Archive for the “Fréttir” Category


Freddi fighter og túttutöfrarnir…

Fyrrum pávermeistari Alfreð Björnsson Brasilíufari með meiru er nú staddur á klakanum en hann er enn með í undirbúningi ýmis fasteignaviðskipti suður með sól í Brasilíu með tíð og tíma…Kappinn hefur mætt svoldið undanfarið í SteveGym og aðallega þá tekið á guðsgreininni…Í síðustu viku tók Freddi 140 örugglega á kjötinu rétt rúmlega 90kg að skjóðuþyngd. Í dag tók hann fín sett með 130 3×3 og hafði lítið fyrir því. Tvisterinn minntist á það við Fighterinn að hann væri ekki eilífðarunglingur og þyrfti að fara að huga að því að taka tvistinn á bekknum…Freddi á best í gamla daga í fornaldarsloppi síðustu aldar 192,5kg og nokkuð ljóst að ef hann nær að gíra hugann rétt upp tæki hann fljótlega 200 í sloppa-framhaldslífi nútímans..Hvað kappinn gerir kemur  í ljós á næstu mánuðum…

Share on Facebook

Comments 1 Comment »

Fógetamótið  (kjötmót) í bekkpressu fer fram laugardaginn 2 okt. vigtun daginn áður. Keppnisgjald 4.000kr. nánari staðsetning auglýst síðar.

Mótið er minningarmót um kraftlyftingafrömuðinn Ólaf Sigurgeirsson sem gerði ótrúlega margt fyrir íþróttina og kom kraftlyftingum á kortið úti í hinum stóra heimi.

Skráning sendist á netfangið: sirmagister@visir.is eða til Kára Catzilla á Facebook

Share on Facebook

Comments 6 Comments »

Formaður WPC Magnús Ver Magnússon hefur tilkynnt að af óviðráðanlegum ástæðum hefur Íslandsmóti WPC sem átti að vera 11 sept verið frestað þar til síðar, en náðari dagsetning verður þá auglýst. Það standa yfir miklar breytingar og endurbætur á Jakabóli þar sem keppnin átti að fara fram en til stendur að opna nýjan sal þar sem glæsileg pávermót verða haldin í framtíðinni.

Share on Facebook

Comments No Comments »

Gunnar Freyr Rúnarsson nálgast með hverju árinu að líkjast þessum fyrirmyndaröldung sem hér sést hress með stafinn….

Eftir að hafa átt við meiðsli á hné að stríða í nokkra mánuði er Masterinn farinn að dedda aftur en beygjur eru ekki á dagskrá enn sem komið er..Kappinn mun keppa í bekk og deddi á HM  í Bath í tíunni í öldungaflokki 45-49 ára en eftir nokkra daga (8 sept) nær hann þeim merka áfanga að verða 45 ára gamall. Gömlu jaxlarnir sem mæta Masternum úti munu ekki eiga 7 dagana sæla..Í gær á aðeins annarri alvöru deddæfingu sinni  síðan í vor tók Gunni 230×3 sem var kannski aðeins hægt af stað en vel létt íefri hlutanum…Við tölum um 300kg hjá honum í  Bath þegar kappinn fer að dedda 265-270×3 eða svo!…

Share on Facebook

Comments 3 Comments »

Bjarki Þór Sigurðsson deddar í raunveruleikanum….(BEFORE MYND)

Það er kominn góður deddandi í SteveGym á föstudögum…Bjarki geysir lét ekki sitt eftir liggja í gær þegar hann deddaði með öruggu gripi: 290×3!…á undan því hafði hann hitað upp með frontgripi upp í 200kg. Á eftir 290 deddaði hann með keðjum af palli nokkur sett upp í 210×3 eins og ekkert. Stefnan hjá Geysi er  sú að bæta 321kg heimsmet sitt í sérskráðri lyftu í tíunni í Bath í nóvember og hefur kappinn þar augastað á 330kg eða svo…HRIKALEGUR!

Deddpallurinn og umhverfi hans eftir nýlegar breytingar (AFTER MYND) -Fleiri myndir eftir útlitsbreytingar birtast á næstunni (ljósm Tvister)

Share on Facebook

Comments 5 Comments »

Kári Catzilla mynd tekin rétt fyrir keðjudeddæfingu..á veggnum má sjá myndir af Guðna heimsmeistara og Gvendi Sig (Silver) á Olympíuleikum 1972 og myndasería af Jóni Páli fyrir neðan (Mynd tekin af Fjölla í Vesturgötuvillunni)

Sérlegur doktor hefur nú staðfest að kötturinn ber 12,5% fitu..sæmilega skafinn..var 10% fyrir EM fyrr í sumar. Catzilla tók glettilegt keðjudedd í dag af palli: 179×3 180×3 190×3 200×3 210×3..allt skítlétt með ógnarhraða…beltislaust…deddköttur óstöðvandi…stefnan er að repsa 250 af palli tímanlega fyrir HM….

Share on Facebook

Comments 5 Comments »

Úti í heimi er allt vitlaust út af fellibylnum Jarlinum  (Earl) sem heitir svo í höfuðið á Skemmukarlunum (oftast stytt í Jarlinn) sem hefur valdið usla í Danmörku og er á leið heim.. Það hefur alltaf verið þannig í sögunni að þeir sem bera Jarls-titil eru miklar persónur sem mikið kveður að…Mikið er fjallað um Jarlinn í erlendum fjölmiðlum en þúsundir íbúa í Norður-Karólínu hafa flúið Jarlinn en þar sem hann hefur farið um hefur hann farið upp í vindstyrk á 60 m/s sem jafnast á við 1200kg total eða meira..Sjá t.d. frétt í New York Times: HÉRNA

Share on Facebook

Comments No Comments »

Þarna á myndinni er einmitt einhver aðili sem hefur tekist að pranga inn á Foringjann tveimur hlaupabrettum…Þótt annað brettið sé ekki bara eldgamalt og örugglega með þeim fyrstu sem voru fundin upp þá er það líka bilað og búið að standa þannig í stöðunni í nokkra mánuði…Þegar á það er minnst við Steve segir hann bara: “Það kemst í lag síðar, þetta er bara fínt svona!”

Svo spyr maður í einfeldni sinni: “Er ekki nóg að það sé eitt  hlaupabretti í stöðinni heldurðu að almenningur sé í biðröð að komast hér að?”..Þá setur Steve upp sérstakan ábyrgðarsvip á rekstrarsviði og segir: “Maður verður að geta rekið pleisið, peningar verða að koma inn og ekki borga pávermenn!”…Þetta er svo sem rétt hjá Foringjanun að það eru nokkrir í stöðinni sem tíma að borga miklu dýrara mánaðargjald hjá World Class en ætlast svo til að fá ókeypis í SteveGym að því þeir mæta svo sjaldan!..Ég sé fyrir mér í anda einhvern reyna að komast upp með þetta í WorldClass að borga ekkert æfingagjald af því þeir æfa svo lítið hjá þeim og eru að æfa annarssstaðar líka!

Það er líka komið svona göngutæki í raunveruleikann en svona flott dama er samt ekki raunveruleiki þar ennþá!

Share on Facebook

Comments 10 Comments »