Archive for the “Heilsuhornið” Category


Fituprósenta er mönnum oft hugleikin og nota þeir töluna oft til að meta í hve góðu formi þeir eru.  En tilfinning fyrir því hver hún er, er oft mjög á reiki.  Einnig eru mælitækin jafn misjöfn og þau eru mörg.  Ýmsir vilja ennfremur meina að nákvæmasta mælitækið sé gott auga á reyndum þjálfara.

Þess vegna tók ritstjórn kraftaheima saman smá grein sem hjálpar mönnum vonandi að fá tilfinningu fyrir því hvaða útlit fylgir hvaða fituprósentu.

(Unnið að mestu uppúr bókinni “Sliced” eftir Bill Reynolds og Negrita Jayde)

1. Fullt hús = Um eða yfir 20% líkamsfita.  Ekki sjáanleg skil á milli smærri vöðva og rétt aðeins sjást skil á milli stórra vöðvahópa.  Ef maður er hærri en þetta í fitu, þá er maður hreinlega bara feitur.

Mynd 1. FLÆÐIMOLI (Vöðvar blandaðir með mikilli fitu yfir 30%) Mynd nr.1 fylgir sögu á Kraftaheimum: HÉRNA

Mynd 1 b

2. Harður = Farinn að sjást smá skurður/aðskilnaður á milli axlavöðva og bicep.  Magavöðvar ekki farnir að sjást.  Í kring um 15% fita.

Mynd 2

3. Köttaður = Meiri skil farin að sjást á milli vöðva, sérstaklega á kassanum og bakinu, útlínur magavöðva farnar að greinast.  Um 12% fita.

Mynd 3

4. Skorinn = Skurður á milli vöðva orðinn dýpri í handleggjum, brjóstkassa, fótum og baki og magavöðvar koma fram þegar menn spenna.  Um 10% fita.


Mynd 4, sami og í 3 orðinn skornari
http://forum.bodybuilding.com/attach…1&d=1068554724

5. Ripped = Magavöðvar sjást alltaf.  Æðar farnar að sjást vel í handleggjum, skurður í kassa og baki augljós, andlitsfylling farin að minnka.  7-9% fita.

Mynd 5

6. Shredded = Þverskurður farinn að koma ofan í skurðinn þegar menn spenna.  Menn líta út fyrir að vera litlir í fötum, en hrikalegir án fata.  Æðar fara að sjást neðarlega á kvið og á fótum.  Yfirleitt næst ekki að halda þessu ástandi nema í nokkra daga í senn, keppnisform á vaxtaræktarmönnum.  Um 5-7% fita.

Mynd 6

7. Sliced = Vöðvar og sinar farnar að sjást í andliti þegar menn tyggja.  Þverskurður á vöðvum farinn að sjást alls staðar og æðar útum allt.  Nánast ekkert vatn undir húð, aðeins hægt að halda þessu ástandi í nokkrar klukkustundir í senn, fyrir utan að þetta ástand er fjarri því að vera hættulaust út af vatnsskorti.  Um 3% fita.

Mynd 7

Vonandi gefur þetta mönnum einhverja hugmynd um það í hvaða prósentu þeir eru í raun og veru og hjálpar þeim að setja sér raunsæ markmið hvað varðar líkamsfitu.

Share on Facebook

Comments 21 Comments »

AÐ NÁ VIGT

SÍÐASTI MÁNUÐURINN - Eftir Ron Fernando USA

Kafli úr bókinni: TECNOLOGY AND ATHLETICS

(Áður en þýðandinn fór að slá þessa grein inn hlóð hann sig upp með sósulausum bætingabát frá Hlöllabátum til að tryggja jákvæða orkusköpun við þetta…Athugið að skemmtileg vökvavísindi tæknilega útfærð  koma fyrir í greininni, sjá kaflann Kvalalaus kílóafækkun!)

Sviðið: Nauthólsvík á heitum sumardegi: Sólskinið leikur um brúnar axlir hennar þegar hún fær sér nautnalega annan sleik af girnilegum ísnum….Þarna er daman, glæsilega vaxin ljóska með glettilegan kassa, en þú gefur ekki 5 aura fyrir hana! - Áhugi þinn er meiri á stórfenglegum ísnum! Já, það er þetta augnablik aftur maður! Keppnin er á næstu grösum  og þú ert svoldið of þungur. En þetta er ekkert mál fyrir Jón Pál, þú hefur enn nokkrar vikur til stefnu svo þú getur alveg notið þinnar síðustu, nei, þinnar næst síðustu freistingar…Eftir allt saman ertu bara nokkrum kílóum yfir þyngdarmörkunum…Raunin er sú að það eru tl fjölmargir pávermenn sem skipuleggja af nákvæmni æfingaáætlun sína eftir vísindalegum kerfum og kaupa allskyns súper útbúnað á sviði sloppa, stálbróka og vafninga ásamt vítamíndóti ofl. En þegar kemur að matarræðinu sjálfu er allt étið sem að kjafti kemur undir kjörorðinu: “Vömb skal sem vænust verða, vil ek átið herða!”

Það sem hér fer á eftir er ekki hreint megrunarkjaftæði heldur ábending um að menn skuli huga að matarræði sínu og hvernig best er að létta sig fyrir mót þegar þeir neyðast til þess….

TÆKNISKÖFUN - HORFST Í AUGU VIÐ SJÁLFAN SIG

Jæja, það skiptir ekki máli hvort næringafræðin er þín veika hlið eður ei. - Núna ertu boðinn velkominn til raunveruleikans! Hér verður farið yfir nokkrar grundvallar lífsreglur í sambandi við skynsamlega léttingu í lokaáfanganum fyrir keppni. (Með öðrum orðum: TÆKNISKÖFUN, þýðandi) Þessi nauðsynlegu undirstöðuatriði gera það bæði að verkum, ef rétt er að farið, að þú getur varðveitt afl þitt í tæknisköfuninni og náð þér í flokkinn án þess að þurfa grípa til neyðarúrræða á síðustu stundu, eins og að nota þvagtöflur eða æla sig niður eins og Skúli óskars gerði eitt sinn osfrv.  Þú verður að fylgjast með öllu sem þú lætur ofan í þig á þessum tíma. Vertu harður og hreinskilinn við sjálfan þig á öllum sviðum. Það er ekki nóg að vera þokkalega öflugur og vera með fyrirferðina út um allt ef verið er í mun þyngri flokki en æskilegt væri og árangurinn því ekkert til að tala um. Gott matarræði gefur hinsvegar raunverulegan árangur….Engin glussastefna hér!

GÆÐAMASSI OG GLUSSAMOLAR

Ef þú ert t.d. 110kg moli og tekur 250kg í beygjum, hvers vegna ekki að tækniskafa sig niður í 100 og lyfta sömu þyngd, eða jafnvel meira? - Það er hægt! Með því að losna við óþarfa fituþyngd losnar oft úr læðingi aukin snerpa og geta sem viðkomandi hefur oft ekki hugmynd um að sé til staðar. Auðvitað kostar það erfiði að breyta núverandi massa þínum í gæðamassa en hver sgir að það eigi að vera auðvelt? - Mundu að fita á ekkert skylt við vöðva. Að vömbn hjálpi í beygjum er ekkert annað en goðsagnartrú glussamolanna. Vömbin gerir mönnum erfiðara að komast í dýptina og þeir feitu eiga oftast erfitt updráttar í deddinu. Þeir svitna við það eitt að beygja sig niður að stönginni og startið er hreint kvalræði. Með því að verða skafnari og gegnum massaðri vinnur þú ekki aðeins betur úr skjóðu þinni, heldur verður þú líka sterkari, snarpari og betri lyftari en áður! - Hvernig er þetta gert? - Lítum á nokkrar leiðir:

1. - Borðaðu aldrei yfir þig. - Borðaðu smáar vel valdar mátíðir 5-6 sinnum á dag.

2. - Borðaðu aðeins nóg í hvert sinn til að duga brennslu skjóðunnar í næstu 3-3/1/2 klst.

3. - Forðastu fituríkan mat, freistingarnar og það allt saman! (mundu hreinskilnina!)

4. - Drekktu mikið af vatni.

REYNDU ÁVALLT  AÐ VERA EKKI MEIRA EN 3-3,6% YF ÞEIRRI LÍKAMSÞYNGD SEM ÞÚ ÆTLAR AÐ NÁ.

Ef þú ætlar að létta þig mikið, gerðu það þá á löngum tíma. Ekki vera með ofurtrú á þyngd skjóðunnar að hún ein  gefi aflið. Þótt þú verðir ekki vel vinalegur lengur og umfangið eitthvað minna, þá, ef þú ert vel þjálfaður hefurðu samt eftir sem áður hæfileika og getu til að lyfta góðum þyngdum. Það er nefnilega gæðamassinn sem gildir!

KVALALAUS  KÍLÓAFÆKKUN

Sértu meira en 4% -5% yfir þyngdarmörkum mánuð fyrir mót, hefurðu um tvær leiðir að velja. Í fyrsta lagi að auka vatnsdrykkjuna, næstum tvöfalda hana. Í öðru lagi skera niður við trog alla fitu og minnka kolvetnaneysluna. Þ.A.S. brauðvörur, banana, kartöflur, baunir, kornvörur osfrv. Það hljómar skringilega að þamba vatn eins og flóðhestur meðan verið er í léttun, en það flýtir fyrir losun úrgangsefna og annars óþarfa sem vill safnast fyrir í líkamanum. Á þessu tímabili ættir þú að einbeita þér að því að borða fjölbreytilegar tegundir af baunum og ávöxtum og minnka aðeins meira kolvetnin og fækka hitaeingum örlítið, án þess að þurfa þjást í mæðulegri megrun. Með þessu móti ættir þú að ná því að vera ekki meira en 3,5-4kg yfir þegar tvær vikur eru eftir til stefnu.

Með því að haga matarlegu lífsmynstri á þennan veg síðustu tvær vikurnar gætirðu líklega léttst um 1-2 kg næstum sjálfkrafa  og sársaukalítið. Þetta gerir það að verkum að þu getur haldið nokkuð hárri skjóðuþyngd á meðam verið er að keyra upp æfingaþyngdir á síðasta tímabilinu án þess að vera langt yfir þyngdarmörkunum. Þú ættir að stefna fastmótað að því að vera ekki meira en 1,5- 2,5kg yfir viku fyrir mót. Það er mín reynsla að yfir nóttina brennir maður 800-1200 grömmum (þýðandinn ábyrgist 400-600 grömm) Þeta fer auðvitað talsvert eftir líkamsþyngd manna og lausamassa ásamt matarást og hungri síðasta sólarhringinn. - Í öllu falli léttist maður talsvert bara við það eitt að hugsa um megrunina og áhggjurnar af byrjunarþyngdinni í beygjum!

GÁFULEGT MATARRÆÐI ER VEGURINN TIL GÆFU

Ekki hugsa um þvagtöflur…þær rústa vökvajafnvægi líkamans og eru núna á bannlista á allan hátt…Það síðasta sem mann langar til að gera til að ná vigt á lokamínútm er að hlaupa eða taka armbeygjur í gufubaði… í neyð getur gufubað verið síðasti vonarneistinn en sá neisti getur líka slökkt á þér í beygjum. Ef þú ert meira en 10-15 mín í gufu getur þú átt von á slíku. Gufubað tekur nefnilega á skömmum tíma úr skjóðunni ótrúlegt magn af vökva og nauðsynlegum efnum svo sem steinefnum ofl. Það er ekkert spaugstofugrín að sitja stjarfur af skelfingu í gufu og sjá massann bókstaflega gufa upp fyrir augunum á sér..

Nei, þetta er ekki leiðin félagi! - Þú verður að fara hina gáfulegri leið í gegnum fæðuna. Hafðu trú á sjálfum þér og því sem  þú ert og ætlar að gera. VERTU VITUR Í MATARRÆÐINU. Ef þú ert búinn að vera góður strákur í freistingum allan þennan tíma, lattu þá ekki eftir þér fáum kvöldum fyrir mót að trítla inn á veitingastað og fá þér stórsteik með öllu tilheyrandi…Geymdu það þangað til eftir á…Hugsaðu og framkvæmdu á þennan veg og láttu freistingarnar svífa framhjá sálu þinni og kvið…

SÍÐASTA KVÖLDMÁLTÍÐIN….

Ef þú ert 1100-1200 grömm yfir eða minna yfir mörkum, kvöldið fyrir vigtun, þá geturðu fengið þér lauflétta máltíð. Enga steik, ekkert fitusull, en kannski súpu, smá eggjaköku, spaghettí, grænmetissalat, hrísgrjón og ávaxtasafa. Kanski ekki allt þetta en eitthvað af því. Alls ekkert sem er þungt í maga, fitandi eða kryddað. Sem sagt, gos, súkkulaði, hnetur, ís og þessháttar nammi, allt í verðlaun í næstu viku….

Keppnisdaginn sjálfan, skaltu ekki fá þér neitt að borða eða drekka frá því þú vaknar þangað til þú vigtast inn. Nema hugsanlega smá kaffi til að koma kerfinu í gang með losun síðustu úrgangsefna. Þetta fer þó eftir því hvað þú ert þungur og klukkan hvað þú átt að vigtast inn. Milli kl.9-12 fh. ættir þú að missa 300-600gr. með eðlilegum hætti og ef þú átt að vigtast inn milli kl.12-15 ættir þú að geta léttst um 600-900gr með þessu móti. Ágætt er að fara í heita sturtu á þessu tímabili til aukins útskilnaðar svita og vökva.

STRÖGGL OG STÁLVILJI

Þessar síðustu megrunarstundir þínar geta vissulega verið þjáningarfullar og hverfunartilfinningin yfirþyrmandi. En þú veist að þú ert í töff sporti þar sem ekkert er auðvelt. Það er viljinn sem ræður um velferð þína. Þú verður að standa af þér storminn og hugsa um öll persónulegu metin sem þú átt í vændum….

AÐ SKELFINGU LOKINNI…

Eftir að vigt hefur verið náð er best að fá sér strax steinefnahlaðinn sportdrykk og vítamínríkan ávaxtadjús til að endurheimta sem fyrst hin töpuðu efni og vökvalegt jafnvægi þinnar hrjáðu skjóðu. Alls ekki þamba þessa drykki í ómældu magni, heldur lítið í einu og aðeins nóg til að þér líði betur. Ég mundi svo fá mér t.d. eggjaköku, pönnukökur og vínarbrauð með ávöxtum  og kaffi. Síðan mundi ég á meðan keppni stendur fá mér meira af sportdrykk og kaffi og hakka í mig orkurík heilsusúkkulaði til að ná naðsynlegm blóðsykri upp.

Alls ekki fá þér kjötmáltíð eftir vigtun því kjötið krefst of mikillar orku til meltingar og getur valdið vanlíðan og krömpum. Forðastu alveg bjór, sælgæti, hamborgara og aðra óhollustu. Ég meina. til hvers að undirbúa sig í marga mánuði fyrir stórmót og eyðilegja svo afraksturinn á einum degi með heimskulegri áthegðan? Þessi tæknisköfunar aðferð se við höfum hér farið yfir mun skila þér toppárangri, einmitt vegna þess að þú þarft ekki að skyndilétta þig um 6-7kg til að ná vigt.

Þegar þú svo stikar inn á pallinn þrælskafinn og hrikalegur og lyftir öllu sem set verður á stöngina er engin hætta á öðru en því að þú verðir til sóma ættgöfgi íslenskra víkinga til ofurdáða…

HEYRÐU?…Ef þú treystir þér ekki í þetta geturðu gengið í skákfélagið eða golfklúbbinn, þeir hafa ekki þyngdarflokka þar…

( Kári magister þýddi og endursagði)

Share on Facebook

Comments No Comments »

Axlir eru flókin vöðvatæki líkamans

Þeir eru nokkrir sem halda að axlaræfingar séu mest gerðar til að styrkja sig í bekknum…Þær eru auðvitað nauðsynlegar í það en það má alls ekki gleyma því að stór hluti þess að geta togað út deddið í góðri klárun er axlarstyrkur. Það eru margar axlaræfingar til og það þarf alls ekki að vera með  neitt rosalegar þyngdir í slíkum æfingum til að ná upp auknum styrk. Best er að hafa axlaræfingarnar sem fjölbreyttastar og æfa þær helst tvisvar í viku..einu sinni í viku allavega. Gott æfingamyndband með leiðbeiningum er: HÉRNA

Leonardo Da Vinci stúderaði axlir í öndverðu - Ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Vefsíðan Critical bench er einnig með margar góðar greinar um páverinn og þar er t.d. að finna eftirfarandi grein um axlir: HÉRNA

Share on Facebook

Comments 1 Comment »

Búkkar eru nútíðin og örugglega framtíðin segir Fjölli búkkabiskup og æðsti presturinn Dave Tate…

Vefsíðan www.elitefts.com hefur nú birt grein um búkkaþjálfun sem hefur vakið mikla athygli og er þegar talin hin eina og sanna Búkkabiblía…Hún hefst á þessum orðum lauslega þýtt:  “Síðustu árin hafa búkkar verið ein vinsælasta æfingaaðferðin fyrir bekkpressu…Hvort sem menn nota búkkana til að auka sprengjukraftinn eða hröðun lyftunnar eða sem grunnaðferð til að bæta trysep styrkinn eða almennan styrk þá hafa búkkarnir sannað sig sem algjör klassi!”

Þú sleppur ei með skrekkinn

ef skrattinn býr þér hjá,

en æfirðu búkkabekkinn

bjarta framtíð muntu sjá!

Búkkabiblían skiptist í nokkra kafla og nokkur vers þar sem m.a. er fjallað  um margar tegundir búkka og búkkagerðir og æfingar fyrir kjötbekk og fyrir sloppabekk…Greinin um Búkkabiblíu fyrir bekkpressara er: HÉRNA

Njótið vel og lærið til framfara!



Share on Facebook

Comments No Comments »

Menn eru alltaf stöðugt að velta því fyrir sér í pávernum hvernig sé best að vefja á sér hnén, og eru mjög misgóðir í því.
Hér er ágætis kennslumyndband sem menn ættu að stúdera vel þannig að þeir klúðri ekki vafningunum á næsta móti!

Share on Facebook

Comments No Comments »

Hemmi hefði betur látið þetta bílaþvottagengi sjá um bílinn sinn!

Formaður  ÍKF METAL  Hemmi Haraldss  er í hrikalegu keðjupúli á bekk þessa dagana og er því með stífara móti. Kappinn tognaði í bakinu í vikunni við  það eitt að þvo bílinn sinn!…Þegar pávermenn eru í formi getur allt skeð á tognunarsviði og á hæstvirtur ritstjórinn nokkur slík met..

Hrikalegir kettir lenda í ýmsu

Í gær t.d. tognaði Magister Cat  nokkuð illa í miðbakinu við það eitt að labba aðeins hraðar inn í eldhús en hann ætlaði sér…Kallinn þurfti um síðir að fá sjúkraflutningamann til að skutla sér til einkalæknis…Með allsskonar bakstra á bakinu á síðan í dag að skrölta í léttan bekk …

BAKIÐ ER BURÐARÁS SKJÓÐUNNAR OG ÞARF AÐ VERA Í LAGI!

Share on Facebook

Comments No Comments »

Útlenskur “teygjutvister” sést hér með einn æfingamöguleikann

Æfingar með teygjum er nýlegt fyrirbrigði og eru þar til ýmsar útgáfur. Hér fyrir ofan sést mynd af einni. Fyrir framsækna og forvitna geta þeir haft samband við Fjölla teygjutvister.

Kraftlyftingar og hversskonar líkamsrækt er auðvitað það besta fyrir fólk til að öðlast betri skjóðu og styrkja heilann í leiðinni… Ef einhverjir trúa ekkI á þetta með heilann ættu þeir að kíkja á þessa frétt: HÉRNA

Share on Facebook

Comments No Comments »

Menn eru misjafnir eins og þeir eru margir. Ummál og liðleiki eru til dæmis eiginleikar sem eru mjög mismunandi frá manni til manns. Sumir yfirmolar eru svo miklir um sig að þeir eiga erfitt með að sinna persónulegum þrifum á fjósinu eftir klósettferðir. Ég veit sjálfur um þunga bandaríska kraftlyftingamenn, tröll að vexti og mikla um sig sem hafa átt við þetta vandamál að stríða.

Það er mismunandi hvernig þeir leysa þetta vandamál og sjá til þess að hreinlætiskröfum almennings sé fullnægt. Þeir sem eiga góða að fá hreinlega persónulega aðstoð við að passa uppá að allt sé skínandi fínt þar sem þeir ná ekki til að þrífa sjálfir.  Hinir sem ekki eiga jafn góða að nota yfirleitt græju sem kallast “bottom buddy” eins og sést á myndinni hér að neðan.

Svo er auðvitað til þriðji flokkurinn, en það eru þeir sem hreinlega láta sig litlu varða hreinlæti og bjóða upp á lykt og tilheyrandi sem fylgir lélegum þrifum.

En vonandi taka þeir sig á og fjárfesta í svona “bottom buddy”.

Hér má finna græjuna

Share on Facebook

Comments No Comments »