Archive for the “Sögulegt efni” Category


Gullkort Visagreifans er núna MasterCard

Það er nú saga að segja af því þegar Kári catzilla fékk Visakort í fyrsta sinn og var kallaður Visagreifinn í smátíma….en áður en af því kemur segjum við örsöguna um Gullkort  mitt hjá MasterCard..Þegar kortinu var breytt úr silfur í gull fylgdi með því leyninúmer..Þegar heim var komið fyrir 4 árum eða svo brá mér heldur í brún..númerið var páver totalið hjá Hjalta Úrsus!..Við það var ekki unað!  Farið strax í bankann og spurt hvað þetta ætti eiginlega að þýða..það væri alger svívirða að láta mann hafa svona lagað!.. Sótt um nýtt númer..Daginn eftir barst það í pósti..og hvað reyndist það? 100kg meira” ..Totalið hans Auðunns! Mesta þyngd íslendings í páver!..Sáttur við það…Í síðustu viku týndist kortið…Sótti um nýtt…Hvað var númerið núna?…Svoldið leyndó…Það er mun hærra total en nokkur íslendingur ræður við þar til Sigfús fúzilla tekur það!

VISAGREIFINN Í KALIFORNÍU

Árið 1985 fékk ritstjórinn Visakort í fyrsta sinn og gekk það ágætlega þegar raðað var niður páver titlum og verðlaunum út um allan heim.Hinsvegar á því herrans ári 1986 var haldin svokölluð Landskeppni í kraftlyftingum á milli Kaliforníu og Íslands úti í Bandaríkjunum í bænum Fresno. Um miðja helgi í febrúar þarna úti á strönd Kaliforníu glataðist kortið sem glæponar komust yfir og notuðu um hríð því erfitt var tilkynna glatað kort á þessum árum um helgi. Lenti Catzilla í ýmsum vandræðum vegna þessa

..Í keppninni sjálfri gerðist það fræga atvik sem var skrifað um í tímaritið POWERLIFTING USA að þegar ég var að reyna við 260kg í deddi rann ég til á pallinum og lóðin sem voru öll úr járni skullu ofan á hægri ristina og brutu hana. Ég var borinn út af pallinum og kældur niður með íshrúgu. Áhorfendur ætluðu síðan ekki að trúa eigin augum þegar ég haltraði aftur að pallinum og reif þessi 260kg upp að sönnum víkingasið eins og sagt var frá í tímaritinu. Það sem ég man þegar ég þreif í stöngina var, að ég hugsaði: “Ég er ekki kominn alla leið hingað til að klikka á þessari þyngd”! Ég tapaði samt fyrir kananum sem vann mig í totali á 45kg meiri beygjum…Þegar heim var komið orti ég eftirfarandi ljóð sem hefur aldrei birst fyrr en nú:

Köttur lagði brattur land undir fót
löng var sú ferð og sól í mót.
Fyrirhyggja þó slóst í för
fagurt var kort og bros á vör.

Hann þóttist vitur og viss í trú
með Visa yrði honum borgið nú.
Örlög grimm þá tóku í taum
tættu í sundur hinn fagra draum.

Kortið týndist og dollarar dóu
dauf varð sál en félagar hlógu!
Eymd og volæði blasti honum við
sem virðuleg refsing að guðanna sið.

En Bólan var nærri blið og rjóð
og bjargaði málunum ofurgóð!
Skuldabagginn mun setjast á sál
svo þungt er hjarta og tregt um mál…

Fullkomnuð varð hans frægðarferð
frá keppninni sjálfri segja verð:
Saltaður var svo gleymist seint
sjálfsagt var það ei illa meint.

Og lóðin féllu við lítinn glans
og löppina brutu með elegans.
Hann týndi ekki meiru og tognaði ei
tók aftur gleðina og sagði: Ókey!

Komst heim um síðir til klakalands
og kappinn er hress, því reynslan er hans!

Share on Facebook

Comments 3 Comments »

Sigurður Ármann Árnason

Gamall og góður félagi úr SteveGym Siggi Ármann hefur nú kvatt þennan heim en hann varð bráðkvaddur 22 maí s.l. Það er margt sem fer um hugann þegar maður minnist Sigga. Hann var með sólbjart hjarta en á stundum brá dulu myrkurs yfir sál hans  er sjúkdómurinn sem hann barðist við brá fæti fyrir hann. Þrátt fyrir að andlegir þungastraumar skéku hann ómjúklega þá lauk Siggi stúdentsprófi árið 1995. Sköpunargleði og páveráhugi Sigga var einnig alltaf til staðar og hann náði góðum árangri í tónlist þar sem hann gaf út 3 diska sem vöktu athygli bæði hér og erlendis. Siggi spilaði talsvert sem trúbador og kom fram í Þýskalandi og víðar og fór frægðarferð með hljómsveitinni Sigurrós til Bandaríkjanna árið 2002 þar sem hann sá um upphitun við góðar undirtektir.

Siggi hafði mikinn áhuga á páver og ég minnist þess þegar ég hitti hann fyrst og við tókum tal saman þá vissi hann alveg upp á hár hvað ég ætti best þegar hann sagði: “Þú ert Kári köttur sem átt 195kg á bekk! og svo kórónaði hann samtal okkar með því að segja:” Maggi Ver er alltaf hrikalegastur ,hann tók fyrstur 400kg í beygjum!” Siggi hafði hvað mestan áhuga á bekkpressu og æfði þá grein vel þegar hann hafði tíma og heilsu til. Hann tók 130kg á kjötinu í keppni og nokkru síðar 140 á æfingu og hefði eflaust tekið miklu meira hefði honum enst ævi og heilsa til þess. Siggi var alltaf hress og hvetjandi á æfingum og við æfingafélagarnir munum ætið minnast drengsins með bekkpressu og tónlistarhjartað.

Share on Facebook

Comments 15 Comments »


Friðrik Jósepsson páverkappi ásamt litlum en traustum vini

Menn eru stundum að tala um ýmsa múra sem brotnir hafa verið í páver og þeir múrar sem nútímalyftarar eru að fara brjóta verða stöðugt hærri…Sökum þess að ritstjórinn hefur ekki tækni til að skanna inn gamlar myndir hefur hann ekki birt greinar um fyrstu stóru múrbrjóta íslands í pávernum…Björn Lárusson var fyrstur til að taka 200 á bekk 1971 (á kjötinu) og fyrstur að dedda 300kg sama ár..reyndar tók hann 305 en sleppti 300..(fjöllum betur um hann síðar)
Fyrsti klakverjinn til að taka 300 í hnébeygju var hinsvegar Friðrik Jósepsson (Frederiko) en hann var mikill kappi,jafnvígur á páver og lyftingar..(snaraði 145kg og jafnhenti 170kg)
Hnébeygjan hans Frikka var klassalyfta tekin á fyrsta Evrópumótinu (IPF) sem haldið var í Birmingham 1978. Kepptu þar þrír íslendingar, Skúli Óskarsson (SILFUR Í 75), Ólafur Sigurgeirsson (5.sæti í 90) og svo Frikki í 100kg flokki.

ÚRSLIT Í 100KG FLOKKI:

1. Ray Yvander Svíþjóð -320-195- 330- 845kg
2. R.Nobile Bretland -330-205- 310-845
3. R.Kiviranta Finnland - 310-185-325-820
4. Friðrik Jósepsson Ísland- 300-200-290-790.(bekkur á kjötinu)
———————–
5.T.Niehoff Holland -220-167,5-290-677,5
og svo nokkrir aðrir með 600+

Frikki var nú svoldið óheppinn með andstæðinga því ef hann hefði verið í 110kg flokknum hefði hann fengið brons. Frikki fór með allar beygjur í gegn skítlétt:270-290-300 og átti mikið inni. Á þessu móti fór hann í fyrsta sinn í stálbrók og vissi ekki alveg getu sína. Þegar Magister hitti kappann seinna sagði Frikki eftirfarandi um þessa sögulegu 300kg beygju: “Ég get alveg sagt þér það að það hefði engu máli skipt hvort það hefði verið einhverjar 25kg plötur í viðbót sitthvorum megin á stönginni,ég hefði ekki fundið fyrir því!”

Það fór hinsvegar svo að Frikki meiddist í baki nokkru síðar og varð að hætta i páver og var það mikill missir því hann hefði eflaust orðið alþjóðleg stjarna. Frikki átti á tímabili t.d. öll Íslandsmetin á bekk í 90-100 -110kg flokkunum…
Kappinn er nú nýkominn á Facebook og er þegar í góðu sambandi við marga pávermenn…

Share on Facebook

Comments 1 Comment »

Benni tarfur toppar að sjálfsögðu allar réttstöður íslendinga með allratíma heimsmeti sínu 440kg sett í Finnlandi árið 2005 á Heimsmeistaramóti WPC sambandsins.

Ritstjórinn hefur fengið fyrirspurnir um að birta nákvæman lista yfir mestu réttstöðulyftur á Íslandi óháð sambandi eða félagi. Vefsíðan powerstuff hefur birt lista með 5 mestu deddunum en sá listi er með nokkrum villum þar sem t.d. Úrsusinn er settur ofar Verinu!…En það verður væntanlega lagfært fljótlega enda hefur herra powerstuff óskað eftir lagfæringum og hér koma þær. Ritstjórann vantar enn 1-2 kórréttar dagsetningar en þær detta inn fljótlega.- Komi menn auga á einhverjar villur þá sendið ritstjóranum línu á sirmagister@visir.is eða kommentið….

10 MESTU DEDD ÍSLENDINGA

1.  Benedikt Magnússon - 6 - 11 -2005 - 440kg.

2.  Auðunn Jónsson - 16 - 4 - 2005 - 385

3.  Magnús Ver Magnússon - 30 - 4 - 1991 -375.5

4.  Hjalti Árnason - 1 - 4 - 1989 - 375

5.  Guðni Sigurjónsson - 27 - 3 - 1993 - 371

6.  Torfi Ólafsson - 2 - 4 - 1988 - 370,5

7.  Jón Páll Sigmarsson - 8 - 7 -1984 - 370

8. Stefán Sölvi Pétursson - 28 -4- 2007- 370

9. Jón Gunnarsson - 13 - 5 - 2000 - 361

10. Páll Logason 14 - 11 -2009 - 355

———————

Athugið!...Þeir sem kepptu á Íslandsmóti ÍKF Metal í réttstöðu 2008 vinsamlega sendið ritstjóranum línu með árangri sínum hvað þeir lyftu og í hvaða sæti þeir urðu í sínum flokki. Heildarúrslit þessa móts hafa tapast.

Share on Facebook

Comments 23 Comments »

Hvern andskotann var Kötturinn að kalla mig hérna?

Ritstjórnin hefur verið nokkuð beðin um að birta hér heildarlista yfir viðurnefni kraftamanna og þá sem tengjast því.  Fyrir einhverjum árum síðan tók Magister Cat ásamt Óla fógeta saman lista yfir viðurnefni í kraftaheiminum og birtu það á kraft.is vefnum. Sá listi er nú úreltur og þar lítt aðgengilegur. Nú hefur verið settur saman nýr listi…Sumir á listanum eru látnir og aðrir hættir að lyfta en viðurnefni þeirra lifa áfram með kynslóðum um aldir alda. Lesendur sem vilja koma nýjum viðurnefnum að eða öðrum sem gleymst hafa eða leiðréttingum sendið ritstjórninni tölvupóst eða komment.

Það er nú þannig að sumir menn vilja ekki þýðast viðurnefni sín og sumir eru því aldrei ávarpaðir beint með þeim nöfnum en eru kallaðir það svona manna á milli. Sum viðurnefni geta kannski virkað særandi en það er ekki meiningin heldur munu þau fundin upp til að skreyta kraftatilveruna. Ættu menn því að anda rólega og taka viðurnefnunum með reisn hins sterka….
Það hafa nú verið gefnar út bækur með viðurnefnum manna eins og t.d. nýlega í Vestmannaeyjum. Það hefur samt aldrei áður gerst í Íslandssögunni svo vitað sé að höfundi viðurnefnis hafi verið hótað málsókn fyrr en Georg Ögmundsson hótaði ritstjóranum málsókn fyrir að kalla hann á Kraftaheimum Gogga grút…það þurfti lögfræðing til að sjatla málin…

Hér á eftir eru nöfn um 135 kraftamanna en sumir bera reyndar fleiri en eitt viðurnefni og því eru viðurnefnin sjálf nálægt 190 talsins. Ritstjórinn sjálfur viðurkennir að eiga sök á um 40 þeirra en sá sem hefur einnig fundið upp mörg nöfn eða á milli 15-20 er sjálfur Ölli vinur…Hitt skiptist á ýmsa en allavega á Óskar Sigurpálsson sök á kattarnafninu sem verður seint fyrirgefið…eða fullþakkað….

Kallaðu mig aldrei aftur Beikon….(HÉRNA)

VIÐURNEFNI 1.janúar 2010

Alfreð Björnsson Freddi fighter.
Arthúr Bogason Norðurhjaratröllið
Arnar Már Jónsson Loggurinn
Auðunn Jónsson Ádi/Kópavogströllið/Verndarinn
Ásbjörn Ólafsson Flæðilurkur/Ísbjörn
Árni Freyr Gestsson Ernie Els/Kommentakóngurinn

Baldvin Skúlason Bekkurinn
Baldur Borgþórsson Rotarinn

Baldur Þór Baldursson, Ofurbaldur/Scronster
Benedikt Magnússon (yngri) Tarfurinn
Benedikt Magnússon Hinn eldri/heldri
Birgir Viðarsson Dýrið
Birgir Þorsteinsson Litli Fúsi
Bjarki Þór Sigurðsson Geysir
Bjarki Ólafsson Hriki/Double Hriki
Björgúlfur Stefánsson Skúlfurinn eða Úlfurinn (WRESKÍ WOLF)
Björn Hrafnsson Ræsirinn.
Björn Lárusson Stóri Björn.

Emil Ólafsson Tölvutryllir/Tryllirinn
Eiríkur Einarsson Gufubaðsstjórinn
Elvar Óskarsson boli (KAZ)
Erlendur Óskarsson litli boli
Einar Birgisson spói
Eyjólfur Unnarsson Krókódíll/Krókó

Flosi Jónsson Flosi gull, selurinn/ Spiderman/Spider
Friðrik Jósepsson Fredrikó
Friðrik Örn Sigurðsson Frikki fríski.
Freyr Aðalsteinsson Olíufurstinn/furstinn
Freyja Kjartansdóttir Tattúgyðjan, Frekja
Fjölnir Guðmannsson Teygjutvister/Tvister

Geir Þórólfson Lopinn
Grétar Guðmundsson Big-G/Stóra-G
Grétar Hrafnsson Griss, Guttormur, Grelli
Georg Ögmundsson Goggi grútur
Gunnar Ólafsson Bartinn, Skemmujarlinn.
Gunnar F. Rúnarsson Masterinn
Gunnar Sigurjónsson Kraftaklerkurinn
Guðni Sigurjónsson Heimsmeistarinn
Guðmundur Erlingsson Gummi handleggur
Guðmundur Sigurðsson Silver
Guðmundur Guðmundsson Landkynningin
Guðjón Guðmundsson Pornó king/ pornó star

Guðmundur Otri Sigurðsson, Otradalsgreifinn

Guðjón Gíslason, Austfjarðatröllið/Flottmolinn
Guðjón Hafliðason Turninn
Gústaf Agnarsson Próteintröllið

Halldór Eyþórsson Prjónninn/ prelli
Halldór E. Sigurbjörnsson, Donni, HES/Donið
Halldór Bergmundsson Dóri djöfull/Dóri driver/Driverinn/Litla Verið
Haukur Ásgeirsson Kaffihaukurinn/Hagbarður hundrað kíló
Heiðar Geirmundsson Heisi
Helgi Hauksson Kamelljónið
Helgi Jónsson (saksóknari) Gríní
Helgi Jónsson Magri
Hermann Hermannsson Hemmi málari
Hermann Haraldsson Hemmi formaður
Hjalti Árnason Úrsus/Dúddi/ Legend.
Hjörtur Geirsson Stinkí
Hörður Magnússon Súlnasperrir/Ölli vinur
Hörður Arnarson Harðviður
Hörður Ingi Stefánsson Bassafantur

Ingibjörg Óladóttir Skyrfrúin
Ingvar Jóel Ingvarsson Ringó, útfarastjórinn/frískleikakonungurinn
Ísleifur Árnason Sleifur
Ísak Jóhannsson Sólmyrkvinn

Jens Andri Fylkisson Estrogen/Bjargið/Túttu-Jens
Jóhann Möller Möllerinn
Jóhannes Kjartansson Öndin
Jón Benóný Reynisson Breiðsíðan/Big Ben/Benni beikon
Jón Elís Guðmundsson Massinn, Jónninn
Jón Gunnarsson Bóndinn.
Jón Páll Sigmarsson Spöri
Jón Randver Guðmundsson Rómeó, Rand, Röndinn
Jón Valgeir Williams Lumbri
Jón Gunnar Hannesson Dr.Power
Jóhannes Hjálmarsson Fíragott/Fíra/Jói worlds
Jóhannes Eiríksson Omegakraftur
Jóhanna Þórarinsdóttir Bjútíbomba
Jóhanna Árnadóttir Jófó/Feykirófa
Jóhanna Eiríksdóttir Silfurskotta/Skottan
Karl Sædal Þrillerinn
Kári Elíson Köttur/tígrisköttur/Magister/Sir cat/kisi
Kristbergur Jónsson Turbóinn
Kristinn Ari Hinriksson Kiddzenegger
Kristinn Óskar Haraldsson Boris/Doris
Kristján Falsson Daddi diet

Lúðvík Björnsson Lúlli refur

Magnús Ver Magnússon Verið, Smælið/strongest
Magnús H. Magnússon Trukkur
Magnús Steindórsson Kakóinn/Kakó
Magnús Hauksson Suðurnesjanökkvinn
Magnús Korntop Korntoppurinn
María Guðsteinsdóttir Títlan/Júdasardrottningin
Margrét Sigurðardóttir Magga massi
Matthías Eggertsson Hæasinn
Már Óskarsson Marhnúturinn

Njáll Torfason Njallinn,Neil/Skelfirinn, Vestfjarðaskelfirinn

Orri Geirsson Adonis/Módelið/Aflraunaprinsinn
Ólafur Sigurgeirsson Bólan, Fógetinn.
Ólafur Karl Eyjólfsson Óli klútur/Óli slæða/ rokkó
Óskar Sigurpálsson Óld sker, Skörin

Páll Logason Fermeter
Páll Sigurðarson Patrópáver/Palli Patró/Flengmaster/Lyftusjarmörinn
Philip Óskar Sambó

Rúnar Friðriksson Fjósi.

Sigrún Finnsdóttir Skoltan/Fiskurinn
Sigfús Fossdal Skyri Fúsdal/Skyrhöfðinginn/Skyrhrúgan/Skyrmassinn
Sigurjón Ólafsson Miðnæturdeddarinn/Sjálfur
Sigurður Stefánsson Kanslarinn/ Handleggurinn
Sigurþór Arnarsson Silli trappi
Stefán Sigurðsson Kanslarasonurinn
Stefán Svavarsson Spjóti
Stefán Fannar Sigurjónsson Stebbi rauði, Fiskabúrið
Stefán Hallgrímsson Steve/Foringinn
Stefán Sölvi Pétursson Stórskjóðan
Sæmundur U. Sæmundsson Kálfurinn
Sólmundur Helgason Sóli
Skúli Óskarsson Smiðjusvínið/Stálmúsin/Fáskrúðsfirðingurinn frækni
Snæbjörn Aðils Snædýrið, Gælir
Sverrir Hjaltason Lakkrísinn/Lakkinn
Svavar Smárason Hlöllahlúnkurinn/Hlölli
Svavar Einarsson Tankurinn

Torfi Ólafsson Loðfíllinn/Torfan
Tómas Einarsson Drumbur

Valbjörn Jónsson Valli bakari
Valdimar R Valdimarsson Kerfismolinn/Valdi kerfis
Vilhjálmur Stefánsson Ketillinn
Viðar Sigurðsson Eftirlitið
Viðar Eysteinsson,Moli/ Viddi veiðihnífur
Víkingur Traustason Heimskautabangsinn
Völundur Þorbjörnsson Lundinn/Ofsinn/Kanadakanslarinn

Þorbjörn Þorbjörnsson Litli ofsi
Þorvaldur Krisbergsson Borgarnesbollan/bollan
Þorvaldur Vestmann Brói
Þórarinn Traustason Tóti Stallone
Þórir Borg Kóbran
Þór Sigurðsson Þrumuþór

Ögmundur Árnason Ömmi krazý/Ömmi sterki

Share on Facebook

Comments 12 Comments »

Heimsmeistaraklúbburinn stofnaður 14 nóvember 2009 í Las Vegas USA , Riviera hótelinu herbergi 670.

Fyrir heimsmeistara í páver.

4 Heimsmeistarar öldunga voru á stofnfundinum: Ingvar ringo, Kári magister, Gunnar master og Flosi spider

HEIMSMEISTARAKLÚBBURINN - lög -og létt ákvæði - Samþykkt af stofnendum 14 nóv 2009

Kjörorð Heimsmeistaraklúbbsins : EINU SINNI HEIMSMEISTARI ALLTAF HEIMSMEISTARI!

Því miður sáu ekki allir nýkrýndir heimsmeistarar Metal í Vegas sér fært að mæta á stofnfundinn sökum anna með konum eða öðrum aðdáendum sínum..Hér á eftir kemur ágrip af helstu lögum og reglugerðum klúbbsins sem vér munum eftir frá þessum merka fundi. Samþykkt var einróma að bjóða Stefáni Hallgrímssyni (Steve) að verða heiðursmeðlimur en hann er margfaldur heimsmeistari í frjálsum íþróttum og hefur búið til marga páver heimsmeistara í stöð sinni SteveGym. Nokkrir velvaldir og auðmjúkir waterboys fengu að vera viðstaddir stofnfundinn  til að ná í drykkjarföng handa heimsmeisturunum og taka myndir..

Flosi spider ásamt Sir Cat nýkjörnum formanni Heimsmeistaraklúbbsins…..

1. GREIN. - hlýðni - viska - lærdómur

Yngri heimsmeistarar skulu ætið hlýða þeim eldri og reyna eftir megni að nema visku þeirra sér til aukins þroska á öllum sviðum til  frekari afls og lærdóms.

2.GREIN. - Aðild - Einu sinni heimsmeistari alltaf heimsmeistari!

Allir heimsmeistarar ÍKF Metal í páver eða í einstökum pávergreinum verða sjálfkrafa félagar í klúbbnum. Þeir sem einu sinni hafa orðið heimsmeistarar verða alltaf ævifélagar í kklúbbnum.  Heimsmeistarar í liðakeppni fá einnig aðild. Heimsmeistarar úr öðrum samböndum geta  orðið félagar sé þeim boðið það af stjórninni eða þeir sækja um aðild.Klúbburinn starfar sjálfstætt og er ekki undir stjórn eins eða neins.

3.GREIN. - Markmið

Markmiðið er að Ísland eigi heimsmeistara á ári hverju og stefni að fjölgun þeirra í öllum aldursflokkum í páver. Heimsmeistarar  hvetji aðra til titlasöfnunar til að  bæta framfarir í íþróttinni og auka  þannig umfjöllun og athygli á afrekum pávermanna. Heimsmeistaramolar skulu ætíð vera jákvæðir á hina máttlausari til að hvetja þá til  framfara og afreka í lífi og páver. Heimsmeistarar skulu ávallt stuðla að góðum hvatningaranda til að auka á gleði og bætingar hjá pávermönnum.

Þrír Metal heimsmeistarar úr SteveGym: Baldvin bekkur, Gunnar master og Kári köttur…

4.GREIN - Aðalfundur og slíkt.

Aðalfundur skal vera ár hvert eða annað hvert ár sé það nauðsynlegt og þá eingöngu á góðu hóteli  í borg þar sem  HM fer fram . Stjórnarfundir skulu haldnir í tengslum við stórmót eins og Íslandsmót eða önnur alþjóðamót smbr. EM ofsfrv. Til að Aðalfundur teljist löglegur skulu a.m.k. 4 virðulegir heimsmeistarar verða viðstaddir. Leyfilegt er að einn eða fleiri waterboys verði í slíkum fundum til að nauðsynleg  þjónusta  sé veitt við andlega og likamlega næringu  meistaranna sem eru að hugsa framtíðina….

5.GREIN - Byrjunarþyngdir á mótum

Enginn er öruggur gegn örlögunum en heimsmeistarar hafi það hugfast á mótum að tryggja sér eins örugga byrjunarþyngd og hægt er. Þeir skulu og ráðleggja minni spámönnum og öðrum að gjöra slíkt hið sama svo menn séu ekki að falla úr keppni að óþörfu.

Sir Cat - fyrsti formaður Heimsmeistaraklúbbsins!

6.GREIN. Kosning formanns

Formaður skal kjörinn á Aðalfundi til 1 árs í senn eða þar til annað verður ákveðið. Fjöldi stjórnarmanna verður kosinn á aðalfundi eftir áhuga og þörfum hvert sinn.

7. GREIN. Heimsmeistaratal.

Stjórnin skal rita Heimsmeistaratal og fylgjast með að því sé viðhaldið. Meðlimir klúbbssins eru nú eftirtaldir:

1. Kári Elíson (formaður)

2. Flosi Jónsson (varaformaður)

3. Gunnar Freyr Rúnarsson (stjórnarmaður)

4. Ingvar Jóel Ingvarsson

5. Sigfús Fossdal

6. Páll Logason

7. Jón Gunnarsson

8. Þorvaldur Kristbergsson

9. Ísleifur Árnason

10.Baldvin Skúlason

11. Jóhannes Hjálmarsson

12. Torfi Ólafsson

13. Guðni Sigurjónsson

14.. Stefán Hallgrímsson (heiðursmeðlimur)

.

MYNDIR AF NOKKRUM HEIMSMEISTURUM:

Ingvar ringo heimsmeistari öldunga á bekk meö 300kg í 125kg flokki og einn af stofnendum Heimsmeistaraklúbbsins

Sigfús Fossdal heimsmeistari í Vegas á bekk í opnum flokki súper með 342,5kg smellir sigurkossi á fegurðargyðju mótsins…

Palli fermeter heimsmeistaru unglinga í Vegas í 140kg flokki með 400-280-355- 1035kg!

Sigfús skyri og Masterinn - sigurvegar í Las Vegas!

Flosi Jónsson  glettilegur heimsmeistari öldunga á bekk í 90kg flokki með 162,5kg.

Dr.Teygjutvister verðandi síðar meir meðlimur Heimsmeistaraklúbbsins gefur Spidernum góð ráð fyrir bekkinn…

Tveir heimsmeistarar í góðum félagsskap…

Ingvar heimsmeistaraklúbbs-meðlimur ásamt nokkrum góðum klakverjum  á keppnisstað Riviera hótelsins í Vegas. Villi ketill hvatningameistari er lengst til vinstri….

Jón bóndi brattur með gullið í 100kg flokki öldunga með  heimsmet 820kg í totali!

Tveir heimsmeistarar sitja til borðs með tveimur óbreyttum….Heimsmeistara-klúbbsfélögum ber líka að vera sem alþýðulegastir…

Verðlaunin í Las Vegas  sem meðlimir hins íslenska Heimsmeistaraklúbbs hirtu megnið af....

Share on Facebook

Comments 4 Comments »

Stefán Hallgrímsson stofnandi og eigandi Steve-Gym sem  heitir upprunalega Orkulind….

Eins og um allar verðandi stórmyndir þá skapast mikil eftirvænting og spenna hjá almenningi og öðrum um myndefnið á meðan sköpun verksins er í gangi..Það tekur þó nokkurn tíma að pússla  saman eins og heilli heimildarkvikmynd því söfnun heimilda í viðtölum ofl.er nokkuð tímafrek. Nýlega lak á netið myndbrot úr nýja SteveGym en þar er aðeins ábótavant hvað varðar viðurnefni manna en annars líflegt efni sem má sjá: HÉRNA

Share on Facebook

Comments 5 Comments »

Steve er þjóðsagnapersóna sem afreksmaður í íþróttum og gymfrömuður

Það er staðreynd að Stefán Hallgrímsson opnaði æfingastöð í Brautarholti fyrir rúmum 30 árum (1978) og var stöðin ein af þeim allra fyrstu hér á landi. Þótt stöðin hafi flutt búferlum tvisvar-þrisvar sinnum er hún enn starfrækt af Foringjanum eins og Steve er einnig nefndur.

það hafa margir af bestu íþróttamönnum klakans í mörgum íþróttagreinum æft hjá Steve í þessa áratugi sem gerir stöðina svo einstaka að engin önnur æfingastöð landsins kemst þar í hálfkvisti…Núna æfa þarna nokkrir Íslandsmeistarar í hlaupum og svo nokkrir Evrópu og heimsmeistarar í páver og fleira athyglisvert lið…Kvikmyndagerðarmaður nokkur sem æfir í gyminu hefur undanfarið verið að mynda æfingar og er ætlunin að gera stutta heimildarmynd um staðinn en skemmtilegur bútur (trailer) úr myndinni er þegar kominn á netið og má sjá hann á YOUTUBE - Í lok myndbandsins má sjá Foringjann segja Bjarka hrika eftir að Hrikinn hafði deddað 310 að bæta við sig sýrópsblöndu því sýróp gerir gæfumuninn um styrk í deddinu..Sjáið myndbandið:  GUÐ BLESSI GYMIÐ!

Share on Facebook

Comments 5 Comments »