
Á Íslandsmóti ÍKF Metal í réttstöðulyftu togaði SIr Magister Cat ( Kári Catzilla) upp 256kg í 75kg flokki sem var bæði öldungaheimsmet og heimsmet í opnum flokki í sérskráðri lyftu (single lift)
Hlekkur á lyftuna sem Haukur þvottur tók er: HÉRNA
Archive for the “Myndir” Category
Á Íslandsmóti ÍKF Metal í réttstöðulyftu togaði SIr Magister Cat ( Kári Catzilla) upp 256kg í 75kg flokki sem var bæði öldungaheimsmet og heimsmet í opnum flokki í sérskráðri lyftu (single lift)
Jul
05
2010
Símamyndbönd EM (10+11) Geysirinn setur dedd heimsmet í tíunni með 321kg…Posted by KE in Myndir
Bjarki Þór Sigurðsson, deddari af guðs náð…er hér í klassískri byrjunarstöðu með gamla stílnum…(LJÓSM,JÓFÓ) Bjarki geysir úr SteveGym hefur verið nokkuð lengi þekktur sem góður deddari..hann hefur keppt á ansi mörgum mótum í 15-20 ár en aldrei vogað sér á alþjóðamót fyrr en hann braut ísinn á EM á Akureyri..það voru reyndar ýmsir aðrir sem losnuðu undan oki alþjóðahræðslunnar fyrir norðan og skelltu sér á pallinn…Bjarki keppti í opnum flokki í 110 í deddinu. Hann bætti þar single lift heimsmetið í 321kg og kemur sú lyfta: HÉRNA Geysirinn lét ekki staðarnumið við 321kg heldur reyndi að bæta nýsett met sitt um 9kg og fór í 330kg sem klikkaði naumlega: HÉRNA Share on Facebook
Ómar Jóhannesson hendir upp fyrstu tilraun á EM með 265kg….heimsmetið handan við hornið….(ljósm.JÓFÓ) Það er aldrei of seint að byrja alþjóðlegan feril hjá ÍKF Metal…Ómar Jóhannesson”stangarmaður” hefur lengi verið í bransanum, Verið manna duglegastur við að aðstoða á mótum en keppt of lítið sjálfur.. Núna þegar kappinn er orðinn fimmtugur þá er andinn kominn yfir hann fyrir alvöru og hann stillti upp á EM á Akureyri í 140kg flokki 50-54 ára. Varð Evrópumeistari í deddi og setti um leið heimsmet sem Masterinn myndaði, byrjaði heldur seint að kveikja á símanum en 280kg heimsmet öldunga kemur: HÉRNA (Athugið að flestar þesar lyftur sem hér hafa verið sýndar á símamyndböndum verða síðar til á disk með meiri gæðum þar sem Haukur þvottur kvikmyndaði á mótinu.) Share on Facebook
Á meðal þeirra bestu…Rich Fricker stendur sem besti páveröldungur EM á milli rússans og Catzilla.. Einn af þeim útlendingum sem settu hvað mestan (og þyngstan! 162kg) svip á EM á Akureyri var bretinn Richard Fricker. Ritstjórinn er kominn með það á hreint að hann hefur orðið heimsmeistari öldunga 11 sinnum! og 16 sinnum Evrópumeistari! Kappinn á öll heimsmetin 4 í páver 40-44 ára í súpernum 140+ og tvö heimsmet á hann í súper 45-49 ára. Á Akureyri setti hann heimsmet 45-49 ára í súpernum í totali með 800kg. Til þess að takast þetta varð Fricker að dedda 285kg sem kemur: HÉRNA Share on Facebook
Þröstur Ólason tvöfaldur Evrópumeistari á Akureyri er hér með 29okg í öruggum höndum Eins og áður hefur komið fram þá sló Þrösturinn alveg í gegn á EM og vann fyrst pávertitil unglinga og síðan réttstöðulyftuna daginn eftir og deddaði sem sagt meira á seinni deginum sem er alveg einstakt..Í 100kg flokki 20-23 ára bætti hann í deddkeppninni heimsmetið tvisvar.Tók fyrst 280,5kg og síðan 290kg. Myndband Mastersins af þeirri lyftu kemur: HÉRNA Share on Facebook
Ísleifur Árnason bekkpressujöfur léttmola Sleifurinn er nú kominn á stall með bestu bekkurum í Íslandssögunni og hefur heilmikið þroskast sem lyftari hjá ÍKF Metal eins og lög gera ráð fyrir…Kappinn fór hamförum á EM á Akureyri á bekkpressumótinu og vann þar besta afrekið í opna flokknum og tvíbætti heimsmetið í 90kg flokknum. Fyrst úr 230 í 230,5kg og síðan í 235kg í aukatilraun. Myndband af þeirri frábæru lyftu kemur: HÉRNA Share on Facebook
Catzilla togar í 260 sem er að byrja að klikka þarna….(ljósm. Jófó Urrabíta) Eftir að Kötturinn hafði stútað í deddi í 75kg flokki 55-59 ára tveimur heimsmetum létt með 220 og 240kg var stokkið í 260 að sjálfsögðu…Það klúðraðist á undarlegan hátt og þegar ritstjórinn var að detta aftur fyrir sig fór myndatökumaðurinn líka í flækju eins og sjá má: HÉRNA Share on Facebook
Hluti keppenda á pávermótinu..Vantar m.a. Bóndann, Fricker, Þór.Kerfismolann,Tobias Stath ofl. Þeir sem eru á myndinni: Viktor Samúelsson (photos), Eyjólfur Sebastian Bremsch (photos), Einar Örn Guðnason (photos), Jon Þór Ásgrímsson (photos), Steinn Hermann Sigurðarson (photos), Bjarki Þór Pálsson (photos), Rúnar Geirmundsson (photos), Rögnvaldur Björnsson (photos), Birgir Thorsteinsson (photos), Jakob Snær Egilsson (photos), Eggert Samuelsson (photos) Páverkeppnin á EM var mjög skemmtileg og góður árangur náðist í sumum flokkum þótt dauðaflokkur mótsins væri 100kg opni flokkurinn þar sem hinn gamalreyndi harðjaxl Jón Gunnarsson fór með sigur af hólmi og fór með allar lyftur í gegn á glæsilegan hát og rústaði heimsmetum öldunga í leiðinni ásamt keppinautum sínum en Bóndinn tók 852,5kg í samanlögðu og varð jafnframt bestur allra á stigum. Kerfismolinn varð þar annar með 805kg og átti ekki sinn besta dag en tók fínan bekk þótt hitt gengi ekki upp. Þrumu-Þór varð svo þriðji með 790kg og er alveg að fara að stúta 800kg múrnum. HEILDARÚRSLIT Í PÁVER: teen 64.50 M40+ 94.60 M45+ 162.80 Þór Sigurðsson ISL 100 270.0 285.0 -300.0 285.0 220.0 -235.0 235.0 260.0 270.0 -280.0 790.0 482.1 3.
þrumu-Þór Sigurðsson stóð sig vel á EM í erfiðum 100kg flokki..Hér tekur hann létt 270 í beygjum og fór svo einnig með 285kg. Þór náði stórglæsilegum árangri í bekkpressunni þegar hann tók nýtt Íslandsmet 235kg! Það er frá upphafi langmesta þyngdin í 100kg flokki yfir öll sambönd hér á landi. Þegar beygjan og deddið koma meira upp saumar hann verulega að súper-molunum Jóni bónda og Kerfis en ofur unglingurinn Þröstur verður þá búinn að molast upp í tíuna…það er Georg Ögmundsson krani sem stendur fyrir aftan Þór en Goggi stóð sig vel sem yfirstangarmaður mótsins og þáði engan pening fyrir! -(ljósm Patrópáver og næstu myndir)
Jóhannes Atlason er einn af uppgötvunum Fúzilla á Akureyri en þessi nýkappi tók fínar bætingar og m.a, 290kg í beygjum en miðað við umfang vaxtar og framfara er þarna eitt af beygjutröllum framtíðar að stíga fram á sjónarsviðið…
“Er ég nokkuð of fast vafinn?” spurði Palli patrópáver sjálfan sig en Birgir Þorsteinsson -Aðalfúsi hefur ekki áhyggjur af því og situr makindalegur að hætti yfirmola..
Palli Patró keppti í 100kg dauðaflokknum og fór með allar beygjur í gegn í góðum stíl og endaði á 10kg bætingu með 210kg. Eftir að hafa verið nálægt sínu besta á bekk gat Palli samt ekki deddað og neyddist til að hætta keppni vegna krampa sem hann fékk um gervalla skjóðuna. Næst þegar kappinn kemst í form hlýtur hann að taka 600kg múrinn og ná skjóðunni upp í 100kg massa í Spider-style..
Jói Gísla í 50+ getur alltaf tekið 260 í beygjum með lokuð augun eða eitthvað en þegar nálgast 300 þá fer allt í stórsteik þótt það eigi að liggja..Kallinn þarf að hugsa mót sem æfingu þá kemur þetta allt…nægt er aflið!
Birgir Þorsteinsson 40+ er núna kallaður Aðal-Fúsi sem verður betur sagt frá hvers vegna í sérstakri sögu eftir nokkra daga. Aðalfúsinn býr í Holandi sem stóreignamaður á bílasviði Aston Martin ofl. Kom gagngert hraðferð til landsins til að dusta 18-19 ára páverryð af sér og átti come-back nýaldar þegar hann sýndi fram á góðar tölur á EM og átti mikið inni og þá sérstaklega í beygjum og deddi. 280kg deddið var nú svo létt að það er varla hægt að skrifa um það!..Evrópumeistari núna og það er klárt að ef hann keppir á HM í Bath sjáum við þar líklegan heimsmeistara með tölur nálægt 850 í totali..veðja á það!
Patrópáver ásamt Jakobi Snæ Egilssyni sem stóð sig mjög vel á mótinu og beygði 300kg bætingu in good style…
Gömlu félagarnir Jón bóndi og Sleifurinn hlutu báðir stigabikara í opnum flokki…
Kári Catsilla og Jóhanna Jófó segja leynibrandara um kviðsaða yfirmola og þjóðverjafrúin Kirsten Scwade með sinn páverstigabikar fílar allt í botn…
Fúzilla afhenti öll stigaverðlaun í lokahófi mótsins..við hliðina á Ísleifi er bekkpressurússinn Maximush sem vann stigabikar öldunga
Bestu lyftarar EM 2010..á myndina vantar Þröst Ólason sem vann tvo stigabikara en segist hafa löglega skrópingu.. (myndir frá albúmi Palla patró á Facebbok) birtum fleiri myndir þegar og ef okkur berast þær eða ábendingar þar um en það vantarmyndir af mörgum úr páverkeppninni sérstaklega. Share on Facebook |