Á öðrum degi kepptu fimm Íslendingar. Jón Bóndi, Gunni Master, Palli Patró, Valdi Kerfis og Fjölnir Tvister
Bóndinn tók 320 í beygju í fyrstu lyftu, fór í 340kg í annarri, hafði hana ekki og sat undir henni á meðan stangarmenn voru allt of lengi að ná stönginni af honum, þannig að hann fann eitthvað smella í hnénu. Bekkurinn gekk upp hjá honum þar sem hann fór með 180, 190 og 200 í gegn. Hann byrjaði rólega í deddinu út af meiðslunum, tók 245, fór svo í 285 og endaði í 300 og hefði mögulega tekið meira ef beygjan hefði ekki farið svona illa. 820kg glæsilegt total, og gull, veruleiki í 100kg masters flokki 50 ára öldunga.
Gunni Master átti sinn besta dag nokkru sinni í beygju og tók 200-225-242.5kg. Í bekknum fór hann með 180 og 190, en klikkaði á 200. Svo tók hann 260 í deddinu til að tryggja sig, fór svo í bætingu, 287.5kg og klikkaði á 292.5kg. Hans besta total nokkru sinni, 720kg, og gullmedalía í masters 40+ 110kg flokki.
Palli Patró féll á tíma í fyrstu beygju með 190kg, meldaði síðan 200kg og klikkaði á henni. Í þriðju beygju tók hann á honum stóra sínum og keyrði 200kg upp. Í bekknum fleygði hann upp 130 og 140kg, en missti 150kg út úr ferli í þriðju tilraun. Í deddinu byrjaði hann á 200kg þar sem hann hafði verið tæpur í bakinu síðustu vikur. Í næstu fór hann í 225kg, og tók síðan 235kg í bætingu. Palli bætti sinn besta árangur um 20kg og tók 575kg samanlagt.
Valdi Kerfis opnaði á 295, tók svo 315 öruggt en klikkaði á 325kg. Síðan var sloppurinn að stríða honum þar sem hann missti ítrekað spennuna og hafði byrjunarþyngdina, 205kg, í gegn í þriðju tilraun með harðfylgi. Í deddinu opnaði hann öruggt á 270kg, fór svo í 295kg og svo í 302.5kg í vel útreiknuðum stökkum. 822.5kg totalbæting í höfn og 4.sæti á HM. (fyrir utan að taka 2.5kg meira total en lærimeistarinn)
Tvisterinn opnaði á öruggri 220kg beygju, fór svo í jafnörugga 237.5kg beygju. Í þriðju lyfti hann svo 250kg öruggt en klippti á dýptina. Í bekknum tók hann öruggt 170, 182.5 og svo 187.5 í hægri zetor bardagalyftu. Í deddinu opnaði hann á 200kg verandi deddkrypplingur, fór svo í 225kg til að tryggja 650kg total en klikkaði svo á 230kg deddi. Persónulegar bætingar í öllum greinum og totalbæting um 27.5kg.
Þriðja daginn kepptu Fermeterinn og Skyri
Fermeterinn fékk fyrstu beygju með 380kg ógilda, tók það síðan öruggt og lyfti svo 400kg öruggt, en var enn hálfveikur eftir flensu síðustu vikna. Í bekknum tók hann 280 mjög öruggt í fyrstu lyftu en klikkaði svo tvisvar á 300kg. Í deddinu opnaði hann á 330, tók svo 355kg en klikkaði svo á 370kg fyrir ofan hné. 1035kg total og kominn upp fyrir félaga sinn Bolluna. Heimsmeistari unglinga í -140kg flokki.
Skyri fór hálfsmeykur í 400kg en tók það létt. Lyfti síðan 420kg þrátt fyrir að ná ekki að stilla sér almennilega upp. Fór svo í þriðju tilraun með mestu þyngd sem Íslendingur hefur tekið í hnébeygju, 435kg, og fékk hana í gegn. Í þessari síðustu beygju small eitthvað í hamnum hjá honum þannig að hann varð smeykur um deddið. Í bekknum tók hann 332.5kg öruggt í fyrstu tilraun, fór síðan upp með 345kg en klikkaði á 350kg. Eftir að hafa rætt málið við Ed Coan ákvað skyri að vefja á sér hnén í deddinu. Hann fór hægt upp með 310kg og mátti dedda 27.5kg minna en Lance Karabel og samt vinna. Lance tók 345kg í annarri og Sigfús fór í 330kg til að tryggja sér sigur á stigum líka. Það var því áfall þegar hann klikkaði tvisvar á henni og sat eftir með 1090kg á móti 1095kg hjá Lance. Hins vegar glæsilegt total í höfn, og annað sætið í súpernum.
Svo eftir hvatningaróp við eina lyftuna stöðvaði Ed Coan Tvisterinn og sagði við hann að án efa væri íslenska flottasta mál í heimi til að hvetja pávermenn áfram, það hljómaði allt svo hrikalega þegar það væri öskrað á íslensku!
Ritað af Fjölni Tvister
Share on Facebook