Archive for the “Fræknar ferðasögur” Category


Fjórir hrikalegir úr liðinu við komuna til Vegas…Kári magister, Palli patró, Fjölli tvister og Flosi spyder. (ljósm. Villi ketill)

Keppnislið Íslands og aðstoðarmannalið lagði af stað í nokkrum hollum á mismunandi tímum og með mismunandi ferðatilhögun. Sumir fóru laugardaginn 7  nóv en máttarstólparnir,  Vilhjálmur, Kári, Fjölli, Flosi, Palli, Þröstur og fótboltafélagar hans tveir lögðu af stað frá Keflavík með Icelandair til Boston mánudaginn 9 nóv kl.17.00 Flugið tók 5 tíma og var 15 stiga hiti í Boston þegar við lentum þar. Strax við komuna virtist Fjölli lenda í vanda við tollverði þegar einn þeirra tók hann heldur betur á eintal og virtist ætla að grandskoða kappann…Þegar Tvisterinn losnaði úr klípunni sagði hann þetta um atvikið: ” Við vorum bara að tala um páver!”  “Hann  var með hrikalega framara eins og Hrikinn og kreisti á mér lúkuna. Hann sagðist eiga  240kg á bekk á kjötinu en þegar ég spurði hann út í beygjuna varð hann vandræðalegur og sagðist eiga 190kg og kvaddi mig svo fljótlega eftir það með virktum” Tvisterinn var svona aðalstjarnan til að byrja með því þegar við vorum að sækja töskurnar. Fjölli tók nokkrar myndir en fyrr en varði þusti að honum ábúðarmikill starfsmaður flugvallarins og skrækti: “No photos here, no photos! - Do you like jail?”…Fyrsta áminningin komin!

Ritstjórinn á flugvellinum í Boston með hunda-aðvörunartöskuna sem hann gaf síðar þernu í Las Vegas…

Þegar Þröstur og félagar hans Ásgeir og Brynjar sem eru mjóir fótboltamenn úr KR sem fengu fljótt viðurnefnin “Spóarnir” eða “Spörfuglarnir” voru búnir að fá sinn farangur var haldið á Sheraton hótelið sem var allgott 4 stjörnu hótel á góðu verði. Klukkan 7 næsta morgun var lagt af stað til Denver með United Arlaines. Kötturinn var flottur og fékk sæti á milli tveggja kvenna sem voru ágætar einkunnargjafir. Önnur þeirra var að fara á vit giftingarörlaga á Hawai en hin var bísnessdama á femínska vísu sem eigandi best sellers bókaútgáfu fyrirtækis í USA…

Magister á milli tveggja einkunnargjafa…

Villi kanslarabróðir og ketill byrjaði kvennafans sinn í vélinni frá Boston…

Kl.9 eða svo lentum við í Denver og tókum áframflug til Vegas kl.11.30. Rétt þegar við vorum að ganga um borð var kallað hástöfum á hátalarakerfi flugvallarins: “Mr. Kári Elíson plese come right and contact the flighting board!”..Manni dauðbrá og undrunarsvipur kom á hina klakverjana. Þegar ég kom að borðinu brosti starfskona þar út að eyrum og fékk mér nýjan flugmiða og sagði: “Here is better seat for you!”..Hvernig þetta kom til er ekki vitað en mörgum varð þarna ljóst að kisi er víða virtur út um allan heim..Og þetta gat bara táknað heimsmeistaratitil..hvað annað?…Menn voru svoldið stífir og þreyttir þegar þeir settust upp í vélina til Vegas og var stífleikakötturinn þar fremstur í flokki…Þegar ég var sestur við hliðina á einhverjum öldruðum hjónum og var að paufast úr jakkanum,vissi ég ekki til fyrr en gamli kallinn fór að hjálpa mér úr annarri erminni!..Hlutverkunum snúið við frá Grundinni! Nokkrum tímum seinna lentum við heilu og höldnu í Vegas og ævintýrið hafið fyrir alvöru…

Á flugvellinum í Vegas hangir uppi risastórt skilti sem stendur á hin kunna setning:  What happens in Vegas - stays in Vegas!…Þetta á kannski að vera fyrirfram syndaaflausn fyrir ferðamennina sem sækja heim þessa Sódómu nútímans þar sem allt stendur til boða….

Þröstur Ólason í miðjunni ásamt spörfuglunum sínum sem taka samanlagt 100 á bekk og eru stálhressir gaurar…

Kári köttur landaði fyrsta heimsmeistaratitli ferðarinnar enda var aðstoðarmannaherinn góður….

Kári tók gull í 75kg flokki öldunga 55-59 ára með tölurnar: 150-120-200-470kg..(bekkurinn með 120 er heimsmet)

Teygjutvisterinn var harður í gæðafæðinu í Vegas til að halda massanum við inn á milli ljúf-langra svefnstundanna sem voru vel notaðar til að melta herlegheitin…

Fjölli tvister bætti sig í öllu á mótinu. Hann stefndi að því að ná herbergisnúmerinu í totali (670) en varð að láta sér nægja hinn ágæta múr 650kg sem skiptist þannig: 237,5-187,5-225.

Beygjan með 237,5 var fín en 250kg lyftan var greinilega of grunn þótt kappinn væri sjálfur að fíla hana og horfði á hana á myndbandi ótal sinnum langt fram á nótt.. Menn voru á því að Tvister hefði átt hægustu bekkpressu keppninnar þegar hann seiglaði löturhægt upp 187,5kg í sinni síðustu tilraun. Deddinu hans segir maður bara frá undir fjögur augu en samt náði hann  að vinna Magister þar í fyrsta skipti!

Grúppían Vilhjálmur Stefánsson ketill græjar stálbrókina á Jón Gunnarsson bónda

Jón bóndi hlaut gull í 100kg flokki öldunga 50-54 ára með tölurnar; 320-200-300-820kg. Þetta voru allt heimsmet og geri menn betur!..Hann átti inni í deddinu en tók 300 með stæl!

Villi ketill var ekki aðeins aðal aðstoðarmaðurinn heldur var hann einnig aðal sjarmörinn eins og sést vel hérna myndinni með írsku drottningunni Angie…

Á góðri stundu: Helga eiginkona Valda kerfismola  er við hliðina á honum og svo brúðarhjónin Ringo og Addý

Valdimar Valdimarsson deddar  302,5kg í 100kg  opnum flokki. Valdi tók: 315-205-302,5-822,5kg og varð í 4 sæti í mjög sterkum flokki. Bekkurinn, deddið og totalið eru allt ný Íslandsmet!

Teygjutvisterinn og Patrópáver voru alltaf manna hressastir

Stofnun Heimsmeistaraklúbbsins var viðburður sem við segjum betur frá síðar!..

Patró hress með bombunni Elísabeth Freel sem tók 150kg á bekk í 82,5kg flokki kvenna…Kvennakeppnin á HM var rosaleg þar sem margar kellingar tóku 200+ í deddi og þar af ein 220kg…

Palli patró keppt í 100kg  opnum flokki og bætti sig í öllu: 200-140-235-575kg Palli var grjótharður þegar hann var næstum fallinn úr keppni og kláraði tvistinn í beygjum í 3 tilraun og klappaði salurinn vel fyrir kappanum sem var  vinsælastur íslendinga á mótsstað sem annarsstaðar…

Gunnar Freyr master fékk gull í pávernum í 110kg flokki öldunga 40-44ára. Hann tók: 242,5-190-287,5kg-720kg sem voru allt meira og minna persónuleg met. Strákurinnn hans Siggi skrönglaðist upp á pallinn með pabba og verðlaunadaman þurfti að aðstoða Masterinn við að klæðast íslenska fánanum..skemmtilega klaufsk uppákoma sem allir höfðu gaman af….

Masterinn keppti í öllu og hlaut bronsið í bekkpressukeppninni í 110kg flokki öldunga 40-44 ára með bætingunni 200kg sem var langþráður múr! Sigurvegari var rússi sem setti heimsmet með 260kg! Masterinn tók einnig dómarapróf og á nú Metal þrjá alþjóðadómara í páver svo nú verður hægt að dæma heimsmet hér heima!…Til haminju Gunni!

Gunni master deddaði 270 í sérkeppninni í deddi og varð heimsmeistari!..Hann hlaut flest verðlaun íslendinga á mótinu ásamt Skyranum

Páll Logason vann besta afrek unglinga í Vegas!

Palli fermeter  sést hér  beygja flott 400kg

Hann varð heimsmeistari unglinga í 140kg flokki með: 400-280-355-1035kg. Allt ný heimsmet! Glæsilegt!..Palli hefði vafalaust deddað 370 sem hann rétt missti hefði hann farið fyrr í stálbrókina en 355 lyftan tók of mikið úr honum á kjetinu…

Ingvar Ingvarsson ringo var sérkapituli á mótinu..þessi 46 ára öldungur heillaði áhorfendur með ótrúlegri getu þegar hann bætti sig um 15kg á bekknum  og 40kg hjartabætingu frá uppskurði 2004 og hlaut hann gullið í 125kg flokki öldunga í bekkpressukeppninni með nýju heimsmeti 300kg!

Ingvar tók seríuna 270-285-300 nokkuð létt og öruggt en varð næstum hauslaus heimsmeistari með 310kg í aukatilraun..kallinn var svo móður eftir 300 að hann var engan veginn tilbúinn í 310 því pásan var lítil..Hann missti 310kg fljótlega yfir sig og gat lítið haldið á móti þyngdinni og gripu stangarmenn stöngina 2-3 cm frá hálsi kappans!

Ingvar ringo með gullið eftir að hafa stútað 300kg múrnum á bekk


Fúsi skyrhöfðingi og Palli fermeter þóttu glæsilegir á velli á meðal yfirmola svæðisins

Valdi kerfis og Skyrfrúin ræða bekkheimsmet við Fúsdalinn….

Sigfús Fossdal var í feiknaformi og byrjaði í páverkeppninni á því að setja beygjuheimsmet með 435kg sem stóð í 2 mínútur þar til Lance Karabel USA bætti það í 455kg!..hörð keppni það!…Skyri tók 435-345-310-1090kg og hlaut silfrið í súpernum. Heldur betur vonbrigði eftir að hafa einnig sett heimsmet á bekknum með 345kg most ever á klakanum!.. Kappinn gerði afdrifarík mistök í deddinu þegar hann hækkað úr þungri 310kg lyftu í 330 en 320 hefði bæði gefið honum 1100 í totali (Hvaða hugsandi maður getur hafnað því?) og forystu í keppninni…Kvein um meiðsl var bara kjaftæði því ef þau hefðu verið eitthvað hefði hann því frekar aldrei átt að fara í 330  Þetta var óvæntur aumingjaskapur í Skyranum þótt hann hafi kannski fundið smá til!

Fúsi undirbýr 342,5kg heimsmet á bekk í bekkpressukeppninni..Flosi spyder veldressaður alþjóðadómari með toppeinkunn fylgist grannt með..Svo fór að lyftan var dæmd gild 2-1 og Spyderinn gaf rautt…enginn yfirmola-afsláttur þar!


Teygjutvisterinn og Spyderinn í góðum gír…

Alþjóðadómarinn /v/s Heimsmeistarinn

Flosi Jónsson stóð sig glettilega í 90kg flokki öldunga 55-59 ára og hlaut gullið!

Flosi tók fyrst 157,5 og síðan þunga en örugga lyftu með 162,5kg…Sigurinn var í höfn og tilraun við heimsmet í 3 tilr. 165,5kg..það fór ekki en það munaði frekar litlu. Flosi tók dómarapróf og dæmdi í marga daga sem kom eflaust eitthvað niðri á árangri hans. Næst verður það mössun upp í 100 eftir prógrami frá Ringo og trappinn og trysepinn tekinn og tvistinum stútað á næsta ári!


Þröstur Ólason keppti í 90kg flokki unglinga í réttstöðunni en var dæmdur úr leik þótt hann lyfti öllum lyftum!

Þröstur byrjaði á 255 sem er 15 kg frá hans besta hér heima..Hann hafði sökum reynsluleysis ekki tekið nóg með í reikninginn erfitt ferðalag og langt hangs á keppnisstað. 255 fór upp þungt í öll skiptin en stöngin hjakkaði aðeins á lærunum sökum þess tæknifeils að hann rétti of snemma úr fótunum og þyngdin lagðist öll á bakið. Síðasta lyftan var mjög nærri og varð ógild 1-2..Með yfirmola-afslætti hefði hún leikandi farið í gegn,en svona er þetta!.. Þar fauk öruggt silfur út um gluggann en það verður örugglega tekinn góðmálmur næst!

Sigfús skyrhöfðingi með verðlaunin fyrir sigur í opnum flokki á bekk í súper og besta afrek mótsins á stigum í bekk!..Hrikalegt!

Valdi kerfismoli tekur  fyrir hönd Íslands við silfurverðlaunum í stigakeppni þjóðanna í páver á eftir USA sem urðu fyrstir en Írland varð þriðja.

Sveit Íslands  skipuðu þeir: Sigfús Fossdal, Páll Logason, Fjölnir Guðmannsson, Jón Gunnarsson, Valdimar Valdimarsson og Gunnar Freyr Rúnarsson.

Riviera hótelið  þar sem keppnin fór fram er svo stórt að það jafnast næstum á við allan miðbæ Reykjavíkur sem samanstendur af Lækjargötu, Austurstræti, Hafnarstræti. Aðalstræti og Pósthússtræti…Herbergin á hótelinu eru 2100 talsins fyrir 5500 gesti! - Gangarnir eru endaluaust langir og það tók köttinn  5 daga að rata um hótelið.  Á fyrstu hæðinni eru fyrir utan spilavítið fjölmargir smáir og stórir ráðstefnusalir auk risastórra sýningar og hljómleikasala..Á 12 hæð er æfingastöð þar sem Villi ketill mætti á hverjum morgni klukkan 9 og tók 150 á bekk án þess að svitna…

Hluti spilavítisins á Riviera

Það væsti ekki um keppendur á Riviera..Myndin er tekin eftir að búið var að taka til í herbergi Tvistersins og Magisters….

Mótshald allt var hið glæsilegasta í stórum sal Riviera hótelsins. Tveir risaskjáir voru uppi sem miðluðu upplýsingum um gang keppninnar til áhorfenda og tvö risasjónvörp voru einnig til sitt hvorrar handar á áhorfendasalnum svo enginn missti af neinu. Steve Denison og kona hans eiga heiður skilinn fyrir sérlega flott mót. Næsta HM 2010 fer fream í Bath í Englandi og mótið 2011 verður í Florida…

Komið var svo heim miðvikudaginn 18 nóvember eftir millilendingar í Chicaco og Boston..sú ferð tók um 20 tíma takk fyrir. Þreyttur köttur skreiddist í rúmið um 10 leytið að morgni og svo farið beint í vinnu um kvöldið…


Share on Facebook

Comments 10 Comments »

Á öðrum degi kepptu fimm Íslendingar.  Jón Bóndi, Gunni Master, Palli Patró, Valdi Kerfis og Fjölnir Tvister

Bóndinn tók 320 í beygju í fyrstu lyftu, fór í 340kg í annarri, hafði hana ekki og sat undir henni á meðan stangarmenn voru allt of lengi að ná stönginni af honum, þannig að hann fann eitthvað smella í hnénu.  Bekkurinn gekk upp hjá honum þar sem hann fór með 180, 190 og 200 í gegn.  Hann byrjaði rólega í deddinu út af meiðslunum, tók 245, fór svo í 285 og endaði í 300 og hefði mögulega tekið meira ef beygjan hefði ekki farið svona illa.  820kg glæsilegt total, og gull, veruleiki í 100kg masters flokki 50 ára öldunga.

Gunni Master átti sinn besta dag nokkru sinni í beygju og tók 200-225-242.5kg.  Í bekknum fór hann með 180 og 190, en klikkaði á 200.  Svo tók hann 260 í deddinu til að tryggja sig, fór svo í bætingu, 287.5kg og klikkaði á 292.5kg.  Hans besta total nokkru sinni, 720kg, og gullmedalía í masters 40+ 110kg flokki.

Palli Patró féll á tíma í fyrstu beygju með 190kg, meldaði síðan 200kg og klikkaði á henni.  Í þriðju beygju tók hann á honum stóra sínum og keyrði 200kg upp.  Í bekknum fleygði hann upp 130 og 140kg, en missti 150kg út úr ferli í þriðju tilraun.  Í deddinu byrjaði hann á 200kg þar sem hann hafði verið tæpur í bakinu síðustu vikur.  Í næstu fór hann í 225kg, og tók síðan 235kg í bætingu.  Palli bætti sinn besta árangur um 20kg og tók 575kg samanlagt.

Valdi Kerfis opnaði á 295, tók svo 315 öruggt en klikkaði á 325kg.  Síðan var sloppurinn að stríða honum þar sem hann missti ítrekað spennuna og hafði byrjunarþyngdina, 205kg, í gegn í þriðju tilraun með harðfylgi.  Í deddinu opnaði hann öruggt á 270kg, fór svo í 295kg og svo í 302.5kg í vel útreiknuðum stökkum.  822.5kg totalbæting í höfn og 4.sæti á HM. (fyrir utan að taka 2.5kg meira total en lærimeistarinn)

Tvisterinn opnaði á öruggri 220kg beygju, fór svo í jafnörugga 237.5kg beygju.  Í þriðju lyfti hann svo 250kg öruggt en klippti á dýptina.  Í bekknum tók hann öruggt 170, 182.5 og svo 187.5 í hægri zetor bardagalyftu.  Í deddinu opnaði hann á 200kg verandi deddkrypplingur, fór svo í 225kg til að tryggja 650kg total en klikkaði svo á 230kg deddi.  Persónulegar bætingar í öllum greinum og totalbæting um 27.5kg.

Þriðja daginn kepptu Fermeterinn og Skyri

Fermeterinn fékk fyrstu beygju með 380kg ógilda, tók það síðan öruggt og lyfti svo 400kg öruggt, en var enn hálfveikur eftir flensu síðustu vikna.  Í bekknum tók hann 280 mjög öruggt í fyrstu lyftu en klikkaði svo tvisvar á 300kg.  Í deddinu opnaði hann á 330, tók svo 355kg en klikkaði svo á 370kg fyrir ofan hné.  1035kg total og kominn upp fyrir félaga sinn Bolluna.  Heimsmeistari unglinga í -140kg flokki.

Skyri fór hálfsmeykur í 400kg en tók það létt.  Lyfti síðan 420kg þrátt fyrir að ná ekki að stilla sér almennilega upp.  Fór svo í þriðju tilraun með mestu þyngd sem Íslendingur hefur tekið í hnébeygju, 435kg, og fékk hana í gegn.  Í þessari síðustu beygju small eitthvað í hamnum hjá honum þannig að hann varð smeykur um deddið.  Í bekknum tók hann 332.5kg öruggt í fyrstu tilraun, fór síðan upp með 345kg en klikkaði á 350kg.  Eftir að hafa rætt málið við Ed Coan ákvað skyri að vefja á sér hnén í deddinu.  Hann fór hægt upp með 310kg og mátti dedda 27.5kg minna en Lance Karabel og samt vinna.  Lance tók 345kg í annarri og Sigfús fór í 330kg til að tryggja sér sigur á stigum líka.  Það var því áfall þegar hann klikkaði tvisvar á henni og sat eftir með 1090kg á móti 1095kg hjá Lance.  Hins vegar glæsilegt total í höfn, og annað sætið í súpernum.

Svo eftir hvatningaróp við eina lyftuna stöðvaði Ed Coan Tvisterinn og sagði við hann að án efa væri íslenska flottasta mál í heimi til að hvetja pávermenn áfram, það hljómaði allt svo hrikalega þegar það væri öskrað á íslensku!

Ritað af Fjölni Tvister

Share on Facebook

Comments 17 Comments »

Þúsund bætingar á færibandinu þokast nær!

Eftir mikil ferðalög lentum við loks í Las Vegas um hádegisbil að staðartíma.  Kötturinn vigtaðist inn 73,2kg og gat þá slakað á um kvöldið þar sem hjartað angraði hann ekki eitt hætishót.

Bakið var eitthvað að angra hann í beygjunum, þannig að hann opnaði á 150kg sem hann fékk 3 hvít á.  Svo fór hann í 165kg en fékk það dæmt tvisvar af vegna dýptar.

Í bekknum byrjaði hann á 112,5kg heimsmeti öldunga, og hækkaði það strax í annarri tilraun í 120kg en fékk eitt rautt á það.  Síðan sleppti hann þriðju tilraun.

Í deddupphituninni var bakið alveg að drepa hann, þannig að hann lækkaði byrjunarvigt í 170kg.  Það fór hægt en örugglega upp, þannig að næsta vigt var melduð 190kg sem fór hraðar upp.  Svo gerði hann smá tæknileg mistök og meldaði bara 200kg í þriðju tilraun, sem fór enn hraðar upp en 190kg.  Síðan ætlaði hann að reyna við bætingu á heimsmeti 220,5kg en fékk ekki að melda það, þar sem það er bannað að hækka um meira en 20kg.  Kári hefði miklu frekar átt að fara í 210kg í þriðju, enda var vel inni fyrir því, þar sem hann lagaðist í bakinu eftir því sem hann deddaði meira.

Einn dómarinn hafði á orði við hann að hann hefði aldrei áður séð deddið verða hraðara og hraðara eftir því sem þyngdin jókst.

Flosi Spider tók svo alþjóðlegt dómarapróf og stóðst það með glans!

Share on Facebook

Comments 7 Comments »

Tveir Evrópumeistarar  í Amsterdam -Kári magister og Ingvar ringo…

Ritstjórinn er að skríða saman eftir Hollandsförina því eftir megrun í 75kg flokkinn þar sem tæknisköfunin mistókst eitthvað þjáðist Cat af ofþornun og hjartsláttartruflunum en hitinn í Amsterdam var alltaf á bilinu 25-32 stig auk þess sem loftræsting á keppnisstaðnum var léleg. Allir keppendur Metal komust á verðlaunapall og var Ingvar ringo einn helsti afreksmaður mótsins í bekkpressu þar sem hann náði mestu þyngd mótsins 260kg ásamt einum öðrum mola (reyndar hrikalegum léttmola  Bernard Delaney Írlandi sem tók þessi 260kg í 90kg opnum flokki)

Hluti áhorfenda á laugardeginum

Áður en maður fer nánar í árangur íslendinganna má segja það að það var mikið spurt út í hvar íslensku bollurnar væru eiginlega…af hverju yfirmolar Íslands væru ekki að keppa um Evrópumeistaratitla?…Það sást að þótt nokkuð sterkir rússar og búlgarar væru á mótinu þá náðu þeir ekki hinum háa íslenska bollustandard í þyngdum í beygjum og deddi,en þeir detta inn öflugri smám saman í náinni framtíð enda eru þessar þjóðir nýjir meðlimir WPF . Mesta beygja mótsins var 340kg og mesta deddið var 320kg. Mikla athygli vakti samt búlgarinn Alexander  í 100kg opnum flokki, Hann hlaut gullið með tölurnar: 340-250-300-890kg (mesta total mótsins) Þessi búlgari var þó tiltölulega grannur og hávaxinn í flokknum og var útlitslega aðeins með góðar bífur en var hrikalega sterkur og harður og fór raunar mjög létt upp með 360 í beygjum sem var dæmd af 1-2. Hann keppti síðan daginn eftir líka á sunnudeginum og bætti sig þá í bekk í 252,5kg!

Alexander Kyurchev Búlgaríu- glæsilegur sigurvegari í 100kg opnum flokki tekur hér 280kg dedd í fyrstu tilraun með gamla stílnum-hann tók: 340-250-300-890kg


Magister Cat ásamt stórum rússa sem tók 210kg á bekknum á kjötinu

Árangur Íslendinga á EM varð þessi:

PÁVER: 75kg fl. öld (55-59 ára) 1.sæti Kári Elíson 190-115-220-525kg

Cat tók 180 og 190 í tveimur fyrstu beygjum nokkuð létt gildar með öllum hvítum og 200kg fór einnig örugglega upp en var dæmd af 1-2. Vegna krampa í mjöðmum í upphitun á bekknum var aðeins tekin ein örugg lyfta með 115kg,þannig að ekki var hægt að segja að ritstjórinn væri að græða mikið á sloppnum (Metal king nr.56 Ingvar) þar sem fyrir mótið var tekið 130 á kjötinu…Eftir að hafa verið alveg að andast eftir bekkinn þá var byrjunarþyngdin í deddinu lækkuð um 35kg og fyrst tekið 200kg og síðan heimsmet með 220kg nokkuð létt og 240kg fór einnig örugglega en var samt dæmt af 1-2 þar sem útrétting þótti ekki 100% góð. 525kg totalið  eftir 5 tíma keppni var svo einnig heimsmet í þessum aldursflokki.


Palli patrópáver beygjir…

PÁVER: 100kg fl.opinn fl.  3.sæti Páll Sigurðarsson 190-135-230-555kg.

Patrópáver stóð sig glettilega og þótt monolyftið væri aðeins að trufla hann eins og Magister áður. Palli  tók 175 létt í fyrstu beygjunni og síðan örugga með 190kg á þremur hvítum en klikkaði á 200kg í síðustu lyftu.en þá stóð Patró heldur þröngt þar sem eitthvað klikkaði að taka út úr monolyftunni. Bekkurinn var hraður og góður og allar lyftur vel léttar í seríunni: 115-125-135kg og virtist allavega 5kg vera inni….200kg dedd flaug upp í fyrstu og 220kg einnig létt í 2 tilraun en var dæmt af þar sem tærnar lyftust frá gólfi á meðan á lyftu stóð!..Samt var ákveðið að taka 230kg og fór það upp í svækjunni gild 3-0..Pallinn sló Ingvar alveg út í svita og þurfti að skipta um marga boli á meðan keppni stóð en keppnin hjá honum stóð í 5 og hálfan tíma.

Patrópáver deddar 230kg af öryggi

Ingvar ásamt hjálparhellunni Birgi Þorsteinssyni sem kallaður er Litli-Fúsi og býr í Amsterdam

BEKKPRESSA: 110kg fl. öld.45-49ára 1.sæti Ingvar Ingvarsson 260kg. (Heimsmet!)

Ringo búinn að vera í hrikalegum anda og hélt honum í hæstu hæðum allan tíman fyrir mót, í mótinu og eftir mót….Alltaf sást kappinn í molabol þar sem massinn blasti við mönnum og allsstaðar starði liðið á hann eins og hann væri marsbúi með stökkbreytta handleggi…Það hefur eflaust farið hrollur um Tony Brown heimsmethafa þegar hann mætti þessu íslenska fyrirbrigði í upphituninni því þótt Tony sé þokkalegasti moli þá minnkaði hann allur við hliðina á Ringo..Keppnin á milli þeirra var stórskemmtileg þar sem Tony barðist eins og hetja gegn ofureflinu og varð að játa sig sigraðan að lokum..Ingvar tók 240kg í fyrstu himinlétt en Tony tók forystuna með 245kg.fremur þungt..Ingvar fór þá í nýtt heimsmet með 253kg og fleygði því upp…Tony var í fullum og gír og með mikilli seiglu og hörku í hægri lyftu tók 255kg sem hefði verið heimsmet en það var dæmt af vegna tæprar útréttingar nokkuð réttilega. Í þriðju umferð klikkaði svo Tony á 255 á meðan Ingvar æddi í heimsmet með 260kg og tók það auðveldlega vel hratt og glæsilega!..Í 4 tilraun fór Ingvar svo upp með 270kg en það var dæmt af vegna mispressunar í lokin sem var nokkuð greinileg og lítið við því að segja þannig…Evrópumeistaratitill Ingvars með glæsibrag..sigur á heimsmeistara og heimsmethafa…Gerist ekki betra! -

MYNDBAND INGVAR HEIMSMET 260kg: HÉRNA

MYNDBAND TILRAUN VIÐ 270kg: HÉRNA

Hemmi formaður Metal ásamt erlendri valkyrju Angie Mc namara frá Írlandi sem deddaði 177,5kg  í 67,5kg flokki

BEKKPRESSA: 100kg fl. öld. 45-49 ára 1.sæti Hermann Haraldsson 195kg.

Hemmi formaður stóðst alþjóðlegt dómarapróf með flottri einkunn upp á 9,7  í tvo daga í röð áður en hann keppti. Hann er því fyrsti alþjóðadómari ÍKF METAL og óskum við honum til hamingju með það!…Hemmi sem á best 202,5kg í 100 en 205 í tíunni stefndi á allra tíma bætingu í bekknum..Hann tók í fyrstu 195kg vel létt..Eftir óvænta aðvörun um að hann héldi of gleitt um stöngina ,breytti hann gripinu en fór svo upp með 207,5kg bætinguna en því miður varð hún dæmd af 1-2 því rassinn var víst tæpur..gremjulegt en svona er þetta!..í þriðju klikkaði hann á sömu þyngd því hitinn og léttingin var farin að taka sinn toll. Hemmi  krækti samt í nokkuð óvænt gull með því að vinna helsta andstæðing sinn en sá varð hálf magnþrota í svækjunni.

BEKKPRESSA: 110kg fl. öld. 40-44 ára 1.sæti Gunnar F Rúnarsson 170kg.

Masterinn mættur í slaginn á sitt fyrsta alþjóðamót…170kg í fyrstu flaug upp en eitthvað dúaði stöngin á kassanum eins og um tvöfalt start væri að ræða og var lyftan dæmd af…önnur tilraun með sömu þyngd var þá tekin og núna var hún pottþétt…Magister ráðlagði næstu tilraun í 190 þótt 185 væri alveg raunhæft en undir áhrifum frá aðal aðstoðarmanni íslendingahópsins Gunnari Ólafssyni skemmujarli þá fór Masterinn í bjartsýniskast og lét melda 200kg…!…það varð svo 4cm lyfta frá kassa og reynsla stimpluð inn…

Gunnar master tekur 275kg í réttstöðu

RÉTTSTÖÐULYFTA: 110kg.fl.öld.40-44 ára 1.sæti Gunnar F Rúnarsson 275kg.

Masterinn var með sterkustu deddurum allra öldunga á mótinu óháð þyngdarflokki þannig að sigur hans í tíunni hérna var vel verðskuldaður. Fyrsta tilraun með 250 var hröð og skítlétt og 275kg í annarri var vel örugg en samt ljóst að ekki var mikið inni…Hann var greinilega upp á þyngd við bætingu..(persónulegt met 282,5kg)…290kg var síðan síðasta tilraunin…startið var ágætt en heldur mikið “stiff leggað” og fór stöngin upp að hnjám eða svo…Tvöfaldur Evrópusigur hjá Masternum var í höfn og fari hann á HM í Vegas verða örugglega meiri þyngdir á sveimi hjá honum!

Tveir helstu aðstoðarmennirnir á EM: Litli Fúsi og Gunnar  skemmujarl,

jarlinn kom til mótsins frá Danmörku með Ingimundi Borgnesing en þessir kappar allir eru fyrrverandi pávermenn

Share on Facebook

Comments 5 Comments »

Sigfús Fossdal pávertröll í Metal tekur 405kg í beygjum hyldjúpt

Eins og kunnugt er þá keppti Skyrfús á stórmótinu American Cup í páver um síðustu helgi og fór þar með sigur af hólmi í súpernum og varð þriðji stigahæsti maður mótsins að auki. Vefnum hefur borist  ferðasaga frá kappanum og birtum hana hér á eftir með smá lagfæringum ásamt úrslitum í flokknum hjá honum ásamt linkum á myndbönd,heildarúrslit mótsins og umfjöllun annarsstaðar osfrv. Við þökkum Sigfúsi fyrir greinina og óskum honum til hamingju með árangurinn.

AMERICAN CUP -  140 +kg flokkur

1.   Sigfús Fossdal  405   -  320   -  347,5  - 1072,5kg
2.   Lance Karabel   442,5 -  287,5 -  332,5  - 1062,5 -
-  Thad Coleman      387,5   O      O - féll úr

FERÐASAGAN:

Ég fór flaug suður á fimmtudeginum, og náði Ingvar ringo í mig út á völl og
skutlaði mér á BSÍ þaðan sem ég svo fór til Keflavíkur. Þaðan var ferðinni
heitið til New York, stutt stopp þar, og svo flogið áfram með American
Airlines til Los Angeles. Þar var ég svo að skríða upp á herbergi um 2 um
nóttina eftir um 26 tíma ferðalag. Ég mætti strax í viktun á
föstudagsmorgninum, bara svona til að ljúka því af. Ég viktaðist 344,6 pund
eða 156,2 kg ef ég man rétt. Strax í viktun hitti ég á Leonettu og Darren,
Havaii búana sem voru að keppa á Hm í Vín, og kynnist þarna nokkrum lyfturum.
Svo fór restin af föstudeginum í aflsöppun og át, enda mikil ferðaþreyta í
gangi.
Laugardagurinn var tekinn snemma, vaknað 8 og fengið sér að borða vel á
hótelinu, og svo beint á mótsstað. Mótið var með 3 hollum og var ég í 3
holli. Ég Leo og Darren hjálpuðum hvort öðru í gegnum stálbrækur vafninga og
annað og gekk það samstarf bara alveg frábærlega. Upphitun gekk vel hjá mér,
og var 380 byrjunarþyngd í beygjum létt formsatriði. Því næst fór ég í 400
eins og planið var. Ég lenti í því að fá stöngina upp á bakið og lenda á
tánum og náði því ekki að lyfta þeirri þyngd, en var nokkuð öruggur um að
þyngdin sjálf væri ekkert mál, þannig að ég ákvað að fara í 405, sértaklega
vegna þess að ég sá að Lance sem ég var í mestri keppni við í mínum flokki
var að fara í gegn með lyftu sem var 427,5, þannig að ég ákvað að ná mér í
nokkur kíló í viðbót. Sú lyfta var svo bara mjög góð og örugg hjá mér, þannig
að ég var kominn 10 kg yfir þeim beygjum sem ég tók í 1060 totalinu sem ég
átti best fyrir mótið. Lance fékk svo gilda lyftu með 442,5 og hafði mjög
gott forskot á mig.

Ég var hins vegar að byrja með 305 á bekknum en hann með
275 þannig að ég var ennþá inni í keppninni. Báðir tókum við okkar lyftur
nokkuð létt og fór ég því næst í 315 en hann í 287,5 og tókum við þetta
báðir, en ég valdi svo örugga þyngd 320 en hann reyndi við að mig minnir 290.
Hann klikkaði á því en ég tók 320 öruggt. Þannig að þegar þar er komið við
sögu var hann með 5 kg meira en ég í milli totali, og aðeins léttari en ég
þannig að ég þurfti 7,5 kg meira en hann í deddinu. Ég hafði beðið um 320 í
deddi en hann 322,5, ég ákvað því að hækka deddið hjá mér í 325 í fyrstu
lyftu til að geta haft forskot á að sjá hvað hann meldaði. Báðir höfðum við
þessar þyngdir nokkuð öruggt, en hann fór því næst í 332,5 en ég fór beint í
345. Hann tók sína nokkuð vel en mín var með smá skjálfta og var dæmd ógild
þar sem ég þótti hafa hrist hana of mikið. Lance óskaði því næst eftir 347,5
og hófst þá smá um hugsun. Ég bað um sama og hann, og vissi að hann þyrfti að
taka hana á unda. Ef hann næði henni færi ég svo í 355 til að vinna hann. Það
var þó ekki þörf á því þar sem hann átti ekki séns á þyngdinni þegar á
reyndi. Þá þurfti ég bara að klára mína lyftu með 347,5 og þá væri ég búin að
vinna flokkinn. Ég fór mjög öruggur í lyftuna enda hafði mér þótt lyftan á
undan vera mistök hjá mér þar sem hún var ekki það þung að hafi þurft að
hrista hana til að klára. Ég kláraði þessa lyftu sem var góður toppur og
persónlueg bæting og 1072,5 total í höfn, sem var mesta total mótsins.

Mér var á mótinu í alla staði vel tekið og þakkað mikið af Steve fyrir að
koma alla þessa leið til að keppa hjá honum. Mér var umsvifalaust boðið aftur
á næsta ári, og þáði ég það með þökkum, ásamt óskum um að fá að hafa með mér
amsk 1 lyftara, en Valdi Bolla hefur þegar sagt já við því að fara með mér,
ásamt því að það getur verið að fleiri komi með.
Um kvöldið bauð Alan Aert bauð mér svo út að borða eftir mótið, ásamt
aðstoðarmönnum og nokkrum útvöldum lyfturum, en Alan og konan hans Bonnie (Tittý)en
margir muna eftir þeim frá HM í Vín, eru aðalstyrkar aðilar USPF í
Kaliforníu, og eru sjálf að keppa. Sunnudagurinn var svo notaður í að skoða
Expoið, þær sýningar sem þar voru og fylgjast með Push and Pull amature
mótinu í power sem fram fór á sunnudeginum. Jafn framt hitti ég Mike Bridges,
kraftlyftingamann þarna úti, og þótti mér það mikill heiður, þessi maður er
búin að verða heimsmeistari í kraftlyftingum að mig minnir 4 sinnum og er
mikið nafn í sportinu. (Er einn mesti afreksmaður allra tíma í léttari flokkum en á best m.a. Í 82,5: 380-240-340-960kg í kringum árin 1981-83, innskot ritstjóra)
Miðað við hversu vel var tekið á móti manni þarna, og hver góður hópur af
lyfturum þetta var, hve góðir áhorfendur voru, og hversu vel mótið var
haldið, þá hlakkar mig mikið til að keppa á HM í Las Vegas í haust. Margir
góðir lyftarar þarna ætla að keppa þar og verður mótið í ár ennþá sterkara en
í fyrra. Ferðinn heim gekk vel. Út í Leifsstöð tók á móti mér með blómum sjálf Jóhanna skotta formaður ÍKF METAL og var það óvænt ánægja. Ég er þegar mættur beint í vinnu, þótt illa
sofinn og uppgefinn í skrokknum sé eftir keppni og ferðalag.
Mig langar sérstaklega að þakka öllum sem hjálpuðu mér með þetta. Ég hef í
raun engin orð til að lýsa því hvað ég er þakklátur fyrir að menn hafi haft
áhuga á því sem ég er að gera, og haft vilja til að aðstoða mig í því að geta
framkvæmt þetta. Ég til mig ótrúlega heppinn að búa við svo jákvæða menn í
sportinu eins og raun ber vitni hérna heima. Ég mun aldrei gleyma þessu.

Hér eru nokkrar myndir frá mótinu:
http://cssphotodesign.com/gallery2/main.php?g2_itemId=1954254
Hér er video af lyftunum hjá Sigfúsi:
http://www.powerliftingwatch.com/node/10414
Og hér er umfjöllun um mótið:
http://www.powerliftingwatch.com/node/10385

Kv Sigfús.

_______________________________


Share on Facebook

Comments 7 Comments »

Metal leiðangurshópurinn

Við leiðangursmenn fórum síðan um 5 leytið í Bláa Lónið og á leiðinni þangað rökkvaði mjög mikið og var eiginlega orðið myrkur þegar við komum þangað. Þarna í nýföllnum snjó og undir stjörnubjörtum himni upplifðu finnarnir það að við værum að keyra einhversstaðar á tunglinu. Umhverfið var allt rosalega fallegt og dularfullur reykurinn frá Bláa Lóninu steig upp af jörðinni í beinni strýtu.

Þegar við komum í Lónið voru finnarnir fullir eftirvæntingar og þeir skynjuðu strax einhverja sérkennilega tilfinningu sem óbreyttur pávermaður á erfitt með að lýsa. Fljótt skildu leiðir með okkur og Jani og frú því gersamlega endurnýjuð ást greip þau þarna í óvenjulegu umhverfinu.

Þau héldu sig til hlés á meðan þau voru að gæla við hvort annað og tíminn einn mun leiða það í ljós hvort lítill fjölskyldumoli muni bætast við hjá þeim eftir 9 mánuði eða svo…

Ano og frú héldu hinsvegar hópinn með okkur hinum og fórum við með þau í sérstakt gufubað og annað á meðan Jani og frú voru á sínu flökti. Við héldum í eitt skipti að við værum búin að týna Ano en það var náttúrulega stutt skyggni því það var svo kalt að mökkurinn frá lóninu var mikill. Við vorum svona að fikra okkur áfram í þessu skýjafari þá sjáum við allt í einu þetta ægilega stóra skrímsli gnæfa í rökkurskýjunum….Þar var þá Ano sjálfur mættur og Jóhanna sagði strax: “Þarna er nú sjálfur hellisbúinn kominn!” Hann var eins og einhver fornaldarmaður sem hefði labbað út úr helli. Þetta var hrikaleg stærð á manninum. Finnarnir voru hrikalega ánægðir með þetta allt. Um kvöldið keyrðum við þau heim á Víkingahótelið og á leiðinni hringdi bílstjórinn á hótelið og lét græja máltíð handa þeim.

Fjörukráin - Víkingahótel -Glæsilegur staður!

Við kvöddum finnana svo um 9 leytið og daginn eftir um 10 leytið þá náðum við Skotta í þau og keyrðum þau út á flugvöll. Á leiðinni þangað var ekki talað um annað en ferðina daginn áður. Þegar við kvöddum þau svo á flugvellinum var það eins og við hefðum þekkt þau í 10-15 ár. Finnarnir voru mjög ánægðir með gestrisnina og þegar þau komu heim til Finnlands sendu þau Jóhönnu strax þakkarskeyti og voru mjög ánægð með allt skipulagið hjá henni og Verinu í sambandi við mótið og Hótelið og ferðina alla. Finnsku molarnir voru ákveðnir í að koma einhverntíma aftur og keppa hérna og þá er hægt að fara með þá aftur í Húsdýragarðinn og bera þá saman við nautið hrikalega sem þar er.

Share on Facebook

Comments No Comments »

Ingvar sögumaður

FERÐASAGA MEÐ FINNANA HRIKALEGU - Eftir Ingvar Ingvarsson (1.hluti.)

Í sambandi við bekkpressumótið mikla hjá ÍKF METAL 19. janúar var ákveðið að fara léttan túristahring með hina finnsku gesti Jani Murtomaki og Ano Turtiainen og konur þeirra og var förin að mestu skipulögð af Jóhönnu Silfurskottu formanns félagsins. Ingvar ringo var rútubílstjóri í ferðinni og hefur skráð eftirfarandi frásögn fyrir Kraftaheima:

Já,þetta byrjar þannig á sunnudagsmorgninum 20.janúar að ég vakna kl.9.30 og vek Skottuna og næ í hana rúmlega 10. Við erum komin á Víkingahótelið í Hafnarfirði kl.11.00 til að ná í finnana. Þaðan var haldið í Silfursport til að ná í fjölda manns sem ætlaði með í ferðina en þar biðu þá aðeins þrjár manneskjur. Það voru þau Sigfús Fossdal og skyrfrú hans Ingibjörg ásamt Jóhanni A Kristjánssyni ljósmyndara. Ég held að margir af þeim sem ætluðu í ferðina hafi verið of þunnir til að koma þegar allt kom til alls, m.a. eftir partý hjá Verinu. Nema þarna svona korter yfir 11 þá leggjum við af stað og ákváðum að starta ferðinni á pulsuáti hjá pylsuvagninum í Laugardal,vinnustað Sigfúsar. Hann hafði áður undirbúið afgreiðsludömuna undir það að fullvaxnir menn myndu vilja smakka á kjötinu hjá henni. Finnarnir voru mjög ánægðir með pulsurnar. Til að mynda Jani,honum fannst þetta svo gott og þegar ég var alltaf að reyna fá hann til að éta aðra pulsu þá var hann svona að reyna að afsaka sig. Neei,hann vildi ekki sýna neina græðgi….En ég fékk hann til að éta nokkrar aðrar um síðir sem hurfu með miklum hraða í hann.

Góður pylsuvagn skiptir líka máli…

Jæja,veðrið var það besta sem hægt var að hugsa sér. Það var alveg heiðskírt, 2 stiga frost í Reykjavík og lítill vindur. Stefnan var tekin á Gullfoss og Geysi. Færðin var góð en hálka á leiðinni. Þar sem rútubílstjórinn var reyndur nokkuð tafði það ekki för okkar. Það eru u.þ.b. 100 km. að Gullfossi og Geysi og á leiðinni langaði mig til að keyra út í nokkra skafla til að lofa finnunum að fá æfingu að ýta í íslenskum snjó en ég lét ekki eftir þeirri löngun minni.
Þegar við vorum komin á áfangastað voru náttúrulega þessar pulsur orðnar hálf litlar í maga á finnunum þannig að í söluskálanum þurftu allir að fá sér pulsu. Finnarnir voru komnir á bragðið með pulsurnar. Þarna horfði ég á finnsku konurnar raða í sig pulsum á fullu því þær voru líka mjög ánægðar með íslensku pulsurnar enda þurfa þær á miklum flengingarpáver að halda gagnvart eiginmönnum sínum sem eru skjóður í stærsta flokki. Nema það að ég henti í mig pulsu líka og Sigfús nokkrum…Eftir pulsuátið löbbuðum við upp að Strokki sem er nú virki hverinn þarna því Geysir sjálfur gýs bara þegar hann er settur í gang einu sinni ári með sápu eða próteini…Strokkur var í miklu fjöri og þetta var svo mikil upplifun fyrir finnana. Þeir voru hálfhræddir fyrst því við þurftum að labba upp stíg sem var snjótroðinn en beggja við hann var allt autt vegna hitans í jörðinni í kring. Strokkur skartaði sínu fegursta og gaus með 3-5 mínútna millibili virkilega flottum gosum,og Jóhann ljósmyndari tók myndir af okkur þar sem hverinn gaus fyrir aftan okkur. Við öll horfðum á hann,það var mjög erfitt að líta ekki við en við urðum að horfa á ljósmyndarann eiginlega skíthræddir. Þeir höfðu orð á því finnarnir að svona hefðu þeir aldrei séð áður en þeir höfðu aðeins heyrt um hitagjóstranu upp úr landinu. Þarna voru teknar margar eftirminnilegar myndir.

Metal hópurinn og Strokkur gýs í baksýn

Hrikalegur finni myndar hrikalegan hver

Síðan var haldið upp að Gullfossi. Þarna var frostið orðið 10 stig með hægum andvara og ekki skýhnoðri á himni og fossinn í fagurri klakabrynju. Þegar við stóðum upp á trönunum þarna og sáum fossinn var eins og regnboginn sjálfur væri ofan í Gullfossi. Finnarnir urðu strax í einhversskonar aflvana leiðslu. Síðan löbbuðum við niður af trönunum og upp að fossinum. Þar eru svona hálfgerðar syllur sem hægt er að standa á þannig að hægt er að nálgast Gullfoss mikið.

Metal páver og Gullfoss

Þegar við Jani stóðum þarna og ég spurði hann hvort hann fyndi ekki páverinn frá fossinum þá leit hann á mig sérstöku augnaráði og svaraði: “Ingvar, ef þú nærð í bekkpressubekk með 400kg af lóðum og stöng,þá tek ég það hérna á kjötinu!”
Honum líkaði svo vel við páverið sem hann fann fyrir þarna að hann fann fyrir vanmætti. Jani taldi að þessi orka þarna gæti nýst honum til góðs. Hann fílaði þetta mjög vel og ef það yrði haldið bekkmót þarna yrði hann fyrstur á staðinn…Svo var tekið fullt af myndum þarna og svo var aftur stoppað í söluskálanum á leið til baka og þar bætti bílstjórinn á sig pulsu í viðbót og finnarnir fóru í að versla í túristadeildinni. Þeir keyptu helling af íslenskum hlutum og Ano keypti sér rolluskinn og þeir mynduðu sig með uppstoppuðum ísbirni og fleira. Ano pantaði sér kló af ísbirni sem hann ætlar að nota um hálsinn sem verndargrip gegn öllum illum máttleysisöflum…Við stoppuðum svo í Hróa Hetti á Selfossi þar sem hópurinn skellti í sig fjórum pizzum af stærstu gerð og héldum svo til Reykjavíkur að skila af okkur Jóhanni ljósmyndara sem gat ekki komið með í Bláa Lónið….

(FRH .Í 2.hluta)

Share on Facebook

Comments No Comments »

Fjölnir Guðmannsson -Hrikalegur fyrir utan sokkana…

Þeir fulltrúar Kraftaheima,Kári magister og Fjölli teygjutvister lögðu af stað til Ólafsvíkur á Héðinsmótið í bekkpressu á hinum græna bíl Tvistersins klukkan níu í morgun. Rétt nýkomnir úr Hvalfjarðagöngunum voru þeir stoppaðir af löggunni fyrir of hraðan akstur en Tvisterinn hafði þá þanið tækið í 108km hraða þar sem 90km var leyfilegur hámarkshraði. Fjölli lenti í nokkurri yfirheyrslu þar sem von var á 20.þúsund króna sekt….

Hann smjaðraði lipurlega fyrir löggunum,játaði brot sitt auðmjúkur og sagðist hafa verið að flýta sér þar sem hann sem læknanemi sæi um súrefnisgjöfina til hrikalegra mola á bekkpressumótinu þar sem oft væri um líf og dauða að tefla…(Það er sannleikskorn í þessu því t.d. ef Ingvar ringo eða Hjalti úrsus myndatökumaður hefðu fengið slag þá hefði verið kallað á Tvisterinn)…Það er ekki að orðlengja það að sektin var felld niður og köppunum sagt að halda áfram hið snarasta…

Þegar eitthvað 2-3 kílómetrar voru eftir til Ólafsvíkur hrundi púströrið undan bílnum og góð ráð dýr að festa það upp aftur. Ekkert snæri eða annað svipað var í bílnum til að nota við að festa rörið upp aftur…. Ekkert nema spotti úr gömlum bikini haldara í eigu kærustu Tvisters.

Hringt var í dömuna og hún hafði enga kæru á hendur Fjölla svipaða og Hallgerður langbrók hafði forðum daga á Gunnar á hlíarenda vegna kinnhestsins væna svo Fjölli fékk leyfi til að nota bikinispottann. Magister sýndi síðan óvænta handlagni við aðstoðina við að binda púströrið upp með spottanum. Dugði þessi óvenjulega viðgerð til að bjarga ferðinni sem eftir var til bæjarins. Óskar trillufrömuður bróðir Balda bekks gerði svo meginviðgerð seinna áður en haldið var aftur í bæinn.

Magister dæmdi í mótinu en Fjölli keppti í 100kg flokknum. Kappinn var í miklum anda í hörkubardaga um bronsið við Sigurjón miðnæturdeddara úr Steve Gym. En Svavar Hlöllahlúnkur var í sérklassa og hirti gullið með 205kg lyftu. Einar Friðriks fékk silfur með 155kg. Fjölli krækti í bronsið fór með allar lyftur í gegn:120-130-142,5kg og setti persónulegt met með 7,5kg bætingu. Grjóni varð síðan fjórði en hann átti talsvert inni en hann fór með seríuna: 120-130-140. meira síðar.
HEILDARÚRSLIT ERU KOMIN Á KRAFT SÍÐUNA: HÉRNA

Share on Facebook

Comments No Comments »