vel með á bekknum 170×3!..Eftirlit var haft með fjósinu sem fór ekki þangað sem það vildi fara vegna þunga og fyrirferðar…Menn voru almennt undrandi á þessu bekkpressuafli kappans sem er auðvitað bara glettilegt af óæfðum manni. “Þú verður nú að gefa Skemmujarlinum átprógrammið þitt!” sagði Magister. “Þess þarf nú ekki”svaraði Wally, við erum svipað þungir um 140kg!”…Reyndar steig hann aldrei á vigt en ritstjórinn álítur að 145-150kg sé nærri raunskjóðuþyngd. - Wally glotti ennfremur hressilega og bætti við: “Ég tók reyndar 160×5! ábekknum kl.2 í dag í Jakabóli hjá Magga..Ég vissi hinsvegar að Jarlinn tæki það ekki gilt nema kötturinn væri viðstaddur svo ég mætti hingað bara enn sterkari!”

Fjölli teygjutvister
Skömmu eftir að Wally var farinn af vettvangi birtist Fjölli og tveir lærisveinar hans þeir Kári yngri og Þröstur. Magister sagði Fjölla frá bekknum hjá Völla að hann hefði tekið 160×5 kl.2 og svo eiginlega ekkert hitað upp í SteveGym aðeins tekið 60×5- 100×5 140×1 og 170×3..Þá leit Tvisterinn kankvís á ritstjórann og sagði: “Blessaður, svona feit skjóða heldur hita svo lengi!”
Share on Facebook
12 Comments »

Stefán Hallgrímsson reffilegur til vinstri…
Steve er nú svona enginn venjulegur kontóristi í orði eða æði…Hann er nú búinn að vera kallaðir Steve eiginlega allar götur frá því hann flutti stöðina á Grettisgötuna úr Brautarholtinu en áður hafði hann oftast verið nefndur Stebbi…Magister kallar hann hinsvegar oftast Foringjann…
Um daginn brá svo við að Ölli vinur heilsar kappanum kumpánlega með orðunum: “Blessaður Stefán,hvað segirðu í dag?”….Steve gersamlega fraus og leit síðan á Hörðinn með þrumusvip og svaraði: “Hvað á það eiginlega að þýða að kalla mig Stefán?”…Hverslags móðgun og niðurbrot er þetta…Það er búið að endurskíra mig Steve fyrir mörgum árum og þú Hörður þar fremstur í flokki og svo kemurðu með svona lagað!!” Ölli varð hálf klumsa við ræðuhöld þessi og varð fátt um svör. Sé minnst á atburð þennan við Foringjann mega menn búast við hvössum viðbrögðum…Sennilega er Steve eini maðurinn í heiminum sem móðgast við það að verða kallaður réttu nafni!
Share on Facebook
1 Comment »

Sigurjón Ólafsson
Miðnæturdeddarinn er með vissa tegund af “Steve þyngingarheimspeki” á hreinu…Éta mikið og helst allt…Grjóni sagði við ritstjóran um daginn að hann stefndi að því að þyngja sig í 140kg…Steve segði að það virkaði best fyrir deddið að vera sem þyngstur enda sagði Foringinn eitt sinn: “Sjáið bara Benna tarf, hann var ekki að spá í fitness, hann þyngdi sig í 180kg og tók heimsmetið í deddi!”
Sigurjón hefur undanfarna mánuði tekið þynginguna alvarlega og skóflar í sig smjöri bent úr dollunni og sýrópinu úr krukkunni….Af þessu tilefni sagði hann um daginn: “Fer að keyra mig upp fyrir næstu keppni 24 apríl. (RAW Ísland) Setja smá alvöru í þetta. Keppi kannski ekki skafinn en í sæmilegri fituprósentu!“
Share on Facebook
1 Comment »

Borgarnesbollan og Einar Örn “loftpressa” eru alltaf í anda…
Drenghnokkinn Einar Örn Guðna hefur verið á miklu bætingarskriði undanfarið og henst upp úr 82,5kg flokknum í toppinn á 90kg flokknum..Þessi ungi Metal léttmoli er magnaður á palli og tekst að láta umhverfið snúast um sig…Eftir Íslandsmeistaratitilinn í bekkpressu þar sem hann tók drengjamet með 185 sagði einhver við hann: “Þú verður að róa þig aðeins niður er það ekki?”
Það stóð ekki á svarinu hjá Einari: “Ég róa mig aldrei, ég er hrikalegur og mun alltaf verða það!”
Til að standa undir þessu fór kappinn beint á bekkæfingu tveimur dögum eftir mótið og bætti sig í kjötbekk með fínni 166kg lyftu…”Ég róa mig aldrei”…
Share on Facebook
14 Comments »

Frú Gemma Taylor Magnússon ein sterkasta kona heims veit hvað hún syngur…
Eftir kraftakeppnina Sterkasta kona Íslands þar sem Gemma var einn aðal mótshaldarinn hafði hún þetta að segja um stallsystur sínar frá klakanum:
“Ég held að íslenskar konur hafi eina bestu genablöndu í heimi hvað varðar styrk og líkamsbyggingu!”
Þar hafið þið það….Munið Bikarmót Metal í páver í Supergym á laugardaginn kl.13.00..þar munu verða mikil átök 15 keppenda þar sem nokkrar nýjar stjörnur munu stíga fram á pallinn…Gemma býður þar gestum og gangandi upp á heimalagaðan mat eftir hennar uppskrift á þúsundkall….Einnig verður pizzutilboð ofl. MÆTIÐ SVÖNG EN FARIÐ SÖDD!
Share on Facebook
1 Comment »