Posted by KE in Fréttir

Fógetamótið (kjötmót) í bekkpressu fer fram laugardaginn 2 okt. vigtun daginn áður. Keppnisgjald 4.000kr. nánari staðsetning auglýst síðar.
Mótið er minningarmót um kraftlyftingafrömuðinn Ólaf Sigurgeirsson sem gerði ótrúlega margt fyrir íþróttina og kom kraftlyftingum á kortið úti í hinum stóra heimi.
Skráning sendist á netfangið: sirmagister@visir.is eða til Kára Catzilla á Facebook
Share on Facebook
2 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Formaður WPC Magnús Ver Magnússon hefur tilkynnt að af óviðráðanlegum ástæðum hefur Íslandsmóti WPC sem átti að vera 11 sept verið frestað þar til síðar, en náðari dagsetning verður þá auglýst. Það standa yfir miklar breytingar og endurbætur á Jakabóli þar sem keppnin átti að fara fram en til stendur að opna nýjan sal þar sem glæsileg pávermót verða haldin í framtíðinni.
Share on Facebook
No Comments »
Posted by KE in Fréttir

Gunnar Freyr Rúnarsson nálgast með hverju árinu að líkjast þessum fyrirmyndaröldung sem hér sést hress með stafinn….
Eftir að hafa átt við meiðsli á hné að stríða í nokkra mánuði er Masterinn farinn að dedda aftur en beygjur eru ekki á dagskrá enn sem komið er..Kappinn mun keppa í bekk og deddi á HM í Bath í tíunni í öldungaflokki 45-49 ára en eftir nokkra daga (8 sept) nær hann þeim merka áfanga að verða 45 ára gamall. Gömlu jaxlarnir sem mæta Masternum úti munu ekki eiga 7 dagana sæla..Í gær á aðeins annarri alvöru deddæfingu sinni síðan í vor tók Gunni 230×3 sem var kannski aðeins hægt af stað en vel létt íefri hlutanum…Við tölum um 300kg hjá honum í Bath þegar kappinn fer að dedda 265-270×3 eða svo!…
Share on Facebook
3 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Bjarki Þór Sigurðsson deddar í raunveruleikanum….(BEFORE MYND)
Það er kominn góður deddandi í SteveGym á föstudögum…Bjarki geysir lét ekki sitt eftir liggja í gær þegar hann deddaði með öruggu gripi: 290×3!…á undan því hafði hann hitað upp með frontgripi upp í 200kg. Á eftir 290 deddaði hann með keðjum af palli nokkur sett upp í 210×3 eins og ekkert. Stefnan hjá Geysi er sú að bæta 321kg heimsmet sitt í sérskráðri lyftu í tíunni í Bath í nóvember og hefur kappinn þar augastað á 330kg eða svo…HRIKALEGUR!

Deddpallurinn og umhverfi hans eftir nýlegar breytingar (AFTER MYND) -Fleiri myndir eftir útlitsbreytingar birtast á næstunni (ljósm Tvister)
Share on Facebook
5 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Kári Catzilla mynd tekin rétt fyrir keðjudeddæfingu..á veggnum má sjá myndir af Guðna heimsmeistara og Gvendi Sig (Silver) á Olympíuleikum 1972 og myndasería af Jóni Páli fyrir neðan (Mynd tekin af Fjölla í Vesturgötuvillunni)
Sérlegur doktor hefur nú staðfest að kötturinn ber 12,5% fitu..sæmilega skafinn..var 10% fyrir EM fyrr í sumar. Catzilla tók glettilegt keðjudedd í dag af palli: 179×3 180×3 190×3 200×3 210×3..allt skítlétt með ógnarhraða…beltislaust…deddköttur óstöðvandi…stefnan er að repsa 250 af palli tímanlega fyrir HM….
Share on Facebook
5 Comments »

Það hefur mikið sést til Sir Cat í miðbænum undanfarið þar sem hann arkar áfram á vegferð sinni sem gjaldkeri fyrir ÍKF Metal í margskonar bankastofnanir á byggðu bóli…með Bónuspoka í hönd…Í hádeginu var Möttu meiriháttar boðið í stórsteik á einu veitingahúsi Tryggvagötunnar og síðan náð í Happdrættisvinning og svo haldið áfram í Íslandsbanka…Þegar komið var í bankann og óvirðulegur Bónus plastpokinn sveiflaðist um í kattarklónum sagði Mattan: “Það er ekki hægt köttur að þú sért með Bónuspoka í stað skjalatösku!” Svo bætti hún við. “Þú átt að fá þér fínan skjalara sem stendur á ÍKF Metal!”

Svona lítur Catzilla út með skjalarann eins og MM sér hann fyrir sér…
Einn bankajöfur í gjaldeyrisdeild Íslandsbnka verður líka alltaf jafn kyndugur á svip þegar Sir Cat leggur Bónuspokann á skrifborðið og tekur upp úr honum hin forlátustu skjöl…Það er aldrei að vita nema breyting verði þarna á en reyndar lumar ritstjórinn á mjög gömlum skjalara frá fyrri öldum…

Svona gæti dæmið litið út á næstunni þegar gjaldkeri Metal stormar í bankann…
Share on Facebook
5 Comments »
Posted by KE in Fréttir

Úti í heimi er allt vitlaust út af fellibylnum Jarlinum (Earl) sem heitir svo í höfuðið á Skemmukarlunum (oftast stytt í Jarlinn) sem hefur valdið usla í Danmörku og er á leið heim.. Það hefur alltaf verið þannig í sögunni að þeir sem bera Jarls-titil eru miklar persónur sem mikið kveður að…Mikið er fjallað um Jarlinn í erlendum fjölmiðlum en þúsundir íbúa í Norður-Karólínu hafa flúið Jarlinn en þar sem hann hefur farið um hefur hann farið upp í vindstyrk á 60 m/s sem jafnast á við 1200kg total eða meira..Sjá t.d. frétt í New York Times: HÉRNA
Share on Facebook
No Comments »
Posted by KE in Fréttir

Þarna á myndinni er einmitt einhver aðili sem hefur tekist að pranga inn á Foringjann tveimur hlaupabrettum…Þótt annað brettið sé ekki bara eldgamalt og örugglega með þeim fyrstu sem voru fundin upp þá er það líka bilað og búið að standa þannig í stöðunni í nokkra mánuði…Þegar á það er minnst við Steve segir hann bara: “Það kemst í lag síðar, þetta er bara fínt svona!”
Svo spyr maður í einfeldni sinni: “Er ekki nóg að það sé eitt hlaupabretti í stöðinni heldurðu að almenningur sé í biðröð að komast hér að?”..Þá setur Steve upp sérstakan ábyrgðarsvip á rekstrarsviði og segir: “Maður verður að geta rekið pleisið, peningar verða að koma inn og ekki borga pávermenn!”…Þetta er svo sem rétt hjá Foringjanun að það eru nokkrir í stöðinni sem tíma að borga miklu dýrara mánaðargjald hjá World Class en ætlast svo til að fá ókeypis í SteveGym að því þeir mæta svo sjaldan!..Ég sé fyrir mér í anda einhvern reyna að komast upp með þetta í WorldClass að borga ekkert æfingagjald af því þeir æfa svo lítið hjá þeim og eru að æfa annarssstaðar líka!

Það er líka komið svona göngutæki í raunveruleikann en svona flott dama er samt ekki raunveruleiki þar ennþá!
Share on Facebook
10 Comments »