Michael Brugger Þýskalandi var 47 ára þegar þessi mynd var tekin fyrir nokkrum árum

Michael keppti fyrir mörgum árum á nokkrum IPF Evrópu og Heimsmeistaramótum með ritstjóranum og vakti hann þá mikla athygli sökum glæsilegs útlits. Hann setti á sínum tíma nokkur heimsmet unglinga í bekk og tók þá m.a. 210 á kjötinu í 110kg flokki og tók seinna 300 í 125kg flokknum á móti í Þýskalandi. Hann var fyrsti þjóðverjinn til að taka 1000kg í totali í páver. Michael er með yfirgengilega handleggi eins og sést á  myndunum og hefur bysepinn mælst 68cm á kappanum  og á Ringo okkar nokkuð í land með að ná þessum hrikalega öldung …

Michael Brugger deddar 340kg

Comments No Comments »

Hressir Metalmolar…Ringo, Patrópáver og Masterinn

Peter Malfa Þýskalandi Evrópumeistari í páver 45-49 ára í 100kg flokki tók: 270-152,5-260- 682,5kg. Mjög skemmtilegur keppnismaður og Íslandsvinur. Hann er toppmaður í þýska sambandinu og dæmdi einnig á mótinu.

Hemmi klórar sér í hausnum yfir væntanlegri bekkpressu en Ringo hefur engar áhyggjur af sínu heimsmeti…

UPPHITUNARMYNDBAND MEÐ HEMMA OG FÉLÖGUM (réttarinn á bekknum er Gunni skemmujarl) - HÉRNA

Hemmi tryggði sér Evróputitil 45-49 ára í 100kg flokknum á bekk með 195kg í fyrstu tilraun en Luxemborgarinn Marco Capitani varð annar með 145kg. Myndband með sigurlyftu Hemma 195kg: HÉRNA

Hemmi fór upp með bætinguna 207,5kg en hún var dæmd af.  Rassinn var tæpur en myndband er: HÉRNA

Ýmsir skrautlegir keppendur voru á mótinu!

Ringo og Hemmi í hrikalegum  tattú-félagsskap..

Litli-Fúsi er með tattú af Jóni Páli á bakinu!

Palli patrópáver fékk brons á sínu fyrsta alþjóðamóti!

Skemmujarlinn og Magister afslappaðir á lokadegi mótsins….

BIRTUM FLEIRI MYNDIR OG MYNDBÖND SÍÐAR.

Comments No Comments »

Íslandsmótið í réttstöðulyftu og Guttormsmótið fer fram laugardaginn 18 júlí kl.13.00 á Eiðistorgi. þEIR SEM TAKA BARA BEKK- hjá þeim telst besti árangur inn í total Guttormsmótsins þar sem bekkur og dedd telja til verðlauna.

Skráning er til 12 júli og sendist til: sirmagister@visir.is

ÞEIR SEM ÞEGAR HAFA SKRÁÐ SIG :

82,5kg fl.  Einar Guðnason,  bæði mót (bekkur og réttstaða)

100kg fl. Valdimar R Valdimarsson ,bæði mót

110kg fl. Gunnar F Rúnarsson, bæði mót

110kg fl. Sigurjón Ólafsson, bæði mót

125kg fl. Bjarki Ólafsson, bæði mót

125kg,fl. Bjarki Sigurðsson, réttstöðulyfta

140+kg.fl. Ásbjörn Ólafsson, bæði mót

-

STJÓRN ÍKF METAL

Comments No Comments »

Íþróttahöllin á Akureyri verður næsti vettvangur stórmóts í páver á klakanum!

Á þingi EPC - Evrópuarms WPF heimssambandsins í páver var samþykkt umsókn ÍKF METAL að halda næsta Evrópumót á Íslandi 2010. Sigfús Fossdal heimsmeistari með meiru verður aðal mótshaldari og hefur gefið út að mótið verði haldið á besta stað Akureyrar,  í íþróttahöllinni sjálfri.

Íslenskir keppendur verða eflaust fleiri en nokkru sinni og erlendir pávermenn hafa þegar sýnt mikinn áhuga á að koma til klakans og gæti mótið vel orðið það fjölmennasta frá upphafi ef vel tekst til. Þegar Las Vegas dæmið verður búið hjá afreksmolum Metal geta menn stefnt á þetta mót sem verður öllum eftirminnilegt. Glæsilegt verkefni hjá Skyra og eru honum bornar velferða óskir í öllum undirbúningi.

Skyrhöfðinginn alltaf í stórræðum….

Comments 3 Comments »

Ringo, Hemmi og Masterinn í verðlaunaafhending

Þá erum við komin með nokkur myndbönd sem Masterinn reddaði frá keppninni á EM í Amsterdam. Titill greinarinnar er svona smá spælingarkenndur hjá Magister því ef menn skoða myndböndin af bretanum Carter í 125kg flokki dedda 320kg gilt og 240 í 75 hjá kettinum þá sjá menn að útréttingin hjá Magister er miklu betri en hjá Carter en var samt dæmt af vegna þessa…Þetta er alltaf svona..yfirmolarnir njóta alltaf vafans betur…!

David Carter England 60-64 ára flokki 125 með heimsmet og  mesta dedd mótsins: HÉRNA

Kári köttur 55-59 ára flokki 75 með  tilraun við heimsmet í deddi 240kg : HÉRNA

Kári tekur gilt heimsmet með 220kg: HÉRNA

————————————————

Masterinn varð tvöfaldur Evrópumeistari öldunga eftir langan keppnisferil

Gunnar master (40-44 ára) tryggir sér Evróputitil í 110kg flokki með  dedd 275kg: HÉRNA

Masterinn reynir við bætingu með 290kg: HÉRNA

———————————————–

Alexander Búlgaríu opinn fl.100kg deddar í 2.tilraun 295kg: HÉRNA

Hinn erlendi “Korntop” Richard Fricke deddar í súpernum sigurlyftu með 225kg: HÉRNA

BIRTUM FLEIRI MYNDBÖND FRÁ MÓTINU VIÐ TÆKIFÆRI

Comments 3 Comments »

Tveir Evrópumeistarar  í Amsterdam -Kári magister og Ingvar ringo…

Ritstjórinn er að skríða saman eftir Hollandsförina því eftir megrun í 75kg flokkinn þar sem tæknisköfunin mistókst eitthvað þjáðist Cat af ofþornun og hjartsláttartruflunum en hitinn í Amsterdam var alltaf á bilinu 25-32 stig auk þess sem loftræsting á keppnisstaðnum var léleg. Allir keppendur Metal komust á verðlaunapall og var Ingvar ringo einn helsti afreksmaður mótsins í bekkpressu þar sem hann náði mestu þyngd mótsins 260kg ásamt einum öðrum mola (reyndar hrikalegum léttmola  Bernard Delaney Írlandi sem tók þessi 260kg í 90kg opnum flokki)

Hluti áhorfenda á laugardeginum

Áður en maður fer nánar í árangur íslendinganna má segja það að það var mikið spurt út í hvar íslensku bollurnar væru eiginlega…af hverju yfirmolar Íslands væru ekki að keppa um Evrópumeistaratitla?…Það sást að þótt nokkuð sterkir rússar og búlgarar væru á mótinu þá náðu þeir ekki hinum háa íslenska bollustandard í þyngdum í beygjum og deddi,en þeir detta inn öflugri smám saman í náinni framtíð enda eru þessar þjóðir nýjir meðlimir WPF . Mesta beygja mótsins var 340kg og mesta deddið var 320kg. Mikla athygli vakti samt búlgarinn Alexander  í 100kg opnum flokki, Hann hlaut gullið með tölurnar: 340-250-300-890kg (mesta total mótsins) Þessi búlgari var þó tiltölulega grannur og hávaxinn í flokknum og var útlitslega aðeins með góðar bífur en var hrikalega sterkur og harður og fór raunar mjög létt upp með 360 í beygjum sem var dæmd af 1-2. Hann keppti síðan daginn eftir líka á sunnudeginum og bætti sig þá í bekk í 252,5kg!

Alexander Kyurchev Búlgaríu- glæsilegur sigurvegari í 100kg opnum flokki tekur hér 280kg dedd í fyrstu tilraun með gamla stílnum-hann tók: 340-250-300-890kg


Magister Cat ásamt stórum rússa sem tók 210kg á bekknum á kjötinu

Árangur Íslendinga á EM varð þessi:

PÁVER: 75kg fl. öld (55-59 ára) 1.sæti Kári Elíson 190-115-220-525kg

Cat tók 180 og 190 í tveimur fyrstu beygjum nokkuð létt gildar með öllum hvítum og 200kg fór einnig örugglega upp en var dæmd af 1-2. Vegna krampa í mjöðmum í upphitun á bekknum var aðeins tekin ein örugg lyfta með 115kg,þannig að ekki var hægt að segja að ritstjórinn væri að græða mikið á sloppnum (Metal king nr.56 Ingvar) þar sem fyrir mótið var tekið 130 á kjötinu…Eftir að hafa verið alveg að andast eftir bekkinn þá var byrjunarþyngdin í deddinu lækkuð um 35kg og fyrst tekið 200kg og síðan heimsmet með 220kg nokkuð létt og 240kg fór einnig örugglega en var samt dæmt af 1-2 þar sem útrétting þótti ekki 100% góð. 525kg totalið  eftir 5 tíma keppni var svo einnig heimsmet í þessum aldursflokki.


Palli patrópáver beygjir…

PÁVER: 100kg fl.opinn fl.  3.sæti Páll Sigurðarsson 190-135-230-555kg.

Patrópáver stóð sig glettilega og þótt monolyftið væri aðeins að trufla hann eins og Magister áður. Palli  tók 175 létt í fyrstu beygjunni og síðan örugga með 190kg á þremur hvítum en klikkaði á 200kg í síðustu lyftu.en þá stóð Patró heldur þröngt þar sem eitthvað klikkaði að taka út úr monolyftunni. Bekkurinn var hraður og góður og allar lyftur vel léttar í seríunni: 115-125-135kg og virtist allavega 5kg vera inni….200kg dedd flaug upp í fyrstu og 220kg einnig létt í 2 tilraun en var dæmt af þar sem tærnar lyftust frá gólfi á meðan á lyftu stóð!..Samt var ákveðið að taka 230kg og fór það upp í svækjunni gild 3-0..Pallinn sló Ingvar alveg út í svita og þurfti að skipta um marga boli á meðan keppni stóð en keppnin hjá honum stóð í 5 og hálfan tíma.

Patrópáver deddar 230kg af öryggi

Ingvar ásamt hjálparhellunni Birgi Þorsteinssyni sem kallaður er Litli-Fúsi og býr í Amsterdam

BEKKPRESSA: 110kg fl. öld.45-49ára 1.sæti Ingvar Ingvarsson 260kg. (Heimsmet!)

Ringo búinn að vera í hrikalegum anda og hélt honum í hæstu hæðum allan tíman fyrir mót, í mótinu og eftir mót….Alltaf sást kappinn í molabol þar sem massinn blasti við mönnum og allsstaðar starði liðið á hann eins og hann væri marsbúi með stökkbreytta handleggi…Það hefur eflaust farið hrollur um Tony Brown heimsmethafa þegar hann mætti þessu íslenska fyrirbrigði í upphituninni því þótt Tony sé þokkalegasti moli þá minnkaði hann allur við hliðina á Ringo..Keppnin á milli þeirra var stórskemmtileg þar sem Tony barðist eins og hetja gegn ofureflinu og varð að játa sig sigraðan að lokum..Ingvar tók 240kg í fyrstu himinlétt en Tony tók forystuna með 245kg.fremur þungt..Ingvar fór þá í nýtt heimsmet með 253kg og fleygði því upp…Tony var í fullum og gír og með mikilli seiglu og hörku í hægri lyftu tók 255kg sem hefði verið heimsmet en það var dæmt af vegna tæprar útréttingar nokkuð réttilega. Í þriðju umferð klikkaði svo Tony á 255 á meðan Ingvar æddi í heimsmet með 260kg og tók það auðveldlega vel hratt og glæsilega!..Í 4 tilraun fór Ingvar svo upp með 270kg en það var dæmt af vegna mispressunar í lokin sem var nokkuð greinileg og lítið við því að segja þannig…Evrópumeistaratitill Ingvars með glæsibrag..sigur á heimsmeistara og heimsmethafa…Gerist ekki betra! -

MYNDBAND INGVAR HEIMSMET 260kg: HÉRNA

MYNDBAND TILRAUN VIÐ 270kg: HÉRNA

Hemmi formaður Metal ásamt erlendri valkyrju Angie Mc namara frá Írlandi sem deddaði 177,5kg  í 67,5kg flokki

BEKKPRESSA: 100kg fl. öld. 45-49 ára 1.sæti Hermann Haraldsson 195kg.

Hemmi formaður stóðst alþjóðlegt dómarapróf með flottri einkunn upp á 9,7  í tvo daga í röð áður en hann keppti. Hann er því fyrsti alþjóðadómari ÍKF METAL og óskum við honum til hamingju með það!…Hemmi sem á best 202,5kg í 100 en 205 í tíunni stefndi á allra tíma bætingu í bekknum..Hann tók í fyrstu 195kg vel létt..Eftir óvænta aðvörun um að hann héldi of gleitt um stöngina ,breytti hann gripinu en fór svo upp með 207,5kg bætinguna en því miður varð hún dæmd af 1-2 því rassinn var víst tæpur..gremjulegt en svona er þetta!..í þriðju klikkaði hann á sömu þyngd því hitinn og léttingin var farin að taka sinn toll. Hemmi  krækti samt í nokkuð óvænt gull með því að vinna helsta andstæðing sinn en sá varð hálf magnþrota í svækjunni.

BEKKPRESSA: 110kg fl. öld. 40-44 ára 1.sæti Gunnar F Rúnarsson 170kg.

Masterinn mættur í slaginn á sitt fyrsta alþjóðamót…170kg í fyrstu flaug upp en eitthvað dúaði stöngin á kassanum eins og um tvöfalt start væri að ræða og var lyftan dæmd af…önnur tilraun með sömu þyngd var þá tekin og núna var hún pottþétt…Magister ráðlagði næstu tilraun í 190 þótt 185 væri alveg raunhæft en undir áhrifum frá aðal aðstoðarmanni íslendingahópsins Gunnari Ólafssyni skemmujarli þá fór Masterinn í bjartsýniskast og lét melda 200kg…!…það varð svo 4cm lyfta frá kassa og reynsla stimpluð inn…

Gunnar master tekur 275kg í réttstöðu

RÉTTSTÖÐULYFTA: 110kg.fl.öld.40-44 ára 1.sæti Gunnar F Rúnarsson 275kg.

Masterinn var með sterkustu deddurum allra öldunga á mótinu óháð þyngdarflokki þannig að sigur hans í tíunni hérna var vel verðskuldaður. Fyrsta tilraun með 250 var hröð og skítlétt og 275kg í annarri var vel örugg en samt ljóst að ekki var mikið inni…Hann var greinilega upp á þyngd við bætingu..(persónulegt met 282,5kg)…290kg var síðan síðasta tilraunin…startið var ágætt en heldur mikið “stiff leggað” og fór stöngin upp að hnjám eða svo…Tvöfaldur Evrópusigur hjá Masternum var í höfn og fari hann á HM í Vegas verða örugglega meiri þyngdir á sveimi hjá honum!

Tveir helstu aðstoðarmennirnir á EM: Litli Fúsi og Gunnar  skemmujarl,

jarlinn kom til mótsins frá Danmörku með Ingimundi Borgnesing en þessir kappar allir eru fyrrverandi pávermenn

Comments 5 Comments »

Íslandsmót ÍKF METAL  í réttstöðulyftu 2009 fer  fram laugardaginn 18 júlí kl.13.00 á Eiðistorgi Seltjarnarnesi. Mótið er jafnframt svonefnt Guttormsmót þar sem keppt er í bekkpressu. Þeir sem keppa í báðum greinum keppa um verðlaunagripinn Guttormsnautið sem Ási flæðilurkur er nú handhafi að frá því í fyrra.

Skráning fyrir 12 júlí. Þar á að koma fram fæðingardagur og þyngdarflokkur og hvort viðkomandi ætli að keppa í báðum greinum.  Sendist til ritara Metal á netfangið: sirmagister@visir.is - Vigtun fer fram daginn áður - verður nánar auglýst síðar.

Stjórn ÍKF METAL

Comments No Comments »

Amsterdam- borgin þar sem stálið blífur!

Það styttist í ferðalag Metalmola til Hollands á Evrópumót EPC  sem er Evrópuarmur WPF alþjóðasambandsins. Keppendur Íslands á þessu móti eru eins og áður hefur komið fram þeir:

Kári Elíson 75kg fl.öldunga 55-60 ára  (kraftlyftingar)

Páll Sigurðarsson 100kg fl. opinn flokkur  (kraftlyftingar)

Hermann Haraldsson 100kg fl. öldunga 45-49 ára  (bekkpressa)

Ingvar Ingvarsson 110kg fl. öldunga 45-49 ára  (bekkpressa)

Gunnar F Rúnarsson 110kg fl. öldunga 40-44 ára ( réttstöðulyfta og bekkpressa)

SÍÐUSTU ÆFINGAMYNDBÖND:

Páll tekur bekkbætingu  í Latabæjarsloppnum 130kg: HÉR

Hemmi tekur 200kg  en rekst í stadífin á bekknum: HÉR

Gunni master rétt missir á bekk 195kg: HÉR og deddar 270kg léttilega: HÉR

Kári magister deddar 240kg: HÉR

Ingvar ringo bekkjast með 253kg: HÉR

Keppnin á EM fer fram á föstudag, laugardag og sunnudag.

Comments 1 Comment »

Stebbi stórskjóða -Sterkasti maður Íslands keppir á Vestfjarðavíking!

Vestfjarðavíkingurinn, keppni sterkustu manna landsins fer fram dagana 2 til 4 júlí og fer hún fram víðsvegar um Vestfirði á þessum þremur dögum.     Keppt verður á eftirtöldum stöðum:

Fimmtudagur 2 júlí

kl 14     Hólmavík          ( í Sundlauginni )

kl 18     Mjóifjörður                ( Heydalur )

Föstudagur 3 júlí

kl 12          Súðavík         ( Raggagarður )

kl 15       Suðureyri        ( á Sjöstjörnunni )

kl 18     Ísafjörður           ( á Silfurtorginu )

Laugardagur 4 júlí

kl 12  Bolungarvík  ( við Grunnskólann )

kl 16       Þingeyri              ( við Kirkjuna )

kl 17       Þingeyri        ( Víkinga svæðið )


Comments No Comments »

Nýtt merki Aflraunafélags Akureyrar


Norðlendingar héldu sína kraftakeppni í gær og gekk þar á ýmsu óvæntu og skemmtilegu þar sem m.a. tvær keppnisgreinarnar voru óframkvæmanlegar þegar allt kom til alls en Sigfús mótshaldari reddaði samt öllu í Dúddastíl… Keppninni lauk með sigri Skyrhöfðingjans en þetta er annað árið í röð sem hann vinnur Aflraunameistara Íslands keppnina. jón Þór Ásgrímsson og Úlfur Orri Pétursson mættu sterkir til leiks og tókst að setja Skyrann aftur fyrir í tveimur greinum þótt eigi tækist þeim að ógna heildarsigri Sigfúsar. Kraftaheimar óska kappanum til hamingju með sigurinn!

Skemmtileg skrif eru um keppnina á vefsíðu AFA og sem dæmi tökum við þetta með bessa leyfi orðrétt:

“Byrjað var hæfilega seint útá flugvelli vegna mikilla pælinga hjá fugvirkjum á svæðinu á því hvernig væri hægt að draga vélin áfram þar sem að hún er hönnuð til að vera dregin aftur á bak.
Taka má fram að aldrei komst í það að prófa þessa grein fyrir mótið og er þetta í annað skiptið sem reynt er að draga flugvél á íslandi í aflraunakeppni.fyrstu 3 keppendur komu vélinni ekki úr sporunum. Þannig að þá var ákveðið að breyta greininni yfir í hönd fyrir hönd á 25m en fyrir valinu var Ford F150 pick-up og var pallurinn fylltur af krökkum af svæðinu. Jón Þór vann þá grein en litlu mátti muna hjá Jóni Þóri og Sigfúsi”
“Næsta grein var hin Nýja Fingal Finger en hún var heldur ung í þetta skiptið þar sem að þetta er í fyrsta skipti sem hún hefur verið notuð á Íslandi í Aflraunakeppni En einginn keppendana náði að klára greinina fyrir en að fjórir keppendur réðust á hana og hentu henni yfir í ofur anda. En þessi grein byggist á því að taka 6m langt og 150kg þungt rör upp frá jörðinni uppí 90° og þar yfir þangað til rörið er komið í 180° “
-
Skyrhöfðinginn sigursæli
-
Aflraunameistari Íslands 2009 - ÚRSLIT:
  1. Sigfús Fossdal
  2. Úlfur Orri Pétursson
  3. Jón Þór Ásgrímsson
  4. Árni Freyr Stefánsson
  5. Hallgrímur Pálmi Stefánsson
-
FRÉTTAGREIN AFA ER: HÉRNA

Comments 3 Comments »

Kraftakeppnin um Aflraunameistara Íslands fer fram á Akureyri laugard.20 júní.  Byrjað er kl.12.00 út á flugvelli og kl.14.00 í miðbænum.Nokkrir miklir molar hafa helst úr lestinni vegna álags og meiðsla enda  verður þetta þriðja kraftakeppnin á klakanum á einni viku í miðri fjármálakreppu!  Hinn frægi páverkappi Sigfús Fossdal mótshaldari mun samt stilla upp þótt hann sé ekki í toppformi. Nokkrir efnilegir molar munu þarna vera með og lítur keppendalistinn svona út:

1 . Jón Þór Ásgrímsson
2. Sigfús Fossdal.
3. Úlfur  Orri Pétursson.
4. Árni freyr Stefánsson.
5. Hallgrímur Pálmi Stefánsson.

Greinanar verða:
Flugvéladráttur 25m á tíma
Super yoke ca 280kg 30m
Drumbalyfta 100kg á reps
Bændaganga 50m á tíma
Fingal finger á tíma….

Comments No Comments »

Stefán Sölvi Pétursson aflraunameistari

Þær fréttir voru að berast í hús að Stórskjóðan Stefán Sölvi hefði unnið kraftakeppnina um Sterkasta mann Íslands  2009 eftir harða keppni við ýmsa mola og þá sérstaklega fyrrverandi handhafa Kristinn boris sem aldrei gefur neitt eftir fyrr en í fulla hnefana. Heildarúrslit birtum við síðar en Kraftaheimar óska Stebba hrikalega til hamingju með að vinna þennan titil í fyrsta sinn og erum sannfærðir um titlarnir eiga eftir að verða fleiri á komandi árum!

Vefsíðan ironmind.com segir frá sigri Stórskjóðunnar: HÉRNA

Comments No Comments »

Ingvar Ingvarsson fagnar sigri á HM í bekkpressu öldunga í Vínarborg 2008

Undirbúningi Metalmola fyrir Evrópumótið í Amsterdam 26-28 júní er nú að ljúka með ágætum topplyftum. Í gær t.d. tók Palli Patrópáver 3 bætingar á bekknum: 125-130-135 allar með stoppi niðri en þó lyftist musinn aðeins með 135 enda þreytu farið að gæta sem eðlilegt er…Hemmi tók 200 og lét það nægja og Masterinn tók örugglega 185kg en rétt missti 195kg…

Ingvar ringo skrapp síðan til Akureyrar á slóðir Fjósans og tók vel á því…Fullt af toppliði var í Jötunheimum þegar Ingvar toppaði og voru þarna til aðstoðar m.a. Ingibjörg skyrfrú og Elvar Óskars. Rúnar fjósi sjálfur sá  síðan um að rétta á Ringo..Eftir að kappinn hafði tekið 235 fór hann í 253kg ..(sálfræðilegt því núgildandi Evrópu og heimsmet er 252,5kg í aldursflokki Ingvars 45-49 ára í 110kg flokki)…Þessi lyfta tókst með ágætum í hrikalega góðum anda og má sjá myndband: HÉRNA

Ingvar á fjórhjóli í glettilegum félagsskap Metalmola hjá Mótormax

Comments No Comments »

Stefán Sölvi Pétursson hinn alhliða kraftamaður - (ljósm. Jóhannes Omegakraftur)

Stebbi stórskjóða er nú byrjaður á fullu fyrir átök sumarsins og er með velmótaða áætlun fram á vetur….Kappinn varð í 4 sæti fyrir stuttu síðan á sterku kraftamóti í Noregi (Viking power challance 2009) sem kaninn  Travis Ortmayer vann en þeir þarna vestra eiga nú orðið helling af ótrúlega öflugum kraftamönnum.

Allar líkur eru á því að Stebbi muni keppa á Sterkasta manni Íslands hjá Dúdda Ferg dagana 16-17 júní en sigurvegarinn þar öðlast rétt til að keppa á World Strongest mótinu í ár. Síðan mun kappinn fara til Bretlandseyja og keppa þar á Hálandaleikum hjá hinum fræga kraftafrömuði og Íslandsvini Douglas Edmunds. Eftir það er möguleiki að Stebbi muni einnig taka þátt í öðrum kraftamótum í Evrópu. Í stuttu spjalli við fréttastofuna sagði kappinn að hann væri farinn að þrá bætingar í pávernum en það er liðið alltof langt frá því að hann deddaði 370kg….”Ég segi það svona til gamans að ég farinn að gæla við eitt pávermót fyrir jólin af því þetta er seinasta árið mitt í unglingaflokki og líka til að byggja upp meiri grunnstyrk í deddi og beygjum,” sagði Stebbi að lokum.

Vígaleg Stórskjóða

Comments 5 Comments »

Heimsmeistari í -140kg flokki á HM WPF í Vín 2008


Eitt mesta efni í páver á Íslandi hefur um árabil verið Borgarnesb0llan, Þorvaldur Ásberg Kristbergsson.  Nú loksins er hann farinn að ná árangri á heimsmælikvarða, en við væntum þess af honum að hann bæti sig miklu meira á næstunni og seti jafnvel heimsmet sem seint verði slegið.

————–
1./ VARSTU STERKUR Í BARNASKÓLA EÐA BARA BOLLA SEM PRIKIN GERÐU GRÍN AÐ?
Ég var nú bara bolla sem var gert grín af. Var samt alltaf hraustur miðað við aldur þegar ég var lítill.

————–
2./ ÁTTIRÐU ÞÉR EINHVERJAR FYRIRMYNDIR OG HETJUR ÞEGAR ÞÚ VARST GUTTI?
Hef alltaf verið mjög hrifinn af hetjunum í Íslendingasögunum.

————–
3./ HVERNIG STÓÐ Á ÞVÍ AÐ ÞÚ FÓRST Í PÁVER?
Byrjaði að fara í salinn og ætlaði að létta mig (sem er ekki búið að takast :) ) en sá að ég hafði alveg powerið svo ég setti mig í samband við Boris og hann kom mér af stað í þessu sporti.

————–
4./ HVAÐ VAR FYRSTA MÓTIÐ ÞITT OG HVAÐ TÓKSTU MIKIÐ?
Það var Íslandsmót unglinga og öldunga á selfossi og mig minnir að það hafi verið 2005
Tók 310 í hnébeygju 210 í bekk og 270 í réttstöðu. Klúðraði svo 300 og braut gólfið :) 790 í tótal.

————–
5./ HVAÐ FINNST ÆTTINGJUM ÞÍNUM UM PÁVER OG AFLRAUNIR? - HALDA ÞEIR EKKI AÐ ÞÚ SÉRT AÐ DREPA ÞIG Á ÞESSU KRAFTASTÚSSI?
Jú blessaður, maður heyrir það nánast á hverjum degi að þetta sé ekki hollt fyrir líkamann og svoleiðis bull frá þessu liði….. en hvað vita þau???? BARA HRÍSLUR :)

————–

Hófarnir á verðandi beygjukóngi


6./ NÚ HEFUR ÞÚ SÝNT FRÁBÆRA GETU OG HÆFILEIKA Í BEYGJUM, STEFNIR ÞÚ EKKI AÐ ÞVÍ AÐ VERÐA BEYGJUKÓNGUR KLAKANS Í NÁINNI FRAMTÍÐ OG ELTA SKYRANN ÞEGAR HANN VERÐUR BÚINN AÐ STÚTA ÁDÍ?
Já mér finnst beygjan vera skemmtilegasta greinin. Jú ég verð Beygjukóngur Íslands eftir smá tíma. Mér er alveg sama þótt að Fúsi verði á undan mér að taka metið af Audi því ég ætla að fara miklu hærra.

————–
7./ Á AÐ BÚA TIL FLEIRI KRAKKA Á ÁRINU?
Nei það er ekki á stefnuskránni núna. En það er stefna að fjölga bráðum.
————–

8./HVERNIG KYNNTISTU ÞINNI HEITTELSKUÐU?
Í Borgarnesi árið 2000. Vorum mjög góðir vinir allveg í 3 áður en við byrjuðum saman. Það var svolítið skrítið því að pabbi hennar var nefnilega verkstjórinn yfir mér þegar ég var að vinna á sumrin í byggingariðnaðinum.

————–
9./ Á EKKI AÐ REYNA AÐ VINNA BESTA AFREKIÐ Á EVRÓPUMÓTINU Í HOLLANDI Í ÁR?
Nei ekki í ár því að það eru ekki til miklir peningar til þess að fara að keppa þar. Fer til Vegas og svo til L.A í janúar. Er að safna fyrir þeim ferðum.

————–
10. ÆTLAR ÞÚ AÐ KEPPA EITTHVAÐ Í AFLRAUNUM MEÐ PÁVERNUM?
Nei það ætla ég ekki að gera… Mér finnst þetta samt vera skemmtileg íþrótt, en þar sem ég er með athyglisbrest á háu stigi þá er best fyrir mig að vera með fókusinn á powerinn bara.

————–

3 Hrikalegir, Bollan, Heisi og Fermeterinn



11./HVERNIG VAR AÐ FARA HINAR STÓRKOSTLEGU FERÐIR MEÐ METAL Í FYRRA,FYRST TIL KANADA OG SVO Á HM Í AUSTURRÍKI?
Eigum við að ræða það eitthvað hahahahaha…. Þetta var bara geggjað gaman og þessi hópur sem fór SNILLD. Þessar tvær ferðir munu aldrei gleymast.

————–
12.HVERNIG TILFINNING VAR ÞAÐ AÐ VERÐA HEIMSMEISTARI Í FYRSTU TILRAUN?
það var svona la..la… bara. Mér er alveg saman hvort að ég verði heimsmeistari eða ekki. Bara ef ég næ mínum markmiðum þá er ég ánægður.

————–
13./BORGARNES- HVERNIG STAÐUR ER ÞAÐ TIL AÐ BÚA Á FYRIR HEIMSMEISTARA?
Örugglega ágætur… En ég bý nú í Borgarfirðinum það er sko staðurinn. Í sveitinni er best að vera. Þögn og kyrrð og svo skemmir ekki að maður er með heitapott beint fyrir framan hurðina og hann er sko notaður í allskonar hahhahahahahaha

————–
14./HVERNIG KOM VIÐURNEFNIÐ BORGARNESBOLLAN TIL?..HVENÆR OG HVER FANN UPP Á ÞVÍ?
Boris kom nú með það… það kom nú bara því að ég átti heima í Borgarnesi og var/er Bolla :)

————–

15./ HVAÐ ER BESTA RÁÐ VARÐANDI ÆFINGAR SEM ÞÉR HEFUR VERIÐ GEFIÐ?
“Hættu að væla og vorkenna sjálfum þér og æfðu eins og maður”

————–

Heimsmeistarabeygja!

-

16./ NÚ ERTU ÞEKKTUR FYRIR AÐ RÍFA KJAFT, HEFURÐU LENT Í ÞVÍ AÐ SEGJA EITTHVAÐ Í HRIKALEGUM ANDA SEM ÞÚ HEFUR SÍÐAN DAUÐSÉÐ EFTIR?
Já það hefur nú komið fyrir. örugglega svona 5 sinnum í viku eða eitthvað :) Ég er þekktur fyrir að segja hlutina áður en ég hugsa. Spyrjið bara strákana sem ég er alltaf með þeir fullvissa ykkur um það.

—————
17./ ERTU MEÐ EINHVERJA LEYNIRÁÐGJAFA SEM HJÁLPA ÞÉR AÐ VELJA RÉTTAR ÆFINGAR Á BÆTINGABRAUTINNI?
Ekki núna en ég les mikið af því sem þeir bestu eru að gera og prófa það. Sumt virkar ekki neitt en sumt þrusu virkar.

—————-
18./ HVAÐA INNLENDUM OG ERLENDUM PÁVERMANNI BERÐU MESTA VIRÐINGU FYRIR?
Innlendur eru nokkrir sko. Auðunn og allar þessu gömlu kempur sem voru hrikalegir upp frá 80 til svona 95. Þetta eru gaurarnir sem voru virkilega sterkir á kjötinu þar sem að búnaðurinn voru bara eins og teygjubindi eða eitthvað. Svo eru það nokkrir erlendir sem maður nennir ekki að telja upp hérna.

—————-
19./ HVAÐ HJÁLPAR ÞÉR MEST AÐ KOMAST Í ANDA FYRIR ÆFINGAR?
Youporn.com nei ég er nú bara að djóka… Það er bara að vera búinn að hugsa svona þorran af því hvað þú ætlar að gera á æfingunni og svo fókusera á það og sterkur kaffi bolli þá er Bollan til í slaginn.

—————-
20./ ERU HAMBORGARARNIR ÚR BAULUNNI AÐ GEFA EITTHVAÐ Í TOTALIÐ?
Nei get nú ekki sagt það. Borða voða lítið af þeim en sá það fyrir HM að Kóko mjólk, kleinur og ein og ein pylsa það er að gefa :)

—————-
21.HVER VERÐUR NÆSTI KLAKVERJI TIL AÐ DEDDA 400kg?
PalliPáll eða Stórskjóðan

Bollan að spóka sig í Kanada


Kraftaheimar þakka Bollunni fyrir viðtalið og vona að hann drífi sig sem fyrst í 1100kg total og 1000punda beygju!

Comments 10 Comments »

Páll Sigurðarsson á jafnri uppleið fyrir EM

Máudagsbekkurinn hjá Metalmolum í Þrekhúsinu gekk nú svona og svona…Hemmi formaður lenti í smávanda með sloppinn en slapp með skrekkinn með 200kg en verður bara betri næst…Masterinn var líka fremur dauflegur eftir marga toppa á undanförnum vikum og lét 185kg nægja og er nú að hugsa um deddtoppinn á morgun föstudag…

Palli Patró kom á æfingu beint úr bílnum eftir hrikalega keyrslu að vestan en þessi ofurhressi strákur tók þátt í róðrakeppni á sjómannadeginum á Patreksfirði daginn fyrir æfinguna. Hann kvartaði ekkert yfir þreytu og mætti í nýjum slopp frá heildversluninni Medico en Einar eigandi og súpersölumaður hafði mælt Palla allan nákvæmlega út…Palli byrjaði á því að jafna sitt besta með fremur þungri 120kg lyftu…þá var sett á stöngina heldur minni bæting en til hafði staðið en bæting samt: 122,5kg og það fór einnig upp…Yfirrréttari á bekknum hjá Palla var Frikki fríski eins og sjá má á myndbandinu.

Myndband með þessum tveimur lyftum Palla koma: HÉRNA

Comments No Comments »

Löggan á Blönduósi hvíldi sig frá stöðumælasektum í nokkra tíma….

Ingvar Ingvarsson heimsmeistari ÍKF METAL  á bekk er núna að vinna á Skagaströnd við að rífa eitthvað járnarusl niður fyrir Hringrás og keyrði í kvöld upp á Blöndós til að taka á því….Í gyminu þar tók á móti honum Villi ketill, kanslarabróðir og lögga sem er með sterkari mönnum norðanlands. Hafði Ketillinn fjórar fræknar löggur með sér til að aðstoða Ingvar á bekknum…Löggujaxlar þessir höfðu og allir heyrt af bekkpressukappanum og vildu ólmir sjá hann fást við þyngdir….

Ingvar ringo í glettilegu formi

Það kom strax hrikalegur andi yfir gymið þegar Ingvar henti upp hverri þyngdinni á fætur annarri…Löggurnar sem stóðu við titruðu af spenningi þegar Ingvar nálgaðist topp dagsins…240kg…skítlétt!…Og með góðri réttingu frá Eyjólfi krókódíl frá Akureyri sem einnig kom þarna að, flaug upp.250kg!…Myndbandið klikkaði að sinni en Ringo lofar 260 áður en hann fer utan til keppni á EM þar sem hann hyggst verða Evrópumeistari öldunga og taka metið í leiðinni sem er 252,5kg…það er ekki ofmælt að segja að þessi heimsókn Ingvars til Blönduóss hafi kynt vel undir áhuga sterkra manna þar í byggð til að taka á því í guðsgreininni….!

Comments 8 Comments »

Palli fermeter er einn af þeim öflugri  sem keppa á Kraftavíkingnum

Aflraunakeppnin um titilinn Kraftavíkingurinn 2009 hefst kl.14.00 núna á laugardaginn 13 júní.  Keppnistaðurinn við Fjörukrána í Hafnarfirði, Strandgötu 55 þar sem margir hafa fjöruna sopið og hildir verið háðir.

Keppnisgreinar eru: Réttstöðulyfta, bóndaganga, steinahleðsla og pressur yfir haus með einhverju hrikalega  þungu drasli…

Keppendalistinn lítur þannig út en nokkrir nýmolar  munu þarna  jómfrúast í aflraunum:

Páll Logason “fermeter”

Úlfur Orri Pétursson “úlfsskjóða)

Árni Freyr Gestsson

Árni Freyr Stefánsson

Jakob Egilsson

Andri Örn Jakobsson

Comments No Comments »

Sigfús Fossdal á góðum degi hjá ÍKF METAL….

Það gekk ekki vel hjá Skyrhöfðingjanum á EM hjá WPC sambandinu í dag…Fyrirfram var vitað að Fúsi væri ekki í toppformi en það var mikil pressa á hann að keppa þar sem hann er auðvitað frægur kappi í páver með stóra titla og handhafi Metal umboðsins en eigendur Metal í Finnlandi komu að allri framkvæmd mótsins en umgjörð þess var til fyrirmyndar.

Sigfús gerði 360 og 370 ógilt í fyrstu tveimur beygjunum en fékk 370kg gilt í þriðju…Hann tók 310 örugglega í fyrstu tilraun á bekk og fór síðan tvisvar upp með 322,5kg en þær tilraunir voru báðar dæmdar af….slæmt dagsform líka sem átti þó eftir að versna…310kg í réttstöðunni var byrjunarþyngd sem hljómar “hlýtur að fara” en sú þyngd fór þó ekki upp fyrr en í þriðju tilraun en þá var hún dæmd af…réttilega, sagði Skyri drullusvekktur og þreyttur í smá spjalli við fréttastofuna. Stöngin hossaðist eitthvað upp í lokin þar sem allt púður var þrotið. Það kemur dagur eftir þennan dag og mót eftir þetta mót og ef Sigfús ofgerir sér ekki í aflraunum í sumar ætti hann að geta náð sér verulega á strik hjá ÍKF METAL á heimsmeistaramótinu í Las Vegas í nóvember…Þar skal kappinn verja heimsmeistaratitilinn með stæl….ekkert múður með það! - Áfram Skyrfús!

Comments 2 Comments »

Gunnar Freyr masterast á WPC móti í Smáralind fyrir nokkrum árum

Tveir Metalmolar sem eru á leið til Amsterdam eftir fáar vikur tóku vel á því á föstudagsæfingunni….Gunni master tók sitt þriðja þunga dedd á þremur vikum og þótt hann segðist ekki vera vel upplagður þá togaði kappinn nokkuð vel upp 260×3! - Hann tók síðan nokkur sett af palli á eftir og er allur hinn sprækasti.

Palli Patrópáver tók hinsvegar beygjur og var í annað skipti að prófa glænýju  stálbróina sem hann keypti hjá Medico í Kópavogi sem er frábært fyrirtæki með allan páverútbúnað og heilsuvörur.  Beygjubæting var á dagskrá hjá Patró og tók hann nokkuð vel 190 og lét það nægja þar sem aðeins vika er í réttstöðutoppinn…Myndband af Masternum með 260 í deddino og Palla með 180 og 190 í beygjum er: HÉRNA - (Sjáið byssurnar á Balda bekk í aukahlutverki í þessu myndskeiði.)

Comments No Comments »

Ingibjörg Óladóttir Evrópumeistari hjá tveimur páversamböndum!

Skyrhjónin þau Sigfús Fossdal og Ingibjörg Óladóttir eru nú stödd í bænum Mikkeli í Finnlandi þar sem Evrópumót

WPC sambandsins fer nú fram.

Ingibjörg keppti í súper kvenna í dag og sigraði þar á miklum bætingum….Daman tók aldeilis frábæra beygju með nýtt Evrópumet 205kg! - Þetta er mesta þyngd sem íslensk kona hefur lyft í þessari grein! - Var mikill andi í áhorfendum þegar þeir sáu þessa íslensku skyrfrú taka á stálinu..Hún rétt missti síðan 215kg!..Í bekknum fór 107,5kg nokkuð létt og einnig fór upp Evrópumetstilraun með 115,5kg en því miður varð það dæmt af.  Réttstaðan fór þannig að opnunin með 180 var skítlétt og síðan kom örugg lyfta með 193kg Evrópumet en í þriðju var reynt við 200kg múrinn en það klikkaði naumlega þar sem aðeins vantaði á útréttingu…En þetta á eftir að detta upp í Las Vegas á HM hjá WPF….Skyrfrúin tók því  505,5kg  í samanlögðu sem er Evrópumet hjá WPC. - GLETTILEGT!….TIL HAMINGJU INGIBJÖRG!

Skyrhöfðinginn keppir síðan í súper karla á sunnudag.  Enda þótt Sigfús hafi ekki getað undirbúið sig 100% fyrir þetta mót megum við búast við góðum tölum hjá kappanum eins og venjulega!…Meira síðar!

Comments 11 Comments »

Hermann Haraldsson hinn öflugi formaður ÍKF Metal

Mánudagsbekkur Metalmolanna sem keppa fyrir Ísland á EM var tekinn í Stevegym og var heldur betur stuð á mannskapnum. Hemmi formaður tók sína fyrstu sloppaæfingu og endaði á því að taka tvö sett nokkuð létt með 200kg en fyrri lyftan sem var ekki eins góð þar sem stöngin komst ekki alveg niður á kassa er á myndbandi: HÉRNA

Ingvar Ingvarsson reyklaus og rosalegur….

Ingvar ringo vill ekki sjá neinn búkkabekk og setur sér sín eigin takmörk með alvörubekk á kjötinu og nær þeim síðan…Takmark hans fyrir EM var að taka 220kg á kjötinu og það gerði hann á þessari æfingu þótt lyftan væri helþung en myndband af henni kemur: HÉRNA

þegar Ringo var búinn með kjötbekkinn fór kappinn í slopp og tók þar lyftur með 180-210-230 og 240kg - endalaust þrek hjá kallinum!  Síðasta lyftan með 240kg var að vísu ekki með stoppi niðri en himinlétt hentist hún upp..Myndband: HÉRNA

Masterinn hélt áfram sinni uppsveiflu en Gunnar Freyr er sá sem að líkindum mun koma mest á óvart úti í Amsterdam. Hann tók fína lyftu með 190kg en þetta var fyrsta topplyftan þar sem hann tekur stopp niðri.  Myndband: HÉRNA

Palli Patrópáver tók sína fyrstu sloppaæfingu og fór upp með allar þyngdir nokkuð öruggt en ferill stangarinnar er smám saman að lagast og verða öruggari með hverri æfingu. Eftir að hafa tekið bætingu með 115kg tók hann glettilega lyftu með 120kg með fínu stoppi en því miður klikkaði myndataka af þessari lyftu en vonandi verður næsta bæting Palla tekin upp…

Comments 1 Comment »

Evrópumótið EPC er í Amsterdam 26-28 júní

Það voru fjölmargir sem mættu í SteveGym í gær til að taka á því í réttstöðunni. Myndaðist hálfgerð biðröð 10 manna eða svo fyrir hvert sett…Þrír Evrópumótsfarar tóku vel á því og var Gunnar Freyr master frískastur þegar hann repsaði 250 skítlétt en Gunni á góða möguleika úti í deddinu í 110kg flokki yngstu öldunga 40-44 ára og ætti að ná titli með 270-290kg en þær þyngdir eru ekkert mál fyrir kappann eins og hann lyftir núna. 250kg settið er á myndbandi: HÉRNA

Kári magister  í úða Niagrafossa, en núna lenti hann í mótvindi með 250kg  í réttstöðu..

Ritstjórinn hefur verið að togna á nokkrum stöðum undanfarið auk annarra ótilgreindra veikinda sem hafa gert það að verkum að hann hefur lést um mörg kíló úr 80kg oní 76,5kg með með tilheyrandi máttleysi. Hann skrölti þó í gær í deddseríuna: 210×2 230×1 og 250×1..síðasta lyftan var klettþung og kláraðist ekki fullkomlega. Þá lyftu má sjá á myndbandi: HÉRNA

Á milli 140 - 150 keppendur eru skráðir á Evrópumótið en þar keppa einnig unglingar og konur.  Á eftirfarandi link þar sem stendur paticipiants EC 2009 má sjá keppendalistann. HÉRNA

Palli Patrópáver,hinn athyglisverði nýliði  verður eini fulltrúi ungu kynslóðarinnar á Íslandi á Evrópumótinu og er nú að stíga upp úr þreytutímabili mikilla puðæfinga og tók 220 repsabætinguí deddinu en myndband af því setti kemur: HÉRNA

Comments No Comments »

Aflraunafélag Akureyrar stefnir að halda sitt annað mót núna 20 júni. og er þetta gamalt mót sem við erum búnir að vekja aftur upp.
Aflraunameistarinn var haldinn síðast að mig minnir 1989. en var vakin upp í fyrra (2008) af Magnús Ver Magnússyni og formanni A.F.A Sigfús Fossdal .
Er nú A.F.A. búnir að taka við mótinu og verður það haldið einsog áður sagði 20 júni sem blandast saman við bíladaga á Akureyri. Mótið Byrjar ca kl 12. og verður haldið niðri miðbæ og útá flugvellinum á Akureyri.

Greinarnar sem verða eru:

Flugvéla dráttur
Bóndaganga
Drumbalyfta
Uxa ganga

Þetta eru greinarnar sem eru ákveðnar en á mótinu verða 5-8 greinar
Contact Info
Email:
Website:
http://www.aflraunir.net
Location: Akureyri

Einn af molunum frá Drumbalyftu Íslands sem einnig fór fram á Akureyri

Comments 1 Comment »

Ingvar “ringo” Ingvarsson bekkjast á…

Það var hörkuandi sem sveif yfir vötnunum á bekkæfingu mánudagsins í Þrekhúsinu í Vesturbæ Reykjavíkur…Heimsmeistari öldunga á bekk frá því í Austurríki í fyrra, Ingvar ringo er á miklum skriði.  Hann er enda staðráðinn í því að ná aftur heimsmeti sínu á bekknum sem var 245,5kg í 110kg flokki öldunga 45-49 ára en bretinn Tony Brown bætti það núna í apríl í 252,5kg og er það því gildandi Evrópumet einnig. Það gæti orðið skemmtilegt einvígi á milli þessara tveggja kappa mæti Tony til leiks á Evrópumótið í Amsterdam. Ringo á eftir að sloppast en hann tók á æfingunni 215kg á kjötinu en myndband af lyftunni kemur: HÉRNA

Það voru ýmsir  Metalmolar sem voru þarna í átökum eins og t.d. Flosi spider sem tók létt 165 af búkka og Hemmi formaður sem stöðugt er öruggur með að repsa þannig 170. Sleifurinn er í “off season” formi að taka áttur á bekknum og Frikki fríski sem er að massa sig upp í 90 henti upp 140kg á kjötinu. Palli Patrópáver og Magister Cat höfðu fremur hægt um sig þótt hinn síðarnefndi tæki sjúkrabætingu á bekknum frá uppskurðinum 2008. Evrópumótsfarinn Gunnar master tók fína seríu af búkka með: 170-190-200 og á eftir því niður á kassa með 185kg en myndband af þeirri lyftu má sjá: HÉRNA

Comments 4 Comments »

Arnar Már Jónsson - Loggurinn óviðjafnanlegi

Hinn víðkunni kraftafrömuður Arnar loggur hefur nú sagt af sér sem forseti páverfélagsins WPC Ísland. Við forsetaembættinu tekur ekki ófrægari kappi en Magnús Ver Magnússon sem nýlega hefur opnað gym og er líklega sestur í helgan stein keppnislega og hefur því meiri tíma til félagsstarfa osfrv.

Magnús Ver Magnússon

Fráfarandi forseti Arnar Már skilar af sér ágætu búi hjá   WPC  en félagið hefur þegar haldið 2  mót á árinu en Loggurinn hefur í nógu að snúast sem einn helsti krafta og pávermálaráðherra hjá Íþróttasambandi fatlaðra og ætlar að einbeita sér að því ásamt ýmsum öðrum mikilvægum starfa. Kraftaheimar óskar Loggnum velgengni í sínum málum sem og Verinu í forsetaembættinu….

Comments No Comments »

Gunnar Freyr Rúnarsson dottinn í fíling

Það var vel mætt á æfingu dagsins í Steve Gym. Mikla athygli manna vakti endurkoma Mastersins sem hefur haft gymið í frysti um nokkurra ára skeið. Kappinn var þrælhress enda á leið á EM  í páver þar sem hann keppir í bekk og deddi í Hollandi í næsta mánuði. Gunni repsaði 240kg í deddinu og er myndband af því: HÉRNA

Magister er einnig að komast í betra form en um margra ára skeið og tók örugga beygju án stáls með 190kg: HÉRNA

Comments 4 Comments »

Ringo, Hemmi og Magister

Það var hörku bekkæfing í Þrekhúsinu í gær og mættu þar allir væntanlegir EM farar til Hollands…Sumir voru geysifrískir en aðrir ekki…Ingvar ringo setti sig í fyrsta gír með lappirnar upp á bekknum og tók þar takmarkið á kjötinu 200kg og þótt lyftan væri ekki með stoppi var hún býsna örugg en Masterinn sem var sjálfur yfirgengilega hress mætti með kvikmyndavél og myndaði þessa lyftu Ingvars sem kemur: HÉRNA

Gunnar Freyr master hefur nú í nokkra mánuði verið að drattast með smáþyngdir í andlausum æfingastöðvum en er nú að taka sér tak með því að mæta í Þrekhúsið og á nú bara Steve Gym eftir til að ná deddinu upp…Kappinn var í roknastuði á bekknum og sloppaður henti hann  skítlétt upp seríunni: 160-170-180kg allt hratt og frískt. 180kg lyftuna má sjá: HÉRNA

Hemmi tók að mestu búkkabekk upp í 170kg nokkur reps en þeir  Patrópáver og Magister voru báðir helþreyttir og tóku létt á því en bæta það upp fljótlega….

Comments No Comments »

Þorvaldur Kristbergsson

Líflegt viðtal við Borgarnesbolluna er komið í hús og verður sett inn á vefinn eftir 3-4 daga en ritstjórinn er í miklum önnum núna hvað varðar páver æfingar og vinnu og er í miðri næturvaktarsyrpu sem lýkur á fimmtudag….Reyndar fer kallinn þá í sumarfrí fram yfir Evrópumót og munu þá þyngdir og skrif aukast verulega frá því sem nú er….

Comments 1 Comment »

Palli Patrópáver

Stutt yfirlit yfir æfingu dagsins í Steve Gym…Palli Patrópáver beygði bætingu með 180 án stáls nokkuð öruggt en hann hafði fyrr í vikunni tekið bætingaseríu á bekk á kjötinu með 100×4 105×3 og 110×1…Baldvin bekkur tók 170 í þröngum bekk en hann hefur verið að taka þessa þyngd þrjú reps undanfarið með venjulegu gripi…Magister beygði 180 án vanræða og deddaði síðan 240 af upphækkun vel öruggt og stefnir á gott dedd Í Hollandi á EM…Evrópu og heimsmet hjá WPF eru skráð sér og eru sum Evrópumetin því jafnvel betri en heimsmetin. Þannig er Evrópumet öldunga í aldursflokki Magisters 265 í 82,5 en heimsmetið aðeins 250…(Þetta verður lagfært!)

Comments No Comments »