Archive for the “Úrslit og met” Category

Keppendur á Guttormsmótinu í bekkpressu 2010 - ljósm. Sunna Hlín
Vel yfir 20 keppendur mættu til keppni á báðum mótunum sem fram fóru í Jakabóli æfingastöð Magga Vers í Þverholti en kappinn lánaði félaginu aðstöðuna endurgjaldslaust auk þess sem hann starfaði við mótin. Þakkar ÍKF Metal honum vel fyrir þetta. Áhorfendur troðfylltu stöðina og skapaðist góð stemning þegar hrikalega var tekið á því. Mörg íslandsmet voru sett bæði í bekk og deddi.
HEIMSMETAREGN...Þrjú heimsmet voru slegin í opnum flokki í réttstöðulyftu og einnig voru heimsmet slegin í stúlknaflokki,drengjaflokki og öldungaflokki..förum betur yfir það á eftir þegar við fjöllum um deddmótið.
GUTTORMSMÓTIÐ:
75kg.fl.
1. Birgir Nikulásson 73,7 - 140 ** 150- 150-
82,5kg.fl.
1. Gústaf Geirsson 79,9 - 140 147,5 150-
2. Jón B Viggósson 80,2 - 115 125- 125-
3. Þorvarður Hauksson 78,9 - 110 120- 120-
90kg.fl.
1. Einar Örn Guðnason 89,9 -180 187,5- 187,5-
2. Valdimar Stefánsson 89,3 - 105 115 120-
100kg,fl.
1. Þröstur Ólason 97,7 - 160 175 185
2. Hafliði Bjarnason 97,9 - 110 122,5- 122-
110kg.fl.
1. Brynjar K Guðmundsson 110,0 -190 210** 230-
2. Fjölnir Guðmannsson 108,6 - 200 210- 210-
3. Þorsteinn G Júlíusson 108,5 - 180 200- 200-
4. Halldór Bergmundsson 108,8 - 165 180 200-
125kg.fl.
1. Bjarki Elí Ólafsson 121,8 - 160 170 180
2. Sigurður Jóhannsson 114,1 - 150 160 170-
3. Sigurjón Ólafsson 122,0 - 140- 150 160
140kg.fl.
1. Ásbjörn Ólafsson 134,9 - 225 242,5- 242,5-
2. Eggert Hólm Pálsson 133,3 - 130 140 150-
140+kg.fl.
1. Benedikt Magnússon (Tarfur) 159,9- 200 220 sleppti 3 tilr.
2. Hafþór Júlíus Björnsson 180.2 - 190 200 210
** Íslandsmet karla - Hinn efnilegi Birgir Nikulásson, 140kg í 75 góð lyfta…fór tvisvar upp með 150 en þær lyftur voru dæmdar af vegna mispressunar. Sjáum meira til hans síðar…
** Íslandsmet karla, Brynjar Karl 210kg létt og lipurt..munaði litlu með 230.Binnsterinn er sterkur það vantar ekki… Sumir eru að spyrja sig af hverju 260kg lyftan hans Ingvars ringo sé ekki skráð met en það er vegna þess að það var tekið á öldungamóti. þAÐ er Íslandsmet öldunga. Reglurnar eru þannig að ef þú keppir á unglinga eða öldungamóti geturðu ekki sett met í opnum flokki. En ef þú keppir í opnum flokki getur þú sett met í þínum aldursflokki..
Um aðra helstu keppendur er það að segja að Gústaf sigurvegarinn í 82,5 er ný-léttmoli sem lyftir vel á bekknum og Jón Bachmann lampinn úr SteveGym var að keppa á sínu fyrsta móti og kemur til með að taka 130-140 á næsta móti. Einar loftpressa í 90kg flokknum er að komast í gang eftir sumarskemmtanirnar og lofar meiri þyngdum á HM í Bath..Þröstur í 100 fór með allar lyftur glæsilega í gegn og er með hæstu einkunn í sloppa og búkkaskóla Teygjutvisters…Þröstur kemur til með að fást við 190-200kg á HM nokkuð klárt mál…Búkka-skólastjórinn DR. Tvister tók tvistinn öruggt og fór einnig upp með Íslandsmetið 210kg en fékk það ógilt vegna musa-upplyftingar skilst mér…Þorsteinn var nálægt 200kg en þyngdarval hans var fremur misráðið í báðum mótunum og reynslan sýnir það að 15-20kg stökk á bekknum (deddið er aðeins öðruvísi) eru ekki sniðug og ganga sjaldnast upp nema hjá yfirmolum..190 bæting í 2.tilr, hefði líklega gefið honum reynslu og anda til að taka 200 í þriðju..Ásbjörn tók 225 létt en stökk upp í 242,5 var á sama standard og hjá Þorsteini en Ísbjörninn vildi enga milliþyngd heldur bætingu strax sem nú verður að bíða þar til á næsta kjötmóti..Tarfurinn tók persónulega bætingu á kjötinu með 220 en kappinn er alveg hættur að nenn að láta troða sér í slopp..Hafþór tók bætingar í ölum lyftum og er ekkert meira um hann að segja nema orðið: HRIKALEGUR!

Keppendur á Íslandsmóti ÍKF Metal í réttstöðulyftu 2010
ÍSLANDSMÓTIÐ Í RÉTTSTÖÐULYFTU:

Jóhanna Czzowitz deddar stúlkna heimsmeti 115kg í 56kg flokki með gömlum stíl..
KONUR:
56.fl.
1. Jóhanna Czzowitz 54,9 - 105- 105* 115* 4.tilr.120*
75kg.fl.
1. Halla Rún Friðriksdóttir 72,9 - 150 162,5 170
* Heimsmet í stúlknaflokki 15-19 ára. Hin 17 ára Jóhanna þrííbætti metið sem var 102,5kg. Daman er búin að skipta sumostílnum út sem maður er alveg gáttaður á enda var þetta alltof mikill rembingur þegar fagurfræðina vantar..Þegar sumoinn dettur inn aftur bætir Jíhanna metið meira… Halla er nú kominn í hóp sterkustu kvenna Íslands og hún bætti Íslandsmetið í opnum flokki um 10kg en framtíðin hjá henni er að ná 200kg í deddinu sem hún getur vel enda stutt síðan hún byrjaði að páverast undir leiðsögn Big-Bens…

Halla helmössuð…
ÚRSLIT KARLAR:

Kári Catzilla tekur heimsmet í opnum flokki 256kg…(ljósm.Suna Hlín)
75kg.fl.
1. Kári Elíson 73,3 - 240,5*** 256- 256****
2. Birgir Nikulásson 73,7 - 170 180 190-
82,5kg.fl.
1. Þorvarður Hauksson 78,9 - 200 215 225
2. Gústaf Geirsson 79,0 - 170 200 210-
3. Haukur Pálsson 81,0 - 200 220- 220-
90kg.fl.
1. Einar Örn Guðnason 89,9 -220 235 256-
2. Valdimar Stefánsson 89,3 -170 190 205
3. Steinn H Sigurðarson 84,9- 180 200 210
100kg.fl.
1. Þröstur Ólason 87,7 - 270 291- 291-
2. Hafliði Bjarnason 97,9 - 205 225 235
110kg.fl.
1. Halldór Bergmundsson 108,8 - 250 275 285
2. Þorsteinn G Júlíusson 108,5 - 280** 302,5- 302,5-
3. Brynjar K Guðmundsson 110,0 - 260 280- sleppti meiddist
4. Fjölnir Guðmannsson 108,6 - 220 235 245-
125kg.fl.
1. Bjarki Elí Ólafsson 121,8 - 290 332,5 350,5-
2. Sigurður Jóhannsson 114,1 - 260 280 290-
3. Sigurjón Ólafsson 122,0 - 240 250 260-
140kg.fl.
1. Ásbjörn Ólafsson 134,9 - 330**** 350- 350-
2. Eggert Hólm Pálsson 133,3 - 240- 240 260
140+kg.fl.
1. Benedikt Magnússon (Tarfur) 159,9- 360**** 400**** 3 tilr.sleppti
2. Hafþór Júlíus Björnsson 180,2 - 330*** 350- 350***
Starfsmenn á ritaraborði voru þeir ísleifur Árnason, Magnús Ver og Þorvaldur Borgarnesbolla kynnir (alltaf hress) Dómarar voru þeir Hermann Haraldsson, Flosi Jónson, Gunnar Freyr Rúnarsson og Kári Elíson sem dæmdi hluta af bekkpressumótinu. Stangarmenn á palli ofl voru. Valdi kerfismoli, Baldvin bekkur og Jói Gísla.
Um keppnina er þetta að segja:
*** Heimsmet í öldungaflokki 55-59 ára Catzilla 240,5kg skítlétt sem von er…256 í annarri tilr fór örugglega upp en ofarlega kom spennuleysi í bakið og stöngin seig niður og fór síðan upp aftur..óheppni og lyftan réttilega dæmd af..
**** Heimsmet í opnum flokki Catzilla tekur 256 í 3 tilraun..Herti beltið ógeðslega…glettilega góð lyfta og keðjuæfingarnar skiluðu góðri klárun og togið einu sinni í viku ólalaust tryggði gripið. Einhver hafði orð á því að ritstjórinn væri hugsanlega elsti maður í páver frá upphafi til að setja heimsmet í opnum flokki?..Kannski..en Sir Cat er bara svo ungur í raun…spái ekki í svona aldursrugl..

Þorvarður Andri tekur sigurlyftu með 225kg
Þorvarður Hauksson er ný-léttmoli sem kom vel á óvart með fínu deddi og vann verðskuldaðan sigur en Evrópumeistarinn Haukur þvottur var þreyttur eftir mikið hljómsveitarstúss undanfarið þar sem hann hefur ekki getað gefið allt í æfingarnar en hann er léttur á þessu og eitt tap skiptir hann engu máli…Einar Örn reyndi einnig við 256kg sem hefði gefið honum heimsmet drengja en það tókst ekki og nú er það bara sumostíllinn framundan hjá kappanum! Einhver páverspekingur hefur reiknað það út að 70% keppenda á alþjóðlegum mótum noti þennan glæsilega stíl sem gefur mun meiri möguleika á þyngdum og bætingum auk fegurðargildis!
Ungu mennirnir Steinn og Valdimar stútuðu báðir 200kg múrnum og eru framtíðarmolar…Þröstur átti ekki góðan dag en hann hefur reyndar verið í þungu keðjuprógrammi undanfarið með 230 3×3 ofl.þannig að frískleikann vantaði í tilraunum hans við unglingaheimsmet 291kg en stefnan er skýr á 300kg í Bath..þarf ekki að ræða það frekar…

Dóri driver Bergmundsson kom sá og sigraði með flottum lyftum í tíunni…
Dóri fór af öryggi upp með allar lyftur.Kappinn úthvíldur eftir fríið á sólarströnd þar sem hann hefur æft grimmt undanfarið og stútar þristinum á næsta móti..Verður að líkindum hrikalegur deddari en Driverinn er einn af hirðmolum Versins og pælir í hlutunum og gerir þá…

302,5kg…Þorsteinn Júl var svona nálægt því að klára þessa heimsmetsþyngd..
** Heimsmet drengja 15-19 ára.Þorsteinn tók heimsmetið 280kg hreinlega skítlétt en stökk fyrir misgáning í 302,5kg þar sem hann hélt að heimsmetið væri 300 en það er það í pávernum ekki í sérskráðri lyftu (single lift)..Það þarf líka að hugsa um að sigra og 290-300 var alveg nóg til þess og þá ein tilraun eftir í meira..Kappinn klikkaði síðan mjög naumlega í tvígang á 302,5 en fyrir bragðið tapaði hann titlinum í hendur Driversins sem beinlínis hugsaði út sigurinn…Brynjar Karl fékk bronsið með 260 og hefði alveg tekið 280 eða meira ef hann hefði ekki meiðst illa í tilrauninni við 280 en vinstri bysepinn rifnaði eitthvað eða slitnaði og endaði Binnsterinn upp á sjúkrahúsi þar sem niðurstaða fæst í næstu viku hvers eðlis nákvæmlega meiðslin eru. Góðann bata kappi! -Fjölli tók 235 nokkuð örugglega sem er alveg við hans besta,eða já,bara bæting í keppni en 245 var aðeins of mikill biti þennan daginn en í Bath verður togað í 250kg múrinn…

Hrikinn með íslandsmet 332,5kg þeyttist upp…
Bjarki hriki hefur æft vel undanfarið undir stjórn Steve og tók íslandsmet í opnum flokki með 332,5 í 125kg flokknum frekar létt og krullaði það í lokin. Það kom svo á óvart miðað við þá lyftu að heimsmetið með 350,5kg haggaðist ekki frá gólfi…

Ásbjörn ólafsson í hatrömmum bardaga við 350kg heimsmet sem fór þetta hátt…
**** Heimsmet í opnum flokki ísbjörninn Ólafsson byrjaði á heimsmeti með 330kg og tók það örugglega en útréttingin mátti ekki vera tæpari…flott hjá kappanum sem þarf bara að fara keppa oftar en hann hefur létt sig um 20kg eða svo og deddið stórlagast við minnkunina á flæðimassanum..Fyrri tilraunin við 350 heimsmetið fór nokkuð vel af stað og þokaðist upp fyrir hné en var of þungt..Það verður kannski ekki langt þangað til þetta fer..Eggert Hólm er nýmoli sem verður búinn að taka þristinn áður en nokkurn varir…

400kg er aldrei nema fiður í lúkunum á Benna tarfi þegar hann er í formi…
**** Heimsmet í opnum flokki..Benni tarfur mættur á svæðið..360 ostakaka eða eitthvað…400kg heimsmets lyftan var með enn meiri sprengju og ekki nokkur leið að segja á þessu stigi hver toppur kappans væri því hann sleppti óvænt þriðju tilraun en manni fannst nú að hann hefði alveg úr þessu getað tekið leikfimi æfingu með 420 eða svo til að gleðja mannskapinn án þess að verða þreyttur… en svona er þetta…(það stjórnar enginn Tarfinum nema Gemma)
*** Heimsmet unglinga 20-23 ára Hafþór ljón stútaði metinu um 80kg eða svo í fyrstu tilraun með 330…180kg þung skjóða, einn þyngsti moli sem hefur vigtast inn í páverkeppni ,stormaði að næsta heimsmeti..Kappinn gleymdi síðan beltinu með 350kg sem fór næstrum upp…Í miklum anda fór hann í það aftur og stöðin skalf og nötraði þegar ljónið öskraði þyngdina upp og glæsilegur 350kg deddmúr í valnum.!!..Hvað getur stoppað þetta tröll?…
-
Share on Facebook
11 Comments »

Íslandsmetin hafa verið í endurskoðun hjá Valda kerfis og hefur hann nú gefið út fyrstu útgáfu sérskráðra meta í bekkpressu og réttstöðulyftu. Nokkrar viðbætur/leiðréttingar eru í gangi og þeir sem sjá villur eða met sem vantar endilega að láta vita. en Upplýsingar þurfa að innihalda
eftirfarandi:
Nafn, aldur, mót, dagsetningu móts, þyngd.
ÍSLANDSMET ÍKF METAL Í SÉRSKRÁÐRI LYFTU
Share on Facebook
13 Comments »

Hafþór Júlíus Björnsson á sigurbraut…
Keppninni um Austfjarðatröllið lauk í dag með öruggum sigri Haffa ljóns sem hafði forystu frá byrjun og lét hana aldrei af hendi aftur..Hafþór sem er verðandi stórstjarna í aflraunum á alþjóðavísu ef heldur sem horfir hefur nú unnið 4 af síðustu 5 kraftamótum hér heima og aðeins Stebbi stórskjóða sem getur ógnað honum að því er virðist. Samt sem áður fékk Haffi nokkuð mikla keppni í Austfjarðatröllinu af Georgi Ögmundssyni sem hefur átt magnað comeback í kraftamótum eftir nokkurt hlé. Goggi náði öðru sæti í keppninni og má búast við Krananum enn hrikalegri að ári… Hinn efnilegi nýmoli Ari Gunnarsson sem repsar 200kg á bekk á kjötinu varð þriðji og er að festa sig í sessi sem einn af þeim bestu.

Georg Ögmundsson
ÚRSLIT:
1. Hafþór Júlíus Björnsson
2. Georg Ögmundsson
3. Ari Gunnarsson
4. Úlfur Orri Pétursson
5. Jón Þór Ásgrímsson
6. Andri Björnsson
7. Sturla Ólafsson
8. Skúli Ármannsson
ÖLL NÁNARI ÚRSLIT Í EINSTÖKUM GREINUM OG STIG MÁ SJÁ Á VÖÐVAFÍKN: HÉRNA
Share on Facebook
1 Comment »

Hluti keppenda á pávermótinu..Vantar m.a. Bóndann, Fricker, Þór.Kerfismolann,Tobias Stath ofl. Þeir sem eru á myndinni:
Viktor Samúelsson (photos), Eyjólfur Sebastian Bremsch (photos), Einar Örn Guðnason (photos), Jon Þór Ásgrímsson (photos), Steinn Hermann Sigurðarson (photos), Bjarki Þór Pálsson (photos), Rúnar Geirmundsson (photos), Rögnvaldur Björnsson (photos), Birgir Thorsteinsson (photos), Jakob Snær Egilsson (photos), Eggert Samuelsson (photos)
Páverkeppnin á EM var mjög skemmtileg og góður árangur náðist í sumum flokkum þótt dauðaflokkur mótsins væri 100kg opni flokkurinn þar sem hinn gamalreyndi harðjaxl Jón Gunnarsson fór með sigur af hólmi og fór með allar lyftur í gegn á glæsilegan hát og rústaði heimsmetum öldunga í leiðinni ásamt keppinautum sínum en Bóndinn tók 852,5kg í samanlögðu og varð jafnframt bestur allra á stigum. Kerfismolinn varð þar annar með 805kg og átti ekki sinn besta dag en tók fínan bekk þótt hitt gengi ekki upp. Þrumu-Þór varð svo þriðji með 790kg og er alveg að fara að stúta 800kg múrnum.
HEILDARÚRSLIT Í PÁVER:
teen 64.50
Rúnar Geirmunds. ISL 67.5 -130.0 130.0 -142.5 70.0 -80.0 -80.0 160.0 170.0 182.5 382.5 306.2 1.
teen 82.40
Steinn Sigurðarson ISL 82.5 120.0 130.0 -140.0 75.0 80.0 85.0 170.0 -180.0 180.0 395.0 264.8 1.
teen 89.80
Einar Örn Guðnas. ISL 90 -230.0 230.0 245.0 -180.0 -180.0 180.0 425.0 210.0 230.0 240.0 665.0 425.0 1.
teen 97.40
Viktor Samúelsson ISL 100 -230.0 230.0 -250.0 165.0 175.0 185.0 250.0 -270.0 -270.0 665.0 409.1 1.
teen 110.30
Einar Hannesson ISL 125 -200.0 205.0 -225.0 160.0 170.0 -180.0 220.0 240.0 -250.0 615.0 361.6 1.
teen 104.20
Rögnvaldur Björnss ISL 110 -200.0 -205.0 205.0 -125.0 125.0 -135.0 185.0 200.0 -220.0 530.0 317.6 1.
jun 81.50
Bjarki Pálsson ISL 82.5 150.0 160.0 -175.0 110.0 -125.0 125.0 220.0 240.0 -245.0 525.0 354.3 1.
jun 77.00
Hilmar H Heimiss. ISL 82.5 165.0 -185.0 185.0 -125.0 -125.0 -125.0
jun 93.50
Tobias Staat GER 90 175.0 -192.5 -205.0 100.0 110.0 -115.0 180.0 200.0 -217.5 485.0 303.9 1.
jun 99.50
Þröstur Ólason ISL 100 270.0 300.0 -310.0 160.0 170.0 180.0 270.0 285.0 -292.5 765.0 466.5 1.
jun 109.30
Andri Örn Jakobss. ISL 110 240.0 -255.0 255.0 -170.0 170.0 -185.0 240.0 -262.5 -262.5 665.0 392.2 1.
jun 117.00
Eyjólfur Unnarsson ISL 125 -290.0 -290.0 300.0 190.0 -200.0 -200.0 290.0 -310.0 -320.0 780.0 451.2 1.
M40+ 94.60
Svavar Smárason ISL 100 200.0 220.0 240.0 -195.0 195.0 210.0 230.0 665.0 414.4 1.
M50+ 119.70
Jóhann Gíslason ISL 125 260.0 -280.0 -280.0 160.0 -170.0 200.0 620.0 356.7 1.
M40+ 129.40
Birgir Þorsteinsson ISL 140 240.0 -260.0 260.0 185.0 200.0 210.0 240.0 260.0 280.0 750.0 424.6 1.
M45+ 162.80
Richard Fricker UK 140+ 280.0 320.0 335.0 160.0 180.0 -190.0 240.0 270.0 285.0 800.0 437.4 1.
open 93.00 Jón Gunnarsson ISL 100 312.5 330.0 340.0 192.5 205.0 210.0 285.0 302.5 852.5 535.5 1.
open 99.30
Þór Sigurðsson ISL 100 270.0 285.0 -300.0 285.0 220.0 -235.0 235.0 260.0 270.0 -280.0 790.0 482.1 3.
open 94.20
Páll Sigurðarson ISL 100 190.0 200.0 210.0 120.0 132.5 -145.0 342.5 213.9
open 97.70
Valdimar Valdimars. ISL 100 300.0 -320.0 -320.0 205.0 212.5 215.0 280.0 290.0 -305.0 805.0 494.6 2.
open 117.10 Eggert
Samúelsson ISL 125 250.0 -260.0 -260.0 170.0 180.0 -190.0 240.0 260.0 -280.0 690.0 399.0 2.
open 121.40 Jakob Snær
Egilss. ISL 125 -300.0 300.0 -317.5 170.0 185.0 -200.0 280.0 -300.0 -300.0 765.0 438.7 1.
open 133.30
Jón Þór Ásgrímss. ISL 140 210.0 230.0 245.0 -175.0 180.0 200.0 280.0 305.0 315.0 760.0 428.0 1.
open 151.00 Jóhannes
Atlason ISL 140+ 270.0 290.0 -305.0 160.0 -172.5 172.5 230.0 250.0 -265.0 712.5 393.9 1.

þrumu-Þór Sigurðsson stóð sig vel á EM í erfiðum 100kg flokki..Hér tekur hann létt 270 í beygjum og fór svo einnig með 285kg. Þór náði stórglæsilegum árangri í bekkpressunni þegar hann tók nýtt Íslandsmet 235kg! Það er frá upphafi langmesta þyngdin í 100kg flokki yfir öll sambönd hér á landi. Þegar beygjan og deddið koma meira upp saumar hann verulega að súper-molunum Jóni bónda og Kerfis en ofur unglingurinn Þröstur verður þá búinn að molast upp í tíuna…það er Georg Ögmundsson krani sem stendur fyrir aftan Þór en Goggi stóð sig vel sem yfirstangarmaður mótsins og þáði engan pening fyrir! -(ljósm Patrópáver og næstu myndir)

Jóhannes Atlason er einn af uppgötvunum Fúzilla á Akureyri en þessi nýkappi tók fínar bætingar og m.a, 290kg í beygjum en miðað við umfang vaxtar og framfara er þarna eitt af beygjutröllum framtíðar að stíga fram á sjónarsviðið…

“Er ég nokkuð of fast vafinn?” spurði Palli patrópáver sjálfan sig en Birgir Þorsteinsson -Aðalfúsi hefur ekki áhyggjur af því og situr makindalegur að hætti yfirmola..

Palli Patró keppti í 100kg dauðaflokknum og fór með allar beygjur í gegn í góðum stíl og endaði á 10kg bætingu með 210kg. Eftir að hafa verið nálægt sínu besta á bekk gat Palli samt ekki deddað og neyddist til að hætta keppni vegna krampa sem hann fékk um gervalla skjóðuna. Næst þegar kappinn kemst í form hlýtur hann að taka 600kg múrinn og ná skjóðunni upp í 100kg massa í Spider-style..

Jói Gísla í 50+ getur alltaf tekið 260 í beygjum með lokuð augun eða eitthvað en þegar nálgast 300 þá fer allt í stórsteik þótt það eigi að liggja..Kallinn þarf að hugsa mót sem æfingu þá kemur þetta allt…nægt er aflið!

Birgir Þorsteinsson 40+ er núna kallaður Aðal-Fúsi sem verður betur sagt frá hvers vegna í sérstakri sögu eftir nokkra daga. Aðalfúsinn býr í Holandi sem stóreignamaður á bílasviði Aston Martin ofl. Kom gagngert hraðferð til landsins til að dusta 18-19 ára páverryð af sér og átti come-back nýaldar þegar hann sýndi fram á góðar tölur á EM og átti mikið inni og þá sérstaklega í beygjum og deddi. 280kg deddið var nú svo létt að það er varla hægt að skrifa um það!..Evrópumeistari núna og það er klárt að ef hann keppir á HM í Bath sjáum við þar líklegan heimsmeistara með tölur nálægt 850 í totali..veðja á það!

Patrópáver ásamt Jakobi Snæ Egilssyni sem stóð sig mjög vel á mótinu og beygði 300kg bætingu in good style…

Gömlu félagarnir Jón bóndi og Sleifurinn hlutu báðir stigabikara í opnum flokki…

Kári Catsilla og Jóhanna Jófó segja leynibrandara um kviðsaða yfirmola og þjóðverjafrúin Kirsten Scwade með sinn páverstigabikar fílar allt í botn…

Fúzilla afhenti öll stigaverðlaun í lokahófi mótsins..við hliðina á Ísleifi er bekkpressurússinn Maximush sem vann stigabikar öldunga

Bestu lyftarar EM 2010..á myndina vantar Þröst Ólason sem vann tvo stigabikara en segist hafa löglega skrópingu.. (myndir frá albúmi Palla patró á Facebbok) birtum fleiri myndir þegar og ef okkur berast þær eða ábendingar þar um en það vantarmyndir af mörgum úr páverkeppninni sérstaklega.
Share on Facebook
3 Comments »

Hluti keppenda í kynningu-
Gífurleg þátttaka íslendinga í þessu móti sýnir hversu frábært starf í kraftlyftingum er unnið hjá ÍKF Metal og verður ekki við jafnað hjá neinu öðru sambandi…En það eru reyndar einnig fullt af jákvæðum hlutum að gerast hjá WPC og RAW Ísland og þó nokkuð mörg mót eftir á árinu og allt í gangi. Hjá ÍKF Metal eru m.a. eftir Íslandsmót í deddi/Guttormsmót, Bikarmót og Fógetamótið en aðalmálið er Heimsmeistaramótið í Bath í Englandi í byrjun nóvember en menn þurfa að skrá sig á það mót fyrir 1.ágúst. Meira um það eftir nokkra daga.

Ísleifur Árnason að taka heimsmet 235kg í aukatilraun í 90kg flokki. Þetta var eina heimsmetið í opnum flokki á bekk í mótinu. Glæsilegt afrek! Og fyrir það vann Sleifurinn að sjálfsögðu stigabikarinn!

Peter Malfa sem einnig er alþjóðadómari og dæmdi heilmikið á mótinu ásamt því að keppa sjálfur og aðstoða hina þjóðverjana, athugar hér útbúnað Ísleifs eftir heimsmet á bekk. Reyndar tvíbætti Sleifurinn heimsmetið því hann tók 230,5kg í þriðu tilraun og svo 235 í fjórðu.

Jófó urrabíta athugar með draumaþyngdina á bekk fyrir keppnina og fær nokkur gullin ráð hjá formanni Metal Hemma Haralds en hann var mikið til yfirdómari Evrópumótsins

Ýmsir að spá og spekúlera í heljarþyngdinni á bekknum…

Þýska öldungs-daman Kirsten Scwade setti heimsmet 85kg í 55-59 ára í 90kg flokki. -Jafnaldrar henar á klakanum geta varla deddað þessari þyngd hvað þá meira nema einna helst sú níræða í Steve Gym…

Masterinn að taka 210kg ..10 kg bæting hjá kappanum og Evróputitill nr.2 .þetta er annars bara snilldarljósmynd af tveimur rassgötum að spóka sig um svæðið..
ÚRSLITIN
Evrópumót WPF í Bekkpressu 2010
Benchpress Best lifter
Women Kirsten Schwade
Teen Einar Örn Guðnason
Open Ísleifur Árnason
Masters Alexander
| Flokk |
Þyngd. |
Nafn |
GYM |
Flok. |
1. |
2. |
3. |
Samt |
Wilks |
Sæti |
| Open |
71,70 |
Jóhanna B Árnadóttir |
ISL |
75 |
50,0 |
-55,0 |
-55,0 |
50,0 |
48,9 |
1. |
| M55+ |
89,00 |
Kirsten Schwade |
GER |
90 |
75,0 |
80,0 |
85,0 |
85,0 |
73,8 |
1. |
| teen |
69,00 |
Pascal Pálsson |
ISL |
75 |
130,0 |
-135,0 |
-135,0 |
130,0 |
98,5 |
1. |
| open |
90,00 |
Ilias Bouziouris |
GRI |
90 |
170,0 |
177,5 |
-185,0 |
177,5 |
113,3 |
2. |
| teen |
90,60 |
Einar Örn Guðnas. |
ISL |
100 |
170,0 |
-185,0 |
-185,0 |
170,0 |
108,2 |
1. |
| open |
89,80 |
Ísleifur Árnason |
ISL |
90 |
-222,5 |
222,5 |
230,5 |
230,5 |
147,3 |
1. |
| M55+ |
89,70 |
Flosi Jónsson |
ISL |
90 |
157,5 |
165,5 |
-170,0 |
165,5 |
105,8 |
1. |
| teen |
103,10 |
Sigurður Krisján Grímlaugsson |
ISL |
110 |
125,0 |
137,5 |
-148,0 |
137,5 |
82,7 |
1. |
| Open |
108,20 |
Fjölnir Guðmannsson |
ISL |
110 |
185,0 |
200,0 |
-205,0 |
200,0 |
118,3 |
1. |
| M40+ |
108,80 |
Gunnar F Rúnarsson |
ISL |
110 |
192,5 |
210,0 |
-217,5 |
210,0 |
124,0 |
1. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
| M55+ |
111,60 |
Alexander Maximushkin |
RUS |
125 |
180,0 |
190,0 |
|
190,0 |
111,3 |
1. |
| Open |
79,10 |
Eyjólfur Kristinsson |
ISL |
82,5 |
130,0 |
-140,0 |
-140,0 |
130,0 |
89,4 |
1. |
| M45+ |
162,80 |
Richard Fricker |
UK |
140+ |
150,0 |
160,0 |
|
160,0 |
87,5 |
1. |

Fjölli teygjutvister að taka glæsilegan tvistinn!…Hann varð Evrópumeistari í opnum flokki 110kg og stefnir nú á 500 pundin með Masternum…(227,5kg)

Rússinn Alexander Maximuhkin tók 190kg í 125kg flokki (aðeins 111,6kg sjálfur) 55-59 ára og varð stigahæstur öldunga..Masterinn kom þar rétt á eftir að stigum en þrátt fyrir 210kg bekk varð ungur aldur honum að falli….

Einar Örn loftpressa var í miklum anda sem endranær og setti heimsmet drengja með 170kg í 100kg flokki 15-19 ára,,,stutt í 190-200 hjá honum á virkilega góðum degi..Einar tók þó meira daginn áður í bekk á pávermótinu þegar hann setti heimsmet 180kg í 90kg flokknum.

Einar loftpressa varð tvöfaldur Evrópumeistari drengja og vann tvo stigabikara!- Kappi framtíðar! - (ljósm.Palli Patró)

Flosi Jónsson Evrópumeistari 55-59 ára í 90kg flokki tók Evrópumetið 165,5kg en hefur nú lofað að líta vel út í framtíðinni í 100kg flokknum..

Rich Fricker Bretlandi vann gull í super 45-49 ára og tók RAW 160kg eins og ekkert….Hrikalega jákvæður kall á Ísland..er bara Íslandsvinur!.

Sigurður Kristján Grímlaugsson 15 ára tók 137,5kg á bekknum í tíunni og átti góða tilraun við heimsmet drengja 148kg sem stútast á HM í Bath en Krissi er staðráðinn í að komast í þá ferð…
MYNDIRNAR ERU FLESTAR FENGNAR AÐ LÁNI FRÁ JÓFÓ OG GETA MENN SKOÐAÐ FLEIRI MYNDIR HJÁ HENNI HÉRNA

Þrír ómissandi á EM: Svavar Hlölli, Gunnar Ólafs warehousebeast, og Gunnar Freyr Master - (ljósm.Palli Patró)

Rich Fricker Íslandsvinur og Fúzilla mótshaldari (ljósm. Palli Patró)

Eftir mót: Komnir í gírinn: Patró, Haukur þvottur og Gunni skemmujarl -(ljósm. Úrsula Patrópáver)
Share on Facebook
2 Comments »

Hressir Steve Gym molar á keppnisstað en þeir sópuðu að sér verðlaunum á Evrópumótinu í öllum aldursflokkum.
Það voru á milli 50-60 keppendur sem mættu til leiks á Evrópumót EPC hjá WPF heimssambandinu í íþróttahöll Glerárskóla 25-26 júní. Þrátt fyrir mikil afföll boðaðra þjóða vegna gossins í Eyjafjallajökli snemma sumars voru 5 þjóðir sem áttu keppendur á mótinu: Ísland, Þýskaland, Rússland, Bretland og Grikkland. Mótshaldari undir merkjum ÍKF Metal var Sigfús Fossdal sem gat að lokum bjargað öllum vandamálum sem komu upp við mótshaldið m.a, þar sem á tímabili var búið að hætta við mótið ofl. Kynnir á mótinu var engin önnur en kraftadrottningin Gemma Taylor Magnússon sem lét Benna tarf passa soninn allstaðar í höllinni á meðan hún malaði yfir molunum….Ingibjörg skyrfrú kom líka með nýja barn þeirra Fúzilla og lét það fylgjast með deddinu eins og hægt var…

Hluti keppenda í deddinu

Aðal kvennaskjóða Evrópumótsins var Jófó urrabíta..Jóhanna Árnadóttir sem tók 130kg þrælflott og vann besta afrek kvenna með því.

Jófó: “Átti ég að taka þetta léttara?”

Sóley Smáradóttir er ein af sætmeyjunum í pávernum og hún hefur líka kraft og deddaði 120kg í 67,5kg flokknum og vann!

Þetta er ekki minni dama en Kristín Torfadóttir eitt af mörgum hrikalegum börnum Loðfílsins Torfa Ólafssonar. Kristín var að sjálfsögðu ættarsómi og tók mestu þyngd kvenna 137,5kg í súpernum í unglingaflokki

Bjarki Pálsson úr SteveGym sigraði í 82,5kg flokki unglinga í páver og sést hér í beygjum í nýrri Monolyft græju sem Peter Malfa smíðaði og kom með til Íslands á mótið. Framtíðarfjárfesting hjá Fúzilla upp á næst þegar hann kemst í form á klakanum….

Hálfbróðir Bjarka, Magnús Ingvarsson varð meistari í drengjaflokki í deddi og tók 200kg í 75kg flokki..Það er óhaætt að segja það að þeir bræður eru talsverðir æfingajaxlar og eru framtíðarmenn í sportinu…

Jóhann Helgason SteveGym 16 ára moli, sló í gegn og setti 3 heimsmet drengja í deddi þar sem hann endaði á 250kg og vann gullið í 110kg flokki. .Eins og sést á myndinni er ekki verið að eyða púðri í einhverja tækni heldur þyngdin nánast bara stiffuð upp í geðveiki…

Bjarki Sigurðsson geysir með 321kg heimsmet í höndunum og tryggir sér Evróputitil í 110kg flokknum. Þetta var annað heimsmetið af tveimur sem sett voru í opnum flokki á Evrópumótinu en Ísleifur Árna setti hitt í bekkpressu. Bjarki rétt missti síðan 330kg í mikilli bardagalyftu.

Þröstur Ólason hinn fjölhæfi allra handa moli úr SteveGym var ein helsta stjarna mótsins…Hann varð tvöfaldur Evrópumeistari unglinga, fyrst í pávernum þar sem hann m.a. beygði 300kg og svo daginn eftir í deddi þar sem hann tvíbætti heimsmetið og endaði á 290kg í 100kg flokknum (myndin) Þröstur varð einnig stigahæstur unglinga bæði í páver og deddi og var eiginlega bara hrikalegur…!

Kári Catzilla setti tvö heimsmet í deddi með 220 og 240kg frekar létt í 75kg flokki 55-59 ára og vann þannig besta afrek öldungs á mótinu fyrir dedd aðeins einu stigi yfir þjóðverjann Peter Malfa sem tók 275kg í 100kg flokknum í sama aldursflokki.

Peter Malfa Þýskalandi varð Evrópumeistari í deddi í 100kg flokki 55-59 ára og tók 275kg í góðri lyftu. Peter er snilldar járnsmiður á við Baldvin bekk og smíðar allar powergræjur í Þýskalandi meira og minna. Hann er einnig formaður þýska páversambandsins og mætir á öll mót í góðum anda og keppir bæði og dæmir!…Svona heiðursmenn eru ómissandi fyrir íþróttina!

Catzilla að missa jafnvægið með heimsmetið 260kg..vegna krampaskjálfta og.datt síðan aftur fyrir sig en lenti á löppunum að góðum kattarsið…
ÚRSLIT Í DEDDKEPPNI EM URÐU ÞESSI: (önnur úrslit bíða aðeins)
Evrópumót WPF í Réttstöðulyftu 2010
| Fl. |
Þyngd. |
Nafn |
GYM |
Flokk. |
1. |
2. |
3. |
Samt. |
Wilks |
PL. |
| jun |
66,40 |
Sóley Smáradóttir |
ISL |
67,5 |
100,0 |
120,0 |
-130,5 |
120,0 |
123,9 |
1. |
| jun |
97,00 |
Kristín Helga Torfadóttir |
ISL |
90+ |
117,5 |
137,5 |
-155,5 |
137,5 |
115,6 |
1. |
| open |
71,70 |
Jóhanna B Árnadóttir |
ISL |
75 |
115,0 |
125,0 |
130,0 |
130,0 |
127,2 |
1. |
| open |
81,00 |
Þórunn Þórðardóttir |
ISL |
82,5 |
100,0 |
120,0 |
130,0 |
130,0 |
118,1 |
1. |
| teen |
74,90 |
Magnús Ingvarsson |
ISL |
75 |
170,0 |
-200,0 |
200,0 |
200,0 |
142,6 |
1. |
| teen |
103,10 |
Sigurður K. Grímlaugsson |
ISL |
110 |
160,0 |
180,0 |
-200,0 |
180,0 |
108,3 |
2. |
| teen |
102,40 |
Jóhann Helgason |
ISL |
110 |
220,0 |
240,0 |
250,0 |
250,0 |
150,8 |
1. |
| jun |
72,60 |
Aðalgeir Hilmarsson |
ISL |
75 |
180,0 |
-215,0 |
215,0 |
215,0 |
156,8 |
1. |
| jun |
99,90 |
Þröstur Ólason |
ISL |
100 |
260,0 |
280,5 |
290,0 |
290,0 |
176,6 |
1. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
| open |
81,50 |
Haukur Pálsson |
ISL |
82,5 |
200,0 |
220,0 |
-230,0 |
220,0 |
148,5 |
1. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
| open |
109,20 |
Eiríkur Kristbjörnsson |
ISL |
110 |
240,0 |
260,0 |
-270,0 |
260,0 |
153,3 |
2. |
| open |
109,80 |
Bjarki Þór Sigurðsson |
ISL |
110 |
300,0 |
321,0 |
-330,0 |
321,0 |
189,0 |
1. |
| open |
126,60 |
Vladim Bratanov |
RUS |
140 |
280,0 |
310,0 |
345,0 |
345,0 |
196,1 |
1. |
| M55+ |
74,50 |
Kári Elíson |
ISL |
75 |
220,0 |
240,0 |
-260,0 |
240,0 |
171,8 |
1. |
| M45+ |
96,20 |
Peter Malfa |
GER |
100 |
245,0 |
265,0 |
275,0 |
275,0 |
170,1 |
1. |
| M50+ |
120,50 |
Jóhann Gíslason |
ISL |
125 |
250,0 |
-272,5 |
-272,5 |
250,0 |
143,6 |
1. |
| M50+ |
128,40 |
Ómar Jóhannesson |
ISL |
140 |
265,0 |
280,0 |
-300,0 |
280,0 |
158,7 |
1. |
| M45+ |
162,80 |
Richard Fricker |
UK |
140+ |
240,0 |
-287,5 |
-287,5 |
240,0 |
131,2 |
1. |

Hrikalegir deddarar á EM…frá vinstri: Haukur “þvottur” Pálsson, Catzilla, Peter Malfa, Eiríkur Kristbjörnsson, Jói Gísla, Ómar Jóh. Bjarki geysir.

Rússinn hrikalegi Vladim Bratanov er nú komin á mynd lengst til hægri

Haukur Pálsson SteveGym fékk gull í opna flokknum í 82,5kg .Þvotturinn bætti sig vel og deddaði 220kg. Hann kvikmyndaði líka mótið með hjálp Mastersins og er stefnan að setja það á disk síðar sem menn geta fjárfest í fyrir eitthvað lágmarksverð.

Eiki Kristbjörnss deddar hér hroðalega 260kg..hann fékk silfur í opna flokknum í tíunni og var einn af þeim athyglisverðu á mótinu…

Jóhann Gíslason í 125kg flokki 50-54 ára deddaði 250 skítlétt en klikkaði svo á heimsmeti með 272,5kg en það koma önnur mót til að taka þetta met…

Hvort var hann að geispa eða öskra?…Ómar Jóhannesson að undirbúa sig fyrir heimsmetið með 280kg í 140kg flokki 50-54 ára…

Svo tók ómar heimsmetið af 280 af miklu öryggi eins og það væri daglegt brauð fyrir hann…

Ómar togar í 300kg í hroðalegum anda…Það fór þetta langt núna..en seinna fer það alla leið sveppir mínir!

Vladim Bratanov Rússlandi deddar í 345kg með glæsilegum sumostíl..Þessi kappi á best 400kg í beygjum. Hann vigtaðist inn á EM aðeins rúm 126kg og var því í 140kg opnum flokki og vann þar besta afrek mótsins. Hann fór með allar þrjár lyfturnar í gegn 280-310-345 en missti þó heimsmet 360kg í aukatilraun. Kappinn sagði við Catzilla í léttu mjög einföldu spjalli á ensku að hann hyggst keppa á HM í Bath í Englandi í nóvember..Hvað hann gerir þar leiðir framtíðin í ljós en þessi moli er hreint út sagt hrikalegur..

Vladim Bratanov reynir við heimsmet 360kg….stöngin bognar ekkert smá við þessi hroðalegu átök!…

Richard Fricker Bretlandi Evrópumeistari í deddi í super 45-49 ára með 240kg lauflétt…hann deddaði daginn áður í páverkeppninni 285kg þar sem hann var bestur allra öldunga..”He is powerlifter not pussy!”

Fricker reynir RAW við 287,kg í deddkeppninni..Kappinn verður góður í Bath í Englandi á heimavelli…
SETJUM INN FLEIRI ÚRSLIT OG MYNDIR VIÐ FDYRSTA TÆKIFÆRI..Kraftaheimar þakka Jófó og öðrum fyrir það að lána myndir í þessa grein!
Share on Facebook
3 Comments »

Stefán Sölvi Pétursson deddar 375kg
Það fór eins og margir spáðu að Stebbi stórskjóða varði titil sinn Sterkasti maður Íslands með glæsibrag. Mótið fór fram í gær og í dag. Hnífjöfn keppni var um annað sætið á milli Benna tarfs og Hafþórs ljóns og hafði Tarfurinn þar betur að lokum með einu stigi!

Benni tarfur fékk silfur að þessu sinni….
Heildarstig keppninnar
Nafn Stig
|
Rá
|
Medley
|
Dedd
|
Steinar
|
Uxa |
Sirkus
|
Hleð
|
Hella
|
Samtals |
Sæti |
| Stefán Sölvi |
7 |
7 |
6 |
7 |
7 |
4,5 |
6 |
5 |
49,5stig |
1.sæti |
| Benedikt M |
5 |
5 |
7 |
6 |
4 |
7 |
5 |
2 |
41stig |
2.sæti |
| Hafþór Júlíus |
6 |
3 |
3,5 |
5 |
6 |
2,5 |
7 |
7 |
40stig |
3.sæti |
| Páll Logason |
4 |
6 |
5 |
4 |
3 |
6 |
3 |
4 |
35stig |
4.sæti |
| Ólafur Valur |
2,5 |
4 |
3,5 |
3 |
5 |
2,5 |
2 |
6 |
28,5stig |
5.sæti |
| Ari Gunnarsson |
2,5 |
1 |
1 |
2 |
2 |
4 |
4 |
3 |
20stig |
6.sæti |
| Heiðar G |
1 |
2 |
2 |
hættur |
|
Share on Facebook
2 Comments »

MOLAHÓPUR STERKUSTU MANNA Á ÍSLANDI 2010 - (ljósm.Eiki/Jófó)
Þessi fyrsta stórkeppni sumarsins í aflraunum fór fram í Grindavík og lauk í gær. Nokkrir þekktir molar heltust úr skráningarlestinni en þrátt fyrir það mættu 7 afrennd tröll til keppni. Eins og margir höfðu búist við varð sigurvegari nýtröllið Hafþór Júlíus Björnsson, ljónið, en honum veitti þó mikla keppni fram í síðustu grein Benedikt Magnússon tarfur sem varð í öðru sæti, Ólafur Valur Guðjónsson kom vel á óvart með frábærri frammistöðu og náði þriðja sætinu. Mótshaldari var Magnús Ver Magnússon

Sigurvegarinn Ljónið hrikalega, Hafþór Júlíus tekur á 80kg handlóði
Lokastig
1.sæti Hafþór Júlíus Björnsson -34 stig
2.sæti Benedikt Magnússon- 31,5 stig
3.sæti Ólafur Valur Guðjónsson -28 stig
4.sæti Páll Logason-26 stig
5.sæti Orri Geirsson -24stig
6.sæti Ari Gunnarsson -15 stig
7.sæti Jón Þór Ásgrímsson- 9,5 stig

Jón Þór Ásgríms í hroðalegri bóndagöngu…

Orri Geirsson lítur alltaf vel út…í baksýn er Strongest með tímatökuna…(ljósmyndirnar sem fylgja eru allar teknar af Eika/JÓFÓ)

Benni tarfur hafði ekkert fyrir því að vinna kjúklingadeddið….(320kg í repsum)

- LJÓNIÐ -

Ari Gunnars nýmoli glímir við fögur fljóð

Undur mótsins - Óli Valur á mikilli kvennasiglingu….
Fleiri myndir frá mótinu má finna á Facebook síðu Jófó Urrrabítu: HÉRNA
NÁNARI ÚRSLIT Í STÖKUM GREINUM OFL. MÁ FINNA Á VÖÐVAFÍKN: HÉRNA
Share on Facebook
3 Comments »
|