Archive for the “Blog” Category


Kári magister heldur á Las Vegas tákninu frá 1994

Vefurinn sagði um daginn frá Las Vegas tákni kattarins…Hér birtum við þrjár myndir sem Masterinn tók af  þessum örlagavaldi  í Vesturgötuvillunni í gær..Magister fékk þetta litla alumin skilti sent frá Las Vegas fyrir 15 árum en á þeim tíma bjó hann sem greifaköttur í einbýlishúsi á Lindargötunni og var umsetinn af kellingum sem vildust giftast kallinum og þar á meðal ein Vegasdama..Eigi varð af þeim ráðahag  og táknskiltið góða gleymdist og rykféll í biðstofu minninganna..Rétt svo þegar Magister gerðist hjartaköttur og var alveg búinn að afskrifa Vegasferðina með öllu fannst táknið..Það þýddi auðvitað að  kallinn verður að fara en hvað gerist úti er á valdi örlaganna…

Sínum eigin örlögum

enginn ráðið getur,

ég er líka í efa um

að það fari betur.

Las Vegas beib…Las Vegas..

Share on Facebook

Comments 1 Comment »

Magister Cat kominn í hjólaform í hjartaræktinni…

Ritstjórinn mætti í gymið einnig í dag og hjólaði talsvert…Þegar Masterinn fór að munda myndavélina og spurðist fyrir um hvert kötturinn væri að hjóla var svarið: “Til Akureyrar..til Skyrans..undirbúningur fyrir EM á næsta ári”…Myndband af hjólakettinum: HÉRNA

Share on Facebook

Comments 3 Comments »

Kisi vor þykir sprækur á hjólinu…

Kári köttur er að hressast eftir heilsuhremmingarnar sem hann lenti í fyrir 3 vikum eða svo og mætir nú tvisvar á viku í endurhæfingu á Landsanum. Ritstjórinn neyðist þar til að hjóla heilan helling og taka nokkur kellingareps í einhverju tækjarusli undir stjórn nokkuð gáfaðra sjúkraþjálfara sem vinna hörðum höndum að því að lengja kattarævi kappans í 100 ár ef vel tekst til…

Ritstjórinn er einmitt núna búinn að hjóla á seinni endurhæfingadeginum um 24km á 24 mínútum og var allt hjartatækjadótið sem var tengt við kisann vel ánægt með útkomuna…Á milli þessara sjúkraæfinga á spítalanum hefur kappinn og mun áfram laumast í nokkur handlóð og dragvél í SteveGym án þess að vitneskja þar um muni rata í sjúkraskýrslur hjá spítalaliðinu, enda halda menn þar að kallinn drepist við að lyfta 2 kg handlóði….Eins og ein sjúkraþjálfaradaman sagði: “Sko nú er það þolið hjá þér - engar lyftingar!” …..  Dísus kræst ….

Share on Facebook

Comments 6 Comments »

Það voru nú mun meira af slöngudrasli en þetta tengdar við Magister Cat á tímabili..

Ritstjóri vor er enn slappur eftir nokkrar hremmingar og smátúr í aðra vídd þar sem páverguðinn kom honum til baka..með hjálp glettilegs læknis og nokkurra súperhjúkkna og sjúkraliða Landspítalans…En Matta meiriháttar sér nú af kostgæfni um alla heimahjúkrun kappans…

9 dagar á spítala er ekkert sældarbrauð þar sem maður var m.a. baðaður af konu eins og ungabarn en svona gengur þetta..Kisinn keppir ekki í Vegas en fer kannski með ef hann hressist meira..Þakkir eru færðar til þeirra sem heimsóttu mig á spítalann og til Bóndans fyrir fallegt komment hérna til mín og þeirra sem hringdu til Möttu á meðan ég var fjarverandi og ritað hafa góðar kveðjur til mín á Facebook…

Share on Facebook

Comments 14 Comments »

Magister var í vetrarfríi frá páver og er nú byrjaður að detta aftur inn á æfingar.  Hann hefur reyndar ekki enn tekið æfingu í Þrekhúsinu en ritstjórnin bíður nú eftir því að vefnum berist einhverjar myndir úr páversalnum þar og munu þær þá birtast hér en menn eru mjög ánægðir með þá æfingaaðstöðu sem Metal hefur nú skaffað öllum þeim sem vilja ná árangri og verða sterkir….

Share on Facebook

Comments 1 Comment »

Síðustu 3 daga hefur ritstjórinn verið veikur í fyrsta sinn frá því árinu 2005 er er á batavegi núna. Þetta er svona hefðbundið system: slæmt kvef, hósti, höfuðverkur og slæmska í augum. Ungfrú MM gerði rosalegt grín að sjúklingnum fyrst í stað en núna hefur tekist að smita hana svo allt er í fínu lagi. Jói Omegakraftur vefstjóri vor hefur ekkert samband haft eftir flutninginn á Heilagastaði fyrir austan. Hermt er að hann séí vissu losti því sjálfir Flengingarstaðir Gumma Ironmasters, Byrgið er þarna í allra næsta nágrenni og sést vel í mynd úr svefnherbergisglugga Jóa…

Share on Facebook

Comments 1 Comment »