Archive for the “Káravísur” Category


Gullkort Visagreifans er núna MasterCard

Það er nú saga að segja af því þegar Kári catzilla fékk Visakort í fyrsta sinn og var kallaður Visagreifinn í smátíma….en áður en af því kemur segjum við örsöguna um Gullkort  mitt hjá MasterCard..Þegar kortinu var breytt úr silfur í gull fylgdi með því leyninúmer..Þegar heim var komið fyrir 4 árum eða svo brá mér heldur í brún..númerið var páver totalið hjá Hjalta Úrsus!..Við það var ekki unað!  Farið strax í bankann og spurt hvað þetta ætti eiginlega að þýða..það væri alger svívirða að láta mann hafa svona lagað!.. Sótt um nýtt númer..Daginn eftir barst það í pósti..og hvað reyndist það? 100kg meira” ..Totalið hans Auðunns! Mesta þyngd íslendings í páver!..Sáttur við það…Í síðustu viku týndist kortið…Sótti um nýtt…Hvað var númerið núna?…Svoldið leyndó…Það er mun hærra total en nokkur íslendingur ræður við þar til Sigfús fúzilla tekur það!

VISAGREIFINN Í KALIFORNÍU

Árið 1985 fékk ritstjórinn Visakort í fyrsta sinn og gekk það ágætlega þegar raðað var niður páver titlum og verðlaunum út um allan heim.Hinsvegar á því herrans ári 1986 var haldin svokölluð Landskeppni í kraftlyftingum á milli Kaliforníu og Íslands úti í Bandaríkjunum í bænum Fresno. Um miðja helgi í febrúar þarna úti á strönd Kaliforníu glataðist kortið sem glæponar komust yfir og notuðu um hríð því erfitt var tilkynna glatað kort á þessum árum um helgi. Lenti Catzilla í ýmsum vandræðum vegna þessa

..Í keppninni sjálfri gerðist það fræga atvik sem var skrifað um í tímaritið POWERLIFTING USA að þegar ég var að reyna við 260kg í deddi rann ég til á pallinum og lóðin sem voru öll úr járni skullu ofan á hægri ristina og brutu hana. Ég var borinn út af pallinum og kældur niður með íshrúgu. Áhorfendur ætluðu síðan ekki að trúa eigin augum þegar ég haltraði aftur að pallinum og reif þessi 260kg upp að sönnum víkingasið eins og sagt var frá í tímaritinu. Það sem ég man þegar ég þreif í stöngina var, að ég hugsaði: “Ég er ekki kominn alla leið hingað til að klikka á þessari þyngd”! Ég tapaði samt fyrir kananum sem vann mig í totali á 45kg meiri beygjum…Þegar heim var komið orti ég eftirfarandi ljóð sem hefur aldrei birst fyrr en nú:

Köttur lagði brattur land undir fót
löng var sú ferð og sól í mót.
Fyrirhyggja þó slóst í för
fagurt var kort og bros á vör.

Hann þóttist vitur og viss í trú
með Visa yrði honum borgið nú.
Örlög grimm þá tóku í taum
tættu í sundur hinn fagra draum.

Kortið týndist og dollarar dóu
dauf varð sál en félagar hlógu!
Eymd og volæði blasti honum við
sem virðuleg refsing að guðanna sið.

En Bólan var nærri blið og rjóð
og bjargaði málunum ofurgóð!
Skuldabagginn mun setjast á sál
svo þungt er hjarta og tregt um mál…

Fullkomnuð varð hans frægðarferð
frá keppninni sjálfri segja verð:
Saltaður var svo gleymist seint
sjálfsagt var það ei illa meint.

Og lóðin féllu við lítinn glans
og löppina brutu með elegans.
Hann týndi ekki meiru og tognaði ei
tók aftur gleðina og sagði: Ókey!

Komst heim um síðir til klakalands
og kappinn er hress, því reynslan er hans!

Share on Facebook

Comments 3 Comments »

Fimmtíu árin gengin góð
gæddur styrk og þoli.
Traustur maður tildurs þjóð
talinn vænsti moli.

Lóðum kynntist sveinninn sá
svernuðu vöðvahnyklar.
Engin takmörk þekkti þá
þyngdirnar urðu miklar!

Til bætinga þrumu þyrstur
þykkan bysep fékk.
Tvöhundruð og fímmtíu fyrstur
fleygði upp á bekk.

Vífs á völdum leiðum
virtur um alla jörð,
Undir búknum breiðum
berjast eistun hörð…

Til sálar gæðagripur
góður til lóðapuðs,
Á bekkinn leggst hann lipur
og lyftir í átt til guðs…

Í bréfskákinni brytjar menn
býr til fléttu klára.
Gæti alveg orðið enn
eins og hundrað ára….

(KE)

Share on Facebook

Comments No Comments »

Hinn tvöfaldi Norðurlandameistari unglinga í kraftlyftingum Sigfús Fossdal oftast nefndur Skyri Fúsdal frá Akureyri er sérstakur karakter. Kappinn nýtur skyrstyrkja hjá KEA veldinu fyrir norðan og það hefur verið stofnuð bloggsíða honum til heiðurs af súper aðdáendum hans Gunnari Birni og Gylfa Sleggju og ber síðan heitið Framhaldslíf. Til að toppa þetta hefur Sir Magister Cat ort eftirfarandi hetjukvæði um kappann.

ÓÐUR SKYRHÖFÐINGJANS
(Sigfús Fossdal)

Menn dýrka Skyra ofar skýjum
hinn skarpa norðlenska son.
Þeir bíða eftir bætingum nýjum
og blessa þá íslensku von.

Þá frestast mun skjóðunnar fláning
fyrir dýrð þess er birtist síðar,
hvert mót aðeins hugarins áning
hann klífa mun bröttustu hlíðar.

Hvert sett er í áætlun andans
af Sleggju og Birninum hvattur.
Orðstýr nær langt meðal landans
og lifir um aldir þar brattur.

Í sig mun skömmtunum skella
af skyrinu mjúklega alinn,
síðan verður það ein og ein mella
og svo aftur í lyftingasalinn.

Hver bæting gerir menn graða
að ganga sterkir á hnetti,
svo í sig mun rjómaís raða
eftir reglum sem Jón Páll setti.

Remúlaði burt þar af rennur
þá rammefldur verður með hörðu.
í hjartanu eldur sá brennur
sem afrekum hleður á jörðu.

(K.E.

Share on Facebook

Comments No Comments »

FINGURMISSIR SIGURÐAR ÓLAFSSONAR
Hér kemur bragur frá 1992 er náungi sem heitir Sigurður Ólafsson og var í kraftlyftingum um tíma varð fyrir slysi á æfingu í Æfingastöðinni á Smiðjuvegi í Kópavogi.
Hann var á æfingu með Benna breiðsíðu-dyraverði af Gauknum sem tók öllu með ró…
Á bekkpressuæfingu með breiðsíðunni varst
er bjána óhapp gerðist og fingur þinn af skarst,
eftir slysið þá fórstu upp á slysó að vonum
að sjá til hvort væri hægt að bjarga honum…

Á meðan sýndi Benni að hann var engin skræfa
skellti sér á bekkinn og hélt áfram að æfa…
og læknirinn sagði að það tæki langan tíma
að lagfæra stúfinn sem yrði hörkuglíma…

Þú myndir missa úr æfingar,svona eina og eina
þú yrðir nú að velja og hafna,eða reyna…
þetta var þér allt saman einn heljar höfuðverkur
-en hverju skiptir útlitið ef maður verður sterkur?

Þú gast ekki hangsað þarna og yrðir brátt að fara
svo ákvörðun var tekin:-Fleygið honum bara!
Sú gjörð var bæði heimskuleg og hetjuleg í senn
og hana geta aðeins skilið sannir pávermenn…

Auðvitað er talsvert sárt fingurs síns að sakna
en sárara þó upp við martröð þá að vakna,
að horfa í speglinum á eigin hryggðarmynd
svo hörmulega máttlausa eins og erfðasynd…

Nei,skárra er að sýnast vera flesklaga og feitur
og fá sér kannski örlítið karlmennskueitur…
Því hvað eru einn eða tveir fingur til og frá?
-Þeir takmarka ekki hina óstöðvandi þrá…

Share on Facebook

Comments No Comments »